Morgunblaðið - 21.03.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á vel heppnuðum fjarfundi Við-
skiptaráðs Íslands vegna kórónu-
veirunnar, sem haldinn var í gær,
kom fram langur listi af hugmynd-
um um aðgerðir sem æskilegt væri
að grípa til til að bregðast við
ástandinu í samfélaginu. Fundinn
sóttu 150 stjórnendur aðildarfélaga
VÍ.
Ásta S. Fjeldsted, framkvæmda-
stjóri VÍ, segir í samtali við Morgun-
blaðið að margir félagsmenn nefni
t.d. að launahækkanir sem eiga að
koma til framkvæmda nú í vor séu
ekki raunsæjar við þessar aðstæður.
„Við verðum að gera okkur ljóst
hvar við stöndum. Í alþjóðlegu sam-
hengi greiðum við hér nú þegar
næsthæstu laun í heimi,“ segir Ásta.
Hún segir að mörgum hafi hugn-
ast sú lausn vel að geta í stað upp-
sagna boðið starfsfólki upp á skert
starfshlutfall. Því fagni án efa marg-
ir samþykkt frumvarps í gær um
rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta
samhliða minnkuðu starfshlutfalli
vegna tímabundins samdráttar í
starfsemi vinnuveitanda. Ásta segir
að það sé risastór aðgerð fyrir hið
opinbera að fara í, en ef aðgerðin
heppnist muni hún fleyta fleiri fyrir-
tækjum og fjölskyldum yfir skaflinn
og tryggja að færri fari í þrot. „Þetta
gæti skipt sköpum fyrir fyrirtækin í
landinu. Þá eru einhverjir sem vilja
skoða að láta breyta uppsagnar-
fresti.“
Vilja lenda hlaupandi
Hún segir að atvinnulífið vilji
lenda hlaupandi að lokinni niður-
sveiflunni, eins og Ásta orðar það.
Mikilvægt sé að halda haus. Margir
félagsmanna séu samt óþolinmóðir
og vilji aðgerðir strax. „Við höfum
átt í góðu samtali við stjórnvöld sem
endranær og bindum vonir við að að-
gerðir þeirra muni ríma við áherslur
ráðsins á þessum ólgutímum.“ Hún
segir að fyrirtækin sem eru aðilar að
VÍ séu margs konar. Sum séu svart-
sýnni en önnur, og vilji fá greiðslu-
fresti hvar sem hægt er að koma því
við, hvort sem það er trygginga-
gjaldið, frysting opinberra gjalda
eins og virðisaukaskatts, eða annað.
Einnig þurfi að ýta á sveitarstjórnir
að fresta og jafnvel afnema fast-
eignagjöld í einhvern tíma.
Endurgreiðslu verði flýtt
Ásta segir að tækni- og nýsköp-
unarfyrirtækin, sem reiði sig á
endurgreiðslu rannsóknar- og þró-
unarstyrkja fyrir sína starfsemi,
hafi nefnt að flýta þyrfti þeirri end-
urgreiðslu, en hún er jafnan 1. októ-
ber hvert ár. Ásta bendir einnig á
hve mikilvægt sé að horfa til ná-
grannalandanna. Meðal annars væri
norska leiðin áhugaverð, en þar hafa
fyrirtæki fengið heimild til að telja
tap þessa árs fram á móti hagnaði
fyrri ára, og fá þannig „endur-
greiddan“ tekjuskatt fyrri ára.
Að endingu segir Ásta að við-
skiptalífið allt bíði spennt eftir frek-
ari aðgerðum Seðlabanka Íslands
eftir yfirlýsingar seðlabankastjóra
um að þeir ættu ótal tæki uppi í
erminni, þeir væru bara rétt að
byrja.
