Morgunblaðið - 06.04.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020
www.flugger.is*Tilboðið gildir frá 6.-30. apríl 2020 á meðan birgðir endast á öllum
stærðum og gljástigum af áðurnefndum vörum í tilboðinu
Langar þig að lakka
glugga, húsgögn eða
innréttingar?
Flügger Interior Fix Primer og Interior
High Finish leysir það verkefni með þér. 30%
afsláttur
út apríl*
Alþýðusamband Íslands hefur áundanförnum dögum sýnt að
það er alls ófært um að takast á við
óvenjulegt og erfitt ástand. Í stað
þess að sýna frumkvæði og leitast
við að verja störf
félagsmanna og
halda jafnvel eins og
unnt er í þá for-
dæmalausu kaup-
máttaraukningu sem
íslenskir launamenn
hafa notið á liðnum
árum hafnar sam-
bandið öllum hugmyndum sem geta
orðið til þess að auka líkur á að
fyrirtækin komi standandi út úr
þessu ástandi.
Þessi forherðing forystunnarkemur á óvart þegar horft er til
þess að ýmsir sem þó hafa ekki dreg-
ið af sér í baráttunni fyrir bættum
kjörum launamanna hafa áttað sig á
að nú er tími til að sýna yfirvegun og
skynsemi og slá af ýtrustu óskum í
því skyni að verja störfin.
Forseti ASÍ skrifar í pistli fyrirhelgi að nú þurfum við „að
anda rólega og vera þess fullviss að
þau úrræði sem þegar hefur verið
gripið til nýtist fyrirtækjum og
launafólki með sanngjörnum hætti“.
En þó að þetta kunni að hljómavel þá er það staðreynd að
fjöldi fólks missir nú vinnuna á með-
an forsetinn andar rólega.
Tíminn vinnur ekki með fyrir-tækjum landsins þessar vik-
urnar og þar með ekki heldur með
launþegum á hinum almenna mark-
aði.
Hefðbundin úrræði eiga ekki við ívægast sagt óhefðbundnum
aðstæðum og leiðtogar verða að
sýna lífsmark þó að þeir standi ekki
á öndinni.
Drífa Snædal
Það er hægt að
anda of rólega
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kjaraviðræðum hjúkrunarfræð-
inga miðar vel að sögn Aðalsteins
Leifssonar, nýskipaðs ríkissátta-
semjara, og hefur því verið blásið
til sáttafundar í dag klukkan hálf-
ellefu.
„Það hafa verið óformlegir fund-
ir undanfarna daga sem hafa geng-
ið ágætlega svo við ákváðum að
blása til fundar á morgun [í dag],“
sagði Aðalsteinn.
Bætir hann við að náðst hafi
samkomulag um vinnufyrirkomu-
lag fólks í vaktavinnu, eftir margra
ára viðræður.
„Þetta eru þungar og erfiðar
samningaviðræður sem hafa staðið
yfir lengi en það sem hjálpar okk-
ur er að samningsaðilar finna mjög
þétt til ábyrgðar og eru að vinna
þetta af mjög mikili einurð,“ sagði
Aðalsteinn.
Vaktaálagsaukinn úrræði til að
manna kvöld og nætur
Sóley Halldórsdóttir hjúkrunar-
fræðingur segir að engin orð lýsi
álaginu á gjörgæsludeild Landspít-
alans, þar sem hún vinnur, en þar
eru nú rúmlega tvöfalt fleiri sjúk-
lingar en vant er. Þrátt fyrir að
vaktaálagsauki hjúkrunarfræðinga
hafi verið framlengdur sé vandinn
ekki þar með leystur:
„Vaktaálagsaukinn var tíma-
bundið úrræði til að manna kvöld og
nætur, sem hefur verið erfitt vegna
manneklu á spítalanum. Síðan er
manneklan vegna þess að launin eru
ekki í samræmi við nám og ábyrgð,“
segir Sóley.
Kjaraviðræðum hjúkrunarfræð-
inga var vísað til ríkissáttasemjara í
febrúar síðastliðnum. Sóley segir að
óánægja ríki meðal hjúkrunar-
fræðinga um samningsleysið:
„Fólk er mjög óánægt með að við
skulum ekki vera með gilda sam-
inga. Það er erfitt að ná endum
saman á grunnlaunum hjúkrunar-
fræðinga. Síðan háir það okkur að
þetta er kvennastétt,“ segir Sóley.
Í ljósi faraldursins ákváðu stjórn-
völd að hætta við afnám vaktaálags-
auka og hann yrði framlengdur til
næstu mánaða að því er kom fram í
bréfi stjórnvalda til Landspítalans á
föstudag. Vaktaálagsauki nær þó
einungis til starfsmanna Landspít-
alans. „Ég er ánægð með það en
það fá ekki allir hjúkrunarfræð-
ingar vaktaálagsauka. Þess vegna
er aðalmálið að það verði samið,“
segir hún.
Kjaraviðræðum
hefur miðað vel
Hjúkrunarfræðingar enn samningslausir
Tryggingafélagið Sjóvá mun lækka
iðgjöld bifreiðatrygginga einstak-
linga vegna minnkandi bílaumferðar
í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Af
því leiðir að tjónatilkynningum
vegna ökutækja til Sjóvá mun fækka
enda dróst umferð saman um 21% í
samanburði við sama tímabil fyrir
ári, samkvæmt tölum Vegagerðar-
innar.
Gjalddagar iðgjalda um 43 þúsund
viðskiptavina verða felldir niður í
maí og tekur niðurfellingin bæði til
lögboðinna ökutækjatrygginga og
kaskótrygginga.
„Okkar verkefni er að verðleggja
áhættu með réttum hætti. Nú
merkjum við það að umferð hefur
dregist saman og það er alveg aug-
ljóst að samhangandi við aukna eða
minnkandi umferð er aukin eða
minnkandi slysahætta,“ segir Her-
mann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
Lækkunin snýr að heimilisbílum
en nær ekki til fyrirtækja og segir
Hermann að ástæðan fyrir því sé sú
að ólík sjónarmið búi að baki verð-
lagningu trygginga einkabíla og bif-
reiða fyrirtækja. „Við erum í miklum
samskiptum við fyrirtækin hjá okk-
ur og mörg þeirra, eins og til dæmis
rútufyrirtæki, eru að taka nánast
allan flotann sinn af númerum núna
og þá detta tryggingarnar af þeim
bílum tímabundið niður, “ sagði Her-
mann.
Lækka iðgjöld vegna faraldursins
Sjóvá lækkar iðgjöld bifreiðatrygginga Bílaumferð hefur minnkað
Morgunblaðið/Ómar
Umferð Tjón eru fátíðari nú en áður.