Morgunblaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
Nú þegar við stöndum and-
spænis nýjum áskorunum í
efnahagslífinu og útlit er fyr-
ir samdrátt í einni stærstu
atvinnugrein landsins þá þyk-
ir væntanlega mörgum at-
hyglisvert að heyra að Ís-
lendingar geti á næstu árum
margfaldað verðmæti þeirra
sjávarafurða sem við flytjum
út. Hvernig? Jú, með því að
rækta bláu akrana sem finn-
ast í efnahagslögsögu lands-
ins. Við Íslendingar urðum ein fremsta
fiskveiðiþjóð heims á nýliðinni öld. Ræktun
fisks er hins vegar í dag orðin stærri hluti
sjávarútvegs en fiskveiðar á heimsvísu.
Íslendingar voru, þrátt fyrir að vera öfl-
ug sjávarútvegsþjóð, lengi eftirbátur ann-
arra í þessari þróun en á sama tíma óx
fiskeldinu ásmegin hjá nágrannaþjóðum
okkar við Norður-Atlantshafið. Fær-
eyingar ala nú um 80.000 tonn af hágæða-
laxi og hafa tvöfaldað samanlagt útflutn-
ingsverðmæti allra sjávarafurða sinna
síðastliðinn áratug. Uppbygging fiskeldis
Færeyinga hefur krafist þrautseigju og
áræðis en með skýrri stefnumótun yfir-
valda hefur undraverður árangur náðst.
Sömu sögu má segja frá Skotlandi, austur-
strönd Kanada og að sjálfsögðu Noregi en
þar er laxeldið orðið ein mikilvægasta at-
vinnugreinin, ekki síst í strandbyggðum
landsins. Við Íslendingar höfum á síðustu
árum fylgt í kjölfar þessara þjóða og lagt
aukna áherslu á eldi samhliða hefð-
bundnum veiðum. Við ræktum nú gæða-
fiskafurðir á sjálfbæran hátt um allt land
og flytjum út fyrir tugi milljarða á ári.
Bætt tækni og áhersla
á umhverfisvernd
Tækni í fiskeldi hefur fleygt mikið fram
síðustu ár. Bæði vegna virkrar stefnumót-
unar stjórnvalda fiskeldisþjóða og auk-
innar þekkingar og reynslu fiskeldisfyrir-
tækja. Hvort tveggja á stóran þátt í mikilli
og hraðri framþróun eldisbúnaðar og eldis-
tækni. Fjölmörg spennandi þróunarverk-
efni eru nú vel á veg komin og önnur eru í
burðarliðnum. Dæmi um slík verkefni eru
endurnýtingaraðferðir vatns við eldi á
landi og tilraunir með sterkbyggðan kvía-
búnað, að fyrirmynd olíuborpalla, fjær
ströndinni og nær opnu úthafinu bæði í
Noregi og Skotlandi. Í Færeyjum er unnið
samhliða fiskeldinu að áhugaverðu sjóeldi
á þara og þangi og einnig nýtingu lífræns
affalls til rafmagnsframleiðslu. Veruleg
framþróun hefur orðið í eldi á þorski þar
sem umtalsverðar kynbætur hafa átt sér
stað. Þetta er jákvætt í ljósi þess að þorsk-
verð er nú mun hærra en það var við fyrri
tilraunir til að rækta þorsk. Skýr laga-
rammi og stefnumörkun af hálfu yfirvalda
hafa einnig verið frumforsenda þess að
lagt var af stað í slík verkefni.
Íslendingar eiga að vera
framarlega í nýsköpun sjávarútvegs
Íslenska efnahagslögsagan, firðir, flóar
og strandlengja, bjóða upp á mikla fram-
leiðslugetu sjávarfangs með umfangi sínu
og víðáttu. Burðarþol þeirra
fjarða og flóa sem Hafrann-
sóknastofnun hefur þegar
metið er í heildina rúm 140
þúsund tonn, margfalt það
magn sem fiskeldisfyrirtækin
hafa nú leyfi til að ala í þess-
um fjörðum. Enn er eftir að
meta nokkra firði þannig að
burðarþol þeirra svæða sem
henta og þola fiskeldi að mati
vísindamanna og eftir-
litsstofnana gæti verið nær
200 þúsund tonnum. Heildar-
burðarþol strandlengjunnar er
þó líklega mun meira eða um 500.000 tonn.
