Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Eins og staðan er í dag hefur þetta gengið með samheldni starfsmanna. En það er mikið að gera,“ segir Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala Ís- lands. Mikið álag hefur verið á deildinni undanfarnar vikur við greiningar á sýnum vegna kórónuveirunnar. Metfjöldi sýna barst á föstudaginn síðasta, alls 569, og hefur þurft að grípa til ýmissa ráðstafana til að hægt sé að standast þetta aukna álag. Sem kunnugt er hóf Íslensk erfðagreining skimun fyrir kórónu- veirunni fyrir helgi. Karl segir í samtali við Morgun- blaðið að fjölga hafi þurft starfsfólki á sýkla- og veirufræðideild Land- spítalans. „Mönnun á deildinni var ágæt en við höfum bætt við einum starfsmanni og erum að bæta við öðrum með reynslu vegna álags,“ segir hann en auk þess hafa aðrir starfsmenn tekið að sér ný verkefni og eru í þjálfun í veirurannsóknum. Þannig unnu sex manns að jafnaði við þess háttar greiningar mánuðina á undan. „Í dag, eins og ástandið er, þá eru að jafnaði 12 að vinna við þetta auk 1-3 sérfræðilækna frá því að sýni kemur í hús til svars.“ Eins hefur þurft að bæta við tækjabúnaði til að anna álagi betur. „Tvö tæki sem við erum að bæta við auðvelda greiningarferlið. En það þarf sannarlega að huga að endur- nýjun og viðbótum á tækjabúnaði deildarinnar eftir þetta. Það er verið að vinna í því enn frekar með útboði á einangrunartæki,“ segir Karl. Sýni berast Landspítalanum frá heilbrigðisstofnunum alls staðar að af landinu. „Sýnin eru að koma inn allan daginn en þau koma ansi mörg seinnipartinn. Það er vegna þess að heilsugæslustöðvar skipuleggja sig gjarnan þannig að þær taka sýni af þeim sem mögulega eru sýktir þeg- ar líður á daginn svo ekki þurfi að sótthreinsa of oft. Fyrir vikið náum við ekki alltaf að klára öll sýni sem berast dag hvern og þau bíða því til morguns,“ segir Karl. Hann segir að skimunin sem framkvæmd er kallist keðjufjölföld- un á erfðaefni eða Real Time Po- lymerase Chain Reaction, RT-PCR. „Það er sú aðferð sem viðurkennd er sem besta aðferðin til að greina þessa veiru og sú sem WHO hefur mælt með. Við unnum með Íslenskri erfðagreiningu við að setja upp sam- bærilega aðstöðu fyrir þessa rann- sókn svo við ættum að vera með sambærilegar niðurstöður.“ Við greiningu á sýnum er byrjað á því að einangra erfðaefnið og tekur það um það bil klukkustund. Þá er annað tæki notað til að fjölfalda erfðaefnið og tekur það um það bil aðra klukkustund. Allt í allt tekur greiningin um það bil 3-5 klukku- stundir, eftir því hversu mörg sýni eru greind hverju sinni. „Við erum með keyrslur allan daginn og fram á kvöld, a.m.k. fimm keyrslur á dag,“ segir Karl G. Kristinsson. Tvöfalt fleiri greina nú sýnin  Mikið álag á sýkla- og veirufræðideild Landspítala  Starfsfólki fjölgað og verkefni færð til  Met- fjöldi sýna barst á föstudaginn  Sama aðferð notuð á Landspítala og hjá Íslenskri erfðagreiningu Mikið álag við rannsóknir á Landspítala Heimild: Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans 569 sýni komu inn til greiningar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala á föstu- daginn síðasta og var það metfjöldi. Þar af voru 516 öndunarfærasýni. 12 manns vinna nú við greiningar á sýnum á sýkla- og veirufræðideildinni auk 1-3 sérfræðilækna. Áður en kórónu- veirufaraldurinn kom upp unnu að jafnaði 6 manns að öllu ferli greiningarinnar, frá því sýni kemur í hús þar til svar fæst. 2 starfsmenn með reynslu við þessar greiningar eru að bætast við, einn kominn og annar væntanlegur, auk tilfærslu á verkefnum annars starfsfólks. 3-5 klukku-stundir tekur að greina hvert sýni að jafnaði. Veður var orðið mjög vont á Vest- fjörðum í gærkvöldi og leit út fyrir að slæmar spár fyrir svæðið væru að ganga eftir. Þar var norðaustan stormur með talsverðri snjókomu og búist við miklum skafrenningi og lélegu skyggni. „Það eru 20 til 25 metrar á heiðunum og eins í Æðey sem bendir til þess að Djúp- ið sé mjög slæmt. Það er minni vindur niðri í Súðavík og á Flat- eyri, en það er talsvert mikill vind- ur orðinn. Strandirnar eru líka ansi ljótar,“ segir Elín Björk Jón- asdóttir, veðurfræðingur á Veður- stofu Íslands. Appelsínugul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum þangað til klukkan 20 í kvöld kvöld. En þar er einnig óvissustig vegna snjóflóðahættu og voru íbúðarhús rýmd bæði á Flat- eyri og