Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 KRINGLAN –SMÁRALIND DUKA.IS Veltileikföng – 5.990,- stk. Tuskudýr Frá 5.990,- stk. Matarsett 3. stk. 3.190,- Smekkur með ermum 2.990,- Smekkur – 1.990,- Nagdót 1.990,- stk. Diskamotta – 1.990,- stk. Stacking Lala 5.990,- FYRIR SMÁFÓLKIÐ Sængurverasett Ungbarna 70x100 cm – 5.990,- stk. Barna 100x140 cm – 8.990,- stk. 50 ára Bjarni er frá Höfn í Hornafirði en býr á Egilsstöðum. Hann er tæknifræð- ingur að mennt frá Ála- borg og er tæknifræð- ingur hjá Alcoa. Bjarni er m.a. í stjórn Austra brugghúss og Skotveiðifélags Austur- lands og er formaður Tónleikafélags Austurlands. Maki: Elva Rún Klausen, f. 1973, kennari í Grunnskólanum á Egilsstöðum. Börn: Inga Lind, f. 1994, Ívar Andri, f. 1998 og Hildur Vaka, f. 2001. Barnabörn- in eru orðin þrjú. Foreldrar: Sveinhildur Sveinsdóttir, f. 1940, húsmóðir, og Haraldur Jóhann Jónsson, f. 1934, húsasmíðameistari. Þau eru búsett á Akureyri. Bjarni Þór Haraldsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt miklar annir séu máttu ekki gleyma því að gefa þér tíma fyrir hugð- arefnin. Leyfðu sköpunarþrá þinni að njóta sín og losaðu þig við innri spennu og kvíða. 20. apríl - 20. maí  Naut Veltu hlutunum fyrir þér því oft er það farsælast sem ekki liggur í augum uppi. Fyrirætlanir þínar eru fyrsta skrefið að dásamlegum breytingum í lífi þínu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Því minna sem þú reynir að ganga í augun á öðrum því betri árangri nærðu. Ekki ganga of langt en leyfðu öðrum heldur ekki að vaða yfir þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert ekki nógu skipulögð/lagður og það pirrar þig þegar skipulagsleysið kemur niður á frítíma þínum. Óvæntur gestur veitir þér nýja sýn á mál sem þú hef- ur lengi verið að glíma við. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Forðastu deilur og frestaðu því að ræða erfið málefni. Upp úr hádeginu eflistu allur og verður staðráðin/n í því að ná settu marki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert á öndverðum meiði gagnvart ættingja og þarft að hafa hemil á skapi þínu ef þú vilt ekki að allt fari úr böndunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér hættir til óraunsæislegra draum- óra í dag og það bætir ekki úr skák að fólkið í kringum þig er á alveg sömu nótum. Vertu ekki stíf/ur heldur reyndu að slá á létta strengi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver misskilningur veldur því að öfund samstarfsmanna beinist að þér og þínum. Refsaðu ekki sjálfri/um þér því þú átt allt annað skilið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að láta minniháttar rifr- ildi ekki hafa áhrif á þig. Settu það því í for- gangsröð að vinda svolítið ofan af þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft á öllum þínum góðu hæfileikum að halda til þess að leiða við- kvæmt fjölskyldumál til lykta. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er rétti tíminn til þess að strengja þess heit að fara betur með pen- inga. Láttu það gerast og árangurinn mun koma þér skemmtilega á óvart. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt þú sért ekki upp á þitt besta þessa dagana tekst þér samt að hafa áhrif á aðra þannig að mál þín þokast áfram. rými í bænum svo það var nóg að gera en þegar ég varð 65 ára gat ég farið á eftirlaun og hef verið að leika mér síðan.“ Hestamennskan hefur síðustu 30 ár verið aðaláhugamál Ólafs og fór hann alltaf í langa hestaferð um há- lendið í júlí „Það var toppurinn á til- frystihúss Ólafsvíkur 1987-91. „Það var þá mjög skuldsett og ekki við bjargandi svo það fór í gjaldþrot.