Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
„Er það líkleg atburðarás að sá sem
hefur engin einkenni, sem hóstar
lítið, sem er með lítið nefrennsli, að
hann mengi meira en sá sem er með
engin einkenni?“ Þessari spurningu
veltir Már Kristjánsson, yfirlæknir
smitsjúkdómalækninga Landspít-
alans, upp í samtali við Morg-
unblaðið um frétt sem birtist á vef
The Guardian í gær, þar sem sagt
var frá rannsókn sem benti til að
kórónuvírusinn smitaðist fremur
með þeim sem sýndu engin ein-
kenni. Sagði Már, sem hafði þó ekki
séð umrædda frétt eða rannsókn:
„Á mínum faglegu forsendum
myndi ég hafa miklar efasemdir um
að þessi fullyrðing sé rétt.“
Hann bætti hins vegar við: „Sá
sem er veikur hefur tilhneigingu til
að halda sig heima, en sá sem er
sýktur án einkenna breytir ekki
hegðunarmynstri sínu. Hann fer
víðar. Hann getur farið á bar eða í
selskap og er líklegri til að vera í
meiri nánd við samborgara sína. Í
því samhengi getur sá sem er sýkt-
ur án einkenna smitað „meira“.“
Telur að einkenna-
lausir smiti minna
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Óvissa var það fyrsta sem Pétur
H. Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis hf. í Grindavík, sagði er hann
var spurður um stöðuna í ljósi tak-
markana á flugi til Bandaríkjanna.
Stöðugir viðbragðs- og neyðar-
fundir hefðu verið haldnir í at-
vinnulífinu síðustu daga og staðan
í gærmorgun hefði verið dökk eftir
fyrstu fréttir frá Bandaríkjunum.
Nú væri hins vegar útlit fyrir að
áfram yrði flogið með fisk til
Bandaríkjanna, en stór spurning
væri hvernig þau mál þróuðust.
Einnig væri mikil óvissa á mörk-
uðum með ferskan fisk í Evrópu
þar sem neyslumynstur fólks hefði
gjörbreyst samfara mikilli út-
breiðslu kórónuveirunnar.
Aukist um tvo milljarða
Á síðasta ári voru sjávarafurðir
fluttar út til Bandaríkjanna fyrir
23,3 milljarða, án lax og silungs,
og hafði verðmæti útflutnings auk-
ist um rúma tvo milljarða á milli
ára, samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fyrirtækja í sjávarút-
vegi. Verðmæti ferskra afurða var
14,2 milljarðar, frystra afurða 7,3
milljarðar og annars sjávarfangs
1.850 milljónir. Lax og silungur
var fluttur til Bandaríkjanna fyrir
tæplega 3,5 milljarða í fyrra.
Um 76% af heildarverðmæti út-
fluttra sjávarafurða 2019 fór til
landa í Evrópu.
Erfitt á flestum mörkuðum
Pétur áætlar að í fyrra hafi Vísir
í Grindavík unnið úr um 18 þúsund
tonnum af fiski og eru meginstoðir
í framleiðslunni saltaðar afurðir,
ferskar og frystar. Til Bandaríkj-
anna hafi í fyrra farið um 800 tonn
af afurðum, ýmist ferskum eða
frosnum. Langmest af afurðunum
var flutt með flugi vestur um haf.
Í Evrópu hafi neytendur í kjöl-
far þess uppnáms sem kórónaveir-
an hefur valdið snúið sér í auknum
mæli að vörum sem hafa mikið
geymsluþol; frystum, söltuðum og
reyktum. Fólk fari frekar í stór-
markaði heldur en á hefðbundna
matarmarkaði, að sögn Péturs.
Áhrif þessa eigi eftir að koma í
ljós, en staðan sé erfið á flestum
mörkuðum.
Alda Agnes Gylfadóttir, fram-
kvæmdastjóri Einhamars Seafood
í Grindavík, sagðist um hádegi í
gær vera bjartsýn á að áfram
verði vöruflutningar til Bandaríkj-
anna. Hún segir að farmur frá
Einhamri fari að óbreyttu í flug til
Bandaríkjanna í dag, 4-5 tonn, en
fiskur frá fyrirtækinu fari daglega
vestur um haf. Sviptingar og
óvissa sé mikil í rekstrinum og
ástandið breytist frá degi til dags.
Klukkan fimm í gærmorgun hafi
til dæmis ekki verið útlit fyrir
neina vöruflutninga til Bandaríkj-
anna um sinn.
