Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 21.03.2020, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Nú þegar við stöndum and- spænis nýjum áskorunum í efnahagslífinu og útlit er fyr- ir samdrátt í einni stærstu atvinnugrein landsins þá þyk- ir væntanlega mörgum at- hyglisvert að heyra að Ís- lendingar geti á næstu árum margfaldað verðmæti þeirra sjávarafurða sem við flytjum út. Hvernig? Jú, með því að rækta bláu akrana sem finn- ast í efnahagslögsögu lands- ins. Við Íslendingar urðum ein fremsta fiskveiðiþjóð heims á nýliðinni öld. Ræktun fisks er hins vegar í dag orðin stærri hluti sjávarútvegs en fiskveiðar á heimsvísu. Íslendingar voru, þrátt fyrir að vera öfl- ug sjávarútvegsþjóð, lengi eftirbátur ann- arra í þessari þróun en á sama tíma óx fiskeldinu ásmegin hjá nágrannaþjóðum okkar við Norður-Atlantshafið. Fær- eyingar ala nú um 80.000 tonn af hágæða- laxi og hafa tvöfaldað samanlagt útflutn- ingsverðmæti allra sjávarafurða sinna síðastliðinn áratug. Uppbygging fiskeldis Færeyinga hefur krafist þrautseigju og áræðis en með skýrri stefnumótun yfir- valda hefur undraverður árangur náðst. Sömu sögu má segja frá Skotlandi, austur- strönd Kanada og að sjálfsögðu Noregi en þar er laxeldið orðið ein mikilvægasta at- vinnugreinin, ekki síst í strandbyggðum landsins. Við Íslendingar höfum á síðustu árum fylgt í kjölfar þessara þjóða og lagt aukna áherslu á eldi samhliða hefð- bundnum veiðum. Við ræktum nú gæða- fiskafurðir á sjálfbæran hátt um allt land og flytjum út fyrir tugi milljarða á ári. Bætt tækni og áhersla á umhverfisvernd Tækni í fiskeldi hefur fleygt mikið fram síðustu ár. Bæði vegna virkrar stefnumót- unar stjórnvalda fiskeldisþjóða og auk- innar þekkingar og reynslu fiskeldisfyrir- tækja. Hvort tveggja á stóran þátt í mikilli og hraðri framþróun eldisbúnaðar og eldis- tækni. Fjölmörg spennandi þróunarverk- efni eru nú vel á veg komin og önnur eru í burðarliðnum. Dæmi um slík verkefni eru endurnýtingaraðferðir vatns við eldi á landi og tilraunir með sterkbyggðan kvía- búnað, að fyrirmynd olíuborpalla, fjær ströndinni og nær opnu úthafinu bæði í Noregi og Skotlandi. Í Færeyjum er unnið samhliða fiskeldinu að áhugaverðu sjóeldi á þara og þangi og einnig nýtingu lífræns affalls til rafmagnsframleiðslu. Veruleg framþróun hefur orðið í eldi á þorski þar sem umtalsverðar kynbætur hafa átt sér stað. Þetta er jákvætt í ljósi þess að þorsk- verð er nú mun hærra en það var við fyrri tilraunir til að rækta þorsk. Skýr laga- rammi og stefnumörkun af hálfu yfirvalda hafa einnig verið frumforsenda þess að lagt var af stað í slík verkefni. Íslendingar eiga að vera framarlega í nýsköpun sjávarútvegs Íslenska efnahagslögsagan, firðir, flóar og strandlengja, bjóða upp á mikla fram- leiðslugetu sjávarfangs með umfangi sínu og víðáttu. Burðarþol þeirra fjarða og flóa sem Hafrann- sóknastofnun hefur þegar metið er í heildina rúm 140 þúsund tonn, margfalt það magn sem fiskeldisfyrirtækin hafa nú leyfi til að ala í þess- um fjörðum. Enn er eftir að meta nokkra firði þannig að burðarþol þeirra svæða sem henta og þola fiskeldi að mati vísindamanna og eftir- litsstofnana gæti verið nær 200 þúsund tonnum. Heildar- burðarþol strandlengjunnar er þó líklega mun meira eða um 500.000 tonn. Með 500.000 tonna ársframleiðslu af laxfiski mætti margfalda útflutningsverðmæti sjávarafurða og fylgja þar með farsælli veg- ferð vinaþjóða okkar. Með