Morgunblaðið - 13.03.2020, Page 7
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
-8,4%-6,1%
14,6 13,7
15,4 14,1
Velta erlendra greiðslu-
korta í janúar-febrúar*
*Án fl ugsamgangna
Heimild: RSV
Ma.kr. 2019 2020
Janúar Febrúar
Velta erlendra greiðslukorta án
flugsamgangna dróst saman um
8,4% í febrúar frá fyrra ári. Veltan
var 15,4 milljarðar í febrúar 2019
en var 14,1 milljarður í febrúar í ár.
Þetta er meiri samdráttur en í
janúar, en þá var veltan 6,1% minni
en í sama mánuði í fyrra.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýrri greiningu Rann-
sóknaseturs verslunarinnar.
Samdráttur hjá gististöðum
Velta gistiþjónustu minnkaði um
389 milljónir, eða um 10%, og velta
ýmissar ferðaþjónustu, m.a. í skipu-
lögðum ferðum, dróst saman um
300 milljónir, eða um 11%.
Sérfræðingar setursins benda á
að Bandaríkjamenn greiddu 5,8 og
4,4 milljarða til innlendra fyrir-
tækja með kortum sínum í mars og
apríl í fyrra, að flugsamgöngum
undanskildum. Ferðabannið
vestanhafs gæti því vegið þungt í
ferðaþjónustunni. baldura@mbl.is
Kortavelta
á hraðri
niðurleið
Ferðabannið mun
magna samdráttinn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Farþegaferjan Norræna mun ekki
flytja neina farþega næstu tvær
vikurnar. Skipið mun sigla áfram,
samkvæmt áætlun, með vörur. Eru
þetta viðbrögð Smyril Line við til-
mælum danskra yfirvalda frá því í
fyrradag um aðgerðir fyrirtækja til
að draga sem mest úr hættu á út-
breiðslu kórónuveirunnar.
„Í ljósi stöðunnar sem kom upp í
Danmörku munum við ekki taka við
ferðamönnum í Norrænu næstu
tvær vikurnar. Við tökum síðan
stöðuna þegar líður á þann tíma.
Þetta er gert í forvarnarskyni, í
samræmi við ákvarðanir stjórn-
valda í Danmörku,“ segir Linda
Gunnlaugsdóttir, framkvæmda-
stjóri Smyril Line á Íslandi.
Norræna er nú á leiðinni til
Hirtshals í Danmörku með farþega
frá Íslandi og Færeyjum. Linda tel-
ur að um 20-30 farþegar frá Íslandi
séu um borð og fleiri Færeyingar
enda nota þeir ferjuna mikið. Þegar
ferjan fer þaðan á laugardag verð-
ur aðeins áhöfnin um borð.
Ferjan mun sigla áfram sam-
kvæmt áætlun milli Danmerkur,
Færeyja og Íslands enda skipið
mikið notað til vöruflutninga. Hún
kemur næst til Seyðisfjarðar næst-
komandi þriðjudag.
Um borð í Norrænu er pláss fyrir
1.500 farþega og 800 bíla. Skipið
flytur farþega og vörur allt árið en
mestu farþegaflutningarnir eru á
sumrin. Þá starfa um 120 manns um
borð.
Norræna siglir án farþega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seyðisfjörður Norræna siglir til og frá Seyðisfirði allt árið.
Styðja aðgerðir danskra stjórnvalda vegna kórónuveiru
Sjálfsafgreiðslu á
nammibörum og
salatbörum hefur
verið hætt á þjón-
ustustöðvum N1.
Sósur fyrir pyls-
ur, kaffibollar og
hnífapör fyrir
viðskiptavini veit-
ingastaða hafa
verið færð aftur
fyrir afgreiðslu-
borð og í hendur afgreiðslufólks og
bakkelsi pakkað inn.
Þetta er meðal nýrra varúðarráð-
stafana sem gripið hefur verið til á
þjónustustöðvum N1 vegna kór-
ónuveirunnar. Er þetta gert til að
auka öryggi, minnka hættu á smiti
og vernda viðskiptavini og starfsfólk
fyrirtækisins, segir í tilkynningu.
Þrif hafa verið aukin á þjón-
ustustöðvunum. Þá hefur aðgangs-
stýring verið tekin upp í höfuðstöðv-
unum á Dalvegi. helgi@mbl.is
Tómatsósa
og sinnep yfir
búðarborðið
Ein með öllu Pylsa
afgreidd hjá N1.
Sauma íHátúni 12 er alhliða
vefnaðarvöruverslun og heild-
sala með efni og allt til sauma
á frábæru verði.
Stærsti tölulager á norðurhveli jarðar, ótrúlegt
úrval og fjöldi af rennilásum. Einnig mikið úrval
af jerseyefni, bæði prentað og einlitað,
barnajerseyefni, frotté, bómull, hörefni, ullarefni,
soðin ull, prjónuð íslensk ull, vinnufataefni, strigi,
fleece, softshell, satín, chiffon, twill, pallíettuefni,
leggingsefni, leðurlíki, tjull, kanvas, teygjuefni,
crepe og kjólaefni. Einnig 50 litir af fóðri í magni
semmyndi duga fyrir öll Norðurlöndin.
Einnig er hægt að velja og sérpanta efni úr
þúsundum prufa á staðnum.
Nýjar sendingar í hverri viku. Fylgist því vel með
búðardrengnum og starfsmanni allra mánaða,
móður hans, á Facebook-síðu Saumu.
sauma | hátúni 12 | 105 reykjavík | 553 5444 | /saumarvk | sauma.is
Opið 11–18 virka daga, 11–16 laugardaga
ÚTSALA!
30-50%AFSLÁTTURAF ÖLLU NÝJUEFNI
SJÓ
N
ER S
ÖGU
RÍK
ARI
!
Við rýmum fyrir nýjum vörum og
hendum í heljarinnar útsölu.