Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 20

Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 20
✝ MagnúsStefánsson fæddist 20. nóvem- ber 1927 í Miðbæ, Ólafsfirði. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hornbrekku í Ólafsfirði 28. mars 2020. Foreldrar Magn- úsar voru Stefán Hafliði Steingríms- son, f. 9. maí 1892, d. 19. febrúar 1972, og Kristín Jónína Gísladóttir, f. 24. ágúst 1895, d. 3. desember 1979. Systkini Magnúsar voru 9 sem öll eru látin, þau voru Gíslína Kristín, Kristinn Eiríkur, Ólafur Steingrímur, Jónmundur, Guð- laug Kristbjörg, Sigurjón Þór, Gunnlaugur Jón Magnússon, f. 1952, kvæntur Ástu Sigurðar- dóttur, Þeirra börn eru Jóna Kristín, f. 1972, Anna Kristín, f. 1972, og Magnús, f. 1975, og eiga þau 6 barnabörn. 3.) Jóna Kristín, f. 1959, d. 1960. 4.) Ásdís Jóna Magnúsdóttir, f. 1961, gift Örnólfi Ásmundssyni, þeirra börn eru: Sólrún Helga, f. 1981, Ólöf Maggý, f. 1986, Eva María, f. 1989, og Brynjar Már, f. 1995, fyr- ir átti Örnólfur einn son Kristján, f. 1976, og eiga þau 6 barnabörn. Magnús nam rafvirkjun við Iðnskólann á Ólafsfirði og tók sveinspróf 1952. Hann starfaði áður við sjómennsku og almenna verkamannavinnu. Eftir námið starfaði hann sem rafverktaki og stofnaði rafmagnverkstæði 1952 sem hann rak til ársins 2010. Hann var í stjórn Félags rafverk- taka á Norðurlandi. Hann útskrif- aði sjö rafvirkjanema á sínum ferli, þar af báða syni sína og son- arson sinn og nafna. Útförin fer fram í kyrrþey. Sigurveig Anna, Þorfinna og Sig- urhelga. Hinn 25. desem- ber 1948 kvæntist Magnús eftirlifandi konu sinni Helgu Eðvaldsdóttur, f. 5. febrúar 1931 á Siglufirði, foreldrar hennar voru Lára Gunnarsdóttir, f. 14. september 1909, d. 2. janúar 1996, og Eðvald Eiríks- son, f. 7. febrúar 1908, d. 26. apríl 1977. Maggi og Helga eignuðust fjögur börn: 1.) Eðvald, f. 1948, kvæntur Maríu Magnússon. Þeirra dóttir er Elísabet, f. 1977, og eiga þau 3 barnabörn. 2.) Elsku afi minn, Maggi, er látinn. Síðustu dagar hafa verið erfiðir, þar sem afi fór fljótt og það er erfitt að fá ekki vegna aðstæðna sem nú eru í þjóðfélaginu, að fylgja honum síðasta spölinn. Afi sem var alltaf sprækur og duglegur enda stund- aði hann vinnu þar til hann varð 84 ára. Daglegar gönguferðir sem og sundferðir stundaði hann fram á síðasta dag, hann þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Afi sem var alltaf uppáhalds, gerði allt fyrir alla og ekki síst okkur barnabörnin og svo langafabörnin sem eru þrettán talsins. Ég á svo margar minningar um afa minn. Heimili ömmu og afa er bara í næstu götu við æskuheim- ilið mitt og því ansi oft sem maður fór uppeftir til ömmu og afa, sem við fjölskyldan höfum alltaf kallað það. Afi hafði alltaf tíma fyrir allt og því ansi margt sem hægt var að leita til hans með, hvort sem það var að fara á sjósandinn, fara í berjamó, brasa með honum í garð- inum, taka upp kartöflur, ótal ferðir í bústaðinn, að leysa garn- flækjur, gera við hjól, það er enda- laust hægt að telja upp þau verk- efni sem