Morgunblaðið - 17.03.2020, Page 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2020
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ljóst er að atvinnuleysi mun fara
vaxandi á næstunni og aukast meira
á komandi mánuðum en Vinnu-
málastofnun ætlaði fyrir aðeins fá-
einum vikum, að sögn Karls Sig-
urðssonar, sérfræðings hjá
Vinnumálastofnun. Illmögulegt er
að spá nokkru á þessari stundu um
hver fjölgunin gæti orðið á atvinnu-
leysisskránni vegna veirufaraldurs-
ins og þrenginga og samdráttar í
rekstri sem fyrirtæki verða fyrir.
Nái líka til verktaka
Væntanlegar breytingar á lögum
um atvinnuleysistryggingar um
aukinn bótarétt eiga að vega upp á
móti uppsögnum hjá fyrirtækjum en
frumvarp félagsmálaráðherra, sem
dreift hefur verið á Alþingi, gerir
kleift að minnka starfshlutfall
starfsfólks í fyrirtækjum tímabund-
ið í stað þess að grípa til uppsagna.
Starfsmenn eigi þá rétt á hlutabót-
um úr Atvinnuleysistryggingasjóði
á móti skertum launagreiðslum.
Breytingin á líka að auðvelda sjálf-
stætt starfandi einstaklingum, verk-
tökum og einyrkjum, sem missa
verkefni og verða fyrir verulegum
samdrætti að geta sótt sér atvinnu-
leysisbætur án þess að þurfa að loka
rekstri sínum eins og núverandi
reglur kveða á um.
Er vonast til að fyrirtæki sjái sér
meiri hag í því að nýta þessi úrræði í
tímabundnum erfiðleikum en að
grípa til uppsagna starfsfólks sem á
vitaskuld rétt á launum á uppsagn-
arfresti.
Markmið breytinganna er að
starfsfólk geti haldið ráðningar-
sambandi sínu. Var gripið til sam-
bærilegra aðgerða í kjölfar krepp-
unnar fyrir rúmum tíu árum. Þegar
mest var nutu ríflega tvö þúsund
manns þess úrræðis. Karl segir að
aðstæður núna séu nokkuð aðrar
þar sem nú sé gert ráð fyrir að
kreppan verði skammvinn og gangi
yfir á nokkrum mánuðum. ,,Við ger-
um ráð fyrir að stærri fyrirtæki t.d.
í ferðaþjónustunni muni nýta þetta
úrræði í samráði við okkur í töluvert
miklum mæli næstu tvo, þrjá mán-
uðina,“ segir hann.
Gæti náð til um þúsund manns
Í greinargerð frumvarpsins kem-
ur fram að reynslan frá fyrri árum
hafi verið sú að hlutfall þeirra sem
voru á atvinnuleysisskrá vegna
minnkaðs starfshlutfalls var á bilinu
8-11% af heildarfjölda atvinnuleit-
enda á hverjum tíma. ,,Hvort hlut-
fallið haldist svipað eða hækki er
erfitt að sjá fyrir. Ef hópur þeirra
starfsmanna sem lækkar í starfs-
hlutfalli verður með svipuðu sniði og
áður má búast við því að um þúsund
einstaklingar fái greitt samkvæmt
ákvæði þessu. Ætla má að með-
algreiðsla til hvers einstaklings
verði um 193.500 kr. auk 22.000 kr. í
mótframlag,“ segir þar.
Færist í aukana í apríl og maí
Í venjulegu árferði fer atvinnu-
leysi minnkandi frá og með febr-
úarmánuði. Á því varð breyting í
fyrra eftir fall WOW air og jókst at-
vinnuleysið sérstaklega í apríl. Gera
má ráð fyrir svipaðri þróun á næst-
unni, í stað minnkandi atvinnuleysis
muni það standa í stað eða fara vax-
andi í mars og færast svo í aukana í
apríl og maí.
Vinnumálastofnun hefur gert ráð
fyrir að meðalatvinnuleysi yfir árið
verði 4,5-4,7% en núna er reiknað
með að það verði eitthvað yfir 5% á
árinu. Skráð atvinnuleysi hefur auk-
ist á umliðnum mánuðum og mæld-
ist 5% í febrúar. Að jafnaði voru
9.162 einstaklingar án atvinnu í
seinasta mánuði. Það er mesti fjöldi
á atvinnuleysisskrá frá því í febrúar
árið 2013. Mikill munur er þó á
þessum atvinnuleysistölum og í
efnahagskreppunni fyrir áratug.
Þannig fengu t.a.m. ríflega 29 þús-
und manns greidda tæpa 28 millj-
arða í atvinnuleysisbætur yfir allt
árið 2009 samkvæmt Tíund, riti Rík-
isskattstjóra um framtaldar bætur á
skattframtölum á því ári.
11,1% atvinnuleysi útlendinga
Vaxandi atvinnuleysi um þessar
mundir kemur sérlega þungt niður á
starfsmönnum sem eru af erlendu
bergi brotnir. Alls voru 3.906 er-
lendir ríkisborgarar án atvinnu í lok
febrúar og samsvarar þessi fjöldi
um 11,1% atvinnuleysi meðal er-
lendra ríkisborgara. Þetta er mikil
aukning frá sama mánuði í fyrra
þegar fjöldi atvinnulausra með er-
lent ríkisfang var 2.192 eða um
6,3%.