“ Eftir það var Ólafur með gistihús á Skólavörðustígnum og íbúðir til leigu fyrir ferðamenn í miðbæ Reykjavík- ur til ársins 2005 er hann fór á eftir- laun. „Á þessum tíma var lítið gisti- Ó lafur Jóhann Gunnars- son er fæddur 13. mars 1940 á Akranesi en ólst upp á Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað. Hann stundaði fótbolta á sumrin og skíði á veturna. „Ég var einnig í sveit í tvö sumur, 10-11 ára á Ásbrandsstöðum í Vopnafirði og þar lærði ég meira en nokkurn tímann síðar á ævinni. Ég var akkúrat í sveit árið þegar fyrsti traktorinn kom,“ segir Ólafur. Hann lærði vélvirkjun 1955-1959 og var við nám í Vélskóla Íslands 1959-1961. Þá stundaði hann nám í skipavélatæknifræði í Warnemünde í Þýskalandi 1961-1964. Ólafur starfaði við skipasmíðastöð í Bolzenburg í Þýskalandi 1964-1965, var tæknifræðingur Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað 1965-1968 og framkvæmdastjóri hennar 1968-84. Þegar ég byrjaði sem framkvæmda- stjóri var síldin horfin og þá varð að finna ný tækifæri fyrir Síldarvinnsl- una. Við fórum í að vinna bolfisk og finna loðnu og fyrsti skuttogari landsins kom til Síldarvinnslunnar 1972 og svo keyptum við fleiri skip.“ Síðan kom snjóflóðið í Neskaupstað 1974, en 12 manns dóu í flóðinu. „Frystihúsið skemmdist mikið og bræðslan fór í rúst. Hófst þá mikil barátta að byggja síldarvinnsluna upp aftur en hún var mjög skuldug eftir uppbyggingarárin. Það var erf- iður rekstur í sjávarútveginum í heild sinni á þessum tíma og verð- bólga var 40-50%. Menn skilja ekki núna hvernig þetta gekk allt fyrir sig á þessum tíma.“ Ólafur sat í stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 1972-84, í stjórn Icelandic Freezing Plants Ltd í Grimsby á Englandi 1980-85 og í Síldarútvegsnefnd 1974-80. Hann varð síðan einn af þremur fram- kvæmdastjórum hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 1984-1987. „Það var í fyrsta sinn á ævinni sem ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af fjár- málum, þannig að þetta var ágætur tími. Síðan komu inn nýir menn og skipulagsbreytingar og ég passaði ekki inn í þær svo ég fór að reka frystihús í Ólafsvík.“ Ólafur var eig- andi og framkvæmdastjóri Hrað- verunni að ríða fram og aftur um há- lendið, stundum einn og stundum með fleirum, en konan mín var lengi með í þessu núna. En hestakaflanum er lokið núna, ég er orðinn fullorðinn og hestarnir líka. Ég fór síðustu ferð mína á hálendið fyrir tveimur árum og seldi hesthúsið fyrir þremur mán- uðum.“ Það er þó nóg að gera hjá Ólafi. „Maður kemst ekki yfir allt sem er í boði fyrir eldri borgara í Mosfells- bænum. Það er líkamsræktin, Müllersæfingar og ég fer í sund flesta daga.“ Fjölskylda Kona Ólafs er Helga Friðriks- dóttir, f. 16.8. 1941 í Dessau í Þýska- landi, skipavélatæknifræðingur og leiðsögumaður. Hún var kennari við Iðnskólann í Neskaupstað, við Iðn- skólann og Borgarholtsskólann í Reykjavík. Foreldrar Helgu voru hjónin Gertrud og Florian Radtke skógarvörður. Sonur Ólafs er Örn, f. 20.3. 1962, Ólafur J. Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri - 80 ára Hestamaðurinn Ólafur við hesthúsin í Leirvogi í Mosfellsbæ, en hann stundaði hestamennsku í 30 ár. Flutti inn fyrsta skuttogarann Hjónin Helga og Ólafur á ferðalagi og þarna stödd í siglingu. 40 ára Gunnar Örn er Vesturbæingur en býr í Hafnarfirði. Hann er lögfræðingur frá HR en er í fæðingarorlofi. Gunnar er hluthafi í Fish Partner, sem er félag í veiðibrans- anum. Hann er framkvæmdastjóri Ís- lensku flugveiðisýningarinnar og var meðstofnandi JÖR. Maki: Ásta Guðjónsdóttir, f. 1977, lög- maður. Dætur: Helga, f. 2016, og Arna, f. 2019 og stjúpdætur eru Auður, f. 2003, og Katrín, f. 2006. Foreldrar: Helga Petersen, f. 1944, fv. skrifstofustjóri, og Othar Örn Petersen, f. 1944, lögmaður. Þau eru búsett í Reykja- vík. Gunnar Örn Petersen Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.