Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.03.2020, Blaðsíða 26
17. mars 1965 Frétt í Morgunblaðinu: Íslenzk knattspyrnuyfirvöld fengu beiðni um það að tilnefna dómara á leik Svíþjóðar og Kýpur, en leikur þessi er liður í undankeppni heimsmeistara- keppninnar sem lýkur 1966. Leikur þessi verður í Svíþjóð 5. maí. Dómaranefnd KSÍ var falið að velja dómara og fyrir valinu varð Magnús V. Pét- ursson sem allir knattleiksunn- endur þekkja eftir margra ára dómarastörf. Magnús er þriðji Íslendingurinn sem dæmir knattspyrnulandsleik milli er- lendra liða erlendis; hinir eru Haukur Óskarsson og Hannes Þ. Sigurðsson. 17. mars 1970 Frétt í Morgunblaðinu: Úrval knattspyrnumanna úr Kópavogi og Hafnarfirði lék gegn landslið- inu sl. laugardag á Háskólavell- inum og lauk leiknum með sigri úrvalsins, 5:2. Mikil rigning var meðan leikurinn fór fram og því völlurinn mjög blautur og þung- ur. Fram kemur að Helgi Ragn- arsson hafi skorað þrennu, „Hat- trick“, fyrir úrvalsliðið en Matt- hías Hallgrímsson gert bæði mörk landsliðsins. 17. mars 1972 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska karlalandsliðið í hand- knattleik vinnur auðveldan sigur á Belgum, 31:10, í undankeppni Ól- ympíuleikanna í Bilbao á Spáni. Geir Hallsteinsson skorar 12 mörk í leiknum og Axel Axelsson 9. Upp- reisn æru eftir jafntefli, 10:10, gegn Finnum í fyrsta leiknum. 17. mars 1991 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska kvennalandsliðið í hand- bolta sigrar Portúgala örugglega, 29:14, í fyrsta leikn- um í C-heimsmeistarakeppninni á Ítalíu. Guðríður Guðjónsdóttir skorar 5 mörk, Rut Bald- ursdóttir, Erla Rafnsdóttir og Björg Gilsdóttir 4 hver. 17. mars 1995 Frétt í Morgunblaðinu: Skalla- grímsmenn komust ekki til Njarðvíkur í gær þar sem veður var farið að færast í aukana. Þeir lögðu upp frá Borgarnesi með langferðabifreið klukkan hálf fjögur en þegar þeir voru komnir í Melasveitina var færð- in orðin það slæm að ljóst var að þeir myndu aldrei ná til Njarð- víkur fyrir klukkan átta. 17. mars 1999 Viðburður á þessum degi: Ís- lenska karlalandsliðið í hand- knattleik sigrar Ungverja, 29:22, á heimsbik- armótinu í Sví- þjóð. Valdimar Grímsson skorar 10 mörk og Róbert Julián Duranona gerir 7. Ísland endar þar með í þriðja sæti í sínum riðli. 17. mars 2010 Frétt í Morgunblaðinu: Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnu- maðurinn ungi hjá Reading, heldur áfram að gera það gott. Í gærkvöld tryggði hann liðinu sigur á QPR, 1:0, í ensku 1. deildinni, með miklu ein- staklingsframtaki, fimm mín- útum fyrir leikslok. Á ÞESSUM DEGI 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020 BRETLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ég er fyrst og fremst ótrúlega ánægð með þennan sigur enda mikil óvissa búin að vera í gangi í kringum körfuboltann á Englandi undan- farna daga,“ sagði Sara Rún Hin- riksdóttir, leikmaður Leicester Riders og nýkrýndur breskur bikar- meistari í körfuknattleik, í samtali við Morgunblaðið. Sara fór á kostum í úrslitaleiknum gegn Durham Palatinates og skoraði 23 stig og tók sjö fráköst. Frammi- staða Söru í leiknum skilaði henni nafnbótinni besti leikmaður úrslita- leiksins en Leicester Riders vann fjögurra stiga sigur í spennandi leik, 70:66, í úrslitaleik í Emirates Arena í Glasgow á sunnudaginn. Þetta er þriðja árið í röð sem Leicester Rid- ers verður breskur bikarmeistari en fyrsta tímabilið sem Sara leikur með liðinu. Leikplanið gekk fullkomlega „Við byrjum leikinn betur en svo komu