Morgunblaðið - 06.04.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 06.04.2020, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Áhrif kórónu-veiru-faraldursins á efnahag heimsins eru gríðarleg en um leið mjög óviss. Verður ástandið langvarandi eða verður veröldin og viðskiptalíf hennar komin í gegnum það í sumar, jafnvel strax í júní? Um þetta hefur enginn skýr og örugg svör þó að allir voni það besta. Hitt er öruggt að höggið á efna- haginn er mikið, það finnst þegar, og að hagtölur þessa árs verða mjög litaðar af kórónuveir- unni. Engu að síður finna ólíkir geir- ar atvinnulífsins misjafnlega mikið fyrir skellinum. Mikið hef- ur verið horft til ferðaþjónust- unnar, einkum hér á landi þar sem vöxtur greinarinnar hefur verið ævintýralegur og tekjurnar sem hún skilar eru orðnar mjög mikilvægar. En erlendis er einn- ig horft til þessarar greinar, þar sem flug hefur fallið niður, ferða- bann verið sett á, hótelum hefur verið lokað og veitingastaðir standa tómir. Á sama tíma aukast viðskiptin í einstaka greinum, einkum þeim sem snúa að heimsendingum og viðskiptum á netinu, enda hefur netnotkun aukist mjög og fólk er minna á ferðinni og eyðir meiri tíma fyrir framan tölvu og sjón- varp. Einn geiri atvinnulífsins sem hefur fundið mjög fyrir þessu ástandi er fjölmiðlar. Þeir falla að vissu leyti í hóp þeirra fyrir- tækja sem séð hafa aukna eftir- spurn, enda hefur þörfin fyrir þjónustu þeirra sjaldan verið meiri. Fólk þyrstir í reglulegar fréttir af veirunni og afleiðingar útbreiðslu hennar og fólk sækir líka í vandaða fjölmiðla sem leit- ast við að segja rétt frá þessum ógnarstóra atburði sem við lifum nú. Fjölmiðlar hafa þess vegna enn meiri þýðingu nú um stundir en alla jafna og er þó almennt tal- ið að þýðing þeirra sé umtalsverð og þeir séu jafnvel ein af grunn- stoðum samfélagsins, ekki síst í lýðræðisríkjum. Vandi fjölmiðla, ólíkt öðrum fyrirtækjum sem finna fyrir auk- inni eftirspurn nú, er að þessari eftirspurn fylgja ekki auknar tekjur. Þvert á móti hafa tekjur fjölmiðla fallið verulega samhliða auknum áhuga á efni þeirra, enda hafa auglýsendur kippt að sér höndum. Hrunið á auglýsinga- markaði er meira og skyndilegra en áður eru dæmi um, í það minnsta á undanförnum ára- tugum. Þetta fall í tekjum kemur í kjölfarið á áralöngum og vaxandi vanda sem fjölmiðlar í heiminum hafa staðið frammi fyrir og stafar að verulegu leyti af sókn netrisa á borð við Facebook og Google inn á auglýsingamarkaðinn. Þetta hefur þegar orðið til þess að fjölmiðlar hafa átt erfitt með að fjármagna starfsemi sína með auglýsingum á netinu þrátt fyrir aukna notkun netmiðla. Og ris- arnir komast upp með að einoka nánast auglýs- ingamarkaðinn á netinu án þess að þurfa að sæta sömu meðhöndlun og fjöl- miðlarnir af hálfu hins opinbera, meðal annars hvað varðar skattheimtu. Þessir erfiðu tímar hafa orðið til þess að fjöldi blaða um allan heim hefur lagt upp laupana á síðustu dögum og vikum, einkum minni og staðbundin blöð, sem gjarnan eru áþekk íslensku blöð- unum að stærð. Þessi alvarlega þróun og sú hætta sem fjölmiðlun í heiminum stendur frammi fyrir hefur orðið til þess að víða hefur átt sér stað mikil umræða um það hvað ríkis- valdið geti gert til að koma í veg fyrir