Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 28

Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Eyja að skoða bréf sem pabbinn hefur verið að lesa og skrifuð voru þegar spænska veikin var í gangi, en bréfin hafði pabbinn fundið í stólnum. Rotturnar (2018) Hættulegur smitsjúkdómur er leiðarstefið í Rottunum eftir Ragn- heiði Eyjólfsdóttur sem tilnefnd var til Barna- og unglingabókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs í fyrra. Hér er á ferðinni æsispennandi vísinda- skáldsaga þar sem metnaðarfullt vís- indafólk á sviði líftækni er tilbúið að fórna öllu siðferði og virðingu fyrir manneskjunni fyrir háleit markmið sín. Titill bókarinnar vísar til hóps unglinga sem numinn er á brott og læstur inni til þess að vísindafólkið geti gert á þeim tilraunir sem tengjast svartadauða, einum skæðasta heims- faraldri sögunnar sem náði hámarki í Evrópu um miðja 14. öld. Koparborgin (2015) Plágan gegnir einnig veigamiklu hlutverki í fantasíusögunni Kopar- borgin eftir Ragnhildi Hólmgeirs- dóttur sem tilnefnd var til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016. Sögusvið bókarinnar er órætt, en ýmislegt bendir til þess að um sé að ræða borg í suðurhluta Evrópu á endurreisn- artímanum. Í lóninu utan við borgina búa fiskimenn í bátum og kofum sem reistir eru á staurum. Þegar plágan berst til fiskiþorpsins í lóninu grípa borgarbúar til þess örþrifaráðs að brenna fiskiþorpið og þá íbúa með sem plágan hefur ekki lagt að velli. Pietro kemst undan við illan leik, forð- ar sér á sundi. Hann er nær dauða en lífi þegar norn birtist honum í draumi og læknar hann um leið og hún velur hann til verkefnis sem er ógnvæn- legra en drepsóttin. Þessi æsispenn- andi skáldsaga er einstaklega vel skrifuð, þétt og viðburðarík auk þess sem hún er full af spennandi göldrum. Í liðinni viku var upplýst að Villu- eyjar, sem út kom í fyrra og er sjálf- stætt framhald af Koparborginni, hefði verið tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Sú bók, sem undirrituð hlakkar til að lesa fljótlega, fjallar um munaðarlausu systkinin Arildu og Maurice, sem neydd eru í uppgjör við fortíðina. Eyland (2016) Á sama tíma og landamærum hefur verið lokað víðs vegar um heim og að- eins eru farnar örfáar flugferðir með farþega til og frá Íslandi er tilvalið að rifja upp frábæra frumraun Sigríðar Hagalín Björnsdóttur, vísindaskáld- söguna Eyland. Í bókinni leikur höf- undur sér með þá hugmynd hvað gæti gerst ef Ísland myndi einangrast al- farið frá umheiminum. Hvers konar samfélag myndi bíða okkar þegar lyf og aðrar nauðsynjar klárast? Og til hvaða aðgerða gætu stjórnvöld gripið þegar ljóst er að matmælaframleiðsla stendur ekki undir þeim 350.000 sem byggja landið? Þetta er hrollvekjandi lesning sem minnir lesendur á að á tímum þrenginga og þegar frum- þörfum fólks er ógnað, hvort heldur vegna matvælaskorts eða veiru, er varhugavert að láta lýðskrum og þjóð- rembing ráða för. Ef kórónuveiru- faraldurinn sem nú geisar kennir okk- ur eitthvað þá er það hversu heimur- inn er í raun tengdur. Veiran virðir engin landamæri og því verða lei- ðtogar heims og heilbrigðisyfirvöld að vinna vel saman að lausnum. Palli var einn í heiminum (1942) Að lokum verður að minnast á klassísku myndabókina Palli var einn í heiminum eftir Jens Sigsgaard frá árinu 1942 sem Arne Ungermann myndlýsti og út kom í íslenskri þýð- ingu Vilbergs Júlíussonar 1948. Vafa- lítið tengja margir við titilpersónuna ungu um þessar mundir þegar fáir eru á ferli og markvisst hefur verið dregið úr samneyti við aðra. Fyrstu viðbrögð Palla þegar hann uppgötvar að hann er einn í heiminum eru að gleðjast yfir því að geta gert allt það sem hugurinn girnist án þess að spyrja leyfis, hvort heldur það snýr að því að borða eins mikið súkkulaði og hægt er úti í búð eða gerast sporvagnsstjóri. Fljótlega kemst Palli hins vegar að því að þótt hann geti gert allt sem hann langar til þá er hreinlega ekkert gaman að vera alltaf einn – því maður er manns gam- an eins og sagt er. Gott er að ylja sér við þá speki þar til við getum aftur far- ið að umgangast vini okkar og ætt- ingja áhyggjulaus að