Morgunblaðið - 22.02.2020, Síða 44

Morgunblaðið - 22.02.2020, Síða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er spenna, drama og mjög gaman – blanda sem mér finnst allt- af svo skemmtileg,“ segir Ágústa Skúladóttir, leikstjóri og höfundur leikgerðar Gosa, leiksýningar sem verður frumsýnd á Litla sviði Borgar- leikhússins á morgun, sunnu- dag, klukkan 13. Gosi er svo sannarlega eitt ástsælasta æv- intýri síðustu ald- ar en sögurnar um spýtustrákinn knáa tóku að renna úr penna ítalska höfund- arins Carlo Collodi upp úr 1880. Ágústa er margreyndur leikstjóri og höfundur leikgerða barna- og ævin- týrasýninga af ýmsu tagi, og ákvað við gerð sinnar leikgerðar að horfa fram hjá teiknimynd Disney frá 1940 og leita beint í frumgerð Collodis. Ásamt Ágústu eru Karl Ágúst Úlfsson og leikhópurinn höfundar leikgerðarinnar og semur Karl Ágúst jafnframt söngtexta. Tónlist semja þeir Eiríkur Stephensen og Eyvindur Karlsson, og flytja hana á sviðinu ásamt leikurunum, þeim Haraldi Ara Stefánssyni, sem leikur Gosa, og Halldóri Gylfasyni og Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur sem fara með mörg hlutverk. Þegar Ágústu var falið í vor sem leið að búa til sýningu um Gosa, þá velti hún fyrir sér hvaða leið væri best að fara. Ramminn var gefinn: 70 mínútna sýning fyrir börn frá fjögurra aldri og upp úr, sem ætti að vera aðgengileg fyrir alla aldurs- hópa, með þremur leikurum og tveimur hljóðfæraleikurum. „Mig langaði að vinna með fína ómengaða þýðingu af upphaflegu sögunni um Gosa, og færa hana úr bókmenntum í leikmenntir. Þannig hef ég unnið áður og notið þess, meðal annars við að skapa sýningar úr ævintýrum H.C. Andersens- og Grimmsævintýrum,“ segir hún. „Hreint ótrúleg ævintýri“ „Ég var svo heppin að rata á þýð- ingu meistarans Þorsteins Thor- arensen á upprunalegu sögunni, Spýtustrákurinn Gosi, sem Fjölvi gaf út árið 1987, en tekið er fram að sagan sé birt þar óstytt, allir 36 kafl- arnir, og þýdd af frummálinu. Þar var komin frábær uppspretta fyrir sýningu,“ segir Ágústa. Auðheyrilega er Ágústa mjög hrifin af sögunni og lifir sig inn í hana. „Í þessum 36 köflum eru hreint ótrúleg ævintýri sem henda Gosa og þau verða sífellt kostulegri, en líka hryllilegri þegar líður á. Það var auðvitað ekki hægt að fella allar sögurnar inn í 70 mínútna sýningu, sem í þeim sem við tökum fyrir er ég trú upprunaverki Collodis, þar sem trédrumburinn lendir með yfir- náttúrulegum hætti inni á gólf hjá meistara Kirsi sem ætlar að búa til úr honum borðfót. En þegar hann ætlar að höggva í drumbinn þá berst frá honum rödd sem biður sér vægð- ar. Kirsi verður skelfingu lostinn og feginn að losna við drumbinn þegar Jafet smiður kemur inn og vill fá kubb að smíða sér úr spýtustrák sem á að skylmast og fara flikk-flakk og vinna fyrir honum í ellinni. Jafet sker því úr drumbnum þennan stór- kostlega dreng, Gosa.“ Hvað skemmtigildi sagnanna um Gosa varðar segir Ágústa það ekkert gefa Grimmsævintýrum eftir. „Það er mikið sprell og læti á sviðinu og svo er þetta söngleikur,“ segir hún. „Fljótlega eftir að ég byrjaði að móta verkið fékk ég til liðs við okkur tónlistarmennina Eyvind og Eirík sem eru líka á sviðinu og spila á svona fjörutíu hljóðfæri, sem, leik- ararnir grípa líka stundum í, auk þess sem tónlistarmennirnir stökkva líka inn í nokkrar persónur. Sýn- ingin er mjög sjónræn, konfekt fyrir augu og eyru,“ lofar Ágústa. Þegar ég hafði ákveðið hvaða sög- ur færu inn í leikgerðina ákvað ég líka hvaða senur yrðu söngatriði og Karl Ágúst fór að semja söngtext- ana og tónlistarmennirnir lögin. Tal- senurnar eru alls ekki langar og við brestum nokkuð oft í söng!“ Í lokinn segir Ágústa það algjöran draum að fá að skapa leikgerð eftir ævintýri eins og Gosa. „Í þeirri vinnu vel ég sögurnar og steypi í verk, með þeim viðbótum sem þarf. Það er mjög skemmtileg leikhús- aðferð. Líka að setja inn lög og stilla allt saman út frá tilfinningum. Það er alltaf jafn gaman að þessu.