Morgunblaðið - 06.04.2020, Side 24

Morgunblaðið - 06.04.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Öryggiskerfi 01:04 100% SAMSTARFSAÐILI EFTIRLITSFERÐIR Heimsókn öryggisvarða eftir lokun eykur vernd gegn bruna, innbrotum og skemmdarverkum og minnkar líkur á fjárhagstjóni. Öryggisverðir yfirfara fyrir nóttina og eru í beinu sambandi við stjórnstöð Securitas. Hringdu í síma 580 7000 eða farðu áwww.securitas.is EFTIRLITS- FERÐIR AUKA ÖRYGGIÐ 60 ára Anna Dóra er frá Þrándarlundi í Gnúpverjahreppi, Árn., en býr í Reykja- vík. Hún er sálfræð- ingur að mennt, með meistaragráðu frá Háskóla Íslands. Anna Dóra rekur eigin sálfræðistofu. Maki: Matthías Valdimarsson, f. 1957, fjármálastjóri hjá 115 Security. Börn: Steinþór Rafn, f. 1982, og Heiða Hlín, f. 1990. Barnabörn eru orðin tvö. Foreldrar: Þorbjörg Guðný Aradóttir, f. 1938, d. 2005, og Steinþór Ingvars- son, f. 1932, d. 1995, bændur í Þránd- arlundi. Anna Dóra Steinþórsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Festa þín gerir það að verkum að enginn reynir að andmæla þér. Farðu var- lega í undirritun skjala, lestu smáa letrið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert að undirbúa indælan og streitulausan dag. Sýndu þolinmæði, þú færist óðfluga nær markmiði þínu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér. Tafir eru óumflýjanlegar á vissu verk- efni. Þér verður boðið á stefnumót. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er tímaeyðsla að reyna að breyta öðrum. Regluleg hreyfing og útivist er það besta sem þú veist. Passaðu samt að ofreyna þig ekki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gættu þess að halda útgjöldunum innan skynsamlegra marka og bíddu held- ur með kaupin en að stofna til skulda. Kannaðu hvort þú getir aðstoðað einhvern. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er komið að því að þú reynir eitt- hvað sem þú hefur aldrei upplifað áður. Börnin eru framtíðin, þess vegna er gott að vanda sig í uppeldinu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú átt lausa stund aflögu máttu vita að þeir eru margir sem þurfa á aðstoð að halda. Einhver kemur í heimsókn og fyllir bæinn birtu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viðurkenndu fyrir þér hvað það er sem þú virkilega vilt. Þetta er þitt líf, það getur enginn lifað því fyrir þig. Til- tekt í geymslunni er næsta verkefni þitt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Haltu áfram með það sem skiptir þig máli. Lausnin er innan seilingar og kemur skemmtilega á óvart. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er eins og allt leiki í hönd- unum á þér og því skaltu nýta þér byrinn. Hafðu augu og eyru opin svo þú missir ekki af neinu. Fólk er að fylgjast með þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þótt gott sé að hafa reglurnar á hreinu verður þú líka að geta gripið til sér- stakra ráðstafana þegar óvæntir atburðir verða. Veldu það besta og láttu hitt lönd og leið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú finnur fyrir auknum kröfum frá fjölskyldunni í dag. Reyndu að sýna sam- starfsfólki þínu þolinmæði og gættu þess að segja ekkert í fljótfærni sem þú munt sjá eftir síðar. L óa Pind Aldísardóttir fæddist á Hlíðarvegi í Kópavogi 6. apríl 1970 og ólst upp í Kópavogi, Breiðholti, Brighton í Englandi og Hlíðunum. Lóa varð stúdent frá MH 1990, út- skrifaðist með BA-próf í íslensku 1993 og MA-próf í blaðamennsku frá Cardiff University 1998. Veturinn 1993-94 var hún í skiptinámi í málvís- indum við Université Paul Valéry í Frakklandi. Lóa hefur unnið ýmis störf frá 10 ára aldri; barnagæslu, fiskvinnslu, á Kópavogshæli, í bókabúð, ísbúð, við ræstingar, uppvask, á veitinga- stöðum og börum en eftir útskrift réð hún sig til kennslu á Blönduósi í einn vetur og árið 1995 hófst fjölmiðlafer- illinn þegar hún var ráðin blaðamað- ur á Tímanum. Síðan þá hefur hún eingöngu unnið við fjölmiðla; á Degi- Tímanum, Degi, fréttastofu Ríkis- útvarpsins, sem ritstjóri Uppeldis og ritstjóri Húsa og híbýla og á Stöð 2. Haustið 2005 var Lóa ráðin til fjöl- miðlasamsteypunnar 365 og stjórn- aði þar morgunþætti ásamt Hall- grími Thorsteinssyni á sólarhrings- fréttastöðinni NFS. Þegar NFS hætti útsendingum fluttist Lóa yfir á fréttastofu Stöðvar 2 og starfaði þar meira og minna til u.