Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 21.03.2020, Qupperneq 23
COVID-19 hefur haft gríðarleg áhrif á skólahald og kennslu. Framhaldsskólar landsins eru tómir og nemendur stunda námið heiman frá sér í gegnum tölvu eða snjallsíma. Það eru undarlegir tímar að mega ekki koma í skólann, hitta kenn- ara og samnemendur og upplifa skólamenninguna sem er fastur punktur í tilveru nem- enda. Þess í stað hitta nemendur kennara og samnemendur í raun- tíma í gegnum kennsluumhverfið INNU og ýmsa samskiptamiðla eins og TEAMS, ZOOM, Slack og margt fleira. Þessir tímar eiga sér enga hliðstæðu í íslenskri mennta- sögu og því er áríðandi að þeir sem standa næst ungmennunum styðji vel við bakið á þeim. Hvetja ungmennin til dáða Mikilvægt er að aðstandendur, það er foreldrar eða forráðamenn, fylgist vel með náminu, spyrji spurninga um námið og hvað ung- mennin eru að fást við. Með öðrum orðum sagt eiga foreldrar að vera forvitni um námið og hvetja ung- mennin til dáða. Góður stuðningur minnkar líkur á að nemendur hverfi úr námi. Það er gríðarleg áskorun að vera kominn í nýtt um- hverfi þar sem ungmennin þurfa að treysta meira á sig sjálf, það er stunda heima- og sjálfsnám þar sem ekki er alltaf hægt að fá svör við spurningum einn, tveir og þrír. Miklu máli skiptir að fylgja stundatöflunni og setja sér skipu- lag sem er sambærilegt því að sækja skólann. Það er ekki auðvelt að breyta um gír í einni svipan og kenna með nýjum aðferðum. Kennarar, eins og nemendur, hafa tekið þessum aðstæðum sem áskorun um að þróa nýjar kennsluað- ferðir og nýta nýjar og öðruvísi samskipta- leiðir. Fjölmargir kennarar hafa lagt á sig mikla vinnu við að endurskipuleggja áfanga sína til að mæta ólíkum kröfum og ég tel að vel hafi tekist til. Þessi breyt- ing sem við upplifum nú í fram- haldsskólunum staðfestir enn og aftur hversu öflugur mannauðurinn er sem vinnur innan veggja skól- anna. Þrautseigja gildir Margir nemendur sakna kenn- aranna sinna og að horfa á kenn- arann í rauntíma á vefnum eða vera í rafrænum samskiptum getur aldrei komið í staðinn fyrir að vera í gagnvirkum samskiptum inni í kennslustofunni. Samkomubannið mun taka enda en nú gildir að sýna þrautseigju. Aðstæðurnar sem skólakerfið býr við þessa dagana hafa sann- fært mig um að okkur eru allir vegir færir. Með því að sýna frum- kvæði, umburðarlyndi og sveigjan- leika komumst við býsna langt. Eftir Stein Jóhannsson »Kennarar, eins og nemendur, hafa tek- ið þessum aðstæðum sem áskorun um að þróa nýjar kennsluaðferðir og nýta nýjar og öðru- vísi samskiptaleiðir. Höfundur er rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. steinn@mh.is Steinn Jóhannsson Starf í framhalds- skólum á tímum COVID-19 UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020 Nú þegar viðburðum í hin-um aðskiljanlegustukeppnisgreinum hefurverið frestað eða þeir verið slegnir af virðist Alþjóðaskák- sambandið FIDE ekki láta út- breiðslu COVID-19-veirunnar trufla starfsemina og áskor- endamótið hófst á tilsettum tíma í Yekaterinburg í Rússlandi á þriðju- daginn. Leitin að áskoranda Magn- úsar Carlsen er þar með hafin en ef að líkum lætur mun heimsmeist- araeinvígið fara fram í haust þó að staðsetning liggi ekki fyrir. Í Yekaterinburg tefla átta af sterkustu stórmeisturum heims tvöfalda umferð. Það hefur ýmis- legt gengið á í mótinu og í aðdrag- anda þess. FIDE hafnaði málaleit- an Teimour Radjabov um að mótinu yrði frestað og Aserinn dró sig þá úr keppni en Frakkinn Vach- ier-Lagrave kom í hans stað. Á þessu móti mæta keppendur með það eina markmið að vinna mótið. Vissulega eru sumir sigur- stranglegri en aðrir. Í gær var fyrsti frídagurinn en hart hefur verið barist í fyrstu þrem umferð- unum og línur ekkert farnar að skýrast. Mesta athygli vakti að Li- ren Ding tapaði tveim fyrstu skák- um en vann Caruana í 3. umferð. Giri tapaði í 1. umferð. Hann er frægur fyrir að hafa gert jafntefli í öllum skákum sínum í síðasta áskorendamóti. Staðan eftir þriðju umferð er þessi: 1.