Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
✝ GuðlaugHalsör
Sigvardsdóttir,
Lalla, fæddist í
Hallgeirsey í Aust-
ur-Landeyjum 7.
janúar 1931. Hún
dó í Reykjanesbæ
3. mars 2020, 89
ára að aldri. For-
eldrar hennar
voru Guðný Ást-
ríður Bjarnadóttir,
f. 1896, d. 1971, og barnsfaðir
hennar, Sigvard Karolus Mart-
inussen Tømmerstøl Halsør, f.
1894, d. 1971. Guðný var Aust-
ur-Skaftfellingur, Sigvard úr
Firðafylki í Noregi. Guðlaug
var einkabarn móður sinnar
en átti tvo bræður samfeðra:
Martinus Halsør, f. 1928, d.
2014, kona hans Elsa Halsør,
f. 1930, og Jakob Kaare Hals-
ør, f. 1931, d. 2001, kona hans
Anbjørg Halsør, f. 1932.
fyrstu tvö árin. Eftir það voru
þær í nokkur ár á Blikastöð-
um í Mosfellssveit, þar sem
þeim líkaði vel að vera, og þar
fékk Guðlaug gælunafnið
Lalla, en hún var vel þekkt
undir því nafni. Þegar hún
var sex ára fluttu þær mæðg-
ur svo til Keflavíkur þar sem
hún bjó til æviloka, fyrst á
Aðalgötu 6, seinna á Vest-
urgötu 38.
Guðlaug starfaði lengst af
hjá Varnarliðinu á Keflavík-
urflugvelli í Navy Exchange-
verslun þeirra. Hún stundaði
hefðbundið barnaskólanám og
fór síðan í unglingaskóla sem
séra Eiríkur Brynjólfsson hélt
í Keflavík. Seinna gekk Guð-
laug svo í Húsmæðraskólann á
Varmalandi í Borgarfirði.
Guðlaug hafði gaman af
hannyrðum, saumaði mikið út
og prjónaði vel. Hún var trú-
uð kona og hafði einnig mik-
inn áhuga á pólitík og þjóð-
félagsmálum, ekki síst
náttúruvernd og velferð-
armálum.
Guðlaug verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju í dag, 13.
mars 2020, klukkan 13.
Eiginmaður Guð-
laugar var Ragnar
Sigurðsson, f. 1929,
d. 2019, þau skildu.
Börn Guðlaugar og
Ragnars eru: 1)
Sigurður, f. 1951.
2) Kristín Linda, f.
1962, maki Svein-
björn Gizurarson,
f. 1962. Börn
þeirra: Davíð Örn,
f. 1984, maki Fjóla
Dögg Halldórsdóttir, f. 1984,
börn þeirra: Salómon Blær, f.
2012, Elísa Björt, f. 2017, og
Annika Bára, f. 2019, Benjamín
Ragnar, f. 1987, og Guðlaug
María, f. 1994, unnusti Birkir
Ásgeirsson, f. 1989. 3) Guðný
Ásta, f. 1967, maki Guðjón
Bragason, f. 1966. Dóttir
þeirra: Sunneva Kristín, f.
2009.
Guðlaug var með móður
sinni í Austur-Landeyjum
Í dag verður mamma mín lögð
til hinstu hvílu. Verandi einstæð
móðir ól hún mig upp upp á eigin
spýtur og stóð sig vel, en erfitt
þótti þenni þó að geta ekki verið
hjá mér á daginn vegna vinnu. Það
gladdi hana því mikið þegar ég
hafði tök á því að vera heimavinn-
andi með dóttur mína þegar hún
var lítil. En án mömmu minnar
væri ég ekki sú sem ég er. Hún
kenndi mér ást, umhyggju og góð-
mennsku, að standa með sjálfri
mér, og svo ótal margt annað.
Mamma var mjög umhyggjusöm,
mátti ekkert aumt sjá, og einnig
mjög samviskusöm, og góð fyrir-
mynd að svo mörgu leyti. Takk
fyrir allt sem þú varst og kenndir
mér. Hvíldu í Guðs friði, elsku
mamma mín.
Ég hefi þekkt marga háa sál,
ég hefi lært bækur og tungumál
og setið við lista lindir,
en enginn kenndi mér eins og þú
hið eilífa og stóra, kraft og trú,
né gaf mér svo guðlegar myndir.
(Matthías Jochumsson)
Guðný Ásta Ragnarsdóttir.