þær með áhlaup og náðu að minnka muninn, Við vorum svo aftur sterkari í upphafi síðari hálfleiks en þegar fjórar mínútur voru til leiks- loka fékk ég tilfinninguna að þær væru að fara klára þetta. Sem betur fer náðum við að halda þetta út og það er vert að taka það fram að leik- plan þjálfarans gekk fullkomlega upp og það small í raun allt hjá okk- ur í þessum leik. Ég var meðvituð um að Leicester hafði unnið þetta tvö ár í röð. Ég vil samt ekki skrifa þennan sigur á einhverja reynslu innan hópsins því við erum með nýtt lið frá því í fyrra þannig séð. Það eru þrír leikmenn í hópnum sem hafa spilað síðustu tvo úrslitaleiki og þeg- ar allt kemur til alls var það varnar- leikurinn og hvernig við stjórnuðum klukkunni allan leikinn sem skilaði þessum sigri í hús.“ Eins og áður sagði átti Sara frá- bæran leik og var stigahæst í liði Leicester Riders með 23 stig. „Það eru margir mjög góðir leik- menn í þessu liði og það hefur í raun verið þannig í allan vetur að það er aldrei sama manneskjan sem er stigahæst í leikjum okkar. Það fer í raun bara eftir mótherjanum hver það er sem spilar best og það hent- aði mér vel að spila á móti Durham Palatinates þar sem að uppleggið var að keyra á þær, meðal annars úr hraðaupphlaupum. Við lögðum höfuðáherslu á varnarleikinn í leikn- um og það hentar mér vel því mér finnst gaman að verjast og sóknin kom í raun bara með varnar- leiknum.“ Óvissuástand á Bretlandi Forráðamenn BBL, bresku körfu- knattleiksdeildarinnar, hafa ekki enn gefið það út hvort leikjum í deildinni verður frestað á næstunni vegna kórónuveirunnar og því hefur ákveðin óvissa ríkt í kringum deild- ina undanfarna daga. „Það hefur verið mikil umræða um það hvort það eigi að fresta leikj- um og öðru vegna kórónuveirunnar hér á Bretlandi. Það voru settir deildarleikir á helgina en þeim var frestað á síðustu stundu en samt sem áður var ákveðið að spila þenn- an bikarúrslitaleik. Ástæðan sem var gefin upp fyrir því að fresta ekki úrslitaleiknum var peningalegs eðlis og það fór í taugarnar á mörgum. Það voru hins vegar allir meðvitaðir um ástandið vegna veirunnar og leikmenn heilsuðust til að mynda ekki, hvorki fyrir né eftir leik. Við gáfum hins vegar allt í úrslitaleikinn og spiluðum hann í raun bara eins og um síðasta leik tímabilsins væri að ræða. Ef þetta var síðan síðasti leik- ur tímabilsins er ég í raun bara fegin að það var ákveðið að spila hann því það er í umræðunni núna að fresta allri keppni frá og með mánudeg- inum.“ Spilar samhliða náminu Sara er 23 ára gamall Keflvík- ingur, lék með uppeldisfélaginu til 2015 og var tvisvar valin besti ungi leikmaðurinn á Íslandsmótinu, en þá fór hún í Cansius-háskóla í Banda- ríkjunum þar sem hún var í febrúar 2019. Hún lék síðan með Keflavík á lokaspretti síðasta tímabils. Sara reiknar með því að spila með Leicester Riders á næstu leiktíð en hún er stigahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 17 stig að meðaltali. Liðið er á toppi deildarinnar með 24 stig, eins og Sevenoaks Suns. „Ég er í meistaranámi í alþjóða- viðskiptum í Loughborough- háskólanum og ég ákvað í raun bara að fara þá leið að spila og læra á sama tíma, frekar en að fara beint í atvinnumennsku. Ég á eitt ár eftir af samningi mínum við Leicester og markmiðið er að klára þann samn- ing. Ég mun að sjálfsögðu skoða mín mál þegar samningur minn rennur út og markmiðið hefur alltaf verið að fara í atvinnumennsku en eins og staðan er núna er planið að spila með Leicester Riders á næstu leik- tíð,“ bætti Sara