Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Viðmælendur Morgunblaðsins telja almennt ótímabært að segja til um áhrif boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar til að örva efnahagslífið. Fyrsta tillagan kveður á um að fyrirtækjum sem lenda í tímabundnum rekstrarörðugleikum vegna tekjufalls verði veitt svigrúm, til dæmis með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opinberum gjöldum. Hjá Ríkisskattstjóra fékkst það svar að form- legar útfærslur liggi ekki fyrir, hvort heldur lögbundnar eða með öðrum hætti. „Ríkisskattstjóri hefur verið í viðræðum við viðkomandi ráðuneyti en endanlegar ákvarðan- ir hafa ekki verið teknar varðandi útfærslurnar og því er ekki unnt að veita neinar nánari upp- lýsingar á þessari stundu,“ sagði í svari skatt- stjóra. Önnur tillagan er að skoðað verði að fella tímabundið niður tekjuöflun sem er íþyngjandi fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu, t.d. gistinátta- skatt sem verður afnuminn tímabundið. Markaðsátak í ferðaþjónustu Þriðja tillagan er að hleypa markaðsátaki af stokkunum erlendis þegar aðstæður skapast til þess að kynna Ísland sem áfangastað, auk átaks til að hvetja til ferðalaga Íslendinga innanlands. Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir það hafa mikla þýðingu að fella niður gistináttaskattinn. „Það hefur gríðarlega þýðingu fyrir okkur sem ætlum að vera í þessu til lengri tíma að gistináttaskatturinn verði felldur niður og komi aldrei á aftur. Þetta er hátt í að vera auka trygg- ingargjald sem er aðeins lagt á hótel og gisti- heimili. Airbnb er undanþegið gistináttaskatti og niðurfellingin jafnar samkeppnisstöðuna við skuggahagkerfið,“ segir Kristófer. Spurður hvort það myndi mögulega skila meiri árangri að lækka t.d. tryggingagjaldið bendir Kristófer á að hver prósenta af trygging- argjaldi skili ríkinu um 15 milljörðum. „Spurningin er hvort svo almenn aðgerð eigi við einmitt núna. Ég tel að fókusinn þurfi að vera á ferðaþjónustuna og þá er e.t.v. betra að eiga 15 milljarðana til að fara í markaðssókn og aðrar aðgerðir til að snúa ferðaþjónustuna í gang aftur. Heilt yfir er staðan mjög alvarleg“ Fjórða tillagan er að grípa til ráðstafana sem örvað geta einkaneyslu og eftirspurn, t.d. með skatta- eða stuðningskerfum. Fimmta tillagan er að setja aukinn kraft í opinberar framkvæmdir í ár og á næstu árum. Væntingarnar skipta máli Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir aðgerðirnar mikil- vægar hvað snertir væntingar í hagkerfinu. „Þetta sendir skýr skilaboð um að ríkisfjármál- um verði beitt til að örva hagkerfið. Eftirspurn er að dragast saman. Við þær aðstæður skiptir miklu máli að stjórnvöld sýni að þau ætla að auka sína eftirspurn og fjárfestingar í framtíðarvexti. Það er hvatning til annarra og skapar væntingar um að efnahagsbatinn verði hugsanlega hraðari en ella. Fjárhagslegu áhrif- in koma fram seinna,“ segir Sigurður. Það eigi eftir að koma í ljós hvaða áhrif kórónuveiran muni hafa á uppbyggingu íbúða. Stjórnvöld geti með ívilnandi aðgerðum stutt við byggingargeirann. Til dæmis með eiginfjár- lánum, stofnstyrkjum vegna félagslegs húsnæð- is og endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna endurbóta á húsnæði. Þá hafi ríkisstjórnin kynnt aðgerðir um að auka opinberar fram- kvæmdir um 20-25 milljarða á ári næstu þrjú ár. „Það á eftir að meta áhrifin af þessum aðgerð- um heildstætt. Ríkisstjórnin er ekki í öfunds- verðri stöðu hvað það varðar,“ segir Sigurður. Sjötta tillagan er að efna til virks samráðs milli stjórnvalda og Samtaka fjármálafyrir- tækja (SFF) um viðbrögð þeirra við fyrirsjáan- legum lausafjár- og greiðsluörðugleikum fyrir- tækja í ferðaþjónustu. Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF, segir málið í vinnslu. „Það er verið að meta fær- ar leiðir. Það er verið að skoða þetta á dýptina. Það eru allir að vinna að málunum með það í huga að hlutirnir gerist eins hratt og gerlegt er,“ segir Katrín um stöðuna. Sjöunda tillagan varðar flutning á innstæðum Íbúðalánasjóðs í Seðlabankanum á innláns- reikninga í bönkum til að styðja við svigrúm banka og lánardrottna til að veita viðskipta- mönnum sínum lánafyrirgreiðslu. Hjá Íslands- banka fékkst það svar að of snemmt væri að segja til um áhrifin. Svar Landsbankans var að sterk eiginfjár- og lausafjárstaða auki svigrúm bankans til útlána og til að veita greiðslufresti. „Bankinn mun styðja við viðskiptavini sem lenda í tímabundnum greiðsluerfiðleikum, jafnt fyrirtæki sem einstaklinga, og stendur vel að vígi til að gera það,“ sagði í svari bankans. Óvissa um björgunaraðgerðirnar  Ríkisstjórnin boðaði aðgerðir í sjö liðum til að mæta efnahagslegum áhrifum kórónuveirunnar  Fulltrúar hagsmunasamtaka og stofnana segja málin í vinnslu  Því sé ótímabært að meta áhrifin Ljósmynd/Páll Ketilsson Leifsstöð Tengifarþegar flykktust að skrifstofu Icelandair þegar ferðabannið spurðist út. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar, segir aðspurður að boðuð átaksverkefni geti fyrst farið í fullan gang þegar faraldurinn er afstaðinn. Varðandi innanlands- átakið bendi ný könnun til að Íslendingar muni ferðast meira innanlands í sumar. Það geti skapað tækifæri. Ríkisstjórnin boðar jafnframt tíma- bundið afnám gistináttaskatts. Spurður hvort gagnlegra sé að fella tímabundið niður tryggingagjald og önnur regluleg gjöld segir Jóhannes Þór mikil- vægt að taka úr sambandi sértæka skatta og gjöld á atvinnugreinina. „Hins vegar má líka horfa á aðrar aðgerðir sem gætu jafn- vel haft enn meiri áhrif. Við eigum eftir að sjá útfærslur á öðrum aðgerðum sem gætu komið til viðbótar,“ segir Jóhannes Þór. Ljóst sé að skatttekjur af ferðaþjónustu verði mun minni í ár en áætlað var. Mikill samdráttur verði í útflutningstekjum vegna kórónuveirunnar. Á þessari stundu sé útlit fyrir að samdrátturinn vegna veirunnar verði álíka mikill og vegna falls WOW air. Er- lendum ferðamönnum fækkaði um 300 þúsund við fall WOW air, úr 2,3 í 2 milljónir. „Við erum að horfa á að minnsta kosti jafn mikið fall í fjölda erlendra ferðamanna og í fyrra og jafnvel enn meira eftir þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að loka á flug frá Evrópu,“ segir Jóhannes Þór. Með þetta í huga geti erlendum ferða- mönnum fækkað í 1,6-1,7 milljónir í ár. 700 þúsund færri gestir en 2018 FÆKKUN FERÐAMANNA Jóhannes Þór Skúlason Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heilsugæslan í Reykjavík, lögreglan í Reykjavík og fleiri stofnanir vinna að því þessa dagana að skipta upp starfs- stöðvum og draga úr samgangi starfs- fólks til þess að hægja á smiti kórónu- veiru. Í afgreiðslum verða andlitsmaskar fyrir kvefaða skjólstæð- inga. Heilsugæslan í Reykjavík er að búa sig undir miklar annir vegna kórón- uveirunnar í næstu viku. Búist er við að veikindi aukist og fleiri komi til skoðunar. Óskar S. Reykdalsson, for- stjóri Heilsugæslunnar, segir nauðsyn- legt að hafa allan