Patreksfirði í gær. Þá er gul viðvörun í gildi á Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra. Þar er búist við snjókomu og skaf- renningi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varðskipið Týr var á leið vestur á firði og á níunda tímanum í gær- kvöldi var skipið statt á Breiðafirði þar sem var norðaustan stormur og 6 til 8 metra ölduhæð. Að sögn Thorben Lund, skipherra á Tý, mátti búast við því að töluvert bætti í vind og sjó eftir því sem vestar drægi í nótt. „Þetta er ósköp svipað og við töldum í dag og hefur legið fyrir alla helgina. Maður óskar þess stundum að spárnar séu vitlausar en þær eru það ekki núna,“ segir Elín en spár gera ráð fyrir að veðrið standi yfir í allan dag og fram á kvöld. Vont veður á Vestfjörðum  Norðaustan stormur með snjókomu  Hús voru rýmd á Flateyri og Patreksfirði í gær  Týr á leið vestur á firði Ljósmynd/Landhelgisgæslan Óveður Vont var í sjó á Breiðafirði í gærkvöldi og risu öldurnar hátt. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta eru fordæmalausir tímar en við verðum bara að fikra okkur áfram,“ segir Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla í Kópavogi. Skólastjórnendur nýttu gærdag- inn í að leggja lokahönd á skipulag þess hvernig tekið verður á móti nemendum nú þegar samkomubann hefur tekið gildi. Aðeins mega vera 20 manns í hverri stofu að meðtöld- um kennara og kallar það víða á breytt skipulag. Kársnesskóli verð- ur lokaður í dag vegna verkfalls Efl- ingar og segir Björg að óvissan vegna verkfallsins sé óþolandi. Grunnskólar á Seltjarnarnesi verða sömuleiðis lokaðir í dag vegna um- rædds verkfalls. Björg segir í samtali við Morg- unblaðið að búið sé að skipuleggja skólastarf í Kársnesskóla og taki það skipulag gildi þegar hægt verði að opna skólann á ný. Stefnt er að því að kenna börnum í fyrsta og öðr- um bekk allan daginn, börnum í þriðja til fimmta bekk til hádegis eða þar um bil en börn í sjötta til tí- unda bekk verði meira og minna í fjarkennslu. „Þau vinna heima í gegnum spjöldin sín, skila og taka á móti verkefnum rafrænt,“ segir Björg. Hún segir að þessar áætlanir geti auðveldlega breyst enda séu margir þættir sem þurfi að huga að. „Við berum samfélagslega ábyrgð og tök- um það mjög alvarlega. Við gerum eins vel og við getum,“ segir Björg. Á Akureyri raskast starf í skólum og leikskólum. Um helgina greindist foreldri barns á leikskólanum Hólmasól með kórónuveirusmit. Á heimasíðu bæjarfélagsins kemur fram að til að gæta fyllsta öryggis hafi verið ákveðið að ráði sóttvarna- læknis og rakningateymis Almanna- varna að hafa tvær deildir leikskól- ans lokaðar í tvær vikur. Börn og fjölskyldur þeirra, sem og kennarar á deildunum tveimur, verða í sóttkví til 27. mars. Skólanum verður læst Í Melaskóla í Reykjavík verður kennt á morgnana í þessari viku. Nemendur mæta á mismunandi tíma. Aðeins verður kennt fjóra daga í næstu viku. Í Vesturbæjar- skóla er ítrekað að mikilvægt sé að mæta á réttum tíma því skólinn verði læstur á daginn. Í Fossvogs- skóla er brýnt fyrir nemendum að mikilvægt sé að sitja kyrr í sætinu allan tímann á meðan skólastarf er. Ekki má fara á milli borða eða út úr kennslustofum og aðeins sé hægt að fara á salernið í skólastofunni. „Berum samfélagslega ábyrgð“  Skólastarf skipulagt með tilliti til samkomubanns  Tveimur deildum á leik- skóla á Akureyri lokað vegna smits  Vesturbæjarskóli læstur meðan kennt er Morgunblaðið/Hari Skóli Mismunandi er hvernig grunnskólar haga kennslu nú þegar sam- komubann hefur tekið gildi. Víða mæta nemendur aðeins annan hvern dag. Sundlaugar í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar þrátt fyrir samkomubannið. Gufu- og eimböð verða lokuð og stöku pottar í nokkrum sundlaug- um verða lokaðir ásamt rennibraut- um. Þetta kom fram í tilkynningu borgaryfirvalda í gær. Farið verður að tilmælum Al- mannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður takmörkuð nýting á hand- klæðarekkum og sömuleiðis á sturt- um. Búast má við fjölgun heim- sókna frá börnum vegna skerðingar á skóla- og frístunda- starfi. Sundæfingar verða ekki leyfðar til 23. mars. Sundleikfimi eldri borgara verður felld niður. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sund Áfram verður opið í sundlaugum borgarinnar næstu dagana. Sundlaugarnar verða opnar um sinn KÓRÓNUVEIRUFARALDUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.