því væru Íslend- ingar að byggja ofan á aldalanga reynslu sína af fiskveiðum, vinnslu og markaðs- setningu sjávarafurða. Það er bæði skyn- samlegt og gæti einnig verið nauðsynlegt til að verja stöðu okkar, nú þegar eldi sjávar- afurða er orðið umfangsmeira en fiskveiðar í heiminum. Ábyrg nýting Með áframhaldandi þróun bættrar tækni við fiskeldið og nýjum eldisaðferðum gæti burðarþol íslensku lögsögunnar og verð- mæti hennar aukist enn frekar í framtíð- inni. Nýting burðarþols er í raun kjarninn í nýtingarstefnu þeirri sem Íslendingar hafa fylgt varðandi villta fiskistofna í efnahags- lögsögu landsins. Mat vísindamanna og út- hlutun veiðiheimilda hefur tryggt sjálfbæra nýtingu þeirra náttúrulegu auðlinda sem fiskistofnarnir eru og byggt hafa upp sam- félag okkar. Nýting á mögulegu burðarþoli í fiskeldi er hins vegar enn takmörkuð vegna skorts á þekkingu og reynslu hér á landi og ótta ýmissa hagsmunaaðila við þessa nýju atvinnugrein. Sá ótti er hins vegar ástæðulaus. Sömu forsendur eiga við um sjálfbæra og ábyrga nýtingu, hvort sem um er að ræða fiskeldi eða fiskveiðar. Fiskveiðiþjóð í góðri stöðu til að verða fiskeldisþjóð Aukinn útflutningur sjávarafurða væri ekki aðeins mikilvæg búbót fyrir þjóðarbúið heldur fæli slíkt í sér umtalsverð sam- legðaráhrif við hefðbundinn sjávarútveg þar sem útflutningstekjur hafa í raun staðið í stað undanfarin ár. Virðiskeðja hefðbundins sjávarútvegs á heilmikla samlegð með fisk- eldi, bæði hvað varðar framleiðslu, vinnslu, dreifingu og sölu svo ekki sé nú minnst á þessi rúm 100.000 tonn af mjöli og lýsi sem við flytjum mestmegnis til Noregs sem fiskimjöl og kaupum svo aftur í formi fiski- fóðurs. Það þarf tæpast að fjölyrða um söguleg og menningarleg tengsl landsins við hágæðasjávarafurðir og það samkeppn- isforskot sem slíkum metnaði og ástríðu fylgir. Við höfum byggt upp frábær vöru- Eftir Kjartan Ólafsson » Því felast mikil tækifæri fyrir Íslendinga í að rækta fisk á bláu ökrunum okkar með stóraukinni áherslu á fiskeldi. Kjartan Ólafsson Fiskeldiskvíar í ætt við olíuborpalla. Margföldum útflutnings- verðmæti sjávarafurða Íslands Íslands. Stærð þeirra gerir þeim kleift að tryggja bæði meira afhendingaröryggi og fjölbreyttara vöruúrval en við getum boðið. Þetta gerir þá að álitlegum birgjum fyrir alþjóðlega stórkaupendur og verslana- keðjur. Ef fram undan er frekari umbreyt- ing á virðiskeðjunni þá vitum við að slíkar breytingar á atvinnuháttum krefjast við- bragða til að verja samkeppnishæfni ís- lensku þjóðarinnar. Til þess þarf skýra stefnu og sýn stjórnmálanna. Veruleikinn er sá að meirihluti heims- framboðs sjávarafurða kemur nú þegar úr fiskeldi. Ástæðan er einföld. Lágt hlutfall fóðurs á hvert framleitt kíló miðað við aðra matvælaframleiðslu gerir fiskeldið að ein- hverri umhverfisvænustu matvælafram- leiðslu úr dýrapróteinum sem völ er á. Áhersla á minni kjötneyslu og aukna neyslu fisks og annarra matvæla eru auk- inheldur eitt nærtækasta úrræðið sem við höfum til lækkunar kolefnisspors. Því fel- ast mikil tækifæri fyrir Íslendinga í að rækta fisk á bláu ökrunum okkar með stóraukinni áherslu á fiskeldi. Skýr stefna og markmiðasetning yfirvalda er nauðsyn- leg til að byggja ofan á þekkingu okkar og reynslu í sölu og framleiðslu sjávarafurða og tryggja þannig stöðu okkar sem leið- andi sjávarútvegsþjóð í heiminum til fram- tíðar. merki fyrir sjávarafurðir. Ísland er þekkt fyrir fisk og um allan