Morgunblaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 27
fyrir 30. júní, þegar samningar
margra leikmanna renna út og
samningar styrktaraðila ýmist
renna út eða taka gildi. Hvað varðar
flókna skipulagningu mótahalds
væri þetta kannski hagnýtasti kost-
urinn. Hvað gerist eiginlega ef
tímabilið er ekki búið 30. júní? Fá
leikmenn tímabundinn framlengdan
samning til að halda áfram að spila?
Hvað ef þeir neita að skrifa undir?
Ekki er hægt að svipta mann því
frelsi að skipta um atvinnurekanda.
Það virðist bæði skynsamlegt og
sanngjarnt að tímabilið sé búið 30.
júní.
Leika fyrir luktum dyrum
Að lokum horfa margir á þann
kost að leika fyrir luktum dyrum,
klára tímabilið eins fljótt og auðið
er og gera það án áhorfenda. Ef-
laust eru það forráðamenn sjón-
varpsstöðvanna, sem hafa greitt
fúlgur fjár til að sýna leikina, sem
renna hýru auga til þessa kosts.
Þessi kostur virðist þó örvæntingar-
fullur og gengur þvert á fyrirmæli
heilbrigðisyfirvalda á þessum erfiðu
tímum.
Það er þó ekkert svo ólíklegt að
fyrstu leikirnir, þegar hægt verður
að fara aftur af stað, verði leiknir
fyrir luktum dyrum. Samkomu- og
útgöngubanni verður víðast hvar
sennilega aflétt í áföngum og þá
gæti verið stór munur á knatt-
spyrnuleik með aðkomu þúsund
manns eða fimmtíu þúsund!
Hver sem niðurstaðan verður
þarf að taka ákvörðun. Þúsundir
manna starfa í kringum úrvalsdeild-
ina og lífsviðurværi þeirra er undir.
Þá skilar úrvalsdeildin þremur billj-
ónum punda í ríkissjóðinn á hverju
ári. Það vilja því margir hefja
keppni á ný, um leið og aðstæður
leyfa.
AFP
Óvissa Liverpool bíður enn færis á að verða enskur meistari í knattspyrnu.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020
Körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant
hefur verið tekin inn í heiðurshöll
bandarísku körfuknattleiksdeild-
arinnar fyrir glæsilegan feril sinn.
Bryant varð NBA-meistari fimm sinn-
um en hann lést í þyrluslysi fyrr á
árinu, 41 árs gamall. Bryant er af
mörgum talinn einn besti körfubolta-
maður allra tíma. Hann er fjórði stiga-
hæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá
upphafi með 33.643 stig. Lék hann all-
an atvinnumannsferilinn með Los Ang-
eles Lakers, alls 20 ár,
Stephen Kenny hefur tekið við af
Mick McCarthy sem landsliðsþjálfari
Íra í fótbolta. Samningur McCarthys
gildir til 31. júlí og átti hann að stýra Ír-
um á EM í sumar, hefði þjóðin komist
þangað. Vegna ástandsins í heiminum
hafa írska knattspyrnusambandið og
McCarthy hins vegar komist að niður-
stöðu um að samningnum verði sagt
upp. Írar eiga að mæta Slóvakíu í
undanúrslitum umspils um sæti á EM
og Norður-Írum eða Bosníu í úrslitum.
Máté Dalmay mun áfram þjálfa
körfuknattleikslið Hamars en hann
hefur framlengt samning sinn við fé-
lagið um eitt ár. Næsta tímabil verður
hans þriðja með liðið en Hamar leikur í
fyrstu deildinni. Lenti Hamar í 2. sæti
deildarinnar á yfirstandandi leiktíð,
tveimur stigum á eftir Hetti, sem fór
upp um deild þar sem tímabilið var
blásið af.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari
Englendinga í fótbolta, hefur sam-
þykkt 30 prósenta launalækkun. Mikil
pressa hefur verið á leikmönnum og
þjálfurum á Englandi að taka á sig
launalækkun vegna ástandsins sem nú
ríkir. Southgate er ekki fyrsti lands-
liðsþjálfari Englands sem samþykkir
launalækkun því Eddie Jones, lands-
liðsþjálfari rúgbíliðs Englands, tók á
sig 25 prósenta launalækkun á dög-
unum.
Pétur Már Sigurðsson verður áfram
þjálfari Vestra í körfuknattleik karla og
mun stýra liðinu á næstu leiktíð. Pétur
kom til liðs við Vestra fyrir nýliðna leik-
tíð og hafði gengi liðsins verið ágætt.
