Morgunblaðið - 06.04.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020
Vefverslun
rún.is
20%
afsláttur
Fatnaður sem hentar bæði innan og utandyra
AF SPORTFATNAÐI
FRÁ SOUTH WEST
SENDUMFRÍTTUM LAND ALLT
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mikilvægi Ríkisútvarpsins hef-
ur komið vel í ljós í því óvenju-
lega ástandi sem hér er vegna
kórónuveirunnar. Dagskrá okk-
ar og upplýsingamiðlun hefur
þjappað þjóðinni saman, bæði
fréttaflutningur og afþreying-
arefni sem sannarlega þarf nú,“
segir Stefán Eiríksson, sem í
byrjun mars síðastliðnum tók við
sem útvarpsstjóri. Þegar hann
kom til starfa höfðu þegar í var-
úðarskyni verið gerðar ýmsar
varúðarráðstafanir í Útvarps-
húsinu með það fyrir augum að
tryggja órofna starfsemi eins og
hefur tekist.
Nýr vefur og menntaþættir
Hjá RÚV hefur verið brugð-
ist við samkomubanni og öðrum
takmörkunum í samfélaginu með
breytingum á dagskrá og nýjum
dagskrárliðnum. Þar má nefna
sameiningu morgunþátta út-
varpsrásanna tveggja sem einnig
er sjónvarpað. Einnig er kominn
í loftið vefurinn menntaruv.is
með fræðslu- og upplýsingagildi
fyrir grunn- og framhaldsnema.
Þá eru í sjónvarpi nú tveir þættir
ætlaðir eru ungu fólki. Annar er
Heimavist milli kl. 9-11 á morgn-
ana styður við nám í yngri bekkj-
um grunnskóla. Hinn er Núllstill-
ing, sem er í loftinu milli kl. 14
og 16 á RÚV2 og netinu á ruv-
null.is. Sá þáttur er ætlaður ung-
lingum, svo sem framhaldsskóla-
nemum.
„Takmarkanir á skólahaldi
eru miklar og því þurfti að
bregðast við með einhverjum
hætti,“ segir Stefán. „Það er auð-
vitað afrek að setja í gang tvo
sjónvarpsþætti, smíða nýjan vef
og ljúka því á tveimur vikum.
Starfsfólk í Efstaleiti og þau sem
við störfum með voru samtaka
og gerðu sér grein fyrir mikil-
vægi verkefnisins og því tókst að
gera þetta á mettíma. Svona
þurfa fjölmiðlar líka að vera og
vinna; geta brugðist aðstæðum
úti samfélaginu sem eru oft fljót-
ar að breytast.“
Stefán nefnir einnig aukið
framboð á dægurefni ýmiss kon-
ar – fróðleik og skemmtun – sem
sýnt er í sjónvarpi yfir daginn.
Þar má nefna ýmsa gamla þætti
sem eru sendir út morgnana og í
eftirmiðdaginn. Þá eru hafnar á
RÚV2 í sjónvarpinu endursýn-
ingar á nokkrum af vinsælustu
sýningum Þjóðleikhússins síðari
árin. Er þetta gert meðal annars
í tilefni af 70 ára afmæli leik-
hússins. Hápunktur þessa er á
sumardaginn fyrsta, 23. apríl
sem er afmælisdagur Halldórs
Laxness. Þá verður sýnd í tveim-
ur hlutum uppfærsla á Sjálf-
stæðu fólki, sem byggð er á
skáldsögu Nóbelskáldsins. Nær í
tíma eru sýningar á leikritunum
Með fulla vasa af grjóti og
Græna landið og undir lok apríl-
mánaðar verða sýndir Englar al-
heimsins og Íslandsklukkan.
Treysta almannaþjónustu
Síðasta mánuðinn hefur
þjóðin sameinast í því að fylgjast
með daglegum útsendingum frá
blaðamannafundum þríeykis
Víðis Reynissonar, Þórólfs
Guðnasonar og Ölmu Möller.
Boðskapur þeirra er í heiðri
hafður og gildir sem lög. „Að-
stæðurnar í þjóðfélaginu nú eru
merkilegar,“ segir Stefán og hef-
ur þar Hrunið haustið 2008 til
samanburðar. Á þeim tíma stýrði
hann lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu sem þá þurfti að takast
á við fordæmalausar aðstæður
rétt eins og aðrir þurfa að gera
nú, þó með öðru móti sé.
„Öfugt við það sem gerðist í
Hruninu, þegar traust í sam-
félaginu bókstaflega hvarf, eykst
það með hverjum deginum.
Fleiri en áður treysta almanna-
þjónustunni, ríkisstjórninni og
eins fjölmiðlum sem eru ábyrgir í
öllum fréttaflutningi. Þetta mun
hjálpa okkur í þeirri samfélags-
legri uppbyggingu sem er fram-
undan á næstu mánuðum sem
verða sennilega mjög erfiðir.