maður leitaði til afa með. Mér er ansi minnisstætt þegar ég var um 9 ára og bekkurinn minn átti að leika leikrit um eskimóa og við áttum sjálf að finna til þau tæki og tól sem á þurfti að halda. Eitt af þeim var einhvers konar hnífur sem var hálfhringur sem við vor- um nú ekki að skilja. Auðvitað fór ég til afa með þetta verkefni og hann reddaði því, skar út og ég man hvað ég var stolt að mæta með þetta í skólann og sýna öllum. Ég fór í burtu í skóla á Akur- eyri og síðar á Laugarvatn en flutti svo norður 1999. Það var gott að vera nær fjölskyldunni og þegar Ólöf elsta barnið mitt fædd- ist, þá keyrði afi ömmu til mín oft í viku til Dalvíkur, svo að hún gæti verið hjá mér og hjálpað mér. Þegar ég var svo að kenna í grunnskólanum heima, þá fengum við leikskólapláss fyrir hádegi og einn dag í viku, þá sóttu amma og afi Ólöfu í leikskólann og pössuðu hana þar til ég lauk kennslu. Það var ómetanlegt. Það fyrsta sem börnin mín gera þegar við komum í fjörðinn, er að fara upp eftir til ömmu og afa. Það verður skrýtið að hitta þig ekki lengur, elsku afi minn. Það er stór og samheldinn hópur sem stendur eftir, barnabörnin eru átta og langafabörnin eru þrettán. Þú elsku afi, varst alltaf í góðu sam- bandi við alla og við heyrðumst oft í síma, milli þess sem við komum í fjörðinn. Það var alltaf gott hljóð í þér, og þú vildir fá að heyra hvern- ig gengi hjá krökkunum í skóla og íþróttum. Þú fylgdist einmitt mjög vel með íþróttunum hjá þeim, Magnús Stefánsson hvort það væru búnir að vera leik- ir eða mót og hvernig hefði farið. Mikið sem ég er þakklát fyrir það að hafa náð að eyða síðustu jólum með þér, það er ómetanlegt núna. Ég mun hugsa vel um elsku ömmu fyrir þig. Ég efast ekki um Miðbæjar- systkinin taka mjög vel á móti þér, þið eruð þá sameinuð öll saman aftur í sumarlandinu, því ég veit það var þér erfitt að sjá á eftir systkinum þínum. Elsku afi, við sjáumst síðar. En ég mun hugsa til þín á hverjum degi. Þín Anna. Laugardaginn 28. mars lést á Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, afi okkar Magnús Stefánsson á 93. aldursári. Maggi í Miðbæ, Maggi Stef. eða Maggi Raf., hann var þekktur undir þessum nöfnum en fyrir okkur var hann afi Maggi. Afi hafði alltaf tíma fyrir okkur og það var ekkert sem hann gat ekki, hvort sem það var að búa til hluti, lagfæra eða bara að dytta að- …enda var viðkvæðið oft hjá okkur, ég fer bara til ömmu og afa, þau geta gert þetta. Afi var ótrúlega hraustur, nán- ast fram á síðasta dag. Þau amma fóru í sund á hverjum degi og svo var líka farið í pottinn. Hann fór daglega í göngutúra um bæinn, oft líka fram á sjósand. Þegar við heyrðumst í síma var alltaf gott í honum hljóðið, við spjölluðum og svo sagði hann „amma þín er hér, hún getur kannski sagt þér meira“. En hann vildi fá að heyra fréttir af okkur, hvernig krökkun- um gengi í skólanum og íþróttum. Í þessum skrýtnu aðstæðum sem eru í heiminum í dag, var ekki hægt að fara að kveðja elsku afa en við munum allar góðar stundir sem við höfum átt saman og við munum