Morgunblaðið - 13.03.2020, Page 22

Morgunblaðið - 13.03.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Aðalfundur Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. vegna ársins 2019 verður haldinn mánudaginn 30. mars nk. kl. 10:30 á skrif- stofu félagsins í Hnífsdal. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 17. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum, sbr. 55. gr. laga um hlutafélög. 3. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Stjórn Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. Matvæla- og veitingafélag Íslands Aðalfundur MATVÍS (Matvæla-og veitinga- félags Íslands), verður haldinn í 2F Húsi fagfélaganna, Stórhöfða 31, miðvikudaginn 15. apríl nk kl. 16.00. Gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Félagsstarf fellur niður næstu daga. Nánari upplýs- ingar í síma 411 2701 og 411 2702. Bústaðakirkja Í ljósi aðstæðna vegna covid -19 þá fellur karlakaffið í dag niður. Vonandi hittumst við í apríl. Hólmfríður djákni. Dómkirkjan Sálmastund, fjölskyldustund og kvöldkirkja föstudaginn 13. mars. Dagskrá Kl. 17 sálmastund með Guðbjörgu og Kára. Kl. 18 fjölskyldustund og kvöldverður. Kl. 20 kyrrðin hefst með hugvekju. Kl. 20-21 Bryndís Jakobdsdóttir ásamt fiðluleikaranum og raftónlistar- manninum Karli Pestka. Hugleiðslu-og bænatónlist á gong. Kl.21 hug- vekja. Kl. 21.45-22 kvöldsöngur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Lýst hefur verið yfir neyðarstigi almannavarna vegna COVID-19 smits innanlands. Félagsmiðstöðin í Hæðargarði er því lokuð um óákveðinn tíma. Garðabær Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti, íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið. Starfsemi hjá FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið. Korpúfar Allt félagsstarf Korpúlfa fellur niður í ókákveðin tíma vegna Kórónaveirufaraldurs Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna COVID - 19 smits. Seltjarnarnes Því miður liggur allt auglýst félags og tómstundastarf eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi niðri vegna COVID 19, en þetta er ákvörðun fjölskyldusviðs í samráði við Landlækni og Ríkislögreglustjóra. Allar fyrirhugaðar og áður auglýstar ferðir og samkomur frestast um óákveðinn tíma. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðinn tíma vegna smits innanlands. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta Málningarþjónusta Upplýsingar í síma 782 6034. Bílar Nissan Micra árg. 2016 til sölu Ekinn 71 þús. km. Bíll í mjög góðu standi. Verð kr. 890.000. Upplýsingar í síma 822 6554. Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald og fl. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smá- og raðauglýsingar mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Valgerður Sig-urðardóttir fæddist í Reykjavík hinn 12. janúar 1928. Hún lést á Sól- vangi 2. mars 2020. Hún var dóttir hjónanna Ólafíu Sigurþórsdóttur og Sigurðar Kristins Gíslasonar sem eignuðust tíu börn sem öll eru nú látin. Valgerður eða Vala eins og hún var alltaf kölluð ólst upp í bakhúsi á Laugavegi 24b. Gekk í Miðbæjarskólann og Húsmæðra- skólann á Laugarvatni, en hún var alla tíð mikið borgarbarn. Árið 1946 gekk hún í hjóna- band með Pétri Þorbjörnssyni sem lést 30. júní 2009. Þau hjónin hófu búskap í Hafnarfirði og byggðu sér hús í Lindarhvammi 6, en síðustu árin bjuggu þau á Hjallabraut 33. Þau hjónin eignuðust 5 börn, sem eru: Svanhildur gift Gissuri Guðmundssyni börn þeirra eru Pétur og Valgerður Ása. Birgir giftur Hrefnu Geirsdóttur, börn þeirra eru Óskar og Geir. Sverrir giftur Söndru L. Péturs- son. Börn Sverris eru Guðmundur Örn sem er látinn og Marrisa Vala. Hrönn gift Jafeti Agli Ingvasyni, börn þeirra eru Hrund og Egill. Björk gift Sveini Sigurbergssyni og eru börn þeirra Ingibjörg, Sigur- bergur, Benedikt og Thelma. Barnabörnin eru orðin 16. Á yngri árum vann Vala á ljós- myndastofu Vignis og síðan sem húsmóðir. Þegar hún fór aftur út á vinnumarkaðinn vann hún með eiginmanni sínum í versluninni Málm í Hafnarfirði sem þau hjón- in ráku saman og síðan í fjár- málaráðuneytinu. Vala var mikil hannyrðakona og einnig var hún í glerlist. Vala var mikil stuðningskona Hauka í handbolta og var dugleg að sækja leiki þrátt fyrir að sjá ekki leikinn hin síðari ár vegna blindu. Útförin fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 13. mars 2020, klukkan 13. Elsku mamma, heppin ég að hafa átt þig fyrir mömmu og ömmu barnanna minna. Alltaf já- kvæð og þakklátt fyrir allt. Þú áttir fallegt líf eins og þú sagðir alltaf. Við áttum margar yndis- legar og ómetanlegar stundir saman sem ég geymi í hjarta mínu. Þegar einhver sem þú elskar verður að minningu verður minningin að dýrmætum fjár- sjóði. Takk fyrir allt, elsku hjartans mamma mín, hvíldu í friði, Björk. Ég vil minnast tengdamóður minnar Valgerðar eða Völu eins og hún var kölluð, en hún lést á Sólvangi hinn 2. mars sl. Ég var ung þegar ég kom inn á heimili hennar og þegar ég horfi til baka þá finnst mér ótrúlegt hvað hún var umburðarlynd og tók mér vel með alla þessa unglinga á heim- ilinu. Það var oft glatt á hjalla hjá þeim Völu og Pétri og kom þar dugnaður Völu fram. Stór- fjölskyldan átti alltaf vísan stað á hátíðum sem og sunnudögum þar sem tekið var á móti okkur með kræsingum og þar lögðu leið sína ekki bara fjölskyldan heldur einnig stór vinahópur. Á sinn hátt hélt hún alltaf utan um sinn hóp og fylgdist vel með öllum fram á síðasta dag. Ferðalög voru okkar sameig- inlega áhugamál og fórum við margar ferðir um landið okkar og nutum þess að þvælast um og skoða. Í mínum huga var alltaf gott veður í þessum ferðum og voru þær okkur öllum mikil skemmtun. Vala var mikil listakona og féll aldrei verk úr hendi. Bæði börn og barnabörn nutu þess að fá prjónaðar peysur frá henni og aðra handavinnu auk þess að fá glerlistaverkin sem hún bjó til. Það var henni því mikið áfall þegar sjónin gaf sig. Það skipt- ust á skin og skúrir í hennar lífi eins og flestra annarra en hún tókst á við það með glaðværð og dugnaði. Dagleg hreyfing og sundferðir voru henni nauðsyn- legar og eftir að sjónin fór að gefa sig stundaði hún leikfimi og göngur sér til heilsubótar. Vala kenndi mér margt, og það fyrst og fremst að líta björtum augum á hlutina og ef eitthvað þurfti að gera þá var orðatiltæki hennar „Drífum það af“ sem lýsir dugn- aði hennar best. Kæra tengdamamma, þín verður sárt saknað af stórfjöl- skyldunni en við erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með þér. Hrefna Geirsdóttir. Síðustu daga hafa margar yndislegar minningar flogið um hugskot mitt. Frá því ég var barn var Vala fastur punktur í lífi okkar mömmu. Eftirminni- legar eru margar ferðir í Fjörð- inn með rútu frá Reykjavík þar sem Vala sótti okkur niður á BSH á bíl. Þá voru ekki margir í vinahópnum hennar mömmu komnir á bíl og var þetta mikið sport. Mamma og Vala voru vinkon- ur frá því á unglingsárum og hélst þeirra góða og sterka vin- átta öll árin sem mamma lifði. Vala og mamma voru saman í saumó ásamt fimm öðrum og var það samheldur hópur sem fór með börnin í útilegur, sofið í tjöldum og þar gerðust mörg óskráð ævintýri en þar var gleðin alltaf við völd. Þessi sterka taug sem var á milli þeirra færðist til mín. Vala varð amma barna minna. Ung giftist Vala honum Pétri. Hún var fædd og uppalin í Reykjavík, hann kom frá Stöðv- arfirði en var fluttur til Hafnar- fjarðar og þar hófu þau sinn bú- skap og bjuggu þar allt tíð. Mér er svo minnistæð sagan um þeg- ar þau hittust fyrst í Þórsmörk að það er eins og ég hafi verið á staðnum, svo mikill ævintýra ljómi var yfir þeirri ferð. Börn þeirra urðu fimm og oftast var líf og fjör á heimilinu sérstaklega þar sem bræðurnir tveir voru einstaklega stríðnir. Vala og Pét- ur voru samrýmd hjón áttu far- sælt og ástríkt hjónaband. Þau mættu sínum erfiðleikum eins og allir í þessu lífi. En úr þeim unnu þau saman með hjálp barna sinna sem er samheldin hópur. Jóladagur var sannur hátíðar- dagur með ömmu Völu og afa Pétri hjá okkur fjölskyldunni. Rjúpu eldaðar á gamla góða mát- ann og triffli í desert. Hjördís, dóttir mín og Vala amma áttu sameiginlegt áhugamál það var sundið. Það voru ófáar ferðir í laugina og gæðastund á eftir. Þá var gjarnan rædd pólitík sem þar sem þær báðar höfðu mjög sterkar skoðanir og sem betur fer voru þær á sömu vegferð þar. Vala var glaðleg kona bar sig vel alla tíð bein í baki og fór yfirleitt hratt yfir því hún þurfti að „drífa“ sig. Kona með stór hjarta sem hún hleypti okkur fjölskyld- unni að. Með þakklæti og virð- ingu í huga kveð ég þig elsku Vala mín og ég vil trú því að allir okkar ættingjar sem farnir eru hafi