Morgunblaðið - 27.04.2020, Blaðsíða 32
Meðan á samkomubanninu stendur taka stjórnendur
Hörpu, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óp-
erunnar höndum saman og bjóða upp á lifandi tón-
listarstreymi úr Eldborg klukkan 11 flesta morgna. Í
dag, mánudag, klukkan 11 flytja Nicola Lolli, konsert-
meistari SÍ, og Mathias Halvorsen píanóleikari tónlist
frá ólíkum öldum fyrir fiðlu og píanó. Á efnisskránni
eru Sonatina í D-dúr, D 384, eftir Franz Schubert og
Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Jón Nordal. Tónleik-
unum er streymt á RÚV2 og heimasíðu Hörpu.
Lolli og Halvorsen leika verk eftir
Schubert og Jón Nordal í beinni
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Handknattleiksmarkvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson
er orðinn leikmaður Nice í Frakklandi. Kemur hann til
félagsins frá Haukum, þar sem hann hefur verið aðal-
markvörður síðustu tvö tímabil. Grétar hefur alla tíð
leikið með Haukum, fyrir utan lánsdvöl hjá Selfossi og
ÍR. Grétar var fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Þá
var hann aðalmarkvörður U18 landsliðsins sem vann
brons á HM 2015. Grétar skrifaði undir tveggja ára
samning við franska félagið. Í vetur hafnaði Nice í ní-
unda sæti af fjórtán liðum í deildinni. »27
Grétar Ari gerði tveggja ára samn-
ing við Nice í frönsku B-deildinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Vestmannaeyjar hafa alltaf verið
sveipaðar ævintýrablæ í mínum
huga,“ segir Arndís Soffía Sigurð-
ardóttir, nýr sýslumaður í Vest-
mannaeyjum. „Af heimaslóðum mín-
um í Fljótshlíðinni sést vel til Eyja
sem á heitum sólardögum lyftast í tí-
bránni örlítið upp á himininn. Ég hef
því gjarnan séð til þessa staðar í hill-
ingum og það í tvöfaldri merkingu
orðanna.“
Lifnar yfir bænum
Arndís Soffía kemur til starfa í Eyj-
um á undarlegum tímum, en óvíða
hefur áhrifa kórónuveirunnar gætt
meira en þar. Margir hafa veikst af
veirunni, hundruð voru sett í sóttkví
og sett voru ströng skilyrði um
mannamót og samkomubann, sem nú
hefur reyndar verið slakað á til jafns
við það sem almennt gerist. „Fyrstu
vikurnar mínar hér afgreiddum við
alla sem áttu erindi á sýsluskrifstofu í
gegnum lúgu eða í gegnum tölvuna. Í
takt við tilslakanir á hertu samkomu-
banni í Eyjum opnuðum við afgreiðsl-
una en gætum auðvitað að sóttvörnum
og tveggja metra reglunni. Núna er
svo heldur að lifna yfir bænum og ég
hlakka til að vera þátttakandi í þessu
samfélagi.“
Í stjórnsýslunni hefur eins og víða
annars staðar verið settur mikill
kraftur að undanförnu í eflingu raf-
rænnar þjónustu sem Arndís Soffía
segist fagna. „Rafræn stjórnsýsla
skapar mörg ný tækifæri og er ef til
vill eitt af því jákvæða sem við getum
tekið frá þessum faraldri. Embættinu
hefur nýlega verið falið sérverkefni á
landsvísu. Það felur í sér rafræna yf-
irferð á reglugerðasafni sem birt er í
B-deild Stjórnartíðinda og er mikið að
vöxtum. ,,Slíkt hefur staðið lengi til en
nú verður hafist handa og reynsla síð-
ustu vikna af fjarvinnslu sýnir okkur
að þessu verkefni má vel sinna úti á
landi. Þessu sérverkefni fylgir eitt
stöðugildi og er starfið núna laust til
umsóknar.“
Arndís Soffía var lögreglumaður í
Reykjavík eftir útskrift úr Lögreglu-
skóla ríkisins og lögregluvarðstjóri á
Hvolsvelli fyrr á árum. Henni fannst
starfið vera í senn skemmtilegt og
krefjandi, en fann ekki framtíðina þar.
Hún hóf því lögfræðinám sem hún
lauk árið 2008 og starfaði lengi sem
fulltrúi hjá sýslumanninum á Selfossi.
Arndís Soffía var formaður starfshóps
um Guðmundar- og Geirfinnsmál sem
skilaði skýrslu til innanríkisráðherra
2013. Var sú vinna undanfari endur-
upptöku málanna sem barist hafði
verið fyrir lengi og hafa sakborningar
nú verið sýknaðir í Hæstarétti.
Í öllum málaflokkum
„Ég byrjaði í þinglýsingum hjá
sýslumanninum á Selfossi en átti eftir
að vinna við alla málaflokka; nauðung-
arsölur, sifjamál, dánarbú og svo
framvegis,“ segir Arndís Soffía sem
starfaði síðast sem staðgengill sýslu-
manns á Suðurlandi. „Vissulega taka
mörg þessara verkefna á, enda verið
að sinna mjög persónulegum mál-
efnum. En ef tekst að ljúka málum
farsællega svo allir séu þokkalega
sáttir er slíkt mjög ánægjulegt. Krefj-
andi vinna heldur manni á tánum og
vekur hjá manni áhuga og drift í að
halda áfram og gera sífellt betur. Svo
finnst mér lögfræðin alltaf jafn-
áhugaverð; að glíma við röksemdir og
að komast að niðurstöðu. Grunnurinn
er þó alltaf mannlífið í sinni fjölbreyti-
legustu mynd og hjá opinberu emb-
ætti er þjónusta við fólk aðalatriðið.“
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Sýslumaðurinn „Hjá opinberu embætti er þjónusta við fólk aðalatriðið,“ segir Arndís Soffía Sigurðardóttir.
Sá Eyjar í hillingum
Grunnurinn er „mannlífið í sinni fjölbreytilegustu mynd“