búnað tiltækan og skipuleggja innra starfið. Fjarþjónusta heilsugæslu aukin Heilsugæslan hefur verið að gera ýmsar ráðstafanir til að verja starfs- fólk sitt og sjúklinga. Það hefur verið gert með því að auka símaþjónustu og aðra fjarþjónustu. Haft er samband við alla þá sem eiga pantaðan tíma og tek- in staða á sjúklingum og athugað hvort hægt er að leysa erindið símleiðis eða gefa tíma seinna. Fólk getur hringt á heilsugæslustöðina sína, pantað tíma eða spjallað við starfsfólk í gegnum vefinn Heilsuvera.is. Nú er verið að taka í notkun þá nýjung á Heilsuveru að fólk geti pantað viðtal í síma við lækni eða hjúkrunarfræðing. „Við lof- um að hringja samdægurs til baka og vinnum eins lengi og þarf til að það náist,“ segir Óskar. Hann leggur þó áherslu á að áfram sé fólk til viðtals á heilsugæslustöðv- unum og þeir sem vilji og þurfi að fara í skoðun hjá lækni eigi að gera það. „Mesta hættan er að fólk neiti sér um heilbrigðisþjónustu vegna hræðslu við að smitast. Við verðum að gæta okkar á því.“ Á heilsugæslustöðvunum er gripið til ýmissa almennra smitvarna, eins og í fleiri stofnunum og fyrirtækjum. Starfsfólk sem veikist er beðið um að halda sig heima. Ef það er vinnufært verða því falin verkefni sem hægt er að vinna heima. Starfsstöðvum er skipt upp og reynt að draga sem mest úr samskiptum. Reynt er að hafa ákveðna fjarlægð milli starfsfólks og sjúklinga, þar sem það er hægt. Þá verða andlitsmaskar í afgreiðslu sem kvefaðir skjólstæðingar eru beðnir um að setja upp. Sömuleiðis setur starfsfólk á sig maska og hanska þegar það sinnir sjúklingum með kvef- einkenni. „Þetta verður að gera við þær ótryggu aðstæður sem eru í dag til að vernda alla, bæði starfsfólk og sjúk- linga,“ segir Óskar. Starfsemi lögreglu lamist ekki „Allar aðgerðir okkar eru til að reyna að forðast smit eða að minnsta kosti að hægja á smiti,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, í skriflegu svari við fyrirspurn um smitvarnaaðgerðir embættisins. Meðal aðgerða er að hafa sérstakan mannskap í samræmingarmiðstöðinni í Skógarhlíð og draga úr samgangi á milli stöðva og Skógarhlíðar. Útkalls- liðið er ekki í beinum samskiptum við aðrar deildir nema þegar brýna nauð- syn ber til og allt embættið hefur verið hólfað niður samkvæmt aðgerðaáætl- un. Þeir sem geta unnið heima gera það og flestir fundir eru nú haldnir með fjarfundabúnaði. Allt er þetta gert til þess að minnka líkur á að starfsemin lamist vegna veikinda. Önnur embætti grípa einnig til aðgerða. Um 180 heilbrigðisstarfsmenn höfðu í gær skráð sig í bakvarðasveit heil- brigðisþjónustunnar. Bakvarðasveitin er listi yfir heilbrigðisstarfsfólk sem er í öðrum störfum, sjálfstætt starfandi eða hefur látið af störfum og lýsir sig reiðubúið til að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara til að aðstoða í væntanlegu álagi vegna fjöldaveikinda vegna kórónuveirunnar. Kvefaðir fá maska á heilsugæslustöðvum  Heilsugæslan býr sig undir holskeflu í næstu viku Fjöldi símtala til heilsugæslunnar Þúsundir símtala mán. 24.2. þri. 25.2. mið. 26.2. fim. 27.2. fös. 28.2. mán. 2.3. þri. 3.3. mið. 4.3. fim. 5.3. fös. 6.3. mán. 9.3. þri. 10.3. 3,4 2,7 2,4 2,4 2,2 3,6 3 2,9 2,6 2,3 4,7 3,5 H e im ild : H e ils u ga es la .is Aðalfundur Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 27. mars 2020 og hefst kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: Stjórn Hampiðjunnar hf. 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.