þ.b. 2011 þegar hún fór að einbeita sér meira að þáttagerð. Síðan þá hefur hún leik- stýrt, skrifað og haft umsjón með 12 heimildaþáttaröðum sem allar hafa verið sýndar á Stöð 2, auk þess að sinna öðrum verkefnum, m.a. hélt hún úti vikulegum fréttatengdum umræðuþáttum (Stóru málin, 2013- 2014) og var einn af umsjónar- mönnum fréttaskýringaþáttanna Bresta (2014-2015). Sjónvarpsþættirnir hafa flestir snúist um ýmiss konar samfélags- mál, m.a. um brottfall úr framhalds- skólum (Tossarnir, 2013), múslima á Íslandi (Múslimarnir okkar, 2015), unglinga af erlendum uppruna (Battlað í borginni, 2016), fólk með geðsjúkdóma (Bara geðveik, 2016), um Ísland tíu árum eftir hrun (Nýja Ísland, 2018), um sjálfsvíg (Viltu í al- vöru deyja?, 2019) en einnig hefur hún gert hina vinsælu þætti Hvar er best að búa? þar sem hún heimsækir íslenskar fjölskyldur víða um heim. Meðfram blaðamennskunni hefur Lóa m.a. þýtt tvær bækur, skrifað greinar, var meðhandritshöfundur að heimildamyndinni Rósku (2004) og gaf út skáldsöguna Sautjándinn (2007). Hún hefur í þrígang verið til- nefnd til Eddunnar og hlaut Blaða- mannaverðlaun fyrir bestu umfjöllun árið 2009. Árið 2019 hætti Lóa á Stöð 2 og stofnaði sitt eigið framleiðslu- fyrirtæki, Lóa Production ehf., sem hefur nú þegar framleitt sína fyrstu þáttaröð, Hvar er best að búa?, sem var sýnd á Stöð 2 í vetur. Lóa hefur ástríðufullan áhuga á Spáni, spænsku, sól, matarboðum, dansi, ferðalögum og er nýlega farin að stunda skíði af kappi. „Ég er mjög seinþroska íþróttakona, var eigin- lega antísportisti fram að ca fertugu en það ár hljóp ég 10 km í fyrsta skipti og seinna hálft maraþon. Í byrjun árs 2014 hafði ég aldrei stigið á götuhjól en sama ár tók ég þátt í Wow Cyclothon ásamt vinnufélögum á Stöð 2, og núna síðustu þrjú árin hef ég mjakast úr plógnum og er far- in að renna mér niður sæmilega brattar brekkur og þramma á fjalla- skíðum.“ Síðla árs 2017 fékk Lóa furðuleg- ustu beiðni ævinnar þegar hún var beðin að taka þátt í dansþáttunum Allir geta dansað á Stöð 2. „Ég held ég hafi hugsað mig um í ca 3 sek- úndur og sagði svo bara já! Eins mik- ið og ég elska rútínu – mér finnst ég svo dásamlega pródúktíf – þá elska ég jafn mikið að prófa eitthvað nýtt, skora á mig. En ég vissi náttúrlega ekki hvað ég var að kalla yfir mig. Þetta var svínerfitt, bæði líkamlega og ekki síður andlega, en eitt alls- herjar dúndurævintýri sem ég sé ekki eftir í eina sekúndu að hafa tekið þátt í. Annars er ég voða mikið að nota frítímann í að gera alls konar sem ég er ekki góð í, í þeirri veiku von að taka einhverjum smá framförum. Við Jónas erum á dansnámskeiði, höfum líka spreytt okkur á tangó, svo erum við stöðugt að reyna að glamra eitt- hvað á gítar. Og loks er það skíða- mennskan. En þar er hann með ca 50 Lóa Pind Aldísardóttir, fréttamaður og þáttagerðarkona – 50 ára Hjónaleysin Lóu líður best í sól en Jónasi í kulda og snjó. Hér til vinstri eru þau í hennar náttúrulega umhverfi í Kosta Ríka en hægra megin eru þau stödd við hans kjörhitastig á Snæfellsjökli. Dansinn var dúndurævintýri Allir geta dansað Fermingardagur Núma, 15.4. 2018, og bein útsending hjá Lóu í danskeppninni. Á myndinni eru synirnir, stjúpdóttir, sambýlismaður, foreldrar og bróðir Lóu. Á myndina vantar Önnu, systur Lóu. 30 ára Gréta María er frá Húnsstöðum í Húnavatnshreppi, A- Hún., en býr í Reykja- vík. Hún er hjúkrunar- fræðingur að mennt og vinnur á bráða- móttökunni og gjör- gæslunni. Maki: Þorri Snæbjörnsson, f. 1987, sál- fræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. Börn: Kristján Snær, f. 2016, og Snæbjört Ylfa, f. 2019. Foreldrar: Elín Rósa Bjarnadóttir, f. 1964, vinnur í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi, bús. þar, og Björn Þór Kristjánsson, f. 1963, eigandi veitingastaðarins B&S á Blönduósi, búsettur á Húnsstöðum. Gréta María Björnsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Snæbjört Ylfa Þorradóttir fæddist 4. október 2019 kl. 5.34 á Landspítalanum. Hún vó 3.620 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Gréta María Björnsdóttir og Þorri Snæbjörnsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.