Með 500.000 tonna ársframleiðslu af laxfiski
mætti margfalda útflutningsverðmæti
sjávarafurða og fylgja þar með farsælli veg-
ferð vinaþjóða okkar. Með því væru Íslend-
ingar að byggja ofan á aldalanga reynslu
sína af fiskveiðum, vinnslu og markaðs-
setningu sjávarafurða. Það er bæði skyn-
samlegt og gæti einnig verið nauðsynlegt til
að verja stöðu okkar, nú þegar eldi sjávar-
afurða er orðið umfangsmeira en fiskveiðar
í heiminum.
Ábyrg nýting
Með áframhaldandi þróun bættrar tækni
við fiskeldið og nýjum eldisaðferðum gæti
burðarþol íslensku lögsögunnar og verð-
mæti hennar aukist enn frekar í framtíð-
inni. Nýting burðarþols er í raun kjarninn í
nýtingarstefnu þeirri sem Íslendingar hafa
fylgt varðandi villta fiskistofna í efnahags-
lögsögu landsins. Mat vísindamanna og út-
hlutun veiðiheimilda hefur tryggt sjálfbæra
nýtingu þeirra náttúrulegu auðlinda sem
fiskistofnarnir eru og byggt hafa upp sam-
félag okkar. Nýting á mögulegu burðarþoli
í fiskeldi er hins vegar enn takmörkuð
vegna skorts á þekkingu og reynslu hér á
landi og ótta ýmissa hagsmunaaðila við
þessa nýju atvinnugrein. Sá ótti er hins
vegar ástæðulaus. Sömu forsendur eiga við
um sjálfbæra og ábyrga nýtingu, hvort sem
um er að ræða fiskeldi eða fiskveiðar.
Fiskveiðiþjóð í góðri stöðu
til að verða fiskeldisþjóð
Aukinn útflutningur sjávarafurða væri
ekki aðeins mikilvæg búbót fyrir þjóðarbúið
heldur fæli slíkt í sér umtalsverð sam-
legðaráhrif við hefðbundinn sjávarútveg þar
sem útflutningstekjur hafa í raun staðið í
stað undanfarin ár. Virðiskeðja hefðbundins
sjávarútvegs á heilmikla samlegð með fisk-
eldi, bæði hvað varðar framleiðslu, vinnslu,
dreifingu og sölu svo ekki sé nú minnst á
þessi rúm 100.000 tonn af mjöli og lýsi sem
við flytjum mestmegnis til Noregs sem
fiskimjöl og kaupum svo aftur í formi fiski-
fóðurs. Það þarf tæpast að fjölyrða um
söguleg og menningarleg tengsl landsins
við hágæðasjávarafurðir og það samkeppn-
isforskot sem slíkum metnaði og ástríðu
fylgir. Við höfum byggt upp frábær vöru-
Eftir Kjartan Ólafsson
» Því felast mikil tækifæri
fyrir Íslendinga í að rækta
fisk á bláu ökrunum okkar með
stóraukinni áherslu á fiskeldi.
Kjartan Ólafsson
Fiskeldiskvíar í ætt við olíuborpalla.
Margföldum útflutnings-
verðmæti sjávarafurða Íslands
Íslands. Stærð þeirra gerir þeim kleift að
tryggja bæði meira afhendingaröryggi og
fjölbreyttara vöruúrval en við getum boðið.
Þetta gerir þá að álitlegum birgjum fyrir
alþjóðlega stórkaupendur og verslana-
keðjur. Ef fram undan er frekari umbreyt-
ing á virðiskeðjunni þá vitum við að slíkar
breytingar á atvinnuháttum krefjast við-
bragða til að verja samkeppnishæfni ís-
lensku þjóðarinnar. Til þess þarf skýra
stefnu og sýn stjórnmálanna.
Veruleikinn er sá að meirihluti heims-
framboðs sjávarafurða kemur nú þegar úr
fiskeldi. Ástæðan er einföld. Lágt hlutfall
fóðurs á hvert framleitt kíló miðað við aðra
matvælaframleiðslu gerir fiskeldið að ein-
hverri umhverfisvænustu matvælafram-
leiðslu úr dýrapróteinum sem völ er á.
Áhersla á minni kjötneyslu og aukna
neyslu fisks og annarra matvæla eru auk-
inheldur eitt nærtækasta úrræðið sem við
höfum til lækkunar kolefnisspors. Því fel-
ast mikil tækifæri fyrir Íslendinga í að
rækta fisk á bláu ökrunum okkar með
stóraukinni áherslu á fiskeldi. Skýr stefna
og markmiðasetning yfirvalda er nauðsyn-
leg til að byggja ofan á þekkingu okkar og
reynslu í sölu og framleiðslu sjávarafurða
og tryggja þannig stöðu okkar sem leið-
andi sjávarútvegsþjóð í heiminum til fram-
tíðar.
merki fyrir sjávarafurðir. Ísland er þekkt
fyrir fisk og um allan heim er fólk tilbúið
að greiða hátt verð fyrir íslenskan fisk.