tekið vel á móti þér. Magnea Erludóttir. Hörpu þinnar ljúfa lag lengi finn í muna. Því ég minnist þín í dag Þökk fyrir kynninguna. (ÁK) Kær félagskona okkar í Inner Wheel-klúbbi Hafnarfjarðar, Valgerður Sigurðardóttir, er lát- in. Valgerður gekk í klúbbinn okkar 4. nóvember 1976 og gegndi embætti gjaldkera 1978- 1979 og stallara 1998-1999. Hún starfaði þar alla tíð eða meðan henni entist heilsa. Segja má að hún hafi verið ein af dygg- ustu félagskonum klúbbsins og mat þennan félagsskap mikils og mætti vel á fundi með gleði og já- kvæðni. Langri og farsælli lífsgöngu hennar er nú lokið og við þökk- um henni góð kynni í gegnum árin. Við flytjum börnum hennar og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðj- um Guð að blessa þau á erfiðum tímum. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Fyrir hönd stjórnar Inner Wheel Hafnarfjörður, Elín, Brynja og Gerður. Valgerður Sigurðardóttir ✝ Geir Þórðar-son mat- reiðslumeistari fæddist 24. sept- ember 1931. Hann lést 30. janúar 2020. Foreldrar Geirs voru hjónin Þórður Ívarsson sjómaður og Ingi- björg Kristjáns- dóttir frá Arn- arbæli í Ölfusi. Eiginkona Geirs var Sigrún Þórarinsdóttir, d. 12. des. 2013. Synir Geirs og Sig- rúnar eru Þór- arinn Örn, f. 1952, og Geir Ingi, f. 1966. Sonur Þór- arins er Guð- mundur Geir og sonur hans er Ósk- ar Elí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Nú er komið að kveðjustund en í dag kveðjum við vin minn Geir Þórðarson með söknuði. Geir var heilsuhraustur fram á síðasta dag en daginn áður en hann kvaddi fór hann í hesthúsið að moka eins og aðra daga og að því loknu fór hann og mokaði stéttina heima hjá sér. Það kom því talsvert á óvart að kveðjustundin væri runnin upp. Þegar ég lít yfir farinn veg og kynni okkar Geirs leitar hugurinn í ótal minningar sem ég á um Geir eftir áralanga vináttu. Við Geir kynntumst árið 1966 þegar hann flutti ásamt fjölskyldu sinni í Sæviðarsund 50 og vorum við nágrannar allt til ársins 2009. Það má því segja að börn okkar beggja hafi að stórum hluta alist upp saman, þar sem samgangur- inn var mikill á milli heimilanna. Alltaf opið hús á milli og afmælis- veislurnar lifa í minnum þeirra og okkar. Við ferðuðumst líka í Þórs- mörkina saman þar sem við dvöld- um í tjöldum ásamt fjölskyldum okkar og áttum þar góðar stundir. Mér er einnig minnisstæð ferð okkar á safnið á Garðskaga þar sem við biðum lengi yfir kaffisopa eftir komu hvalanna vegna þess að frændi minn hafði sagt mér að hægt væri að sjá þá frá kaffistof- unni. Við vorum orðnir frekar óþreyjufullir eftir langa bið og ákváðum að spyrja þjóninn hve- nær von væri á hvölunum. Svarið kom eldsnöggt þar sem hann sagði okkur að þeir kæmu um sex- leytið. Svo var það dagurinn sem Geir fékk sér þessa líka fínu mótor- sláttuvél og ég sá alveg kjörið tækifæri í að ég myndi kaupa helminginn í vélinni og við mynd- um samnýta hana, þar sem litlar líkur voru á að við þyrftum að nota hana á sama tíma. Tilboð Geirs sem var alveg óborganlegt var á þá leið að ég gæti fest kaup á 40% hlut en þyrfti þá að sjá um við- haldið líka. Þetta var Geir í hnot- skurn og stundum erfitt að átta sig á hvort grín eða alvara var í svörum hans. Margir myndu eflaust segja að Geir Þórðarson hafi verið þekktur í hverfinu fyrir það að eiga alltaf flottasta bílinn í götunni og voru margir sem litu hann öfundaraug- um fyrir það. Bíllinn alltaf nýbón- aður og fínn og þannig var það fram á síðasta dag. Ég gæti haldið lengi áfram og rifjað upp margt sem tengist Geir en þótt ég hafi flutt úr Sæviðar- sundinu héldum við Geir áfram sambandi. Við hittumst alltaf vikulega þegar ég heimsótti hann í Sæviðarsundið þar sem við skál- uðum í fallegum glösum og trönu- berjasafa. Vinskapur okkar þótti sérstakur og í hvert sinn sem við hittumst byrjuðum við á háum hvelli þar sem við rifumst í stutta stund áður en allt féll í dúnalogn og við ræddum málin í mesta bróðerni. Ég á eftir að sakna þessara vikulegu heimsókna í Sæviðar- sundið, hugsa til Geirs og Þakka ég honum innilega fyrir samfylgd- ina. Sonum hans Þórarni og Geir Inga ásamt barnabarni og barna- barnabarni votta ég samúð mína. Hvíl í friði, kæri vinur. Kristján G. Jóhannsson. Geir Þórðarson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningar- grein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.