Þá sé mikilvægt að læra af fyrri
áföllum. „Í núverandi ástandi er
mikilvægt að halda dómgreind sinni
og fyllast hvorki bölsýni né flýja
veruleikann. Það er ómögulegt að
vita hvaða ákvarðanir munu reynast
best, en við þurfum að hugsa hratt,
þar sem hik er sama og tap.“
Launahækkanirnar óraunsæjar
Langur listi hugmynda kom fram á
fjarfundi VÍ í gær vegna veirunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lausn Í norsku leiðinni má telja tap þessa árs fram á móti hagnaði fyrri ára.
Á erfiðum tímum skiptir samstaðan máli. Kórónuveiru-
faraldurinn hefur nú þegar haft mikil áhrif á okkar litla sam-
félag, og er brýnt að allir leggist á eitt til að tryggja það að
baráttan við skaðvaldinn vinnist. Um leið er gott að vakin sé
athygli á öllum þeim sem leggjast á árarnar í þeirri baráttu
og taka þátt í að gleðja aðra og létta fólki lífið á þessum erf-
iðu tímum. Það munar öllu að jákvæðar fréttir berist í óhjá-
kvæmilegri holskeflu neikvæðninnar.
Árvakur hefur því ákveðið að setja á laggirnar kynningar-
átakið Stöndum saman, þar sem vakin verður sérstök athygli
á því sem vel er gert nú þegar heimsfaraldurinn ríður yfir.
Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum eða einstakling-
um sem eru að láta gott af sér leiða á einhvern hátt er um að
gera að senda ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is,
og þá verður fjallað um málið á miðlum Árvakurs, Morgun-
blaðinu, K100 og mbl.is.
Stöndum saman – hrósum þeim sem gera vel.
Nú standa allir saman
Nýtt kynningarátak
Árvakurs á góðum verkum
vegna kórónuveirufaraldursins
Breiðþota af gerðinni Boeing 767-
300 ER úr flota Icelandair Group
flaug í gær með 262 farþega frá
Mexíkó til Frankfurt í Þýskalandi.
Millilenti vélin hér á landi þar sem
áhafnaskipti áttu sér stað. Vélin var í
verkefni á vegum Loftleiða, dóttur-
félags Icelandair Group, en fyrir-
tækið var fengið til þess að ferja far-
þegana sem voru viðskiptavinir
þýskrar ferðaskrifstofu frá Mið-Am-
eríkuríkinu til síns heima eftir að
farþegarnir urðu strandaglópar á
skemmtiferðaskipi úti fyrir strönd-
um Mexíkó. Brá ferðaskrifstofan á
það ráð að fá leiguvél til landsins til
þess að koma fólkinu til síns heima í
kjölfar þess að öll ferðalög, m.a. með
skemmtiferðaskipum, lögðust af
vegna útbreiðslu hinnar skæðu kór-
ónuveiru. Vélin lagði af stað frá Ís-
landi á fimmtudag en tók á loft frá
Mexíkó kl. 14 að íslenskum tíma í
gær. Leiðin lá í kjölfarið til Kefla-
víkur þar sem fyrrnefnd áhafna-
skipti áttu sér stað. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Icelandair hafði læknir
skoðað farþegana fyrir brottför frá
Mexíkó og vottað að enginn þeirra
væri með flensulík einkenni.
Um helgina er gert ráð fyrir að
flugáætlun Icelandair verði um 20-
25% af þeirri flugáætlun sem lagt
var upp með í upphafi árs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
767 Breiðþotan sem notuð var til flugsins er ein fjögurra slíkra í flota Ice-
landair. Þær eru engin smásmíði og taka ríflega 260 farþega auk áhafnar.
Vél Icelandair flaug
með 262 Þjóðverja heim
Farþegar af skemmtiferðaskipi
Andlitsgrímur eru að verða sífellt algengari sjón hér á
landi eftir að kórónuveirufaraldurinn nam hér land, en
þær eru alsiða í Austurlöndum fjær.
Þessi afgreiðslukona fór sér að engu óðslega og af-
greiddi kaffi, te og alls kyns bakkelsi til viðskiptavina
Tes og kaffis í Eymundsson með andlitsgrímuna uppi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bakkelsið afgreitt með andlitsgrímu