Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 28
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Sýningin heitir Níu líf og við erum
með átta leikara sem túlka líf Bubba
á sviðinu, en sá níundi er svo Bubbi
sjálfur, uppi í Kjós með súrdeigs-
brauð og bros á vör,“ segir Ólafur
Egill Egilsson höfundur og leikstjóri
sýningarinnar Níu líf sem Borgar-
leikhúsið frumsýnir á Stóra sviðinu í
kvöld kl. 20. Sýn-
ingin er byggð á
ótrúlega fjöl-
breyttu lífshlaupi
tónlistarmannsins
Bubba Morthens
og leikur tónlist
hans eðlilega
stórt hlutverk í
uppfærslunni.
Leikararnir átta
eru Rakel Björk
Björnsdóttir sem
er Ungi-Bubbi, Aron Már Ólafsson
Gúanó-Bubbi, Björn Stefánsson
Utangarðs-Bubbi, Hjörtur Jóhann
Jónsson Edrú-Bubbi, Esther Talia
Casey Ástfangni-Bubbi, Jóhann Sig-
urðarson Góðæris-Bubbi, Valur
Freyr Einarsson Sátti-Bubbi og
Halldóra Geirharðsdóttir Egó-
Bubbi. Blaðamaður settist niður með
Halldóru og leikstjóranum fyrr í vik-
unni til að heyra um tilurð sýningar-
innar.
Skjálfti innst í sálinni
„Ég hef oft heyrt að Óli sé mikill
listamaður en hef aldrei unnið með
honum áður. Ég get staðfest það að
hann er alveg einstakur,“ segir Hall-
dóra og bendir sem dæmi á hversu
vel Ólafi Agli takist að halda í öll
„kreatívu elementin“ sem notuð eru
á litlum leiksviðum nú þegar hann er
að vinna sína fyrstu sýningu fyrir
Stóra sviðið. „Á litlu sviði er oft auð-
veldara að hafa sýninguna opna fyrir
hugmyndum allra í leikhópnum og
svigrúm til að prófa ólíkar hug-
myndir. Við tókum það vinnulögmál
með okkur inn í þessa sýningu sem
ég held að sé stundum erfitt að fram-
kvæma í svona stórum sýningum þar
sem allt er þyngra í vöfum og flókn-
ara tæknilega. Í mínum huga var það
hins vegar algjört möst af því að að
þau eru öll Bubbi. Þau eru sýningin
og þá verður sýningin líka að spegla
þau og þeirra tengingu við Bubba til
þess að þetta verði alvöru, hafi eitt-
hvert vægi fyrir okkur og þar með
áhorfendur,“ segir Ólafur Egill.
Aðspurður segir hann að hug-
myndin að því að sviðsetja ævi
Bubba hafi verið á sveimi í nokkurn
tíma. „Ég vissi að Bubbi væri opinn
fyrir þessu. Þar gengur hann gjör-
samlega á hólm við sig, klýfur sjálfan
sig í herðar niður, eiginlega í frum-
eindir, verður drengurinn sem var
brotið á, poppstjarnan sem er blind,
egóið óheft, auðmýktin, smæðin,
sársaukinn,“ segir Ólafur Egill og
bendir á að í nálgun sinni á efniviðinn
hafi hann haft partaþerapíu til hlið-
sjónar. „Þar sem þú gefur tilfinn-
ingum þínum eða ákveðnum tímabil-
um í lífi þínu form eða karakter sem
hægt er að ávarpa og nálgast með
einhverjum hætti. Við erum öll sam-
sett og margbrotin. Það eru margar
útgáfur af okkur inni í hverju okkur,“
segir Ólafur Egill.
„Sem er spennandi nálgun. Þegar
ég sá í hvað mér var kastað fannst
mér gott að láta konu taka þann
hluta í lífshlaupi Bubba. Af því að
þetta er mest grótesk tímabilið í hans
ævisögu. Nú um stundir er minna
umburðarlyndi gagnvart ákveðnum
elementum í karlmönnum, s.s.
markaleysi, yfirgangi og miklum
egósentrisma. Ég held að áhorfendur
séu mildari gagnvart því að láta segja
sér þá sögu ef kona gerir það,“ segir
Halldóra. Spurður hvort það flæki
málin að viðfang sýningarinar sé
sprelllifandi viðurkennir Ólafur Egill
að hann hafi verið mjög stressaður
þegar Bubbi mætti á rennsli síðasta
mánudag. „Það var eiginlega frum-
sýningin fyrir mig. Ég fann fyrir
skjálfta innst í sálinni því við erum
auðvitað að vaða um líf hans á skít-
ugum skónum,“ segir Ólafur Egill.