-3. Vachier-Lagrave, Nep- omniachtchi, og Wang Hao 2 v. (af 3) 4.-5. Grischuk og Caruana 1½ v. 6.-8. Liren Ding, Giri og Alekse- enko 1 v. Vachier-Lagrave hefur lengi beð- ið eftir tækifæri til að tefla á vett- vangi áskorendamótanna. Hann hefur margsinnis verið í hópi fimm stigahæstu skákmanna en örlaga- nornirnar hafa hvað eftir annað gripið í taumana og svipt hann tækifærinu. Þar til nú. Í 2. umferð nýtti hann þau færi sem gáfust með glæsilegri lokaatlögu sem minnti á Kasparov. Sá ágæti maður hélt mikið upp á leikbragð sem byggist á því að peði er leikið beint ofan í þrælvaldaðan reit: Áskorendamótið í Yekaterin- burg 2020: -Sjá stöðumynd- Vachier Lagrave – Liren Ding 34. d6! Ágætur leikur sem vinnur skák- ina hratt og örugglega. „Vélarnar“ eru fljótar að benda á annan peðs- leik, 34. b7!, t.d. 34. … Bxb7 35. Hb1 Ba8 36. Ba5! Hc8 37. Re4+! Kxf5 38. Hb6 og svartur á enga haldgóða vörn við hótuninni 39. Hf6 mát. 34. … Hxd6 35. Hb1 Rd8 Eða 35. … Bb7 36. Re4+! Bxe4 37. dxe4 og svartur getur sig hvergi hrært. Hvítur leikur peðinu b7, leikur hróknum á a-línuna og bisk- upinum til d5 og vinnur án mikilla erfiðleika. 36. b7! Bxb7 37. Ba5! – og svartur gafst upp. Fabiano er stigahæsti keppand- inn með 2.842 Elo-stig en einungis Liren Ding er einnig með meira en 2.800 Elo-stig. Telja verður Caru- ana býsna sigurstranglegan þrátt fyrir tapið í 3 umferð. Hann er með skothelt byrjanakerfi og á því fékk Alekseenko að kenna í 2. umferð: Ákorendamótið í Yekaterinburg 2020: Caruana – Alekseenko Rússanum voru mislagðar hend- ur í byrjun tafls, varð að gefa mann fyrir þrjú peð og í þessari stöðu hótar hann 30. … Rf2+. Var hann að bjarga sér? En nú kom … 30. Rxh5+! gxh5 31. Bf5! Hótar hróknum á c8 en þó fyrst og fremst riddaranum. 31. … Be7 32. Bxg4 hxg4 33. Dxg4+ Bg5 34. Dh5! – Glæsilegt hliðarspor. 34. Dxg5+ hefði líka unnið en það hefði tekið sinn tíma. Svartur getur varið biskupinn með 34. … f6 en þá kem- ur 35. Rf5+! Kf8 36. Dh8+! Kf7 37. Dh7+! og mátar. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is María Elísabet Kristjáns- dóttir fæddist í Reykjavík 17.3. 1841 og ólst upp í Grjótaþorp- inu. Foreldrar hennar voru Rósa Bjarnadóttir og Kristján Eiríksson sjómaður. Hún giftist Magnúsi Eyjólfs- syni, f. 1824, d. 1891, bónda og hreppstjóra í Lykkju á Kjalar- nesi. Fyrri kona Magnúsar var Diljá Þórðardóttir, d. 1865. Það hefur reynt mjög á dugn- að og ráðdeild Maríu Elísabetar að halda uppi búi og barna- skara, jafnframt því að sinna starfi ljósmóður, en María El- ísabet var tilnefnd af hrepps- nefnd Kjalarneshrepps til að nema ljósmóðurfræði í Reykja- vík samkvæmt nýjum lögum um menntun þeirra. Skólastjórinn, Jón Hjaltalín landlæknir, var mikill baráttumaður fyrir auk- inni þekkingu ljósmæðra. Skól- inn var til húsa í Glasgow hús- inu mikla við Vesturgötu sem að hluta hafði verið breytt í íbúða- og skrifstofuhúsnæði. María Elísabet lauk prófi 1876 og varð ljósmóðir Kjalar- nesumdæmis til 1892. Eftir lát eiginmannsins flutti hún til Kanada ásamt Helgu dóttur sinni. Sinnti hún ljósmóður- störfum í Winnipeg til æviloka. María Elísabet lést 3.7. 1913 og hvílir í Brookside-kirkju- garðinum í Winnipeg. Merkir Íslendingar María El- ísabet Krist- jánsdóttir Morgunblaðið/Heimasíða Fyrsti leikurinn Anatolí Karpov, fyrrverandi heimsmeistari, lék fyrsta leikinn fyrir An- ish Giri. Áskorenda- keppnin hafin í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.