að fréttaþjónusta dragist verulega saman. Umræða um þetta á sér stað í svo að segja öll- um heimshornum og víða er þeg- ar búið að grípa til aðgerða, sem gjarnan bætast við þann stuðning sem fjölmiðlar erlendis njóta fyrir, ólíkt þeim íslensku. Er- lendis greiða fjölmiðlar iðulega lægri skatta, oft en ekki ein- göngu lægri virðisaukaskatt, og njóta beins fjárframlags ríkisins. Ein ástæða þess að talin er þörf á að grípa til þessara sér- stöku aðgerða í þágu fjölmiðla er að þeir geta ekki nýtt sér aðrar aðgerðir ríkisvaldsins með sama hætti og mörg fyrirtæki geta gert. Í því sambandi hefur verið bent á erlendis, sem á vitaskuld einnig við hér, að fjölmiðlar geta ekki nýtt sér þá leið að segja fólki upp að hluta til, enda þurfa þeir ekki síður á starfsfólkinu að halda nú þegar þörf fyrir vand- aðar fréttir er með mesta móti. Danmörk er dæmi um ríki sem þegar hefur ákveðið að auka stuðning sinn við einkarekna fjöl- miðla, en hann var umtalsverður fyrir. Þar greiða prentmiðlar til að mynda engan virðisaukaskatt og fjölmiðlar fá að auki beinan stuðning. Sjá má í dönskum miðl- um að menntamálaráðherrann þar í landi, Joy Mogensen, hefur á síðustu dögum fengið mikið hrós fjölmiðlanna fyrir hröð og ákveðin viðbrögð við þessum bráðavanda. Hún rökstyður að- gerðirnar með því að danskir fjölmiðlar séu hornsteinn lýð- ræðisins. „Sér í lagi á þessum tímum er mikilvægt að við höfum gagnrýna fjölmiðla sem geta fært okkur trúverðugar upplýsingar og tekist á við þá miklu erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir. En fjölmiðlarnir hafa tapað aug- lýsingatekjum vegna kórónu- faraldursins, sem hefur lokað stórum hluta Danmerkur,“ sagði menntamálaráðherrann danski. Hér á landi er vandi fjölmiðla ekki minni en annars staðar. Raunar er hann enn meiri því að hér búa fjölmiðlar ofan á sam- keppnina við erlendu netrisana við samkeppni við Ríkisútvarp og starfa á litlu málsvæði. Allt mætti þetta verða íslensk- um stjórnvöldum verulegt um- hugsunar efni – og auðvitað til- efni aðgerða. Fjölmiðlar lenda með óvenjulegum hætti afar illa í kórónuveirunni} Áhrif veirunnar M argt bendir til þess að aðgerðir almannavarna gegn heimsfar- aldrinum, COVID-19, séu að bera árangur hér á landi. Þjóðin er samhent í við- brögðum sínum og langflestir hlýða fyrirmælum sóttvarnalæknis um breytt hegðunarmynstur. Þríeykið Víðir, Alma og Þórólfur stendur í stafni og miðlar upplýsingum og fræðslu á daglegum blaðamannafundum. Allt er þetta uppörvandi og til fyrirmyndar. Þau, sem og aðrir framlínu- starfsmenn og almenningur, eiga hrós skilið fyrir árangurinn fram að þessu. Við megum þó ekki missa sjónar á markmið- inu, sem er að komast sem fyrst út úr þessari vá. Ekki verður framhjá því horft að á annað þús- und manns hafa smitast, meira en þúsund eru í einangrun og fjöldi fólks hefur veikst mjög alvar- lega og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsum. Fjórir hafa látið lífið hér á landi af völdum faraldursins. Því er mjög mikilvægt að fara að ráðum sóttvarnalæknis um handþvott, að halda sig í minnst tveggja metra fjarlægð frá öðrum og virða takmarkað samkomuhald. Við höfum verið hvött til þess að halda okkur sem mest heima og forðast ferðalög um páskana. Þetta eru mikilvægar ábendingar og ástæða til að fara eftir þeim. Ef það er eitthvað sem við Íslendingar kunnum vel þá er það að taka hlutunum af þraustseigju og gera það besta úr aðstæðum hverju sinni. Það er ekki auðvelt að hitta ekki sína nánustu, til dæmis ömmur og afa, það er ekki auðvelt að hafa ofan af fyrir börnum sem eru vön sinni rútínu og þannig mætti áfram telja. Lífið er í öðrum farvegi en við eigum að venjast. Við þurfum aftur á móti að fara í gegnum þennan skafl saman og af okkar íslenska æðruleysi. Við höfum þegar séð fjölmarga brydda upp á ýmiss konar afþreyingu. Fjöl- skyldur spila meira en áður, horfa saman á skemmtilegt sjónvarpsefni, fara saman út í göngutúra og svo framvegis. Við höfum sett okkur það skemmtilega markmið að slá heimsmet í lestri og möguleikarnir á annarri afþreyingu eru margir þótt aðrir séu tak- markaðir. Við eigum líklega aldrei eftir að gleyma þessu ári, árinu sem fermingunum var frest- að, íþróttirnar fóru í langa pásu og við gátum ekki farið neitt um páskana. Fyrir suma verða minningarnar erfiðari, til dæmis vegna heilsufarsbrests og atvinnumissis. En við getum vonandi öll munað eftir því hvernig við fórum í gegnum þetta. Því með okkar mikla baráttuanda munum við fara í gegnum þetta. Hagkerfið mun taka við sér á ný, við getum hugað að ferðalögum, við munum meta hlutina öðruvísi, við munum meta okkar nánustu enn betur og við munum kunna að meta lífið með öðrum hætti. Í bili skulum við hlýða Víði og vera heima um páskana. Það er eitt af fyrstu skrefunum í átt að markinu. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Áfram að markinu Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Stjórnvöld í Kína hafa þurft aðsæta verulegri gagnrýni aðundanförnu, ekki síst vegnaspurninga sem hafa vaknað í kringum það hver raunveruleg út- breiðsla kórónuveirunnar hefur verið þar í landi og hver áhrif þess hafa verið. Í síðustu viku sagði Bloomberg frá því að heimildarmenn innan bandaríska stjórnkerfisins hermdu að í trúnaðarskýrslu frá bandarísk- um leyniþjónustum segði að kínversk stjórnvöld hefðu með markvissum hætti reynt að fela umfang kórónu- veirufaraldursins í landinu og bæði gefið upp færri tilvik en raunveru- lega hafa verið greind og fjölda dauðsfalla vegna sjúkdómsins sem veiran veldur. Tveir heimildarmann- anna fullyrða að niðurstaða skýrsl- unnar sé að tölur frá Kína séu fals- aðar. Þrátt fyrir að yfirvöld í Kína hafi loks gripið til harðra aðgerða til þess að stöðva útbreiðsluna hefur gagn- rýni í garð kínverskra stjórnvalda verið áberandi bæði innan og utan landsins. Þá hefur meðal annars ver- ið vandamál að kínversk stjórnvöld hafa ítrekað endurskoðað með hvaða hætti smittilfelli skuli skráð. Vikum saman voru einstaklingar með smit en án einkenna einfaldlega ekki taldir með, en í síðustu viku var ákveðið að bæta um 1.500 einkennalausum til- vikum við heildartölu stjórnvalda. Skekkti stöðuna Trúlega hafa þessar tilraunir kínverskra stjórnvalda til þess að breiða yfir umfang faraldursins verið ætlaðar fyrst og fremst til heima- brúks. Vandinn við þessa nálgun hef- ur hins vegar verið að heilbrigðis- yfirvöld annarra ríkja og alþjóða- samfélagsins hafa reitt sig á kín- verskar upplýsingar til þess að kortleggja hegðun veirunnar