gera okkar allra besta til að hugsa um elsku ömmu á þess- um erfiða tíma. Góða ferð í sumarlandið, elsku afi minn, efa það ekki að Miðbæj- arsystkinin taki vel á móti þér, þið eruð þá öll sameinuð aftur. Elsku amma Helga, megi Guð fylgja þér í sorg þinni. Fyrir hönd barnabarna, Jóna Kristín. Kveðja frá Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar Í Ólafsfirði fyrir 65 árum voru nokkrir frekar ungir, en allavega áræðnir menn sem réðust í að stofna Rótarýklúbb Ólafsfjarðar. Það var nánar tiltekið 17. apríl ár- ið 1955 og voru stofnfélagar 18. Magnús Stefánsson var einn þeirra og einn af þeim yngri, 27 ára gamall, og er hann sá síðasti þeirra félaga til að kveðja þennan heim. Klúbburinn varð strax mjög öflugur og þótti það undrum sæta í fámenninu sem var og er hér. En það er nú bara þannig að klúbbar og félög eru félagarnir og það sem þeir taka sér fyrir hendur. Magnús var mikill og góður rótarýmaður og einnig naut klúbburinn þess að hann hafði Helgu konu sína sér til halds og trausts og störfuðu þau mikið fyr- ir klúbbinn og samfélagið í Ólafs- firði. Það eru t.d. ófáir tímar sem þeir félagar Magnús og Ármann Þórðarson hafa, ásamt fleirum, staðið í snjó og byl til að bæjarbú- ar gætu notið ljósanna af kross- unum í kirkjugarðinum um jól. Hann var ætíð með fyrstu mönnum til að vinna að verkefn- um sem klúbburinn tók sér fyrir hendur og skipti þá ekki máli hvort þau sneru að gróðri, viðhaldi húseigna, skíðamótum eða öðrum verkefnum sem rekið hefur á fjörur klúbbfélaga. Mætti segja að Magnús hafi ætíð staðið vörð um klúbbstarfið og hnippt í menn þegar honum fannst eitthvað vanta upp á eða halla undan í starfi klúbbsins. Þau hjón Magnús og Helga voru viðstödd langflesta viðburði sem klúbburinn stóð fyrir. Þar eru ferðalög ekki undanskilin og ber þar e.t.v. hæst ferð til Færeyja fyrir sex árum. Eftir hátíðarfund sem haldinn var í klúbbnum 12. janúar 2017, fund nr. 3.000 frá stofnun klúbbs- ins, var skrifað á vefsíðu klúbbsins: „Einn af stofnfélögunum; Magn- ús Stefánsson, var viðstaddur ásamt konu sinni Helgu Eðvalds- dóttur. Heiðruðu fundarmenn þau hjón með því að standa upp fyrir þeim og klappa hraustlega. Magnús er búinn að vera ein af burðarstoðum klúbbsins alla tíð frá 1955, eða í tæp 62 ár, og voru menn að geta sér þess til að lík- lega væri hann búinn að sitja 2.700-2.800 rótarýfundi, en það hlýtur að vera einsdæmi.“ Þá voru árin 62, en þau urðu 65. Magnús er áreiðanlega einn af þeim rótarýmönnum heimsins sem lengst hafa starfað fyrir rótarýhreyfinguna og vilja klúbb- félagar þakka honum ræktarsemi, samveru og dugnað nú þegar leið- ir skilur. Í lok hvers fundar syngja fé- lagar rótarýsöng Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar, sem Hartmann Páls- son orti við lag sr. Ingólfs Þor- valdssonar: Eldarnir brenna, elfur tímans renna. Ólgandi lífið hefur margt að bjóða. Einn lyftir bjargi, annar stýrir penna, en orðið var fyrsti hreyfimáttur þjóða. Höfundi lífsins helgum starfið góða. Klúbbfélagar senda Helgu og ættingjum öllum sínar innilegustu samúðarkveðjur. Við minnumst góðs félaga. F.h. Rótarýklúbbs Ólafs- fjarðar, K. Haraldur Gunnlaugsson, forseti. 