við í samtali við Morgunblaðið. Eins og um síðasta leik væri að ræða  Sara breskur bikarmeistari með Leicester  Stefnir á að halda áfram Morgunblaðið/Hari Landsliðskona Sara Rún Hinriksdóttir hefur leikið 19 landsleiki fyrir Ís- lands hönd og ætlar að leika áfram í breska körfuboltanum næsta vetur. Liverpool er dýrmætasta knatt- spyrnulið Evrópu í dag samkvæmt útreikningum greiningarstofunnar CIES Football Observatory. Þar eru teknir 20 helstu leikmenn hvers liðs í fimm sterkustu deildum Evrópu, á Englandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Frakklandi, og verðmæti þeirra reiknað út frá aldri, samningslengd og fleiru. Verðmæti Liverpool er reiknað út sem rúmir 213 milljarðar íslenskra króna. Manchester City er skammt undan með 205 milljarða og Barcelona í þriðja sætinu með 177 milljarða króna. Liverpool með dýrmætasta liðið AFP Dýrmætur Mo Salah er einn mik- ilvægasti leikmaður Liverpool. Viðar Örn Kjartansson, landsliðs- maður í knattspyrnu, segir að óvissa sé með framhaldið á deilda- keppninni í Tyrklandi, en hann skoraði fyrir Yeni Malatyaspor í leik á sunnudaginn eins og áður hefur komið fram. Sá leikur fór fram án áhorfenda, en Tyrkir stefna á að ljúka tímabilinu þannig. Viðar sagði í viðtali sem birtist á mbl.is í gær að liðið byggi sig undir það að spila um næstu helgi. „Það myndi ekki koma neitt sérstaklega á óvart ef einhverjum leikjum yrði frestað,“ sagði Viðar Örn. Búa sig undir að spila áfram Ljósmynd/Yeni Malatyaspor Tyrkland Viðar Örn Kjartansson gæti spilað fleiri leiki. NBA-körfuboltadeildin í Bandaríkjunum byrjar í fyrsta lagi aftur í júní, en henni var frestað um óákveðinn tíma í síðustu viku. ESPN í Bandaríkjunum greindi frá. Sam- kvæmt miðlinum óttast forráðamenn félaga deild- arinnar að hætt verði alfarið við yfirstandandi tímabil og það dæmt ógilt. Þykir þeim bandarísk stjórnvöld bregðast hægt og illa við útbreiðslu veirunnar og vegna þessa verði ekki hægt að spila hópíþróttir með áhorf- endum næstu mánuðina. Upprunalega átti að spila leiki í deildinni án áhorfenda vegna útbreiðslu veirunnar en um leið og Rudy Gobert, leikmaður Utah Jazz, greindist með hana, var hætt við alla leiki ótímabundið. Að sögn ESPN kemur þrennt til greina; leikir haldi áfram án aðdáenda, að hætta al- farið við tímabilið og svo að fara beint í úrslitakeppnina og spila hana án áhorfenda. Ásamt Gobert er liðsfélagi hans Donovan Mitchell með veiruna, sem og Christian Wood hjá Detroit Pistons. Þrjár lausnir koma til greina Rudy Gobert Andy Jones, blaðamaður hjá The Athletic, telur að frest- un ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu til 4. apríl hið minnsta muni gera Jóhanni Berg Guðmundssyni, lands- liðsmanni og leikmanni Burnley, afar gott. Jóhann hefur verið óheppinn varðandi meiðsli á tímabilinu og hefur aðeins byrjað fjóra leiki í úrvalsdeildinni á yfirstandandi leiktíð. Jóhann hefur tvívegis tognað aftan í læri í vetur og var hann fyrst frá í rúma tvo mánuði og síðan sex vikur. Jones telur að Jóhann geti nýtt fríið vel og mætt aftur á völlinn í betra standi. „Hver meiðslin á fætur öðrum hafa haldið honum frá byrjunarliði Burnley á tímabilinu. Þessi þriggja vikna pása mun bara gera honum gott og hjálpa honum enn þá frekar að ná sér góðum af þeim meiðslum sem hafa verið að plaga hann,“ skrifaði Jones. Jóhann hefur skorað eitt mark í úrvalsdeildinni í vetur og kom það strax í 1. umferð gegn Southampton. Frestunin góð fyrir Jóhann? Jóhann Berg Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.