“ Og þrátt fyrir að Gosi lendi í ýms- um ævintýrum og sumum ógnvekj- andi þá lofar Ágústa því að sagan endi „svakalega vel“. „Konfekt fyrir augu og eyru“  Gosi frumsýndur í Borgarleikhúsinu  Ný leikgerð eftir Ágústu Skúladóttur leikstjóra, Karl Ágúst Úlfsson og leikhópinn  „Spenna, drama og mjög gaman“ Ljósmyndun/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson Ævintýri Gosi með hinum brögðóttu ref og ketti. „Það er mikið sprell og læti á sviðinu,“ segir leikstjórinn. Ágústa Skúladóttir S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S Rínargullið í dagbókum Cos- imu nefnist fyrir- lestur sem Árni Blandon heldur hjá Richard Wagner-félaginu í dag kl. 13 í Hannesarholti. Eiginkona Wagn- ers, Cosima, sem var dóttir Franz Liszt, hélt dag- bækur um líf þeirra hjóna og sam- töl og hafa dagbækurnar því mikið heimildargildi, segir í tilkynningu og að í tengslum við myndbands- sýningu á Rínargullinu, fjalli Árni um það sem fram kemur um óper- una í dagbókunum og hefst sýn- ingin að loknum fyrirlestri. Sýnt verður úr hundrað ára Hringnum, uppfærslu Frakkanna Patrice Chereau og Pierre Boulez I í Bayreuth 1976. Wagner-félagið á Íslandi fagnar 25 ára afmæli í ár en það var stofnað í kjölfarið á styttri útgáfu á Niflungahringnum, eins kvölds sýningu, sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð 1994. Rínargullið í dag- bókum Cosimu Richard Wagner Barnaóperan Konan og sels- hamurinn, eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, verður flutt í Salnum í Kópa- vogi í dag kl. 13 en í vikunni hafa 1.800 börn í 1.- 3. bekk notið sýn- ingarinnar. Texti hennar er eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur og byggir verkið á þekktri íslenskri þjóðsögu um togstreitu móður sem þarf að velja á milli „sjö barna á landi og sjö í sjó“. Flytjendur eru Björk Níelsdóttir sópran, Pétur Oddbergur Heimisson baritón, Skólakór Kársness undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttir, Matt- hildur Anna Gísladóttir píanóleik- ari, Guðni Franzson klarinettuleik- ari, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleik- ari og Sigurður Halldórsson selló- leikari. Um leikstjórn sjá Helgi Grímur Hermannsson og Tómas Helgi Baldursson. Konan og selsham- urinn í Salnum Björk Níelsdóttir Stórsveit Reykjavíkur heldur tón- leika í Silfurbergi í Hörpu á morg- un, sunnudag, kl. 20. Stjórnandi og höfundur tónlistar á tónleikunum er þýska tónlistarkonan Maria Baptist, sem leiðir tvær stórsveitir í Berlín og er mjög virkur þátttak- andi í tónlistarlífi Þýskalands, að því er fram kemur í tilkynningu, en hún er einnig prófessor í tón- smíðum við Hanns Eisler-tónlist- arháskólann í Berlín. Baptist sækir stórsveitina nú heim í þriðja sinn og flutt verður úrval glænýrrar og spennandi tónlistar eftir hana. Mið- ar eru seldir í miðasölu Hörpu og á harpa.is Baptist leiðir Stórsveit Reykjavíkur Stórsveitarstjóri Baptist stýrir Stórsveit Reykjavíkur í flutningi á verkum hennar. Vinnustofan Plöntugarðurinn verð- ur opnuð í Ásmundarsal við Freyju- götu klukkan 15 í dag, laugardag, en að henni stendur listamaðurinn Halldór Eldjárn. Gestir munu upp- lifa stefnumót listar, tækni og hönnunar. Halldór mun á vinnustofunni kynna „glænýja uppfinningu. Vél, sem hegðar sér og vex eins og hengiplanta,“ skrifar hann. „Hún er útbúin örtölvu, strimlaprentara og ljósnema, en í stað þess að þarfn- ast aðhalds, vökvunar og moldar gengur hún fyrir rafmagni og er stjórnað af ljósi.“ Á hverjum degi prentast nokkrir sentimetrar af plöntunni á strimilinn, löturhægt. Fjöldi laufblaða hverju sinni er háð- ur ljósmagni því sem skín á vélina. Vinnustofan Plöntugarðurinn verður opin til 29. mars og er hluti af HönnunarMars 2020. Listamaðurinn Halldór Eldjárn. Plöntugarður Hall- dórs í Ásmundarsal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.