Morgunblaðið - 21.03.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2020
„ER ÞETTA EKKI FULL MIKIÐ? ÞETTA ER
NÚ BARA TÖLVUVEIRA.”
„MÁ ÉG EIGA MÁLNINGARRÚLLURNAR
ÞÍNAR EF ÞÉR BATNAR EKKI?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fyrsta snertingin.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BÖKUM
SMÁKÖKUR
ALDEILIS
BLÍÐAN!
LOKSINS!
ÞETTA ER EKKI
PÍTSUSENDILLINN!
HRIND
dóttir, f. 21.3. 1887, d. 3.6. 1977, hús-
freyja.
Börn Fríðar og Hjalta eru 1) Pétur
Ármann, f. 22.11. 1953, öryggis-
fulltrúi hjá Colas, maki: Rut Fjölnis-
dóttir, búsett á Selfossi, Pétur á þrjú
börn; 2) Erlingur Hreinn, f. 22.7.
1955, vélsmiður, maki: Sjöfn Ólafs-
dóttir, búsett í Reykjavík, þau eiga
þrjú börn; 3) Hafsteinn Rúnar, f.
18.2. 1957, bílstjóri hjá BM Vallá,
maki: Anna Kristín Kjartansdóttir,
búsett á Selfossi, þau eiga tvö börn
saman og bæði áttu tvö börn fyrir; 4)
Jakob Narfi, f. 2.2. 1960, rútubílstjóri
hjá Guðmundi Tyrfingssyni, maki:
Alice Petersen, búsett í Laugarási,
þau eiga þrjú börn og hann átti eitt
barn fyrir; 5) Guðbjörg Elín, f. 13.12.
1964, sjúkraliði hjá HSU, maki:
Björgvin Snorrason, búsett á Sel-
fossi, þau eiga tvö börn og hún átti
barn fyrir; 6) Marta Esther, f. 8.8.
1968, bóndi á Kópsvatni í Hruna-
mannahreppi, maki: Þór Guðnason,
þau eiga þrjú börn.
Systkini Fríðar: Heiðar, f. 15.1.
1933, d. 19.8. 1988, Gunnar Rúnar, f.
4.9. 1938, d. 19.2. 2017, Kristný, f.
24.11. 1942, Drífa, f. 21.9. 1944, Guð-
mundur, f. 4.9. 1946, og Pétur Hauk-
ur, f. 7.4. 1948.
Foreldrar Fríðar voru hjónin Pét-
ur Björnsson Guðmundsson, f. 21.1.
1906, d. 9.2. 1978, vélstjóri á Siglu-
firði og bóndi í Laxnesi, og Guðbjörg
Elín Sæmundsdóttir, f. 10.12. 1910, d.
4.8. 1963, húsfreyja.
Fríður Esther
Pétursdóttir
Guðbjörg Vigfúsdóttir
húsfreyja í Klettakoti
Guðbrandur Þorkelsson
verslunarmaður og bóndi í
Klettakoti í Staðarsveit
Ragnheiður Elín
Guðbrandsdóttir
húsfreyja í Ólafsvík og Spjör í
Eyrarsveit
Sæmundur Skúlason
sjómaður í Ólafsvík og b. í Spjör
Guðbjörg Elín
Sæmundsdóttir
húsfreyja á Siglufirði og í
Laxnesi
Hildur Helgadóttir
húsfreyja á Eiði í Eyrarsveit
Skúli Sveinsson
bóndi á Hrafnkelsstöðum í
Eyrarsveit
Friðþjófur Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja á Harastöðum
Jón Oddsson
bóndi á Harastöðum á
Fellsströnd
Jófríður Jónsdóttir
húsfreyja á Rifi
Guðmundur Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Guðbjörg Stefánsdóttir
húsfreyja á Ósi
GuðmundurBjörnsson
bóndi á Ósi á Skógarströnd
Úr frændgarði Fríðar Pétursdóttur
Pétur Guðmundsson
vélstjóri á Siglufirði og b. í
Laxnesi í Mosfellssveit
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Sjór á milli eyja er.
Innst má finna hann í tré.
Rák, sem hross á baki ber.
Á blálandskeisaranum sé.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Állinn milli lands og eyja liggur.
Líka áll er mergurinn í tré.
Hrossa sumra einnig ál ber hryggur.
ál á blálandskeisaranum sé.
Helgi R. Einarsson svarar: „Við
lifum skrýtna tíma þessa dagana og
vonandi höldum við því áfram, það
er að segja að lifa. Hvað sem öðru
líður færðu hér lausnina“:
Ál við eyjar sé.
Állinn finnst í tré.
Álótt merin er.
Áll er spíra hér.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Áll er milli eyja sjór.
Ál í trésins miðju finn.
Ál á hrygg ber einatt jór.
Álar blálandskeisarinn.
Þá er limra:
Valda á venusarþingum
vísurnar oft ég syng um,
í húminu þjáll
og háll sem áll
kvenfólkið snýst hann kringum.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Fer ég lítt á mannamót,
mig það bagar ekki hót,
gátu sem í næði nú,
næsta létt mun þykja sú:
Konu jafnt og karl á við.
Kreikar sá um taflborðið.
Notum oft sem ávarpslið.
Er svo líka fornafnið.
Svari Helga R. Einarssonar
fylgdu tvær limrur, sem „urðu
óvart til og eru ólíkar“. Sú fyrri ber
yfirskriftina „Leiðindalimra“:
Yfir ættarlandi
vofir veirufjandi.
Ógnar mér
og einnig þér.
Bregður sínum brandi.
Sú síðari heitir „Höfnun“:
Er í ljósbláu augun lít
og af losta í sneplana bít
hún snýr sér að mér
og segir: „Ef þér
er sama, éttu þá skít.“
Gömul bæn í lokin:
Vaki englar vöggu hjá,
varni skaðanum kalda.
Breiði Jesús barnið á
blessun þúsundfalda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Afsleppt er áls haldið