kófi loknu. Maður er manns gaman Teikning/Arne Ungermann Einmana Í myndabókinni Palli var einn í heiminum kemst titilpersónan að því að maður er manns gaman og lítið gaman að vera alltaf einn. AF BÓKUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Íkófinu sem nú ríkir í heiminum átímum kórónuveirunnar þarsem sífellt fleiri leita í sóttkví – ýmist að beiðni yfirvalda eða sjálf- viljug – hafa listirnar aldrei verið mikilvægari. Þær stytta okkur ekki aðeins stundir á þessum erfiðu tím- um einverunnar og veita okkur til dæmis færi á að hitta fjölbreytt per- sónugallerí hvort heldur er á blaði eða skjá. Því þegar best lætur opna listirnar augu okkur fyrir ýmsum áskorunum heimsins og veita okkur kærkomið tækifæri til að skoða hvert leiðin gæti legið ef samkennd og manngæska fá ekki að ráða för. Sjö dagar (2017) Öll höfum við þörf fyrir að spegla okkur í aðstæðum annarra. Því gæti verið kærkomið að lesa skáldsöguna Sjö dagar eftir Francescu Hornak sem nýverið kom út í íslenskri þýð- ingu Valgerðar Bjarnadóttur. Í bók- inni ákveður Birch-fjölskyldan að eyða jólahátíðinni saman í sóttkví á sveitasetri sínu eftir að elsta dóttirin, Olivia, snýr heim frá Afríku þar sem hún hefur sem læknir verið að sinna sjúklingum með bráðsmitandi sjúk- dóm. Allar persónur bókarinnar eiga sér leyndarmál sem leysast úr læð- ingi eftir því sem á vikuna líður. Garðurinn (2008) Spænska veikin sem gekk yfir heiminn 1918 til 1919 með miklu mannfalli gegnir lykilhlutverki í spennusögunni Garðinum eftir Gerði Kristnýju. Aðalpersóna bókarinnar er unglingsstúlkan Eyja sem er ný- flutt á Ljósvallagötuna, á þriðju hæð í húsi sem stendur gegnt Hólavalla- garði, gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík. Þegar pabbi Eyju kaupir gamlan hægindastól á fornsölu fer undarleg atburðarás af stað sem virðist tengjast stólnum. Í ljós kemur að stóllinn er frá tíma spænsku veikinnar, en pabbi Eyju hefur sérstakan áhuga á því tímabili í íslenskri sögu og ætlar sér að skrifa um það bók. Eftir að hafa setið mikið í stólnum veikist pabbinn og þá fer Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is TENGISTYKKIN DVERGARNIR R Skoðið nýju heimas íðuna islands hus.is FÁST Í BYGGINGA-VÖRUVERSLUNUM Sérsmíðuð tengistykki á dvergana léttir vinnuna – margar tegundir Ríkisstjórn Þýskalands álítur menninguna svo mikilvæga að hún veitir milljarðahjálp til að tryggja menningarstarfsemina í landinu. „Menning er ekki lúxus sem aðeins hlýtur stuðning þegar vel árar. Þvert á móti, því hún er ómissandi. Við finnum hversu mikið við sökn- um hennar á þeirri stundu sem hennar nýtur ekki lengur við. Í sköpun listamanna felst tjáning á mennskunni og við höfum aldrei haft meiri þörf fyrir slíkt en núna. Þess vegna veitum við stóran hjálparpakka,“ sagði Monika Grütters, menningarmálaráðherra Þýskalands, við þýsku útvarpsstöð- ina Deutschlandfunk. Í frétt Politiken um málið kemur fram að í Þýskalandi sé veltan í menningargeiranum meiri en í orkubransanum. Samkvæmt frétt Artnet nemur hjálparpakki þýsku ríkisstjórnarinnar til menningar þar í landi 50 milljörðum evra, sem samsvarar 7.798 milljörðum ís- lenskra króna. Pakkinn er meðal annars ætlaður litlum fyrirtækjum og einyrkjum sem starfa við menn- ingu, sköpun og miðlun. Sem dæmi getur listafólk sótt um styrk frá ríkinu til að standa straum af húsa- leigu á verkstæðum sínum, vinnu- stofum eða æfingarýmum næstu þrjá mánuði. Einnig geta tónlistar- hópar, sjálfstætt rekin kvikmynda- hús og bóksalar sótt um styrki sem ekki þarf að endurgreiða til ríkis- ins. Dugi slíkur styrkur ekki til geta fyrirtæki og einyrkjar sótt um lán sem ríkið gengst í ábyrgð fyrir. „Við vitum að ástandið er erfitt og skiljum örvæntinguna. Stór hluti þeirra sem starfa við listir er sjálf- stætt starfandi og á nú í erfið- leikum með að sjá fyrir sér,“ skrifar Monika Grütters í frétta- tilkynningu sem þýska ríkisstjórnin hefur sent frá sér um málið. „Menning ekki lúxus“  Þýska ríkisstjórnin veitir menning- unni 50 milljarða evra hjálparpakka AFP Hjálparpakki Monika Grütters, menningarmálaráðherra Þjóðverja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.