Hún Lalla kunni að búa til asp-
assúpu sem fékk bragðlaukana til
að upplifa matinn á nýjan hátt, síð-
an eldaði hún nautakjöt og aðra
kjötrétti svo vel að þegar hún
gleymdi sér og lét mig fá köku-
spaða í stað hnífs (til að skera kjöt-
ið) þá smaug spaðinn í gegn. Ekki
má svo gleyma kökunum en
tengdamóðir mín var snillingur
þegar kom að matseld og bakstri.
Ég kom fyrst á heimili hennar til
að vinna verkefni í félagsfræði
með eldri dóttur hennar þegar ég
var nemi við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, um 18 ára gamall. Fljót-
lega eftir það fór ég að búa til ýms-
ar ástæður til þess að banka upp á.
Oftar en ekki var mér boðið kaffi
þegar dóttirin fékk bara kalt vatn
úr krananum.
Þessi kona, sem síðar varð
tengdamóðir mín, var með stórt
hjarta, opinn faðm og alltaf tilbúin
til að aðstoða ef hún gat. Hún var
reyndar ekki fullkomlega sátt
þegar við fluttum til Danmerkur,
dóttir hennar og ég, og fengum við
að vita að þangað myndi hún aldr-
ei heimsækja okkur. Sú afstaða
breyttist á einni nóttu þegar
fyrsta barnabarnið kom í heiminn.
Hann var varla fæddur þegar
tengdamamma var komin á
danska jörð til að bjóða fram að-
stoð.
Í einni af mörgum heimsóknum
hennar til Kaupmannahafnar beið
ég eftir henni á Kastrup-flugvelli
þegar út kom lítil kona með app-
elsínugult hár. Í minningunni leit
þetta út fyrir að vera skær-neon-
gult hár. Hún hafði þá farið að láta
laga á sér hárið og lét lita það, en
eitthvað fór úrskeiðis svo liturinn
Guðlaug Halsör
Sigvardsdóttir
✝ Guðrún Sig-urmundsdóttir
fæddist á Eyr-
arbakka 19. ágúst
1928. Hún and-
aðist á Skjóli 26.
febrúar 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Ágústa
Guðrún Magn-
úsdóttir frá Mið-
húsum í Gnúp-
verjahreppi, f.
1905, d. 1996, og Sigurmundur
Guðjónsson frá Skúmstöðum,
Eyrarbakka, f. 1903, d. 1985.
Bróðir Guðrúnar er Jón
Ingi Sigurmundsson, f. 1934.
Guðrún giftist 6. júní 1954
Ólafi Erni Árnasyni, f. 11. jan-
úar 1921, d. 24. apríl 2012, frá
Ölvesholtshjáleigu í Holtum,
Rangárvallasýslu.
Guðrún eignaðist fjögur
börn. Þau eru 1) Sigurmundur
Ágústu var Kjell Lundberg, f.
10. október 1954, d. 2018.
Þeirra börn eru Ívan, f. 1977,
Daníel, f. 1978, Ómar, f. 1979,
og Mia Guðrún María, f. 1983.
4) Ómar Örn, f. 10. apríl 1959,
d. 2. september 1988.
Langömmubörn Guðrúnar eru
orðin 18 og langalang-
ömmubörnin fjögur.
Guðrún ólst upp á Eyrar-
bakka og lauk skólagöngu
þar. Þau Ólafur hófu búskap á
Njálsgötunni í Reykjavík en
bjuggu lengst af í Álfheimum
64 og síðar 13 og síðast í Sól-
heimum 25. Árið 2011 flutti
Guðrún á hjúkrunarheimilið
Skjól þar sem maður hennar
hafði verið í nokkur ár og bjó
með honum þar í nokkra mán-
uði, þar til hann lést. Guðrún
bjó á Skjóli þar til hún andað-
ist.
Guðrún starfaði sem ung
stúlka og kona við verslunar-
störf en lengst af starfaði hún
á prjónastofunni Peysunni auk
þess að vera húsmóðir.
Útförin fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag, 13. mars
2020, klukkan 13.
Arinbjörnsson, f.
2. júní 1949. Kona
hans er Hugborg
Sigurðardóttir, f.
4. júlí 1949. Börn
þeirra eru Arn-
rún, f. 1969, Sig-
urður, f. 1971, d.
1997, Ágúst, f.
1973, og Lena, f.
1976. 2) Árdís, f.