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 ✝ Guðrún JónaJúlíusdóttir fæddist í Reykja- vík hinn 6. febrúar 1950. Hún lést á Vikhem, Staffans- torp í Svíþjóð 20. mars 2020. Guðrún var dóttir hjónanna Júlíusar Guðjóns- sonar, f. 28. júní 1905, d. 16. júlí 1988, og Ingibjargar Björns- dóttur, f. 13. ágúst 1922, d. 12. febrúar 2011. Systkini Guð- rúnar voru Markús Þórarinn Júlíusson, f. 5. júní 1932, d. 12. Réttarholtsskóla og lauk það- an gagnfræðaprófi. Guðrún hafði sérstakan áhuga á fim- leikum. Eftir nám hóf Guðrún störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og vann þar uns hún flutti ásamt fjölskyldu sinni í sept- ember 1977 til Svíþjóðar. Eftir að börnin voru komin vel á legg fór hún aftur í nám i bók- haldi. Guðrún giftist Haraldi Karlssyni sjómanni, f. 10. október 1950, hinn 26. desem- ber 1970. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg Stella, f. 25. júní 1969. 2) Júlíus Reynar, f. 26. júní 1975. 3) Elísabet Ragna, f. 18. janúar 1979. Barnabörnin eru sjö talsins á aldrinum 5 til 23 ára. Guðrún verður jarðsett frá Fosie kyrka í Malmö í dag, 6. apríl 2020, klukkan 14 (að sænskum tíma). des. 1962, og Unn- ur Helga Svava Júlíusdóttir, f. 8. apríl 1934, d. 1. maí 2013, sam- feðra. Guðbjörg Ragna Guðmunds- dóttir Colton, f. 12. febrúar 1946, og Gylfi Magnús Guðmundsson, f. 1. mars 1947, sam- mæðra. Yngstur var Björn Júlíusson, f. 27. júlí 1952, og voru þau alsystkini. Guðrún ólst upp í Hólm- garði 4 í Reykjavík og gekk í Breiðagerðisskóla og síðar Elsku mamma, við erum ævin- lega þakklát þér fyrir hvað við höf- um verið heppin að njóta um- hyggju þinnar, öryggi og kærleika. Í gegnum líf okkar hefur þú leiðbeint okkur með orðum eins og ást og umhyggja og þetta hefur orðið leiðarstjarnan okkar. Ást þín og umhyggja fyrir okkur og fjöl- skyldu þinni er öryggi okkar. Að eiga mömmu eins og þig, sem á sama tíma er nánasta og besta vinkona okkar er ekki sjálf- sagt. Þú varst mamma sem var alltaf til staðar fyrir fjölskyldu, vini og kunningja. Mamma sem við gátum treyst með öllu án þess að vera yf- irheyrð eða dæmd. Í staðinn fyrir leiðbeindir þú okkur og hlustaðir. Að halda samtalinu gangandi var aldrei neitt mál fyrir þig og minningar okkar um þessi samtöl munum við alltaf eiga með okkur. Umræðurnar voru ekki takmark- aðar við fjölskylduna eingöngu, það var oft „ókunnugur“ í eldhús- inu sem þurfti að leita í ró þína eða finna auðvelda leið til að skoða lífið. Hæfni þína til að sjá alla í um- hverfi þínu eins og þeir eru hafa margir upplifað í gegnum tíðina. Barnabörnin þín hugsuðu aldr- ei um tæknibúnað nútímans í ná- vist þinni. Það var töluvert meira áhuga- verðara og gefandi að fá að sitja og teikna Óla prik, fikta í skart- gripunum eða flokka fingurbjar- girnar þínar. Sem betur fer eign- uðust öll sjö barnabörnin þín margar yndislegar og ástríkar stundir með þér. Þau munu alltaf