Vestri var búinn að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni um sæti í úrvalsdeild
áður en mótinu var aflýst vegna kór-
ónuveirufaraldursins. Pétur er reyndur
þjálfari en hann hefur meðal annars
þjálfað lið á borð við Skallagrím og
Fjölni á ferli sínum. Hann stýrði
kvennaliði Stjörnunnar í úrvalsdeild
áður en hann tók við Vestra.
Willian, sóknarmaður enska knatt-
spyrnufélagsins
Chelsea, mun yfir-
gefa félagið þegar
samningur hans
rennur út í sumar.
Hann kom til fé-
lagsins frá rúss-
neska liðinu
Anzi Mak-
hachkala árið
2013 en
Chelsea þurfti að
borga 30 milljónir
punda fyrir Brass-
ann. Chelsea var
reiðubúið að semja
við Willian til
tveggja ára en Bras-
ilíumaðurinn vildi
þriggja ára samning
og því fór sem fór.
Willian var enskur
meistari með Chelsea
árin 2015 og 2017.
Eitt
ogannað
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hlutirnir hafa gerst ansi hratt hjá
knattspyrnumanninum Ara Leifs-
syni. Ari, sem er 21 árs gamall, lék
fyrsta A-landsleik sinn í janúar í 1:0-
sigri Íslands gegn El Salvador í vin-
áttulandsleik í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Ari var í byrjunarliði Ís-
lands og lék allan leikinn í hjarta
varnarinnar, en hann er uppalinn hjá
Fylki í Árbænum.
Í byrjun mars keypti svo norska
úrvalsdeildarfélagið Strømsgodset
varnarmanninn unga af Fylki. Ari
skrifaði undir þriggja ára samning í
Noregi en nokkrum dögum eftir að
hann kom út til Noregs var öllu
skellt í lás í landinu vegna kórónu-
veirunnar og samkomubann tók
gildi.
Mikið breyst á stuttum tíma
„Ég kom til Noregs í byrjun mars
og náði tveimur góðum æfingavikum
með liðinu áður en öllu var frestað
vegna kórónuveirunnar,“ sagði Ari í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Satt best að segja átti ég alls ekki
von á því að ég myndi fara í atvinnu-
mennsku á þessum tímapunkti. Ég
ætlaði mér alltaf að spila með Fylki í
sumar, sýna mig og sanna, og svo
bara skoða mín mál að tímabili loknu.
Hlutirnir gerðust hins vegar mjög
hratt eftir að ég frétti af áhuga
Strømsgodset og fyrir það er ég
þakklátur. Ég var á öðru ári í við-
skiptafræði í Háskólanum í Reykja-
vík en þurfti allt í einu að kveðja allt
og lífið hefur því breyst ansi mikið á
stuttum tíma.“
„Ég náði einum æfingaleik með
liðinu áður en samkomubannið tók
gildi, en það var gegn Vålerenga. Ég
kom inn á sem varamaður í hálfleik
og þá fékk maður aðeins smjörþefinn
af þessu. Það var mjög mikilvægt
finnst mér að hafa náð þessum mín-
útum og það var gaman að mæta
öðrum Íslendingi, Matthíasi Vil-
hjálmssyni, leikmanni Vålerenga, í
öðru landi. Kórónuveiran var að
komast á flug í Evrópu á þessum
tíma en maður átti ekki alveg von á
því að þetta myndi gerast svona
hrikalega hratt. Til stóð að deildin
myndi hefjast í gær (á laugardaginn)
en eins og staðan er í dag er algjör-
lega óráðið hvenær við byrjum að
spila.“
Í hálfgerðri einangrun
Það er óhætt að segja að fyrstu
vikur varnarmannsins í atvinnu-
mennskunni hafi verið afar krefjandi.
Stökkið frá litla Íslandi í atvinnu-
mennskuna er oft stórt en vegna kór-
ónuveirunnar hefur Ari sem dæmi
lítið náð að kynnast liðsfélögum enda
í hálfgerðri einangrun í Drammen í
austurhluta Noregs, en í borginni
búa rúmlega 100.000 manns.
„Ég hef spilað með Fylki alla mína
tíð og búið heima hjá mömmu og
pabba í ákveðnum þægindaramma.
Það er alveg nógu stórt stökk að fara
út í atvinnumennsku en kór-
ónuveiran hefur gert allt erfiðara.
Ef allt væri eðlilegt væri maður bara
að vakna snemma á morgnana til
þess að fara á æfingu. Maður væri
svo bara á æfingasvæðinu fram eftir
degi og alltaf með strákunum. Í dag
þarf maður að æfa sjálfur og ég sef
sjálfur aðeins út á morgnana til þess
eins að stytta daginn. Það getur ver-
ið erfitt að koma sér inn í hlutina
þegar maður er einn í nýju landi og
það hefði því hjálpað mér sem dæmi
að hafa strákana í liðinu í kringum
mig þessar fyrstu vikur. Maður fór
hins vegar í hálfgerða einangrun
fljótlega eftir að maður kom út og
þetta hefur þess vegna verið erfitt.
