Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 4

Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður Við erum hér til að aðstoða þig! -- • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 FÓTBOLTASPIL BUFFALO GLORY Verð: 43.400 kr. 6015.005 Fellanlegt (á lager) 123 x 57.2 x 78.8 cm (LxWxH) Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) - 108 Reykjavík - S: 5683920 Opið 12:30-18:00 ÞÚFINNUR ALLT FYRIR ÁHUGAM ÁLIN HJÁ O KKUR pingpong.is pingpong.is pingpong.is pingpong.is Snorri Másson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Þór Steinarsson Alls hafa þrír einstaklingar náð að komast úr öndunarvél á Landspít- alanum eftir að hafa veikst alvar- lega vegna kórónuveirusýkingar. Þótt það sé mikið inngrip að setja einstakling í öndunarvél er það eitt og sér ekki hættulegt heldur er það undirliggjandi ástæðan sem veldur því að þörf er á öndunarvél sem er hættuleg. Ellefu einstaklingar liggja nú á gjörgæsludeild og eru átta af þeim í öndunarvél. Þetta kom fram í máli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, á upplýsingafundi vegna veirunnar í gær. Auk Páls tóku Víðir Reynisson yf- irlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Óskar Reyk- dalsson, forstjóri Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins, þátt í fundinum. Alma D. Möller landlæknir var ekki á fundinum í gær. Þórólfur greindi frá því að stað- festum smitum hefði fjölgað um 69 frá deginum áður og að uppsafnaður fjöldi greindra smita félli vel að bestu spám sem gerðar hafa verið um þróun faraldursins hér á landi. Hann sagði að óvenjumörg sýni hefðu verið tekin sólarhringinn fyrir fundinn og að hlutfall jákvæðra sýna væri svipað og undanfarið. Hlutfall þeirra sem greindust og voru í sóttkví var þó töluvert lægra en áður og mældist 32%. Skýringin á því er sögð vera hópsýkingar á Ísafirði, í Bolungarvík og í Vest- mannaeyjum. Tölurnar sýna að aðgerðirnar sem gripið hefur verið til hér á landi til að sporna við kórónuveirufar- aldrinum hafa borið árangur sagði Þórólfur og bætti því við að það hefði tekist að vernda sjúkrahúsin. Að sögn Þórólfs var fjöldi sjúklinga á gjörgæslu áhyggjuefni framan af þar sem að hann fór fram úr spám en tekist hefði að útskrifa marga af gjörgæslu og tölurnar hefðu því færst nær bjartsýnni spám. Þá ítrekaði Þórólfur það sem kom fram á upplýsingafundinum á laugardaginn að verið væri að teikna upp hvað tekur við þegar samkomubanninu verður aflétt, að minnsta kosti að hluta til, hinn 4. maí. „Það er enginn sem veit nákvæm- lega hvernig hann á að aflétta að- gerðum og hversu hratt hann á að gera það. Ég held að það viti þetta enginn nákvæmlega, þar sem engin tvö þjóðfélög eru eins og hver gerir þetta með sínum hætti. Ég veit að þetta er mjög óþægilegt fyrir alla að vita ekki hvað gerist eftir 4. maí. Við vitum það ekki heldur en við erum að ráða ráðum okkar,“ sagði hann. Óskar Reykdalsson lýsti yfir áhyggjum af því að fólk með aðra sjúkdóma en kórónuveirusýkingu veigraði sér við að leita sér lækn- isþjónustu til þess að valda ekki auknu álagi á heilsugæsluna. Hann ítrekaði að hefðbundin starfsemi og starfsemi vegna kórónuveirunnar séu aðskildar og hvatti fólk til að hafa samband vegna veikinda, sama af hvaða toga. Þá sagði hann að sím- tölum vegna andlegrar vanlíðunar hefði fjölgað nokkuð vegna kórónu- veirufaraldursins. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 44 1.035 Útlönd 0 0 Austurland 6 83 Höfuðborgarsvæði 1.082 3.004 Suðurnes 67 270 Norðurland vestra 33 63 Norðurland eystra 39 196 Suðurland 152 373 Vestfirðir 36 343 Vesturland 27 144 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Erlendis Óþekktur 25.394 sýni hafa verið tekin 428 einstaklingar hafa náð bata 11.657 hafa lokið sóttkví 38 eru á sjúkrahúsi 5 einstaklingar eru látnir 12 á gjör-gæslu 1.054 eru í einangrun Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar Upplýsingar eru fengnar af covid.is og landspitali.is 1.486 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 5.511 manns eru í sóttkví 1.486 28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 71% 7% 22% 1.500 1.250 1.000 750 500 250 Þrír komnir úr öndunarvél  Hlutfall greindra í sóttkví lækkar töluvert  Vel hefur tekist að vernda sjúkrahúsin  Áhyggjuefni að fólk veigri sér við því að leita sér læknisaðstoðar  Tölurnar sýna að aðgerðirnar hafa virkað Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson Upplýsingafundurinn Á honum kom fram að rúmlega 1.000 manns væru í eftirliti á Covid-göngudeild og líklega þyrfti að leggja þó nokkra af þeim inn. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Heimilismaður á hjúkrunarheim- ilinu Bergi í Bolungarvík sem sýndi einkenni kórónuveirusmits var settur í einangrun í gær. Þrjú kórónuveirusmit hafa greinst á Bergi. Sjö íbúar voru í sóttkví í gær og án einkenna. Heimsóknabann hefur gilt á heimilinu um hríð og því eru þessi smit mikið áfall, að sögn Gylfa Ólafssonar, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (HVEST). Sýni hafa verið tekin úr öllum sem sýna einkenni og verða þau væntanlega send til greiningar í Reykjavík í dag með þyrlu Land- helgisgæslunnar. Fimm ný smit komu í ljós í gær á norðanverðum Vestfjörðum. Beðið var niður- staðna um nokkurn fjölda sýna. Mikil þörf á starfsfólki Alls voru 23 starfsmenn hjúkr- unarheimilisins Bergs komnir í sóttkví í gær og hafði þeim fjölgað um sex frá því á föstudaginn var. Mikil þörf er á starfsfólki vegna þeirra starfsmanna sem eru í sóttkví og geta því ekki unnið. Starfsfólk vantar á hjúkrunarheim- ilin og bráðadeild á norðanverðum Vestfjörðum. HVEST biðlar til hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem geta komið með skömmum fyrirvara að skrá sig í bakvarða- sveit stofnunarinnar á netfanginu hvest@hvest.is. Gylfi á von á fimm hjúkrunar- fræðingum og sjúkraliðum vestur í dag og tveimur til viðbótar síðar. Flytja átti fólkið vestur með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrir há- degið. Óvíst var með áætlunarflug vegna veðurs og mikil ófærð á vegum. greindust nú voru fjórir í sóttkví og nokkrir einkennalausir. Heildar- fjöldi smita í Vestmannaeyjum er orðinn 95 og hafa 14 hafa náð bata. Í sóttkví eru nú skráðir 157. Þrjár vikur voru liðnar í gær frá því að fyrsta kórónuveirusmitið var staðfest í Vestmannaeyjum. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, sem á sæti í aðgerðastjórn almannavarna, sagði að skimað hefði verið hlutfalls- lega mest fyrir kórónuveirunni í Vestmannaeyjum af öllum bæjar- félögum landsins. „Á þessu tímabili er búið að skima hátt í tvö þúsund einstaklinga eða um 45 prósent af íbúum. Sama hlut- fall á öllu Íslandi væri um 170 þús- und skimanir en það er búið að skima rúmlega 25 þúsund manns á öllu landinu. Eðlilega finnum við því fleiri smit en aðrir,“ sagði Íris. Yfir 600 Vestmannaeyingar hafa farið í sóttkví og flestir þeirra eru nú lausir úr henni. Hertar aðgerðir fyrir vestan Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum ákvað í gær að herða enn aðgerðir á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík vegna kórónu- veirunnar. Leik- og grunnskólum á þessum stöðum verður lokað frá og með deginum í dag. Börn á for- gangslistum fá vistun á leikskólum. Páskafrí hófst í grunnskólum um helgina. Samkomubann verður mið- að við fimm mannns. Það á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili. Viðskiptavinir í verslunum stærri en 150 m2 mega ekki vera fleiri en 20 á hverjum tíma. Nær helmingur íbúa skimaður Um helgina bættust við 12 ný smit í Vestmannaeyjum. Greindust allir nema einn í skimun Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE). Búið var að rannsaka 1.200 af 1.500 sýnum sem voru tekin í skimun ÍE. Af þeim sem Þrjú smit á hjúkrunar- heimili í Bolungarvík  Hertar aðgerðir vestra  Búið að skima 45% Eyjamanna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bolungarvík Kórónuveirusmit kom upp á hjúkrunarheimilinu Bergi. Í gær voru fjórir íbúar í einangrun og sjö íbúar og 23 starfsmenn í sóttkví.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.