Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE sófi 3187
L 204 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,-
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur víkur í pistli á mbl.is að
furðulegri framgöngu fréttamanns
Rúv. sem virtist ekki átta sig á því í
samtali við forstjóra Icelandair
Group að marg-
ítrekaðar spurn-
ingar um launa-
hækkanir ættu ekki
við í því ástandi sem
nú ríkir.
Sigurður Márbendir á að þó
að blaðamenn þurfi að spyrja
ágengra spurninga þurfi þeir einn-
ig að vera í tengslum við raunveru-
leikann og hann veltir því fyrir sér
hvort í þessu „birtist lífsskoðun
ríkisstarfsmanna“.
Og hann bætir við: „Fleiri ámótadæmi má sjá hjá ríkisfrétta-
stöðinni, yfirleitt þegar fulltrúar
fyrirtækja og atvinnulífs mæta til
svara er þeim stillt á sakamanna-
bekk á meðan verkalýðsforingjar,
sem hafa fyrir löngu tapað jarð-
sambandi, flytja furðulegar einræð-
ur. Samsetning viðmælenda í um-
ræðu- og spjallþáttum
Ríkissjónvarpsins endurvarpar ein-
hliða heimssýn, það er svo augljóst
að það tekur því varla að ræða
það.“
Ríkisútvarpinu ber umfram allaaðra miðla skylda til að gæta
jafnræðis og láta skoðanir starfs-
manna sinna ekki lita fréttir og um-
ræður um of.
Þetta er ekki aðeins hefðbundinvinnuregla vandaðra fjölmiðla
heldur beinlínis lagaskylda í tilviki
Rúv. sem þó gengur mun verr en
öðrum að gæta jafnræðis.
Hvernig stendur á því – og hversvegna kemst þessi ríkis-
stofnun upp með þetta háttarlag?
Sigurður Már
Jónsson
Hvers vegna fylgir
Rúv. ekki lögum?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ferðamálastofa hefur upp á síðkastið fengið tíu
beiðnir um niðurfellingu rekstrarleyfis ferðaskrif-
stofa. Samkvæmt upplýsingum frá Helenu Þ. Karls-
dóttur, forstöðumanni stjórnsýslu- og umhverfis-
sviðs Ferðamálastofu, hefur stofnunin ekki innkallað
nein leyfi vegna kórónuveirufaraldursins.
Helena segir í svari við fyrirspurn blaðsins að
þrjár af þeim tíu beiðnum sem borist hafi um nið-
urfellingu séu bein afleiðing kórónuveiru-
faraldursins.
„Allt eru þetta aðilar með litla sem enga starfsemi.
Þrír af þessum aðilum eru ekki að hætta rekstri
heldur einungis draga saman starfsemi sína og
hætta að selja pakkaferðir. Þeir þurfa því að sækja
um annars konar leyfi,“ segir Helena ennfremur.
Hún upplýsir jafnframt að um síðustu mánaðamót
hafi runnið út frestur til að skila inn gögnum vegna
árlegs endurmats á fjárhæð trygginga vegna sölu á
pakkaferðum.
„Á hverju ári í tengslum við þessi árlegu skil ber-
ast alltaf allnokkrar beiðnir um niðurfellingar,“ segir
Helena. hdm@mbl.is
Tíu hafa skilað inn leyfunum
Áhrifa kórónuveirunnar gætir í ferðabransanum
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Ferðaskrifstofur hafa þurft að
draga saman seglin vegna kórónuveirunnar.
Stóri plokkdagurinn svonefndi var
haldinn á laugardag þar sem íbúar
landsins voru hvattir til þess að fara
út og tína rusl. Viðtökur voru með
eindæmum góðar samkvæmt frétta-
tilkynningu frá ráðgjafar- og al-
mannatengslaskrifstofunni Meðbyr.
Er sagt að aldrei hafi þátttaka al-
mennings verið eins áberandi og að
mörg tonn af rusli hafi verið fjar-
lægð úr náttúrunni. Að þessu sinni
var dagurinn tileinkaður baráttu og
dugnaði starfsfólks heilbrigðisstofn-
ana landsins.
Forsetinn lét sig ekki vanta
Guðni Th. Jóhannesson forseti og
Elisa Reid forsetafrú settu daginn
ásamt Guðmundi Inga Guðbrands-
syni umhverfisráðherra á lóð Land-
spítalans og fóru með hvatningarorð
til félaga sinna í plokkinu. Eru þau
sögð hafa tekið til óspilltra málanna
og plokkað ásamt hópi fólks. Í setn-
ingarhvatningu sinni sagði umhverf-
isráðherra að sér þætti vænt um
framlag plokkara á Íslandi og þeir
væru öðrum hvatning til góðra
verka, náttúrunni til heilla.
Á Facebook-síðunni Plokk á Ís-
landi setti fólk inn myndir af sér við
plokkiðjuna og mátti víða sjá unga
sem aldna sinna umhverfishreinsun
með bros á vör. M.a. mátti sjá einn
plokkarann fjarlægja net úr fjöru
við Þorlákshöfn.
Lítið mál að virða regluna
Er plokkið sagt gefa fólki tæki-
færi til að sameina útiveru og hreyf-
ingu sem og að sýna umhverfinu og
samfélaginu kærleik í verki. Þá hafi
ekki spillt fyrir að auðvelt sé að
sinna því en virða tveggja metra
regluna um leið.
Mörg tonn fjarlægð
úr náttúrunni
Stóri plokkdag-
urinn þótti heppnast
með eindæmum vel
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Plokk Guðni Th. Jóhannesson sýndi
fyrirtaks plokktakta á laugardag.