Morgunblaðið - 22.02.2020, Síða 48
SÆKTU APPIÐ
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu appið frítt
á AppStore
eða Google Play
Hreyfils
appið
Pantaðu
leigubíl
á einfaldan
og þægilegan
hátt
Með Hreyfils appinu er fljótlegt
og einfalt að panta leigubíl.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð
þegar bíllinn er mættur á staðinn.
Þú getur fylgst með hvar bíllinn er
staddur hverju sinni.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis
getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Hreyfils-appið er ókeypis.
Tríó Sírajón kemur fram í tónleika-
röðinni Sígildum sunnudögum í
Norðurljósasal Hörpu á morgun,
sunnudag 23. febrúar, kl. 16. Tríóið
skipa Laufey Sigurðardóttir fiðlu-
leikari, Einar Jóhannesson klarín-
ettuleikari og Anna Áslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari. Að
þessu sinni mun tríóið leika verk
eftir Shostakovitsj, Kachaturian,
Poulenc, Arutiunian, Pál Pamp-
ichler Pálsson og Atla Heimi
Sveinsson.
Sírajón á sunnudegi
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 53. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Friðrik Ingi Rúnarsson körfubolta-
þjálfari segir að það hafi verið
ánægjulegt að sjá leikmenn með
litla landsliðsreynslu standa sig vel
gegn Kósóvó á fimmtudags-
kvöldið, enda þótt leikurinn hafi
tapast. Friðrik er bjartsýnn á að
íslenska liðið nái að leggja Sló-
vakíu að velli í Laugardalshöllinni
annað kvöld. »41
Bjartsýnn á sigur gegn
Slóvakíu í Höllinni
Daníel Magnússon myndlistar-
maður opnar sýninguna Transit í
Hverfisgalleríi í dag kl. 16. Þar sýnir
hann verk frá árunum 2010 til
2019. Í þeim einbeitir hann sér að
því sem hann telur nægjanlega
merkingarbært. „Það mætti líkja
þessum myndum við slagverksdyn
sem hefur stöðvast. Ekki það að ég
hafi einhverja sérstaka
þekkingu á þeim hljóð-
færum aðra en þá sem
hlustandi á tónlist,“
skrifar Daníel m.a.
um verkin og að
hann vilji að þau
orki eins og
trommutaktur á
kviðinn frekar
en höfuðið.
Trommutaktur á kvið-
inn frekar en höfuðið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjórða sýning gamanleiksins Allir á
svið í uppsetningu leikdeildar Ung-
mennafélags Biskupstungna hefst
klukkan átta í Aratungu í kvöld, en
næstu sýningar verða síðan á sama
tíma á morgun og miðvikudag og svo
um næstu helgi. „Við höfum fengið
frábærar viðtökur enda er þetta
þrælfyndið og skemmtilegt stykki,“
segir Aðalheiður Helgadóttir, for-
maður leikdeildarinnar og einn níu
leikenda.
Löng hefð er fyrir leiksýningum
hjá leikdeildinni og hefur hún sett
upp verk á um tveggja ára fresti frá
því félagsheimilið Aratunga var tekið
í notkun 1961. Æfingar vegna núver-
andi uppsetningar hófust undir stjórn
Ólafs Jens Sigurðssonar leikstjóra í
ársbyrjun og frumsýning var föstu-
daginn 14. febrúar. „Við vorum með
góðan leikstjóra í níu leikritum, en
fengum núna Selfyssinginn Ólaf til
liðs við okkur og það leikur allt í
höndunum á honum, hann er svo
lausnamiðaður og flottur,“ segir Að-
alheiður.
Hokin af reynslu
Allir á svið er eftir Michael Frayn.
Gísli Rúnar Jónsson þýddi og stað-
færði. Níu leikarar skipta hlutverk-
unum á milli sín og önnur verkefni
eru líka í höndum heimamanna.
„Þetta er að sjálfsögðu áhugamanna-
leikfélag, þar sem allir gefa allt,“ seg-
ir Aðalheiður og bendir á að í hópnum
séu meðal annars leikskólakennari,
garðyrkjufræðingur, tónskáld, smið-
ur, vélstjóri, bílstjóri, ferðafrömuður
og vélamaður. „Sum okkar hafa mjög
mikla reynslu í leiklistinni og allir
hafa leikið áður,“ segir Aðalheiður.
„Við æfðum með fullri vinnu fjóra til
fimm tíma alla virka daga og laugar-
dag eða sunnudag að auki svo það er
mikill léttir eftir að sýningar hófust,
þá sýnum við bara þrisvar í viku.“
Við val á leikriti var stuðst við ým-
islegt, meðal annars kynjahlutfall og
fjölda leikara. Aðalheiður segir að
stöðugt erfiðara verði að fá fólk til
svona starfa, en sem betur fer séu
alltaf margir til í tuskið. Samt hafi
þurft að sækja einn leikara til Stokks-
eyrar. „Við fundum hann í gegnum
tenglsanetið. Einn leikarinn á vin og
amma hans á barnabarn sem er leik-
arinn sem okkur vantaði. Hann þarf
að keyra um klukkutíma hvora leið á
æfingar og sýningar en lætur það
ekki á sig fá.“
Aðalheiður segir að tvennt hafi
einkum ráðið úrslitum um valið.
„Allir á svið er drepfyndið og svo er
það líka ofboðslega ögrandi, í raun er
verið að leika leikrit í leikritinu,“ seg-
ir hún og bendir á að hver leikari leiki
leikarann sem síðan leiki hlutverk
sitt.
Leikarar eru eins misjafnir og þeir
eru margir, en Aðalheiður segir að
mikið jafnræði sé í hópnum. „Þetta er
langjafnasti leikhópurinn sem við
höfum sett saman.“
Allir á svið í Tungunum
Í Aratungu Gamanleikurinn hefur fengið góðar viðtökur enda þykir hann drepfyndinn og ögrandi.
Gamanleik leikdeildar ungmennafélagsins vel tekið í Aratungu