Mikilvæg stökk í verðmætum
sjávarafurða frá Íslandi
Framfaraskrefin hafa verið fjölmörg en
oft komið í stökkum frekar en með hæg-
fara breytingum. Sjávarafurðir frá Íslandi
voru fyrst seldar frystar til Bandaríkjanna
um árið 1930 og fyrsti frystitogarinn kom
til Íslands um 1970. Nú er svo komið að
stærstu sjávarútvegsfyrirtæki nágranna-
landa okkar eru sum ein og sér með meiri
umsvif og framleiða meiri verðmæti en
heildarútflutningsverðmæti íslenskra
sjávarafurða. Þetta eru beinir keppinautar
Höfundur er sjávarútvegsfræðingur
og stjórnarmaður í Arnarlaxi.
Undirritaður hafði umsjón
með rekstri sóttvarnastöðvar á
Íslandi í nærri átta ár kringum
síðustu aldamót. Bændur á Ís-
landi hafa í áratugi rekið sótt-
varnastöð fyrir búpening og
sóttvarnastöð fyrir gæludýr var
lengi rekin í Hrísey. Það er til
fjöldi fólks sem hefur langa
reynslu og mikla þekkingu á því
hvað virkar þegar talað er um
bestu starfsvenjur í sóttvörnum.
Nú, þegar um mannskepnuna
er að ræða, er þessum starfsvenjum ekki
fylgt í baráttunni við kórónuvírusinn og
ekki farið neitt nálægt því.
Eins og staðan er í dag þarf að loka land-
inu algjörlega, setja alla í sóttkví sem koma
yfir landamærin, loka fyrir
alla starfsemi í landinu sem
ekki er lífsnauðsynlegt að
halda úti, setja algjört sam-
komubann og jafnvel út-
göngubann, hvetja fólk til að
loka sig inni í herbergi og
hanga í tölvunni í tvær vikur.
Þannig væri hægt að ljúka
þessu máli að mestu og koma
svo daglegu lífi í eðlilegt horf
aftur fyrir páska.
Undantekning á því er þó
ferðaþjónustan, sem að sjálf-
sögðu verður fórnarlamb í
þessu þangað til menn hafa komist fyrir
þennan vírus um allan heim.
Með því að setja bara á hálfgerð bönn og
vera með óskýr tilmæli, sem sagt áfram-
haldandi hálfkák, er verið að ýta því óum-
flýjanlega á undan sér. Það er líka verið að
lengja tímann sem vandamálið stendur yfir
og auka við það kostnaðinn, auka álagið á
heilbrigðiskerfið o.s.frv. Menn eiga að nota
þá löngu reynslu sem til er í landinu og
hlusta á bændur og dýralækna og mig og
fleiri í þessu efni því sóttvarnastöð bænda
er sú fyrirmynd að góðum sóttvörnum sem
til er og hefur virkað vel um áratuga skeið.
Sóttvarnir eru einfaldar eins og flest ann-
að þegar menn eru búnir að læra þær.
Margir þekkja það úr tölvubransanum að
aðeins allra öflugustu vírusvarnir eru nógu
góðar. Og af því þekkingin á vörnum gegn
lifandi vírusum er líka til í landinu er óþarfi
að vera með þetta hálfkák í viðureigninni
við kórónuvírusinn. Í Kína var fólki haldið í
sóttkví með valdi. Það virðist hafa virkað
ljómandi vel. Það er það sem þarf. Því mið-
ur er ekki hægt að losna við þessa óværu
með árangursríkum hætti nema grípa til
harkalegra aðgerða. Þær þurfa ekki að
standa lengi.
Ég dreg ekki í efa að heilbrigðisyfirvöld
og stjórnvöld hafi vilja til að takast á við
þessa ógn af skynsemi en því miður hefur
það mistekist hingað til. Ég skora því á
landlækni, sóttvarnalækni og ríkisstjórnina
að hætta öllu hálfkáki í þessu máli og grípa
nú þegar til ýtrustu aðgerða sem hægt er
til að útrýma þessum vírus úr landinu.
Þekkingin er fyrir hendi, það þarf bara að
nota hana.
Eftir Jón P. Líndal »Hálfkák dugar ekki.
Jón Pétur Líndal
Höfundur rak sóttvarnastöð á Íslandi
í átta ár um síðustu aldamót.
Kórónuveiran – áskorun til yfirvalda