Morgunblaðið - 06.04.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
MATILDA FRÁ ELOMI
Brjóstahaldari 9.990,-
Buxur 4.690,-
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND TIL 15. APRÍL
Ekkert mál að skipta og skila
Gleðilega
PÁSKA
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Ríkisstjórn Svíþjóðar vinnur nú að
nýrri löggjöf sem gerir henni kleift að
taka „óvenjuleg skref“ til að berjast
gegn útbreiðslu kórónuveirunnar en
þar í landi er dánartíðni ívið hærri en
annars staðar á Norðurlöndum.
Í gær fækkaði tilkynntum dauðs-
föllum á Spáni af völdum kórónuveir-
unnar þriðja daginn í röð og á Ítalíu
voru tölur látinna lægri en þær hafa
verið síðastliðnar tvær vikur.
Slík jákvæð þróun er þó ekki upp á
teningnum alls staðar en tilkynnt var
um flest smit frá upphafi í Bretlandi í
gær og viðbúið að aðgerðir verði
hertar þar í landi.
Áhyggjur hafa verið uppi um að
stjórnvöld í Svíþjóð hafi ekki gert nóg
til að bregðast við faraldrinum og það
hafi leitt til hærri dánartíðni en í hin-
um norrænu löndunum.
Fá enn að fara í klippingu
Danmörk og Noregur eru á meðal
þeirra landa sem hafa beitt umfangs-
miklum lokunum, lokað landa-
mærum, skólum og verslunum sem
ekki eru nauðsynlegar og Finnland
hefur einangrað meginþéttbýlissvæði
sitt í kringum Helsinki.
Á sama tíma geta Svíar verslað
eins og áður, farið á veitingastaði og í
klippingu og sent börn yngri en 16
ára í skóla.
Í gær tilkynntu Svíar að alls 401
dauðsfall hefði orðið vegna kórónu-
veirunnar þar í landi. Tala dauðsfalla
hækkaði þannig um 8% frá deginum
áður og er hún hærri en samtals í
Danmörku, Noregi og Finnlandi.
Á hverja milljón íbúa Svíþjóðar
hafa 37 fallið frá vegna veirunnar en
28 í Danmörku, 12 í Noregi og 4,5 í
Finnlandi.
Sólböð bönnuð í Bretlandi
Dánartíðni á Spáni hefur dregist
saman síðustu daga en tilkynnt voru
674 ný dauðsföll þarlendis í gær; 135
færri en daginn áður, og hafði tíðnin
þá einnig verið lægri en daginn þar á
undan. Dánartíðni á Spáni hefur
ekki verið svo lág síðan í byrjun
mars.
Fleiri staðfest smit kórónuveiru
voru staðfest í gær í Bretlandi en
nokkru sinni áður þar í landi. Er tala
smitaðra nú um 50.000 og hafa tæp-
lega 5.000 látið lífið vegna veirunnar í
Bretlandi. Breska ríkisstjórnin var-
aði við því á blaðamannafundi í gær
að líkamsrækt utandyra yrði bönnuð
ef Bretar færu ekki að hlýða ströng-
um leiðbeiningum stjórnvalda sem
beinast að því að draga úr útbreiðslu
veirunnar.
Veður í Bretlandi hefur farið hlýn-
andi og veldur það stjórnvöldum
áhyggjum þar sem Bretar hafa nýtt
góða veðrið til að spóka sig og fara í
sólbað í almenningsgörðum. Einum
slíkum var lokað í gær vegna fjölda
fólks sem sótti hann heim á laugar-
dag. Matt Hancock, heilbrigðisráð-
herra Bretlands, skýrði frá því í sam-
tali við fréttastofu Sky News í gær að
sólböð væru óheimil og þeir sem þau
stunduðu stefndu lífi fólks í hættu.
Látnir á götum úti
Staðan í Ekvador er vægast sagt
slæm en íbúar landsins hafa margir
hverjir þurft að skilja látna ástvini sína
eftir á götum úti vegna fordæmalausra
anna hjá lík- og sjúkrahúsum. Þar sem
færri fá að fara í sýnatöku en vilja er
erfitt að segja til um það hverjir hinna
látnu þjáðust af COVID-19.
Grísk stjórnvöld tóku í gær
ákvörðun um að loka aðrar flótta-
mannabúðir af vegna þess að þar kom
upp smit. Í síðustu viku voru flótta-
mannabúðir skammt frá Aþenu girt-
ar af en þá höfðu 23 smit komið þar
upp. Tugir þúsunda hælisleitenda lifa
við bágar aðstæður í grískum flótta-
mannabúðum og er hætt við að veiran
breiðist hratt út við slíkar aðstæður.