Minna starfshlutfall á
móti öldu atvinnuleysis
Fjöldi atvinnulausra nálgast tíu þúsund og spáð er fjölgun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þakviðgerðir Blikur eru á lofti á vinnumarkaði um þessar mundir.
„Staðan er mjög óljós og við að vinna
úr aðstæðum sem breytast mjög
hratt,“ segir Þórunn Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar.
Fjöldi fólks er erlendis um þessar
mundir í ferðum á vegum ferðaskrif-
stofunnar, svo sem á sólarstöðunum
Kanarí og Tenerife. Þar gildir út-
göngubann til 30. mars og er nú verið
að skoða stöðuna varðandi flug þang-
að á næstu dögum.
„Yfirleitt hefur mars verið mjög
góður sölutími hjá okkur fyrir kom-
andi mánuði. Páskar eru alltaf há-
annatími, sama hver áfangastaður-
inn er. Núna er þetta allt stopp og við
vitum náttúrlega ekkert hvernig mál
þróast á okkar helstu áfangastöðum.
Um leið og myndin skýrist eitthvað
munum við hins vegar slá í og hefja
nýja sókn, því landsmenn halda
áfram að ferðast,“ segir Þórunn.
Margir sem stefndu á eða höfðu
bókað og keypt utanlandsferðirnar
eru nú í óvissu með rétt sinn og
stöðu, til dæmis vilji fólk hætta við
ferðina. „Síminn hér hefur ekki
stoppað í dag, enda eru aðstæður nú
mjög óvenjulegar,“ segir Breki
Karlsson, formaður Neytendasam-
takanna.
Pakkaferðir endurgreiddar
Almennu reglurnar í sambandi við
endurgreiðslur á ferðum segir Breki
þær að fólk geti afpantað pakkaferð-
ir og fengið endurgreiddar að fullu
séu aðstæður óvenjulegar án þess að
ferðaskrifstofa haldi neinu eftir. Um
kaup á flugferðum einvörðungu,
gilda aðrar reglur. Felli flugfélag
niður flug, ber því að endurgreiða
fargjaldið. Hætti farþegi við flug á
eigin forsendum myndast ekki bóta-
réttur né réttur á endurgreiðslu far-
miða fyrir utan skatta og gjöld. Þá
séu í skilmálum greiðslukorta og
heimilistrygginga yfirleitt klausur
um að farþegum sé bætt við tjón sé
komið í veg fyrir ferð vegna ráðstaf-
ana stjórnvalda. sbs@mbl.is
Algjör óvissa og
sala ferða stopp
Páskaferðir í upp-
námi Neytenda-
samtökin svara
Þórunn
Reynisdóttir
Breki
Karlsson
Margs konar þjónusta breytist
vegna kórónuveirunnar og sam-
komubannsins sem tók gildi í gær.
Fyrirtæki færa þjónustu sína í
auknum mæli yfir á netið, sumir
starfsmanna vinna í fjarvinnu og
starfsliði er skipt í hópa til að fara
í mötuneyti fyrirtækja og stofnana.
Arion banki hefur tímabundið
lokað tveimur af fimm útibúum sín-
um á höfuðborgarsvæðinu, í
Kringlunni og Borgartúni 18.
Hraðbankar þeirra útibúa eru þó
áfram opnar. Beinir bankinn við-
skiptavinum sínum í útibúin á
Bíldshöfða, í Smárann og stafrænt
útibú við Hagatorg.
Nýti rúma afgreiðslutíma
Borgarbókasafnið heldur af-
greiðslutíma útibúa sinna óbreytt-
um en hefur frestað öllum við-
burðum þar um sinn. Snertifletir á
söfnunum eru hreinsaðir minnst
tvisvar á dag, s.s. handrið, posar,
snertiskjáir og hurðarhúnar, auk
þess sem leikföng eru hreinsuð sér-
staklega.
Matvöruverslanir hafa brugðist
við samkomubanninu, aukið smit-
varnir inni í verslunum og talið við-
skiptavini inn þannig að þeir fari
ásamt starfsfólki ekki yfir 100 í
einu. Hafa verslanir hvatt fólk til
að nýta sér rúman afgreiðslutíma,
aðeins einn úr hverri fjölskyldu fari
að versla og fólk virði tilmæli um
tveggja metra bil á milli hvert ann-
ars, sérstaklega þegar staðið er við
afgreiðslukassana.
Minna sætaframboð í bíó
Sambíóin tilkynntu í gær breytt-
ar ráðstafanir vegna veirunar. Bíó-
húsin verða opin en sætaframboðið
minnkar um 80%. Ekki verða fleiri
en 100 manns í hverjum sal, minnst
tveir metrar á milli fólks en þeir
sem fara saman í bíó, t.d. fjöl-
skyldur, mega sitja saman. Sér-
stakar hreinlætisáætlanir eru gerð-
ar og þrif aukin.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bókasöfn Borgarbókasafn er áfram með opið í útibúum sínum.
Þjónusta breytist
vegna veirunnar
Viðbrögð vegna veiru
» Ekki verður gripið til lofts-
lagsverkfalla unga fólksins á
Austurvelli á föstudögum. Í
staðinn er fólk hvatt til að
koma skilaboðum sínum á
framfæri á netinu.
» Alls hafa um 350 manns
skráð sig í bakvarðasveit heil-
brigðisþjónustunnar. Í gær
voru slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamenn hvattir til að
skrá sig.
Arion banki lokar tveimur útibúum