Kærastan mín var hins vegar með
mér hérna úti þegar samkomub-
annið skall fyrst á og það hjálpaði
mikið. Hún er hins vegar farin heim
núna og ég skal alveg viðurkenna
það að það er einmanalegt að vera
einn á þessum tímum.“
Góður stígandi undanfarin ár
Hlutirnir hafa gerst ansi hratt hjá
þessum öfluga varnarmanni á árinu
2020, en sumarið 2017 var hann
fastamaður í liði Fylkis sem vann 1.
deildina og tryggði sér sæti í efstu
deild eftir árs fjarveru. Þá var hann
fyrirliði Fylkis sem varð bikarmeist-
ari í 2. flokki en Fylkismenn töpuðu
sjálfum bikarúrslitaleiknum gegn
Víkingi Reykjavík. Árbæingum var
hins vegar dæmdur sigur í keppninni
þar sem Víkingar notuðu ólöglegan
leikmann í leiknum.
„Árið 2017 var í raun fyrsta alvöru
ár mitt í meistaraflokki. Ég spilaði
bikarúrslitaleik í 2. flokki í septem-
ber og fór svo upp um deild með
Fylki líka. Ef þú hefðir sagt mér þá
að ég væri að fara spila A-landsleik á
árinu 2020 hefði ég eflaust ekki trúað
þér. Það hefur verið góður stígandi í
þessu hjá mér á undanförnum árum
og fyrsta markmið mitt var alltaf að
ná öllum leikjum með Fylki. Þegar
allt kemur til alls þarf maður að
standa sig með þeim liðum sem mað-
ur spilar með og ég hef reynt að gera
það. Ég fékk fyrsta tækifæri mitt
með U21 árs landsliðinu árið 2017 og
það var mjög góður undirbúningur
fyrir fyrsta verkefni mitt með A-
landsliðinu.“
„Ég var á leiðinni í próf í háskól-
anum þegar ég fékk að vita að ég
væri á leið í verkefni með A-lands-
liðinu í janúar. Mér gekk allt í lagi í
prófinu, ótrúlegt en satt, en ég átti
mjög erfitt með að einbeita mér
þarna og var rokinn út eftir fjörutíu
mínútur sökum einbeitingarskorts.
Umhverfið hjá KSÍ er mjög faglegt
og flott og það er í raun allt gert til
þess að manni líði vel. Það var svo
bara algjör draumur að spila fyrsta
landsleikinn í janúar, og að fá að gera
það með strákum eins og Birki Má
Sævarssyni, Kára Árnasyni og
Hannesi Þór Halldórssyni er fyrst og
fremst forréttindi,“ bætti Ari við.
Rauk úr prófi eftir landsliðsval
Ari Leifsson gekk til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Strømsgodset í mars
Kórónuveiran hefur ekki hjálpað miðverðinum að aðlagast lífinu í Drammen
Ljósmynd/Strømsgodset
Noregur Ari Leifsson skrifaði undir þriggja ára saming við Strømsgodset.
Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu verður að vera lokið í síð-
asta lagi 3. ágúst að sögn Aleksand-
ers Ceferins, forseta UEFA, en
öllum leikjum keppninnar var frest-
að ótímabundið vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar.
„Þetta er fordæmalaust tímabil
og við reynum að vera sveigjan-
legir með tímasetningar, en
Meistaradeildin og Evrópudeildin
verða að klárast í síðasta lagi 3.
ágúst,“ sagði Slóveninn Ceferin í
viðtali við þýsku sjónvarpsstöðina
ZDF í gær.
Evrópukeppnum
sett tímamörk
AFP
UEFA Aleksander Ceferin setur
tímamörk fyrir Evrópukeppnir.
Willum Þór Willumsson og sam-
herjar hans í BATE Borisov höfðu
betur gegn Rukh Brest í 3. umferð í
hvítrússnesku úrvalsdeildinni í fót-
bolta á laugardag, 1:0. Sigurinn er
sá fyrsti hjá BATE á leiktíðinni en
liðið tapaði tveimur fyrstu leikjum
sínum. Willum var í byrjunarliðinu
og lék fyrstu 85 mínúturnar og fékk
gult spjald á 59. mínútu. Deildin í
Hvíta-Rússlandi er sú eina í Evrópu
sem ekki er í fríi vegna kórónuveir-
unnar og er enn leikið með áhorf-
endum. BATE er í 13. sæti eftir
þrjár umferðir með þrjú stig.
Willum fagnaði
fyrsta sigrinum
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Willum Þór Willumsson gat
loksins fagnað sigri á tímabilinu.