14. desember
1954. Maki hennar
er Robert Nooitgedacht, f. 7.
nóvember 1954. Fyrrverandi
eiginmaður Árdísar er Bragi
Guðbrandsson, f. 23. sept-
ember 1953. Börn þeirra eru
Ólafur Örn, f. 1978,
Guðbrandur Þór, f. 1982, og
Guðrún Elsa, f. 1986. 3)
Ágústa Ólafsdóttir, f. 25. júlí
1956. Hennar maki er Roger
Skagerwall, f. 3. apríl 1953.
Fyrrverandi eiginmaður
Elsku mamma og amma er bú-
in að kveðja þetta jarðríki. Þótt
hvíldin hafi sennilega verið henni
kærkomin er engu að síður sorg
okkar og söknuður stór.
Minningarnar eru margar og
góðar og þær lifa áfram í hjarta
okkar. Fyrir okkur hafa heim-
sóknirnar til Íslands frá Svíþjóð
verið ómetanlegur Þáttur í lífi
okkar. Í næstum tvo áratugi kom-
um við reglulega á hverju sumri
og um jól og áramót og bjuggum
hjá ömmu og afa, fyrst í Álfheim-
um 13 og svo í Sólheimum 25. Við
stoppuðum alltaf í 2-4 vikur og
þetta var auðvitað enginn smá-
pakki að fá 5 manns inn á heimilið
í þennan tíma. En alltaf var okkur
fagnað innilega og vel og aldrei
fundum við annað en að koma
okkar væri eins sjálfsögð og vel-
komin fyrir þau eins og fyrir okk-
ur. Fyrir mig, einstæða móður
með fjögur börn, var það kær-
komin hjálp og léttir að koma
heim í þessar vikur tvisvar á ári
og safna kröftum fyrir næstu önn.
Fyrir börnin eru minningarnar
frá þessum heimsóknum verð-
mætur hluti æskuáranna. Þau
gátu ekki hugsað sér að halda jól-
in annars staðar og í mörg sumur
voru drengirnir hjá þeim lengur
þegar þeir unnu í bæjarvinnunni.
Hjá ömmu og afa fengu þau ekki
bara kærleik, umönnun og góðan
mat heldur lærðu einnig góð gildi
og lífsviðhorf sem hafa verið þeim
veganesti í lífinu. Amma og afi
voru einstaklega hlý, örlát og góð
heim að sækja og þau voru alltaf
til staðar þegar á þurfti að halda.
Margar og góðar eru einnig
minningarnar um heimsóknir
þeirra til okkar í Stokkhólmi en
þau komu nánast á hverju sumri í
mörg ár og var Ómar bróðir einn-
ig með í för á meðan hann lifði.
Við ferðuðumst heilmikið um Sví-
þjóð og sérstaka ánægju höfðu
Guðrún
Sigurmundsdóttir
✝ Kristín BjörkFriðbertsdóttir
fæddist 22. maí
1963. Hún lést á
Hrafnistu, Skóg-
arbæ, 5. mars 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Pálína Guð-
mundsdóttir, f. 2.
mars 1944, d. 6.
apríl 2008, og Frið-
bert Páll Njálsson,
f. 10. desember
1940, d. 26. janúar 2007.
Systkini Kristínar Bjarkar
eru Friðbert Friðbertsson, f. 11.
apríl 1965, Njáll Trausti Frið-
bertsson, f. 31. desember 1969,
og Jóhann Grímur Friðbertsson,
f. 10. apríl 1971.
Samfeðra systkini
hennar eru Guðrún
Anna Hoolboom, f.
20. október 1974,
og Davíð Charles
Friðbertsson, f. 11
apríl 1975.
Kristín Björk
ólst upp í vesturbæ
Reykjavíkur og var
í Melaskóla og
Hagskóla og síðar í
Fjölbrautaskólanum í Ármúla.
Kristin var einhleyp og barn-
laus.
Útför Kristínar Bjarkar fer
fram frá Neskirkju í dag, 13.
mars 2020, klukkan 13.
Elsku systir, í dag kveð ég þig
með innilegum söknuði. Þú
greindist ung með sjúkdóminn
sem tók þig allt of snemma frá
okkur. Lífið var þér oft erfitt síð-
ustu ár og þyngra en tárum taki
að hugsa um það. Við áttum þó
mörg góð ár saman og minningin
um þig fríska og fjöruga lifir.
