Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Húsið hér nötraði hressilega. Fyrst var eins og leifursnöggt högg kæmi á bygginguna og svo fjaraði skjálft- inn út á nokkrum sekúndum og þá var eins og allt væri í lausu lofti. Ég hef aldrei áður upplifað jafn öflugar jarðhræringar hér,“ segir Jón Stein- ar Sæmundsson, verkstjóri í fisk- vinnslu Vísis hf. í Grindavík, í sam- tali við Morgun- blaðið. Snarpur jarð- skjálfti sem mældist 5,2 að styrk og átti upp- tök sín við Fagra- dalsfjall skammt norðan við Grindavík reið yf- ir kl. 10:26 í gærmorgun. Skjálftans varð vart um allt Reykjanesið, á höf- uðborgarsvæðinu og víðar. „Hér sveiflaðist allt“ Samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofunni er skjálftinn að öllum lík- um afleiðing spennubreytinga sem hafa orðið á þessum slóðum frá í janúar síðastliðnum. Landris er af- staðið, en enn þá spenna í jörðu og hún framkallaði skjálfta dagsins, sem er sá stærsti sem mælst hefur á Reykjanesskaga síðan í október 2013. Þá varð skjálfti sem mældist 5,2 að stærð og voru upptök hans við Reykjanestá. „Ég var inni í verkstjórakomp- unni hér í saltfiskvinnslu Vísis þegar skjálftinn kom í morgun. Hér sveifl- aðist allt sem og vélarnar og færi- böndin hér fram í sal þar sem starfs- fólkið stendur á grindum áföstum tækjunum. Margir kipptust við en ég varð þó ekki var við verulega hræðslu. Hræringarnar í vetur kenndu okkur margt, til dæmis fólki af erlendum uppruna sem hér starf- ar og er ekki vant svona náttúru- hamförum,“ sagði Jón Steinar í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég skal alveg viðurkenna það að mér var brugðið,“ sagði Alda Agnes Gylfadóttir, framkvæmdastjóri sjáv- arútvegsfyrirtæksins Einhamars Seafood í Grindavík, við mbl.is. Hún segir að fólk sem var í húsi hafi ekki verið beint hrætt við skjálftann sem þó hafi komið öllum á óvart. Viðbragðsáætlanir tilbúnar Fannar Jónasson bæjarstjóri seg- ir jarðskjálftann í gærmorgun hafa verið snarpan og greinilegan. Ekki hafi þó verið talin þörf á inngripi, en fólk í almannavarnanefnd hafi rætt saman og farið yfir stöðuna. Fannar segir að eftir landris og óróa við Grindavík í lok janúar hafi verið gerðar viðbragðs- og rýmingaráætl- anir vegna jarðskjálfta í öllum stofn- unum Grindavíkurbæjar og mörg- um fyrirtækjum. Áætlanir þessar séu uppfærðar í samræmi við að- stæður og Grindvíkingar því við öllu búnir. Leiftursnöggt högg á húsið  Jarðskjálftinn við Grindavík 5,2 að styrk  Fiskvinnsluhús nötraði hressilega  Fyrri hræringar lærdómsríkar  Rýmingaráætlanir eru víða tiltækar HAFNARFJÖRÐUR REYKJAVÍK GRINDAVÍK HAFNIR SANDGERÐI GARÐUR VOGAR KEFLAVÍK NJARÐVÍK Fagradals- fjall Kleifarvatn 5 km Jarðskjálfti 5,2 að stærð 5,4 km vestur af Fagradalsfjalli Grunnkort: map.is Fannar Jónasson Í dag gildir að segja jarðskjálfta vera af tiltekinni stærð, til dæmis 3,0. Lengi var stuðst við svonefndan Richter-kvarða, en mælitækin sem notuð voru hon- um samkvæmt eru ekki lengur í gildi. Kvarðinn var og er kennd- ur við þýska jarðskjálftafræð- inginn Charles F. Richter sem kynnti mælitækni þessa árið 1935 þegar hann starfaði í Bandaríkjunum. Stærð jarðskjálfta er gjarnan lýst með tölu sem fundin er út frá útslagi á mælum. Stærðinni er ætlað það hlutverk að gefa hugmynd um jarðfræðilegt mik- ilvægi atburðarins. Í notkun eru nokkrir stærðarkvarðar og er mismunur þeirra fólginn í mis- munandi aðferðum sem beitt er. Til samanburðar við hrær- ingar í Grindavík í gær má nefna að skjálftarnir tveir á Suður- landi árið 2000, 17. og 21, júní, voru báðir um 6,5 að stærð. Stóri skjálftinn 29. maí 2008 reyndist 6,2 að styrk, en sé far- ið lengra aftur má finna dæmi um enn öflugri umbrot í jörðu á Íslandi. Richter-kvarði gildir ekki nú KENNISTÆRÐIR UMBROTA Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar og lyklabox. MIKIÐ ÚRVAL Vefverslun brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Áslaug Arna Sig- urbjörnsdóttir dómsmálaráð- herra skipaði í gær Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborg- arsvæðinu, í emb- ætti ríkislög- reglustjóra frá og með 16. mars næstkomandi. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Hæfnisnefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um embætti ríkislögreglustjóra mat Sigríði hæfasta af þeim sjö sem sóttu um embættið. Sigríður Björk sagði í samtali við mbl.is í gær að hún væri þakklát fyr- ir traustið, en hún tekur við embætt- inu á mánudaginn. Hún sagði ekki tímabært að ræða helstu áherslur sínar í starfi. „En stóra málið er að þjappa lögreglunni betur saman og vinna eins og ein heild.“ Sigríður hefur frá árinu 2014 gegnt embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Áður gegndi hún embætti lögreglustjóra á Suð- urnesjum, þar áður var hún aðstoð- arríkislögreglustjóri frá 2007 til 2008, sýslumaður á Ísafirði frá 2002 til 2006 og skattstjóri Vestfjarða frá 1996 til 2002. erla@mbl.is Sigríður Björk skipuð  Tekur við embætti RLS 16. mars nk. Sigríður Björk Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.