Slíkar aðstæður kalla líka á að
við hugsum líka vel hvort um
annað, svo veröldin verði mann-
eskjulegri.“
Fjölmiðlaheimurinn
hefur gjörbreyst
Á síðustu árum hefur þrengt
að einkareknum fjölmiðlum á Ís-
landi og fyrir liggur frumvarp
menntamálaráðherra sem gerir
ráð fyrir opinberum stuðningi
við rekstur þeirra. Frumvarpi
þessu segist Stefán fylgjandi,
enda sé samfélagi og lýðræðinu
mikilvægt að starfandi séu marg-
ir öflugir fjölmiðlar sem keppi
hver við annan með góðu og
áhugaverðu efni. Að sínu mati sé
RÚV ekki um of plássfrekt á ís-
lenskum fjölmiðlamarkaði, held-
ur einfaldlega á þeim stað og í
því hlutverki í almannaþjónustu
sem lög gera ráð fyrir.
„Fjölmiðlaheimurinn hefur
gjörbreyst á fáum árum; netið,
prentmiðlar og ljósvaki. Í dag
eru tiltækar 20-30 leiðir til þess
að nálgast útvarps- og sjónvarps-
efni Ríkisútvarpsins, streymis-
veitur á borð við Spotify og Net-
flix eru orðnar stórveldi og hver
og einn getur í raun sett upp sinn
eigin fjölmiðil á samfélags-
miðlum. Þetta er ótrúleg breyt-
ing frá því sem var, en gerir
hefðbundna og ritstýrða fjöl-
miðla líka enn nauðsynlegri þýð-
ingarmeiri en áður. Þeim kröfum
ætlar RÚV að standa undir.“
Ritstýrðir fjölmiðlar nauðsyn, segir útvarpsstjóri
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útvarpsstjóri Dagskrá okkar og miðlun þjappar þjóðinni saman, segir
Stefán, sem vinnur heima eins og fleiri gera vegna kórónaveirunnar.
Traustið eykst
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn mars reyndist vera fjórði
illviðramánuðurinn í röð hér á landi.
Veðurstofan telur mánuðina desem-
ber til og með mars til vetrar-
mánaða og því má segja að illviðri
hafi einkennt alla fjóra vetrar-
mánuðina að þessu sinni.
Almanakssumarið hefst aftur á móti
fimmtudaginn 23. apríl nk. Og
veðurstofuvorið hefur byrjað með
hvelli eins og landsmenn fengu að
kynnast um helgina.
„Veturinn 2019 til 2020 var ill-
viðrasamur. Meðalvindhraði var
meiri en vant er og loftþrýstingur
lægri. Illviðri voru mjög tíð og mikl-
ar samgöngutruflanir voru vegna
óveðurs og mikil fannfergis. Vetur-
inn var mjög snjóþungur norðan- og
austanlands og á Vestfjörðum,“
segir í tíðarfarsyfirliti Veðurstof-
unnar.
Þar kemur enn fremur fram að
mars var fremur kaldur og tíð
óhagstæð. Vindhraði var vel yfir
meðallagi, illviðri tíð og töluverðar
truflanir urðu á samgöngum. Mjög
snjóþungt var um landið norðan- og
austanvert og á Vestfjörðum.
Alhvítir dagar í Reykjavík voru
16, fjórum fleiri en að meðaltali
1971 til 2000. Á Akureyri var alhvítt
alla daga nema þann síðasta, þá var
flekkótt. Það er 14 dögum meira en
að meðaltali 1971 til 2000 og það
mesta síðan í mars 2014. Á Akur-
eyri var snjódýptin mest 77 senti-
metrar dagana 19. til 20.
Meðalvindhraði á landsvísu var
mikill, eða um 1,2 m/s yfir meðal-
lagi. Meðalvindhraði í mars hefur
ekki verið eins mikill síðan í mars
árið 2000
Mars var kaldur og hiti undir
meðallagi síðustu tíu ára á landinu
öllu, að því er fram kemur hjá Veð-
urstofunni. Að tiltölu var hlýjast við
austurströndina en að tiltölu kald-
ast inn til landsins suðvestanlands.
Meðalhiti í Reykjavík mældist 0,4
stig, -0,1 stigi neðan meðallags ár-
anna 1961 til 1990 en -1,5 stigum
neðan meðallags síðustu tíu ára. Á
Akureyri var meðalhitinn -0,4 stig,
0,9 stigum ofan meðallags áranna
1961 til 1990 en -0,9 stigum neðan
meðallags síðustu tíu ár. Í Reykja-
vík raðast mánuðurinn í 82. sæti af
150 mælingum og á Akureyri í 55.
sæti af 140 mælingum.
Úrkoma í Reykjavík mældist 86,7
millimetrar, sem er 6% umfram
meðallag áranna 1961 til 1990. Á
Akureyri mældist úrkoman 57,9
millimetrar, sem er 33% umfram
meðallag áranna 1961 til 1990.
Allir vetrarmánuð-
urnir illviðrasamir
Nýliðinn marsmánuður var fremur kaldur og snjóþungur
Meðalvindhraði á landinu hefur ekki verið jafn hár í 20 ár
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Í snjóbyl Vonskuveður var um allt land í gær. Vart sást út úr augum á Akureyri þar sem myndin var tekin.