Hafðu þökk fyrir allt og allt, mín
kæra systir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Njáll Trausti.
Í dag verður systir mín Krist-
ín Björk borin til grafar.
Hugurinn hvarflar aftur til
æsku okkar systkinanna. Á þess-
um tíma var fjöldi barnmargra
heimila í vesturbæ Reykjavíkur
og í minningunni var annaðhvort
sól og sumar, eða snjóþungir vet-
ur og lítið þar á milli. Þá var sam-
gangur milli fólks meiri en nú,
þar sem áhrif sjónvarps og ann-
arra fjölmiðla voru lítil og ytra
áreitið mun minna. Á bernsku-
heimilinu okkar að Faxaskjóli 20
bjuggu þrjár kynslóðir, við í
kjallaranum, amma og afi á mið-
hæðinni og langamma og langafi
í risinu. Nálægðin við fjöruna,
móann og gæsluvöllinn gaf börn-
um ótæmandi tækifæri til at-
hafna, svo sem leikja, rann-
sókna, kofasmíði og fjölda
annarra aðgerða sem orkumikil
börn þarfnast.
Við áttum frændfólk í Eyja-
firði, sem á þeim tíma var óra-
langt í burtu. Þangað fór Kristín
Björk í sveitardvöl og varði þar
nokkrum sumrum við leik og
störf. Á þessum árum kynntust
ungmenni fljótt heimi fullorð-
inna og vann Kristín Björk í fiski
bæði í Reykjavík og úti á landi.
Kristín Björk átti góðar vin-
konur sem bjuggu í næstu göt-
um. Voru þær uppátækjasamar
og þegar þær voru komnar með
bílpróf voru þær duglegar við að
fara á rúntinn og aðrar bílferðir,
þar sem Kristín Björk var ávallt
bílstjórinn. Hafði hún mjög gam-
an af akstri og voru þessar ferðir
henni til mikils yndis, enda eign-
aðist hún snemma bíl. Rifjuðum
við stundum upp saman hinar
ýmsu uppákomur og brosleg at-
vik sem gerðust á þessum árum í
vinkvennahópi hennar.
Kristín Björk glímdi lengi við
illvígan sjúkdóm sem að lokum
bar hana ofurliði. Eftir að móðir
okkar lést árið 2008 var Kristín
Björk ein á Birkimelnum þar
sem þær mæðgur höfðu búið
saman um árabil. Fljótlega varð
ljóst að sú búseta yrði ekki lang-
vinn þar sem þarfir hennar
breyttust eftir því sem sjúkdóm-
ur hennar þróaðist til hins verra
og þurfti því að leita nýra bú-
setuúrræða í umhverfi sem veitti
henni eins mikið öryggi og sjálf-
stæði og unnt var. Þá flutti hún á
Sléttuveg, þar sem hún kynntist
góðu fólki og naut góðs aðbún-
aðar, hlýju og velvilja ásamt
möguleikum á dægrastyttingu í
félagsheimili MS-félagsins.
Gerði það líf hennar auðveldara
og gaf möguleika á mikilvægri
samveru og nálægð við aðra sem
þarna bjuggu.
Enginn fær flúið örlög sín.
Heilsan versnaði til muna og
meiri aðstoðar og aðhlynningar
varð þörf. Kristín Björk fluttist
því á Hjúkrunarheimilið Skóg-
arbæ haustið 2015 og bjó þar við
hið besta atlæti og fékk þar þá
umönnun og aðhlynningu sem
unnt var að veita. Við flytjum
umönnunaraðilum Kristínar
Bjarkar bestu þakkir fyrir
þeirra þátt í því að gera henni líf-
ið léttara síðustu árin. Mér er
efst í huga þakklæti til þess fólks
sem sinnir af alúð og ábyrgð okk-
ar veikasta fólki, öldruðum og
þeim sem glíma við langvarandi
sjúkdóma. Ég er þakklátur fyrir
það að hafa átt samskipti við
þetta góða fólk, sem sumt er
langt að komið og vinnur þessi
mjög mikilvægu störf.
Við Soffía og dætur okkar og
tengdaforeldrar mínir, Friðbjörn
og Sólveig, búum að mörgum
góðum minningum sem eru nú
ómetanlegar um heimsóknir til
Kristínar Bjarkar, fjöldann allan
af ísbíltúrum og öðrum skemmti-
legum helgarferðum. Ég finn á
þessum tímamótum hve mikil-
vægt það var fyrir dætur okkar
að kynnast því í heimsóknum til
Kristínar Bjarkar og þeim sem
með henni bjuggu, að margir búa
við mótlæti, erfiðleika og illvíga
sjúkdóma sem allir geta orðið
fyrir, en enginn velur sér.
