Morgunblaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 32
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
VATNSHELDIR
ÚTIVISTARSKÓR
Titlis Jab
Tilb ð ð
Netverslun www.skornir.is
Le Florians High
24.995
Stærðir 36-47
Le Florians four seasons
19.995
Stærðir 36-47
Cosmic Run
22.995
Stærðir 36-47
o sver
Í viðburði sem verður streynt á vef Þjóðminjasafns Ís-
lands í dag kl. 11 munu sérfræðingar safnsins, þau Joe
Walser og Helga Vollertsen, fjalla um og gefa áhorf-
endum innsýn í eitthvað af þeim aragrúa upplýsinga
sem beinagrindur geyma um einstaklinga, sjúkdóma og
fleira áhugavert. Margar beinagrindur af Íslendingum
fyrri alda eru í safninu og verður ein þeirra rannsökuð
og spurningum varpað fram samhliða. Þá geta áhorf-
endur líka sent inn spurninar og í annarri útsendingu á
miðvikudaginn kemur verður þeim svarað.
Fjalla um beinagrindur og upplýs-
ingar sem hægt er að lesa úr þeim
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnumaðurinn Ari Leifsson skrifaði undir sinn
fyrsta atvinnumannssamning í mars á þessu ári þegar
hann gekk til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið
Strømsgodset. Stuttu eftir að varnarmaðurinn öflugi,
sem er uppalinn hjá Fylki í Árbænum, skrifaði undir í
Noregi skall á samkomubann í landinu vegna kórónu-
veirunnar. Fyrstu vikur Ara í atvinnumennskunni hafa
því verið afar krefjandi en miðvörðurinn lék fyrsta A-
landsleik sinn í janúar á þessu ári gegn El Salvador í
vináttulandsleik í Kaliforníu í Bandaríkjunum. »27
Sefur út í Noregi til þess að stytta
daginn í hálfgerðri einangrun
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kórónuveiran hefur þrátt fyrir allt
leitt ýmislegt gott af sér eins og
samkennd og samstöðu. Þannig
fengu Grundarheimilin 24 spjald-
tölvur að gjöf fyrir helgi og eru
þær þegar komnar í notkun hjá
íbúum, sem nota þær til að vera í
samskiptum við ættingja.
Gísli Páll Pálsson, forstjóri
Grundarheimilanna, þakkar skjót
viðbrögð við
ákalli vegna
heimsókna-
bannsins. „Við
leituðum til
fyrirtækja og
líknarfélaga
og viðbrögðin
létu ekki á sér
standa,“ segir
hann um nýju
spjaldtölv-
urnar, sem eru nú komnar í notkun
á Ási í Hvergarði, Mörk og Grund.
Lions á Íslandi gaf átta tölvur með
heyrnartólum, Lionsklúbburinn í
Hveragerði gaf fjórar slíkar rétt
eins og Elko og Vodafone gaf
Grund átta spjaldtölvur. „Þetta eru
ótrúlega flottar gjafir og þær eru
mikið notaðar í samskiptum á milli
heimilismanna og aðstandenda
þeirra,“ segir Gísli. Hann bætir við
að Gunnar Hólmsteinn Guðmunds-
son, smiður á Grund, hafi í snatri
smíðað statíf fyrir tölvurnar til að
auðvelda heimilisfólkinu notkunina.
Æðruleysi heimilisfólks
Gísli segir að ákvörðun um heim-
sóknabann hafi verið tekin í sam-
ráði við sóttvarnalækni. „Bannið
hefur gengið vonum framar og
langflestir sýna því skilning en allt-
af eru einhverjir ósáttir. Ég skil
það líka fullkomlega og hef samúð
með því sjónarmiði. En eins og ég
hef oft sagt áður erum við með
þessu að taka meiri hagsmuni fram
yfir minni.“
Heimsóknabannið hefur eðlilega
sett strik í reikninginn, en á
Grundarheimilunum er reynt að
stytta íbúum stundir með ýmsum
hætti. Gísli segir að þjónustan og
starfsemin sé eðlilega skert vegna
veirunnar. Til dæmis þurfi að tak-
marka iðjuþjálfun vegna nálægðar
en iðjuþjálfarnir fari þess í stað um
og geri eitthvað með íbúunum á
hverju heimili í staðinn. Starfsfólk
á Grund sé með leik í gangi þar
sem gátur eru botnaðar og í vik-
unni verði páskaleikur í staðinn
fyrir árlegt páskabingó.
„Heimilisfólkið tekur heimsókna-
banninu af meira æðruleysi en ég
átti von á og jafnvel á köflum af
meira æðruleysi en þeir sem eru
fyrir utan,“ segir Gísli. Hann segir
að því miður átti sig ekki allir á því
hvað sé að gerast og skilji ekki
veikinda vegna af hverju þeir fái
ekki heimsóknir. Hins vegar séu
íbúarnir lífsreynt fólk, sem hafi séð
meira, upplifað meira og gengið í
gegnum meira en flestir aðrir. „Ég
er ungur maður og hef hvorki upp-
lifað hörmungar né stórvægileg
vandræði, en þetta fólk er ýmsu
vant.“
Gísli áréttar að enginn taki stöð-
unni vel en fólk sætti sig við þetta
tímabundna ástand því öll él birti
upp um síðir. „Ég finn virkilega til
með fólkinu, bæði heimilisfólkinu
og aðstandendum þess, en ég er
þeirrar trúar að við séum að gera
rétt.“
Heimilisfólkið skiptist á um að
nota spjaldtölvurnar með aðstoð
starfsfólks. „Nú geta mun fleiri en
áður átt myndsímtal við ættingja
og við erum sérstaklega þakklát
fyrir þessar gjafir,“ segir Gísli, sem
ásamt eiginkonunni sinnir þvotta-
akstri fyrir heimilin hálfan daginn í
þessum fordæmalausu aðstæðum.
Tölvur stytta öldruð-
um íbúum stundirnar
Ljósmyndir/Katla Kristvinsdóttir
Myndsímtal Valborg Sigurðardóttir talar við ættingja í nýrri spjaldtölvu.
Grundarheimilin
fengu 24 spjaldtölvur
að gjöf og mynd-
símtöl leysa vanda
Statíf Gunnar smiður er með ráð
undir rifi hverju og bjó til standa.