Dánartíðni í Svíþjóð hærri en
annars staðar á Norðurlöndum
Ríkisstjórnin undirbýr „óvenjuleg skref“ Dánartíðni á Spáni dregst saman
Bretar greina fleiri smit en nokkru sinni áður og sjá fram á harðari aðgerðir
AFP
Hughreysting Heilbrigðisstarfsmaður hughreystir sjúkling sem dvelur á sjúkrahúsi á Ítalíu vegna COVID-19.
Fjölmargir hafa látið lífið
» Um ein milljón og 137
þúsund smit kórónuveiru hafa
greinst á heimsvísu, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni.
» Um 63 þúsund hafa fallið frá
vegna veirunnar.
» Um 260 þúsund manns hafa
náð bata.
Boris Johnson,
forsætisráð-
herra Bretlands,
var lagður inn á
sjúkrahús í gær-
kvöldi vegna
kórónuveir-
unnar.
Tíu dagar eru
síðan Johnson
greindist með
veiruna en hann var lagður inn á
sjúkrahús til rannsóknar og er
innlögnin varúðarráðstöfun.
Í lok mars sagðist Johnson
finna fyrir takmörkuðum ein-
kennum en var þó með háan hita.
Ekkert bendir til þess að John-
son þurfi að leggjast inn á gjör-
gæslu. Carrie Symonds, unnusta
Johnsons, er þunguð og hefur
verið veik í um það bil viku. Hún
er nú á batavegi.
Matt Hancock, heilbrigðis-
ráðherra Bretlands, greindist
með veiruna fyrir rúmri viku en
hann sneri aftur til vinnu á föstu-
dag.
BRETLAND
Boris Johnson lagð-
ur inn á sjúkrahús
Boris Johnson
Tveir létust og
fimm særðust
þegar súd-
anskur hæl-
isleitandi réðst
á fólk í nokkr-
um búðum í suð-
austurhluta
Frakklands á
laugardag.
Maðurinn var
handtekinn en
árásin er rannsökuð sem hryðju-
verk. Tveir aðrir súdanskir hæl-
isleitendur hafa verið yfirheyrðir
vegna árásarinnar.
Við húsleit í húsnæði árásar-
mannsins fundust handskrifuð
gögn þar sem vitnað var í ýmis
trúarrit. Í gögnunum kvartaði sá
sem þau skrifaði sérstaklega yfir
því að búa í landi syndara.
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, sagði árásina ógeð-
fellda í færslu á Twitter.
FRAKKLAND
Árásin rannsökuð
sem hryðjuverk
Emmanuel
Macron
„Næsta vika verður sorglegasta og
erfiðasta stund flestra Bandaríkja-
manna,“ sagði Jerome Adams, land-
læknir Bandaríkjanna, í gær. Hann
sagði að vikan yrði eins konar „Pearl
Harbor-stund“, eða „9/11-stund“ og
vísaði þannig í eina erfiðustu atburði
sem bandaríska þjóðin hefur gengið í
gegnum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sagði á blaðamannafundi um síðast-
liðna helgi að fram undan væru mörg
dauðsföll vegna kórónuveirunnar.
Hann lofaði því að þau ríki Banda-
ríkjanna sem verst hefðu orðið úti
myndu fá lyfjabirgðir, stuðning
hersins og fleiri heilbrigðisstarfs-
menn til vinnu.
Slakað á aðgerðum
Á sama fundi gaf Trump til kynna
að dregið yrði úr tilmælum um
félagslega einangrun fyrir páska.
„Við þurfum að opna landið okkar
á nýjan leik. Við getum ekki gert
þetta í ótal mánuði,“ sagði Trump og
hélt áfram:
„Lækningin má ekki vera verri en
sjúkdómurinn sjálfur.“
Um 9.200 hafa nú fallið frá vegna
veirunnar í Bandaríkjunum og rúm-
lega 321.000 smitast. Um er að ræða
flest smit kórónuveiru á heimsvísu.
Flest dauðsfallanna hafa átt sér stað
innan New York-ríkis en í gær voru
tilkynnt 594 ný dauðsföll þar á einum
sólarhring. Í ríkinu hafa komið upp
svipað mörg tilfelli veirunnar og á
Ítalíu í heild sinni en Ítalía er það
land innan Evrópu sem hefur farið
hvað verst út úr veirunni.
Joe Biden, einn forsetaframbjóð-
enda í forvali Demókrataflokksins,
sagði í samtali við fréttastofu ABC í
gær að Bandaríkin gætu gert miklu
betur í að hefta útbreiðslu veirunnar
en nú væri gert.
„Pearl Harbor-
stund“ í augsýn
Mörg dauðsföll væntanleg á næstunni
AFP
Landlæknir Jerome Adams segir
erfiða tíma fram undan hjá þjóðinni.