Friðbert, Soffía Huld
og dætur.
Við systkinin minnumst Krist-
ínar Bjarkar frænku okkar með
hjartans þakklæti. Kristín Björk
var elst fjögurra barna Pálínu
móðursystur okkar, augasteinn
hennar og einkadóttir. Fjörmikil,
falleg og eldklár. Glaðvær og
glettin. Minningin um hlátur
hennar og leiftrandi ljósbláu
augun vekur hlýjar tilfinningar
væntumþykju og gleði í hjarta.
Kristín Björk kom til okkar á
Svalbarðsströndina á sumrin
með uppbrettar ermar og óbil-
andi bjartsýni. Hamhleypa til
verka. Þá þýddi nú ekki fyrir
okkur að ætla að gera eitthvað
með hangandi hendi. Kátína
hennar og kraftur til fyrirmynd-
ar og blés okkur byr í brjóst.
Geislandi skemmtilegur húmor
og hnyttin tilsvör, í fjósinu, við
heyskapinn, í útilegum, hjóla-
ferðum og síðar á rúntinum. Hún
átti seinna eftir að reynast börn-
um okkar hin skemmtilegasta
frænka. Áhugasöm um velferð
þeirra og með einstakt lag á að
ná til þeirra og hressa þau við ef
einhver var ekki upp á sitt besta
þann daginn. Það voru ávallt
miklir fagnaðarfundir að hitta
Kristínu Björk þegar við komum
til Reykjavíkur og hún boðin og
búin að skutla og uppfræða um
eitt og annað. Kristín Björk hafði
brennandi áhuga á þjóðfélags-
málum og hafði gaman af að
heyra okkar viðhorf á því sem
var efst á baugi þá stundina. Það
voru oft fjörugar umræður við
eldhúsborið hjá ömmu Sellu í
Faxaskjólinu og Kristín Björk þá
hrókur alls fagnaðar. Hún auðg-
aði líf ömmu okkar svo um mun-
aði og hugsaði um hana af mikilli
natni árum saman. Hún gerði
henni þannig kleyft að búa heima
svo miklu lengur en ella hefði
orðið og fyrir það erum við inni-
lega þakklát. Það var þungt högg
þegar hún Kristín Björk greind-
ist með Parkinsonsjúkdóminn
fyrir mörgum árum, svo alltof
ung. Og framgangur sjúkdóms-
ins svo alltof harður og óvæginn,
með öll sín hamlandi einkenni.
Það er ekki heiglum hent að lifa
með slíkan sjúkdóm en hún
Kristín Björk gafst aldrei upp og
það var hún sem stóð fyrir síð-
ustu endurfundum stórfjölskyld-
unnar, þegar 100 ár voru liðin frá
fæðingu ömmu okkar og afa.
Hafi hún kæra þökk fyrir það og
fyrir allt annað sem hún gaf af
sér af lífi og sál. Nú er hún farin
héðan en lifir áfram frísk í hjört-
um og dýrmætum minningum
okkar sem hana þekktum. Eftir
standa bræður hennar Friðbert,
Njáll Trausti og Jóhann Grímur,
ásamt fjölskyldum sínum. Hjá
ykkur er hugur okkar núna. Þið
voruð líf hennar og yndi, megi
góðu minningarnar næra og lýsa,
gefa ykkur styrkinn sem þið
þarfnist.
Margrét, Sesselja,
Guðmundur, Kristín og
Hólmgrímur frá Svalbarði.
Kristín Björk
Friðbertsdóttir
Elsku mamma mín, tengdamamma, amma,
langamma og sálufélagi,
LÁRA RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR,
Lóló,
Fellsási 1, Mosfellsbæ,
lést á Insular háskólasjúkrahúsinu í Las
Palmas, Gran Canaria, að morgni 1. mars.
Bálför fór fram 3. mars frá Mémora kapellunni í Las Palmas.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Sigurður Jón Grímsson Rósa Sveinsdóttir
Sólveig Lára Sigurðardóttir Friðrik Arnar Helgason
Grímur Snæland og Elínborg Rós Sigurðarbörn
Benjamín Thor og Karlotta Rós Friðriksbörn
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson