Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 16. mars 2020, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2020 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. mars
2020, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. mars 2020
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hafið er mat á umhverfisáhrifum
vindorkugarðs á Mosfellsheiði innan
sveitarfélaganna Grímsnes- og
Grafningshrepps og Ölfuss. Garður-
inn yrði reistur í áföngum og gæti
orðið allt að 200 megavött.
Zephyr Iceland ehf. er fram-
kvæmdaraðili verksins en mat á um-
hverfisáhrifum er unnið af Mannviti
hf. Zephyr Iceland hefur skoðað að-
stæður víða um land með tilliti til
uppsetningar á vindmyllum. Niður-
staða þeirrar athugunar var sú að
Mosfellsheiði hentaði ákaflega vel
og er ekkert svæði í næsta nágrenni
talið henta jafn vel, segir í drögum
að matsáætlun, þar sem ferli við mat
á umhverfisáhrifum er lýst.
Í 300 metra hæð
Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
uppsetningu um tíu vindmylla í
landi Grímsnes- og Grafnings-
hrepps og er fyrirhugað fram-
kvæmdasvæði í um 300 metra hæð
yfir sjávarmáli. Gert er ráð fyrir að
afl hverrar vindmyllu verði 5-6 MW
og heildarafl fyrsta áfangans um
það bil 50-60 MW. Með áframhald-
andi vexti í raforkueftirspurn er
stefnt að því að reisa alls um tuttugu
vindmyllur til viðbótar þannig að
heildarafl verði um 150-200 MW,
segir í drögunum. Gera má ráð fyrir
að vindmyllurnar verði um 150-200
metrar á hæð miðað við spaða í
hæstu stöðu.
Zephyr Iceland ehf. var stofnað
2018 í þeim tilgangi að þróa vind-
orkuverkefni hér á landi og bjóða
umhverfisvæna raforku á hag-
kvæmu og samkeppnishæfu verði.
Fyrirtækið er dótturfyrirtæki
norska fyrirtækisins Zephyr AS,
auk þess sem Hreyfiafl ehf. er hlut-
hafi. Zephyr er annað stærsta vind-
orkufyrirtækið í Noregi.
Orkumannvirki í nágrenninu
Á Mosfellsheiði eru vindskilyrði
talin hagstæð, tiltölulega einfalt að
tengjast raforkuflutningskerfinu og
aðgengi að svæðinu með besta móti.
Svæðið er í drögunum sagt einkenn-
ast nú þegar af orkumannvirkjum í
formi hitaveitulagnar og háspennu-
lína auk þess sem nokkrar stærstu
jarðhitavirkjanir landsins séu í
næsta nágrenni. Engin byggð er á
svæðinu né í næsta nágrenni þess.
Fyrirliggjandi gögn gefa skýrar
vísbendingar um vindinn á svæðinu,
en til að staðfesta áætlaðan vind
verða vindaðstæður mældar í um 80
metra hæð í minnst tólf mánuði.
Leyfi hefur fengist fyrir uppsetn-
ingu vindmastra með mælitækjum á
svæðinu og er unnið að uppsetningu
masturs innan Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps. Síðar er fyrirhugað að
færa það til á heiðinni eða setja upp
annað mastur innan Ölfuss, en leyfi
fyrir slíku mastri liggur einnig fyrir
þar.
Fyrsti áfangi fyrirhugaðs vind-
orkugarðs verður mögulega tengd-
ur beint við Nesjavallalínu 1. Önnur
möguleg tenging er um spennistöð-
ina á Geithálsi eða hugsanlega í nýja
stöð við Lyklafell.
Í frummatsskýrslu verður sér-
staklega fjallað um sjónræn áhrif
vindorkugarðsins. Í drögunum segir
að nokkur fjöll fjöll takmarki sýn frá
byggð inn á svæðið. Engu að síður
muni hluti af vindmyllunum sjást úr
fjarlægð, þó ógreinilega sé vegna
fjarlægðar, bæði frá höfuðborgar-
svæðinu og frá þjóðgarðinum á
Þingvöllum.
Umsóknir vegna tíu svæða
Fram kom í Morgunblaðinu í
byrjun janúar að umsóknir um
rannsóknaleyfi og vindmælingar á
vegum Zephyr hefðu þá verið á
borðum sveitarstjórna vegna um tíu
svæða. Þar kom fram að fjárfesting
vegna 50 MW vindorkugarðs með
um tólf vindmyllum gæti verið hátt í
tíu milljarðar króna.
Kortagrunnur: Mannvit
Vindorkugarður
Vindmyllur
Sýnileiki vindmylla
Hveragerði
Þingvellir
Reykjavík
Mosfellsbær Mosfellsheiði
Kópavogur
Garðabær
Hafnarfjörður
Þingvalla-
vatn
Fyrirhugaður
vindorkugarður á
Mosfellsheiði
5 km
10 km
15 km
Vilja virkja vind á Mosfellsheiði
Garðurinn gæti orðið allt að 200 MW
Tíu vindmyllur og 50-60 MW í fyrstu
Sandlóur með dægurrita sem þær
fengu á Vestfjörðum síðasta sumar
hafa undanfarið sést á Spáni, Portúgal
og Frakklandi á ferðalagi sínu um
vesturströnd Evrópu. Greint er frá
þessu á heimasíðu Náttúrustofu Vest-
fjarða undir fyrirsögninni „sandlóur á
bakpokaferðalagi um Evrópu“, en
dægurritarnir (e. geolocator) eru fest-
ir á bakið á sandlóunum með „axla-
böndum“.
Rannsóknasetur Háskólans á
Suðurlandi einstaklingsmerkti 22
sandlóur í Bolungarvík, á Ísafirði og í
Önundarfirði síðasta sumar í sam-
vinnu við Náttúrustofu Vestfjarða.
Ritarnir mæla birtutíma eða daglengd
og út frá því má sjá hvar fuglarnir hafa
verið. Það verður verkefni næsta sum-
ars að ná fuglunum aftur til að hlaða
gögnunum niður. Fyrstu sandlóurnar
koma til landsins um miðjan apríl en
toppur er í komu þeirra í lok apríl eða
byrjun maí. aij@mbl.is
Ljósmynd/NAVE
Ferðalangur Rækilega merkt sand-
lóa með dægurrita á baki. Þessi fugl
fannst við Lissabon 7. mars.
Sandlóur
á bakpoka-
ferðalagi
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Í fyrsta sinn í ríflega hálfrar aldar
sögu orlofsbyggðarinnar á Ill-
ugastöðum í Fnjóskadal þurfti að
loka svæðinu um liðna helgi vegna
gríðarlegra snjóa. Það sem varð
einkum og sér í lagi til þess að grípa
þurfti til lokunar var að öflugasti
snjóblásarinn bilaði, en mikið álag
hefur verið á snjómoksturstækjum
orlofsbyggðarinnar nú í vetur.
Jón Óskarsson, umsjónarmaður
með orlofsbyggðinni, sagði mikinn
snjó á svæðinu og svo hefði verið frá
því óveðrið mikla gekk yfir landið í
desember. „Svo hefur þetta smám
saman verið að versna,“ segir hann.
Afskaplega mikill snjór væri við Ill-
ugastaði en það væri í raun ekki ný-
lunda.
Mikið reynt á tækin
„Það hefur sífellt bæst við snjóinn
síðan í desember. Þetta hefur farið
stigversnandi. Tækin sem við höfum
til umráða eru í stöðugri notkun og
það reynir mikið á þau. Það var
verulega slæmt veður hjá okkur á
sunndaginn og því kom sér mjög illa
að öflugasta tækið okkar bilaði. Það
var því ekki hægt að moka neitt
heim að húsum og ekki um annað að
ræða en loka,“ sagði Jón.
Gestir voru í einu húsi þegar lokað
var og biðu þau veðurhrinuna af sér.
Alls eru ríflega 30 hús í byggðinni og
er fólk að jafnaði í 15 til 20 húsum
um helgar. Svæðið hefur alla tíð átt
vinsældum að fagna.
Leiðindaspá framundan
Jón sagðist ekki vita hvert fram-
haldið yrði en ljóst að gera þyrfti við
snjóblásarann og nokkurra daga bið
væri hið minnsta eftir varahlutum í
hann. „Það er framundan úrkomu-
spá og alls ekki neitt skemmtilegt
veður þannig að útlitið er ekki glæsi-
legt, en maður veit aldrei hvernig
þetta endar,“ segir hann. Þannig
væri löngu fullbókað í öll hús á svæð-
inu um komandi páska, „en alltof
snemmt að segja fyrir um hvernig
hlutirnir þróast og hvaða staða verð-
ur uppi þá,“ segir Jón.
Hann segir að vegurinn inn að Ill-
ugastöðum sé mokaður þrisvar í
viku og bara einu sinni á dag. Það
þyki mörgum sem vanir eru stöð-
ugum snjómokstri til að halda veg-
um opnum einkennilegt og átti sig
kannski ekki alveg á þjónustustig-
inu. Hann hælir sveitarstjórn Þing-
eyjarsveitar hins vegar fyrir að ann-
ast alfarið snjómokstur heimreiða,
en slíkt tíðkist yfirleitt ekki til sveita
þar sem hver og einn þarf að hugsa
um sig.
Ljósmynd/Björn Snæbjörnsson
Illugastaðir Loka þurfti orlofsbyggðinni um helgina sökum mikilla snjóa.
Loka þurfti Illuga-
stöðum vegna snjóa
Mikið álag á moksturstækjum