heim er fólk tilbúið að greiða hátt verð fyrir íslenskan fisk. Mikilvæg stökk í verðmætum sjávarafurða frá Íslandi Framfaraskrefin hafa verið fjölmörg en oft komið í stökkum frekar en með hæg- fara breytingum. Sjávarafurðir frá Íslandi voru fyrst seldar frystar til Bandaríkjanna um árið 1930 og fyrsti frystitogarinn kom til Íslands um 1970. Nú er svo komið að stærstu sjávarútvegsfyrirtæki nágranna- landa okkar eru sum ein og sér með meiri umsvif og framleiða meiri verðmæti en heildarútflutningsverðmæti íslenskra sjávarafurða. Þetta eru beinir keppinautar Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og stjórnarmaður í Arnarlaxi. Undirritaður hafði umsjón með rekstri sóttvarnastöðvar á Íslandi í nærri átta ár kringum síðustu aldamót. Bændur á Ís- landi hafa í áratugi rekið sótt- varnastöð fyrir búpening og sóttvarnastöð fyrir gæludýr var lengi rekin í Hrísey. Það er til fjöldi fólks sem hefur langa reynslu og mikla þekkingu á því hvað virkar þegar talað er um bestu starfsvenjur í sóttvörnum. Nú, þegar um mannskepnuna er að ræða, er þessum starfsvenjum ekki fylgt í baráttunni við kórónuvírusinn og ekki farið neitt nálægt því. Eins og staðan er í dag þarf að loka land- inu algjörlega, setja alla í sóttkví sem koma yfir landamærin, loka fyrir alla starfsemi í landinu sem ekki er lífsnauðsynlegt að halda úti, setja algjört sam- komubann og jafnvel út- göngubann, hvetja fólk til að loka sig inni í herbergi og hanga í tölvunni í tvær vikur. Þannig væri hægt að ljúka þessu máli að mestu og koma svo daglegu lífi í eðlilegt horf aftur fyrir páska. Undantekning á því er þó ferðaþjónustan, sem að sjálf- sögðu verður fórnarlamb í þessu þangað til menn hafa komist fyrir þennan vírus um allan heim. Með því að setja bara á hálfgerð bönn og vera með óskýr tilmæli, sem sagt áfram- haldandi hálfkák, er verið að ýta því óum- flýjanlega á undan sér. Það er líka verið að lengja tímann sem vandamálið stendur yfir og auka við það kostnaðinn, auka álagið á heilbrigðiskerfið o.s.frv. Menn eiga að nota þá löngu reynslu sem til er í landinu og hlusta á bændur og dýralækna og mig og fleiri í þessu efni því sóttvarnastöð bænda er sú fyrirmynd að góðum sóttvörnum sem til er og hefur virkað vel um áratuga skeið. Sóttvarnir eru einfaldar eins og flest ann- að þegar menn eru búnir að læra þær. Margir þekkja það úr tölvubransanum að aðeins allra öflugustu vírusvarnir eru nógu góðar. Og af því þekkingin á vörnum gegn lifandi vírusum er líka til í landinu er óþarfi að vera með þetta hálfkák í viðureigninni við kórónuvírusinn. Í Kína var fólki haldið í sóttkví með valdi. Það virðist hafa virkað ljómandi vel. Það er það sem þarf. Því mið- ur er ekki hægt að losna við þessa óværu með árangursríkum hætti nema grípa til harkalegra aðgerða. Þær þurfa ekki að standa lengi. Ég dreg ekki í efa að heilbrigðisyfirvöld og stjórnvöld hafi vilja til að takast á við þessa ógn af skynsemi en því miður hefur það mistekist hingað til. Ég skora því á landlækni, sóttvarnalækni og ríkisstjórnina að hætta öllu hálfkáki í þessu máli og grípa nú þegar til ýtrustu aðgerða sem hægt er til að útrýma þessum vírus úr landinu. Þekkingin er fyrir hendi, það þarf bara að nota hana. Eftir Jón P. Líndal »Hálfkák dugar ekki. Jón Pétur Líndal Höfundur rak sóttvarnastöð á Íslandi í átta ár um síðustu aldamót. Kórónuveiran – áskorun til yfirvalda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.