Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 Farþegi sem hættir við flug á eigin forsendum vegna kórónuveirunnar á ekki rétt á endurgreiðslu farmiða þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda um að Íslendingar fari ekki í ferðalög er- lendis. Þetta kemur fram á heima- síðu Samgöngustofu. Þá eiga farþeg- ar sem geta ekki farið í flug vegna ákvörðunar stjórnvalda um landa- mæralokun aðeins rétt á endur- greiðslu sé flug þeirra fellt niður. Það er ekki alltaf raunin. Þannig hef- ur Icelandair haldið úti einhverju flugi til Bandaríkjanna og Danmerk- ur með þá farþega sem landamæra- lokunin tekur ekki til, svo sem fólk sem búsett er í ríkinu. Í þeim til- vikum eiga aðrir farþegar ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að vera óheimilt að nýta sér flugið. Óvissa með tryggingar Þórhildur Elín Elínardóttir, sam- skiptastjóri Samgöngustofu, segir reglur um réttindi flugfarþega byggjast á Evrópureglugerð. Það eru mörg úrlausnarefni sem koma upp í þessum aðstæðum enda for- dæmalausar,“ segir hún. Flugfarþegar eru oftar en ekki tryggðir, ýmist í gegnum heimils- tryggingu eða tryggingu á greiðslu- korti. Ná slíkar ferðatryggingar annars vegar til forfalla en hins veg- ar svokallaðs ferðarofs, þ.e. þegar fólk verður að kaupa flug fyrr heim vegna óviðráðanlegra aðstæðna svo sem andláts ástvinar eða meiri hátt- ar tjóns á heimili. Samkvæmt upplýsingum frá tryggingafélaginu VÍS dekkar for- fallatrygging félagsins farþega sem geta ekki flogið út vegna landa- mæralokana. Hins vegar geti far- þegar ekki nýtt ferðarofstryggingu til að koma fyrr heim úr fríi þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda. Hjá öðrum stórum tryggingafélögum, TM og Sjóvá, fengust ekki jafnskýr svör. Réttindi flugfar- þega eru óljós  Fá ekki endilega endurgreitt þrátt fyrir að geta ekki ferðast vegna banns Morgunblaðið/Hari Tjón Flugsamgöngur hafa lamast. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is „Þessar upplýsingar eru svolítið misvísandi og það er óljóst hvað þetta þýðir í raun og veru, en al- mennt veit maður það að einkenna- laust fólk smitar minna og síður en það sem er með einkenni,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir spurður um ummæli Kára Stefáns- sonar, forstjóra Íslenskrar erfða- greiningar, um að 40 prósent þeirra sem smiti aðra af kórónuveirunni séu einkennalaus. „Ástæðan er sú að það er meira smitefni sem berst frá fólki með einkenni. Það er grunnurinn að þessum leiðbeiningum. Þýðir það að einkennalaust fólk geti ekki smitað? Nei, það þýðir ekki það. En við lít- um svo á í okkar viðbrögðum að fólk með einkenni sé líklegra til að smita en einkennalaust fólk.“ Kári vísaði til breskra rannsókna sem hefðu sýnt fram á að um 40 prósent smitbera væru einkenna- laus. Þórólfur segir rannsóknum þó ekki endilega bera saman hvað þetta varðar. „Það eru til rannsóknir sem segja þetta og svo eru til rann- sóknir sem segja annað. Þannig að þetta er breytilegt. Þetta breytir engu í nálguninni, nema jú að við vitum að dreifingin er meiri en við vitum um og við verðum að sætta okkur við það. En við erum fyrst og fremst að reyna að minnka dreif- inguna með því að taka þetta fólk sem er með einkenni og þá sem eru í snertingu við það. Það þýðir ekki að það séu ekki aðrir sem geti smit- að, en ennþá teljum við það ólík- legra að einkennalaust fólk smiti en hinir.“ Þórólfur segir í raun ekkert meira hægt að gera hvað þetta varðar. „Hinn kosturinn væri að gera ekki neitt. Segja bara að við vitum ekkert um þetta og allir geti verið að smita. En þá höfum við ekki stjórn á neinu og fáum þennan faraldur alveg óheftan yfir okkur. Við minnkum líkurnar verulega með þessu en komum ekki í veg í fyrir það.“ Myndi engu skila að loka landinu Spurður hvort það væri ekki betra að loka landinu, líkt og nokkr- ar þjóðir hafa gert, til að mynda ná- grannaþjóðir okkar, Danmörk og Noregur, segir Þórólfur það ekki rétta skrefið. „Við erum komin með veiruna inn í landið og hún kom með Íslendingum. Það hefur enginn er- lendur ferðamaður greinst hér með veiruna. Að loka núna myndi ekki breyta neinu, ekki nema við ætlum að loka Íslendingana úti sem eru að koma að utan. Veiran er komin hingað inn og við vitum að þótt við reyndum að loka alla úti myndi hún koma hérna inn fyrr en síðar þegar það yrði opnað aftur. Þannig að ég held að það sé ekki sniðug taktík.“ Markmiðið með aðgerðunum núna er, að sögn Þórólfs, að halda þeim faraldri sem er í gangi í góð- um skefjum. „Þannig að við fáum ekki óheftan faraldur og mikið af veiku fólki inn á gjörgæslu spít- alanna, það yrði mjög slæmt. Það er aðaltilgangurinn með þessu.“ Hverjar líkurnar eru á hugsan- legum faraldri síðar segir Þórólfur: „Það fer eftir því hvað það eru margir sem sýkjast og það ber að hafa í huga að langflestir sem sýkj- ast fá lítil einkenni og gera sér oft ekki grein fyrir því. Það er því þannig að það verða fleiri sem sýkj- ast en maður heldur. Ég held að við munum ná ágætis ónæmi í sam- félaginu. Það getur tekið smá tíma og þess vegna erum við að grípa til þessara aðgerða.“ Þórólfur segir töluverðan lærdóm hafa verið dreginn nú þegar af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til. „Lærdómurinn er sá að við höfum verið að gera rétt. Ég held að aðgerðirnar okkar hafi ver- ið réttar og komið inn á réttum tíma. Við höfum ekki verið að grípa til einhverra örþrifaráða þegar allt hefur verið farið af stað eins og sumar þjóðir hafa gert. Ég held að við getum verið ánægð eins og stað- an er núna. Auðvitað veit maður aldrei hvernig staðan verður, en við höfum þá önnur ráð uppi í erminni ef ástandið versnar eitthvað. Maður vill heldur ekki grípa til of mikilla aðgerða sem valda meiri skaða á samfélaginu. Það verður að fara þarna bil beggja. Að beita mjög áhrifaríkum aðgerðum á sem mild- astan hátt þannig að aukaverkan- irnar verði ekki of miklar,“ segir Þórólfur en faraldurinn hefur þróast á svipaðan hátt og hann bjóst við. Rannsóknum ber ekki saman  Teljum enn líklegra að einkennalausir smiti aðra síður af kórónuveiru, segir sóttvarnalæknir Ljósmynd/lögreglan Á upplýsingafundi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma Möller land- læknir og Jóhannes Rúnarsson, forstjóri Strætó, og táknmálstúlkur á upplýsingafundi um kórónuveirufaraldurinn. Uppruni smitsFjöldi daglegra smita frá 28. febrúar Fjöldi eftir landshlutum Innanlands Erlendis Óþekktur28.2. 29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3 1 1 2 8 5 13 9 8 6 6 9 13 24 15 19 22 19 18 Óstaðsett 1 23 Útlönd 0 4 Austurland 0 4 Höfuðborgarsvæði 179 1,533 Suðurnes 4 94 Norðurland vestra 0 2 Norðurland eystra 1 94 Suðurland 13 346 Vestfirðir 0 13 Vesturland 0 22 Smit Sóttkví 28%15% 57% 198 staðfest smit 2.135 í sóttkví 1.987 sýni 198 í einangrun 3 á sjúkra-húsi kl. 21.30 í gær Upplýsingar eru fengrar af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.