Gert út á bjartsýnina
Einhamar flytur út ferskan fisk
til Bandaríkjanna, Bretlands og
Kanada og áætlar Alda að hátt í
helmingur afurðanna fari til
Bandaríkjanna. Hún segir ekkert
annað vera í stöðunni en að gera
út á bjartsýnina.
Óvissa í útflutningi á fiskafurðum
Bandaríkin mikilvægur markaður Langmest flutt með flugi Gjörbreytt neyslumynstur í Evrópu
Sjávarafurðir fluttar frá Íslandi til Bandaríkjanna fyrir 23,3 milljarða á síðasta ári, án lax og silungs
Alls eru 26 lönd aðilar að Schengen-samstarfi nu. Ferðabannið nær
því til Aust ur rík is, Belg íu, Tékk lands, Dan merk ur, Eist lands, Finn lands,
Frakk lands, Þýska lands, Grikk lands, Ung verja lands, Íslands, Ítal íu,
Lett lands, Liechten stein, Lit há en, Lux emburg, Möltu, Hol lands, Nor egs,
Pól lands, Portú gals, Slóvakíu, Slóven íu, Spán ar, Svíþjóðar og Sviss.
Bandaríkin, íbúafjöldi: 328 milljónir
Schengen-löndin 26, íbúafjöldi: 418 milljónir
■ Allt fl ug Icelandair til Bandaríkjanna er á áætlun í dag, föstudag.
■ Á laugardag verður fl ug á áætlun til þessara staða: New York (JFK og EWR), Chicago,
Seattle og Washington DC. Ferðabann gildir þá fyrir alla sem dvalið hafa á Schengen-
svæðinu, nema bandaríska ríkisborgara.
■ Þann 14.-16. mars verður öllu fl ugi til Boston, Minneapolis, Denver og Orlando afl ýst.
■ Flug frá Orlando og Denver laugardaginn 14. mars verður á áætlun.
■ Ferðabannið gildir ekki um fraktfl utninga.
Ferðabann til Bandaríkjanna
Ferðabannið sem banda rísk yfi r völd hafa sett frá Evr ópu nær til allra
þeirra sem verið hafa á Schengen-svæðinu und an farna 14 daga
Að jafnaði eru um
560 fl ug á dag milli Evrópu og Bandaríkjanna
Daglegt sætaframboð er um
160.000 sæti
Ferðabannið mun hafa áhrif á um
17.000 fl ugferðir á tímabilinu, eða um
4.800.000
sæti milli Evrópu og
Bandaríkjanna
Bannið tekur gildi
kl. 4 í nótt (á miðnætti
að staðartíma á austur-
strönd Bandaríkjanna)
og mun standa í 30 daga
Ferðabannið gildir ekki um
Bretland og Írland sem eru ekki
aðilar að Schengen-samstarfi nu
Ferða
banni
ð sner
tir 40 fl
ugfélög í Evr
ópu og Bandaríkjunum
Icelandair fl utti
130.000
farþega frá Íslandi til
Bandaríkjanna í mars 2019
Lufthansa er með um 60 fl ug á dag milli Evrópu
og Bandaríkjanna og Air France um 37
Ferðabannið hefur áhrif á
490 fl ugferðir hjá Icelandair
Mestu hagsmunir í fraktflugi til
Bandaríkjanna felast í flutningi á
ferskum fiski og mun Icelandair
Cargo leggja mikla áherslu á að
tryggja að útflutningur verði ekki
fyrir áhrifum ferðabanns yfir-
valda í Bandaríkjunum. „Það er
ekki bann á fraktflug þannig að
við getum flogið á fraktvélum til
Ameríku ef þörfin er til staðar,“
segir Gunnar Már Sigurfinnsson,
framkvæmdastjóri Icelandair
Cargo.
„Við áttum okkur alveg á því
að það eru miklir hagsmunir í
húfi og markaðirnir þola ekki að
það falli niður framboð af vör-
unni,“ segir Gunnar Már. Allt
verði gert til þess að halda flugi
með fisk gangandi.
Talsvert af sjávarafurðum er
flutt með farþegaflugi og bendir
framkvæmdastjórinn á að ekki sé
búið að loka fyrir allt farþegaflug
til Bandaríkjanna. Ef farþegaflug,
sem þó verður flogið, mætir ekki
spurn eftir vöruflutningum muni
félagið leitast við að koma á
fraktflugi eftir þörfum við-
skiptavina. gso@mbl.is
Áhersla á flug með fisk
MIKLIR HAGSMUNIR Í ÚTFLUTNINGI TIL BANDARÍKJANNA
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlaðið Miklir hagsmunir eru í húfi,
segir Gunnar Már hjá Icelandair Cargo.