og gera viðeigandi ráðstafanir. Þá var út- breiðsla kórónuveirunnar strax talin alvarleg en að umfangið yrði minna en raunin varð hefur Bloomberg eftir Deborah Birx, faraldsfræðingi bandaríska utanríkisráðuneytisins og ráðgjafa Hvíta hússins. Segir hún að hættan sem stafað hefur af veirunni hafi líklega verið vanmetin vegna þess að skort hafi veruleg gögn, en gögn frá Evrópu, nánar tiltekið Spáni og Ítalíu, hafi fyllt í eyðurnar. Þessum athugasemdum hefur meðal annars Hu Xijin, ritstjóri kín- verska ríkisfjölmiðilsins Global Times, vísað á bug og fullyrt að ásak- anir um markvissa yfirhylmingu sé tilraun til þess að beina athygli al- mennings á Vesturlöndum frá þeim fjölda dauðsfalla sem eiga sér stað þar. En það eru ekki bara erlend stjórnvöld sem hafa efasemdir um umfang faraldursins í Kína. Kín- verska fréttastofan Caixin hefur meðal annars sagt frá því að öskuílát fyrir leifar þeirra sem deyja hafi ver- ið flutt til Wuhan í stórum stíl. Haft er eftir vörubílstjóra að hann hafi af- hent 2.500 slíkar krukkur á einni út- fararstofu í borginni 26. mars og sama magn daginn áður. Það skal þó tekið fram að það eru ekki bara kínversk stjórnvöld sem sökuð eru um að gera tilraunir til þess að fela umfang faraldursins og hafa stjórnvöld í Íran, Rússlandi, Indónesíu, Egyptalandi og Sádi- Arabíu einnig verið sögð vantelja smit. Veikleikar Kórónuveirufaldurinn hefur skapað skort á ýmsum hlífðarbúnaði fyrir viðbragðsaðila, svo sem göllum, hönskum og grímum. Hefur þetta varpað ljósi á þann veikleika sem felst í því að mörg ríki hafa orðið háð kínverskri framleiðslu og má gera ráð fyrir því að þegar ástandið líður hjá verði gripið til einhverra ráðstaf- anna til þess að mæta þeim áhættu- þætti. Ýtir enn frekar undir þennan þátt að yfirvöld í Hollandi, á Spáni og í Tyrklandi hafa öll gert verulegar at- hugasemdir við gæði búnaðar sem ríkin hafa fengið frá Kína, að því er fram hefur komið í umfjöllun Fin- ancial Times. Flækjustigið vex einnig við það að kínversk stjórnvöld sæta gagnrýni fyrir að notfæra sér ástandið til þess að bæta eigin ásýnd og að þau séu að reyna að breyta því hvernig sé fjallað um faraldurinn sér í hag og í óhag Bandaríkjanna. Kom þetta meðal annars fram í pistli Joseps Borrells, utanríkismálastjóra framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, þar sem hann segir að Evrópa hafi sent verulegt magn af heilbrigðisbúnaði til Kína í þeim tilgangi að aðstoða þarlend stjórnvöld við að takast á við faraldurinn. Þá sé Kína, ásamt öðr- um, nú að senda búnað og lækna til Evrópu. „Kína er með ágengum hætti að koma þeim skilaboðum á framfæri að ríkið sé, öfugt við Banda- ríkin, áreiðanlegur samstarfsaðili. […] Við höfum líka séð tilraunir til þess að draga úr trúverðugleika ESB.“ Það virðist því vera komin upp sú staða, séu fyrri frásagnir réttar, að með því að reyna að auka traust í garð kínverskra stjórnvalda innan- lands hafi þarlendum yfirvöldum tek- ist að auka vantraust í sinn garð til muna erlendis. Tölur til heimabrúks rýra trúverðugleika AFP Þögn Kínverska þjóðin minntist á laugardag þeirra sem látið hafa lífið í veirufaraldrinum, en vafi er um hversu margir urðu veirunni að bráð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.