geyma þessar minningar með sér. Þú settir okkur systkinin alltaf í fyrsta sæti, síðan umhverfið þitt og að lokum komst þú. Við sjáum núna að þessi hugsunarháttur lifir áfram í okkur og börnunum okkar og það er sérstaklega það sem fólk nefnir þegar er talað um Gunnu! Sönn ást vex ekki á trjám í sam- félagi nútímans. Mikilvægi þess að fá raunverulega öryggistilfinn- ingu með orðum og nálægð hvert við annað. Ef við myndum gúggla þessi orð værum við sannfærð um að mynd af þér myndi koma upp. Við höfum alltaf elskað færni þína við að halda fjölskyldunni saman, við lentum alltaf á sama stað, saman! Þú sem varst aðeins 1,50 á hæð, grönn og falleg kona, en með styrk þínum, ást, öryggi og um- hyggju tryggðir þú alltaf vellíðan okkar og heiminn í kring. Við finnum mikinn söknuð núna, það lýsir því hvernig okkur líður Við elskum þig. Börnin þín Ingibjörg, Júlíus og Elísabet. Guðrún mágkona mín er látin. Margs er að minnast. Við vor- um ekki bara mágkonur, heldur vorum við líka góðar vinkonur og áttum okkar saman. Ég var um 10 ára aldurinn, þegar Halli bróðir kom með Gunnu eins og við kölluðum hana alltaf, inn í fjölskylduna okkar. Það eru 5 ár á milli okkar, þannig að þau voru í raun og veru bara krakkar þegar þau byrjuðu að vera saman. Halli og Gunna fluttu til Sví- þjóðar haustið 1977 og bjuggu fyrst í Malmö. Síðar fluttu þau í Staffanstorp og þar var oft mikið gaman að vera saman. Það voru ekki fáar ferðirnar sem við fjöl- skyldan fórum og dvöldum hjá þeim. Það efldi tengslin mjög mikið. En það var á þeim tímum sem fólk var ekki mikið að hringjast á, þá fóru fram bréfaskipti. Við gerðum heilmikið saman með börnum okkar og það var frá- bært að upplifa aukin tengsl á milli þeirra sem hafa varað til framtíðar. Alltaf tóku þau frábærlega vel á móti okkur fjölskyldunni, sama hvað. Mikið var talað saman og mörg trúnaðarsamtöl áttu sér stað milli okkar, sem við geymum í minn- ingu okkar. Seinni árin þegar tölvusam- skipti jukust, áttum við oft og miklar samræður í gegnum tölv- una og voru það alltaf skemmti- legar stundir. Mikið hlegið og gert grín. Halli og Gunna voru dugleg að ferðast. Eftir að hún veiktist dáð- umst við Svavar að því, hvað þau voru dugleg að drífa sig af stað, hvort sem það var í fallega hjól- hýsinu sínu um sveitir Svíþjóðar eða á sólarströnd. Gunna elskaði að vera í sól. Ég veit að mágkona mín var mikið veik síðustu árin, en það var alveg ótrúlegt hvað hún náði sér alltaf upp á milli áfallanna, sem sýndi styrkleika og jákvæðni hjá henni. Guðrún mín, ég sakna samtal- anna okkar, en það er svo gott að eiga góðar minningar, það hjálpar heilmikið. Þakklæti og hlýhugur fyrir frá- bæran vinskap, allar góðu móttök- urnar og stundirnar í Svíþjóð og á Íslandi, ég tala þar fyrir munn okkar allra, Svavars, Sigurjóns og Reynis. Innilegar samúðar- og kær- leikskveðjur til þín, elsku Halli bróðir, Ingibjörg, Júlli, Elísabet og fjölskyldur. Sofðu rótt, elsku mágkona og vinkona. Stella Karlsdóttir. Guðrún vinkona okkar er látin. Við Æskurnar, eins og