Morgunblaðið - 13.03.2020, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 62. tölublað 108. árgangur
REYNA AÐ
FINNA NÝTT
BÓLUEFNI
FEGURÐ Í ÞVÍ
SEM ER OFT
ALVEG GLATAÐ
LÝTUR ÖÐRUM
LÖGMÁLUM
EN VIÐ HIN
JFDR 28 NÍU LÍF BUBBA 29VÍSINDAMENN 14
Alls var tilkynnt um 27 ný smit kórónuveirunnar í gær,
sem greind voru á sýkla- og veirufræðideild Land-
spítala. Þar af greindust átta ný smit í gærkvöldi.
Vinna við rakningu smitanna er hafin. Að sögn Víðis
Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, voru þau átta smit niðurstaða 119 greindra
sýna. Til þessa hafa fleiri en 1.100 sýni verið tekin og er
heildarfjöldi smitaðra nú kominn í 117 hér á landi.
Langflestir þeirra einstaklinga sem greinst hafa með
kórónuveiruna á Íslandi hafa komið frá skíðasvæðum í
Ölpunum.
Við þá hafa nú bæst þrír Íslendingar sem komu frá
Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Vinna við að
rekja leiðir einstaklinganna er hafin. Þetta staðfesti
Víðir í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Tveir
hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna veirusýkingar.
Smituðum heldur áfram að fjölga
Morgunblaðið/Eggert
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
117
staðfest smit
á Íslandi
1.000+
einstaklingar
í sóttkví
1.100+
sýni tekin
2
lagðir inn
á sjúkrahús
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á
fundi sínum seint í gærkvöldi að
flýta fyrirhuguðum aðgerðum sínum
vegna kórónuveirufaraldursins.
Hyggst hún leggja fram frumvarp í
dag um að fyrirtæki fái mánaðar-
frest til bráðabirgða til að standa
skil á opinberum gjöldum til ríkis-
sjóðs.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra sagði við mbl.is í gærkvöldi að
einnig væri til skoðunar að fella nið-
ur tryggingagjald og gistináttaskatt
tímabundið til þess að styðja við
fyrirtæki í ferðaþjónustu. Bjarni
taldi þó ótímabært að ræða það á
þessari stundu.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar koma
í kjölfar þess að Donald Trump
Bandaríkjaforseti tilkynnti í fyrri-
nótt að hann hygðist setja ferðabann
á Evrópuríki frá og með miðnætti í
kvöld að bandarískum tíma.
Aðgerðir sem nýtast Icelandair
Ákvörðunin mun hafa áhrif á 490
flugferðir Icelandair, sem félagið
hafði ráðgert í mars og byrjun apríl.
Hlutabréf Icelandair í kauphöllinni
féllu um 22,8% í viðskiptum gær-
dagsins eftir tilkynningu Trumps.
Hyggst félagið fljúga áfram til fjög-
urra áfangastaða í Bandaríkjunum
með bandaríska farþega og aðra
sem ferðabannið nær ekki til.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sagði við mbl.is í gærkvöldi að
frumvarpið sem lagt verður fyrir Al-
þingi í dag muni örugglega geta
komið Icelandair til aðstoðar. Ís-
lensk stjórnvöld hafa óskað eftir því
að ræða sérstaklega við Trump
Bandaríkjaforseta og Mike Pompeo
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
vegna ferðabannsins, en engin svör
hafa borist við þeim óskum.
Engar ákvarðanir voru teknar á
fundi ríkisstjórnarinnar um niður-
fellingu skólahalds eða lokana stofn-
anna líkt og stjórnvöld í Danmörku
og Noregi hafa tekið. Hins vegar
sagði Katrín að ríkisstjórnin ætti al-
veg von á því að heilbrigðisyfirvöld
myndu setja frekari takmarkanir.
„Dýrasta ræða sögunnar“
Markaðir um allan heim hríðféllu í
gær í kjölfar fregnanna af fyrirhug-
uðu ferðabanni Bandaríkjastjórnar.
CAC 40 vísitalan franska og DAX-
vísitalan þýska lækkuðu báðar um
rúmlega 12% og FTSE 100 vísitalan
í Lundúnum féll um 10,87%.
Sama sagan var uppi á teningnum
á Wall Street, þar sem loka þurfti
mörkuðum tímabundið í tvígang.
Endaði Dow Jones vísitalan 9,99%
neðar við lokun markaða og S&P
500 vísitalan féll um 9,5%. Er þetta
versta tapið á mörkuðum vestanhafs
frá mánudeginum svarta í október
1987. Óróinn á mörkuðum varð til
þess að seðlabankar vestanhafs og
austan tilkynntu um stórar aðgerðir
til þess að auka fjármagn í umferð,
en þær aðgerðir dugðu skammt til
þess að róa fjárfesta.
„Þetta var dýrasta ræða sögunn-
ar,“ sagði Luca Paolini hjá eigna-
stýringasjóðnum Pictet Asset
Management við Financial Times í
gær um ræðu Trumps. „Fjárfestar
eru að kjósa með fótunum og ég lái
þeim það ekki.“
Ríkisstjórnin flýtir aðgerðum
Lagt fyrir þing að fyrirtæki geti
frestað að standa skil á gjöldum
MKórónuveira »2-8, 12-14 og 26
Hlutabréf í Icelandair féllu um
22,8% eftir tilkynningu Trumps
Mesta fall á mörkuðum frá
mánudeginum svarta 1987
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundað um kvöld Ríkisstjórnin fundaði í Stjórnarráðinu í gærkvöldi í vel á annan tíma til þess að ræða stöðuna eftir að Trump samþykkti ferðabann á þau ríki Evrópu sem eru innan Schengen.