„Í túlkun minni á Egó-Bubba tek
ég mér líka alveg skáldaleyfi. Ég er
Egó-Bubbi eins og ég sé hann. En
Bubbi hefur verið alveg æðrulaus
gagnvart því, hann er algjörlega bú-
inn að sleppa hendinni af því hvaða
leið við förum. Það eina sem ég held
að hann hafi áhyggjur af er sam-
ferðafólk hans, hann vill að við förum
vel með það,“ segir Halldóra. „Það
hafði heilmikil áhrif á mig í upphafi
sköpunarferlisins þegar ég var að
spyrja Bubba hvort það væri eitt-
hvað sem væri viðkvæmt fyrir hon-
um og hann svaraði því til að ég
mætti undir engum kringumstæðum
hlífa honum. Hann lagði mikla
áherslu á að frásögnin væri alvöru,
annars yrði þetta ekki neitt. Hann
hefur því frekar hvatt okkur áfram
en hitt. En hann vill engan meiða eða
særa, frekar en við. Við erum óvægin
gagnvart Bubba, en aðrir held ég að
megi vel við una. Þetta er uppgjör
Bubbanna við sjálfa sig, ekki aðra.
Þrátt fyrir allt sem lífið hefur haft
upp á bjóða stendur Bubbi uppréttur
í dag og er að miðla hlýju og ljósi.
Sem slíkur er hann gríðarlega mikil-
vægur. Alveg eins og það er mikil-
vægt að við, hvert og eitt, förum í þau
uppgjör sem við þurfum að eiga við
okkur sjálf og líf okkar til þess að við
getum orðið jákvætt afl í heiminum.
Ef það er einhver tilgangur með
þessari sýningu þá vil ég þegar ljósin
slokkna í salnum að sýningu lokinni
að fólk hugsi með sér að fyrst Bubbi
gat þetta þá get ég það líka,“ segir
Ólafur Egill.
Leikhús er samsköpun
„Það sem inspírerar mig við
Bubba, sem hefur verið hluti af lífi
mínu síðan ég var 12 ára þegar ég
heyrði Ísbjarnarblús í fyrsta sinn, er
að hann fer upp fyrir öll kerfi. Hann
hefur aldrei þjónað neinum kerfum í
samfélaginu. Hann kemur alltaf með
sína skoðun. Hann getur beintengt
sig sköpunarkraftinum og það flæðir
bara í gegnum hann. Það gerir hann
að ólíkindatóli. Það gerir það að verk-
um að manni fannst eins og hann
væri alltaf að breyta um karakter og
því erum við með alla þessa leikara til
að túlka hann. Bubbi lýtur bara öðr-
um lögmálum en við hin,“ segir Hall-
dóra og tekur fram að hún upplifi
Bubba sem óhræddan. „Hann hefur
aldrei ritskoðað sjálfan sig. Og hann
er líka óhræddur við að skipta um
skoðun. Þetta finnst mér mjög inspí-
rerandi við hann og til eftirbreytni
fyrir mig sem listamann,“ segir Hall-
dóra. Spurð hvað hafi gert vinnuferl-
ið skemmtilegast svarar Halldóra
umsvifalaust að það felist í því að fá
að vinna með nýtt íslenskt verk.
„Höfundur verksins, sem er Óli, lítur
ekki svo á að verkið sé tilbúið þegar
við byrjum að vinna það heldur að
þetta sé grunnur að handriti sem
verður að sýningu. Þannig að hann
afhendir okkur ábyrgðina á því að
leita meðan á æfingaferlinu stendur
og það finnst mér brjálæðislega
skemmtilegt,“ segir Halldóra.
„Ég er alveg sammála Dóru með
það. Leikhús er hóplist og sam-
sköpun,“ segir Ólafur Egill.
Lengri gerð viðtalsins má lesa á
mbl.is og þar má einnig sjá fjölda
mynda frá litríkum ferli Bubba.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Ólíkindatólið Bubbi
Bubbasöngleikurinn Níu líf frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld „Vil að
fólk hugsi með sér að fyrst Bubbi gat þetta þá get ég það líka,“ segir leikstjórinn
Ólafur Egill
Egilsson Kraftur Halldóra Geirharðs-
dóttir er Egó-Bubbi og Hjörtur
Jóhann Jónsson Edrú-Bubbi.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell
ADifferent Kind of Disaster Movie.
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN
ÓSKARSTILNEFNINGAR2 BESTA ERLENDA MYNDINBESTA LE IKARI : ANTONIO BANDERAS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI
FRUMSÝND Á FÖSTUDAGINN
San Francisco Chronicle
Indiewire
Hollywood reporter