vinkvennahópurinn kallar sig, kynntumst er skólaganga hófst og allar götur síðan, þau 60+ ár sem liðin eru, hefur ekki skugga borið á þá vináttu. Margt var brallað á Hólmgarð- inum hjá frumbyggjum þessa barnvæna og skemmtilega hverfis. Við nutum æskuáranna. Við vorum eins og hjörð, sem fór hratt yfir. Guðrún okkar var dugleg, ábyrgðarfull og hjálpsöm strax frá unga aldri. Unglingsárin voru okkur óendanlega skemmtileg og góð. Félagsstarfið í Réttó, þar létum við okkur ekki vanta. Göngutúrarnir á hitaveitu- stokknum, þar sem við sungum há- stöfum með nýjustu lögunum. Ingaskýli við Bústaðaveg var al- veg hægt að kalla okkar félagsmið- stöð. Lídó, það var svo fullorðins að fara þangað og rosalega gaman. Breiðfirðingabúð við Skóla- vörðustíg var næsti viðkomu- staður. Dansinn dunaði. Margar fórum við inn á sama nafnskírteini. Já, nafnskírteini fylgdu ekki endi- lega eigendum sínum. Halli, Haraldur Karlsson, skóla- bróðir okkar, var maðurinn sem kom, sá og sigraði hjarta Guð- rúnar. Ingibjörg dóttir þeirra fæddist 1969 og varð hún okkur Æskunum strax mjög kær. Næstu árin, eins og gengur, fóru í hreiðurgerð hjá okkur öllum. Annað barn þeirra Guðrúnar og Halla er Júlíus. Þau fluttu til Sví- þjóðar og þar fæddist þeim þriðja barnið, Elísabet. Fjölskyldan hefur búið í Svíþjóð síðan. Við Æskurnar höfum heimsótt þau reglulega í gegnum árin. Nú hlaðast upp minningar í hugann. Mikið getum við þakkað fyrir að hafa ætíð átt góða, sterka vináttu. Sérstaklega langar okkur að minnast ársins 2007. Þá fórum við vinkonurnar til Staffanstorp og vorum þar í nokkra daga. Þetta var í síðasta skiptið sem við vorum allar saman, þar sem Sigga okkar lést árið 2008. Við áttum yndislega daga. Þetta varð allavega síðasta „útilegan“ okkar vinkvenna, við lögðum undir okk- ur sólskála hússins þeirra Guð- rúnar og Halla. Þar var komið fyrir dýnum og við sváfum allar í kös. Yndislegt „trúnó“. Næsta kvöld bauð Halli okkur á tónleika með Eagles á efri hæð hússins. Nágrannarnir hafa örugglega hugsað þessum Íslendingum þegjandi þörfina. Minningar eru til þess að ylja sér við. Samt er svo erfitt á svona saknaðarstundu að kalla fram gleðina sem við upplifðum saman. Við eigum eftir að sakna elsku Guðrúnar, okkur finnst við hafa verið samferða alla ævi. Guðrún var mikil fjölskyldu- manneskja. Hún og Halli nutu mikils barna- og barnabarnaláns. Þau uppskáru eins og þau sáðu. Þess ber þeirra góða og fallega fjölskylda merki. Systkinum Guðrúnar, tengda- fólki og þeirra fjölskyldum send- um við okkar dýpstu samúð. Elsku Halli okkar, þinn missir er mikill. Þið áttuð svo einstakt samband, elskuríkt og fallegt. Ingibjörg, Júlli, Elísabet og fjölskyldur, þið áttuð svo góða mömmu og hún var svo stolt af ykkur. Haldið minningu hennar á lofti við hennar elskuðu barna- börn. Elsku vinkona. Við kveðjum þig með söknuði okkar kæra og þökkum fyrir allt. Nú er hjá okkur „Sound of silence“. Saknaðarkveðjur frá Æsk- unum. Ása, Hugrún og Lóa. Guðrún Jóna Júlíusdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.