Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 27. apríl 1973 Morgunblaðið greinir frá því að Ólafur H. Jónsson úr Val hafi verið besti leik- maður Íslands- móts karla í handbolta og orð- ið efstur í ein- kunnagjöf blaðs- ins um veturinn. Þá fær Einar Magnússon úr Víkingi verðlaun frá Morgunblaðinu fyrir að skora fyrstur leikmanna 100 mörk á Íslandsmóti eftir að far- ið var að spila í Laugardalshöll. 27. apríl 1976 Morgunblaðið greinir frá því að fjórir leikmenn hafi fengið rauða spjaldið í leikjum helg- arinnar í vormótunum í fótbolt- anum. Þetta eru KR-ingarnir Guðjón Hilmarsson og Halldór Björnsson, Keflvíkingurinn Einar Gunnarsson og FH- ingurinn Leifur Helgason. 27. apríl 1983 Arnór Guðjohnsen landsliðs- maður í knattspyrnu skrifar undir samning við belgíska stórliðið And- erlecht til tveggja ára. Hann er að ljúka sínu fimmta tímabili með Lokeren í sömu deild og var samkvæmt samningi heimilt að fara frá félaginu. 27. apríl 1989 Íslenska karlalandsliðið í körfu- knattleik sigrar Dani, 90:76, á Norðurlandamótinu sem haldið er í Keflavík. Liðið hafði tapað naumlega fyrir Finnum í fyrsta leik. Teitur Örlygsson skorar 20 stig, Guðni Guðnason 17 og Jón Kr. Gíslason 16. 27. apríl 1995 Ísland sigrar Pólland, 23:21, á alþjóðlegu handknattleiksmóti karla sem fram fer í Kaup- mannahöfn. Gústaf Bjarnason skorar sex mörk, Sigurður Sveinsson fimm og Valdimar Grímsson fimm. Ísland fær fjög- ur stig í þremur leikjum, jafn- mörg og Danir og Svíar, en hafnar í þriðja sæti á marka- tölu. Norðurlandaþjóðirnar voru allar á leið á HM á Íslandi í maí. 27. apríl 2002 Ólafur Stefánsson og þjálfarinn Alfreð Gíslason eru Evr- ópumeistarar í handknattleik með þýska liðinu Magdeburg eftir sigur á Veszprém frá Ung- verjalandi, 30:25, í síðari úr- slitaleik liðanna á heimavelli. Ungverjarnir höfðu unnið þann fyrri, 23:21, en Magdeburg er með þessu fyrsta þýska liðið í 19 ár til að verða Evrópumeist- ari. Ólafur er besti leikmaður vallarins í leiknum og skorar sjö mörk ásamt því að eiga sjö stoðsendingar og krækja í tvö vítaköst. 27. apríl 2012 „Þetta var virkilega skemmti- legt og sigur okkar var mjög öruggur í þessu einvígi. Liðinu hefur gengið allt í haginn og við erum einfald- lega með lang- besta liðið,“ seg- ir Helena Sverrisdóttir við Morgunblaðið eftir að hún vinnur meist- aratitilinn í körfubolta í Slóvak- íu með liði sínu Good Angels Kosice, á fyrsta tímabili sínu í atvinnumennsku. Á ÞESSUM DEGI FRJÁLSAR Kristófer Kristjánsson kristoferk- @mbl.is „Þetta er einn af þessum hlutum sem maður hefur ekki stjórn á, en að sjálfsögðu er þetta gríðarlega svekkjandi,“ voru fyrstu orð spjót- kastarans Ásdísar Hjálmsdóttur Annerud þegar Morgunblaðið náði tali af henni um helgina eftir að orðið var ljóst að hún hefur keppt á sínu síðasta stórmóti í frjálsíþróttum. Ásdís, sem verður 35 ára á árinu, hafði fyrir nokkru ákveðið að 2020 yrði hennar síðasta keppnisár og ætlaði hún að ljúka glæstum tuttugu ára frjálsíþróttaferli með því að komast á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar og keppa síðan á Evrópu- meistaramótinu í París. Nú eru bæði mótin úr sögunni, Ólympíuleikunum hefur verið frestað til næsta árs og EM aflýst endanlega. Ásdís vandar ekki Alþjóðafrjálsíþróttasamband- inu kveðjurnar og segir nýtt fyrir- komulag fyrir Ólympíuleikana á næsta ári ekki til þess fallið að freista hennar til að framlengja fer- ilinn. „Það er hrikalega lélegt hvernig hefur verið tekið á þessu máli öllu saman. Frjálsíþróttasambandið var að gefa út nýjar reglur varðandi lág- markið og hvernig maður tryggir sig inn á leikana. Þar eru þeir að þrengja gluggann alveg svakalega fyrir spjótkastara. Þeir lokuðu glugganum núna í apríl og ætla ekki að opna hann aftur fyrr en í desem- ber, sem er í raun fáránleg tímasetn- ing. Það eru engin mót í desember og allt sem gerist núna í sumar og fram að því telst bara ekki með. Það er algjörlega út í hött. Það sem hefði verið verst fyrir mig er að þeir opna tímabilið aftur í desember og loka því svo í maí. Tímabilið átti að vera til loka júní, sem er í raun samt frekar stutt. Yf- irleitt er það bara opið þangað til það eru þrjár vikur í leikana. En þarna breyta þeir þessu, alveg eins og kerfinu til að tryggja sig inn. Nú þarf maður að safna stigum, það er ekki bara nóg að kasta einu sinni yfir lágmark því að lágmarkið hefur ver- ið sett svo fáránlega hátt að aðeins örfáir ná því.“ Erfitt fyrir eldri íþróttamenn Þetta þýðir að margir íþrótta- menn þurfa að ná ótrúlegum árangri á stuttum tíma til að vinna sér inn þátttökurétt á leikunum en um hálf- gert hraðmót verður að ræða á næsta ári. Ásdís telur að ekki sé ver- ið að hugsa um hag íþróttafólks með þessu fyrirkomulagi og að álagið á þeim sem eiga eftir að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum verði mikið. „Svo taka þeir meðaltalið af fimm bestu mótunum þínum. Að við eigum að ná fimm góðum mótum fyrir lok maí, þegar fyrstu mótin eru yfirleitt að byrja stuttu áður. Við erum að tala um að í 5-6 vikur þarftu að keppa í hverri einustu viku og alltaf eiga gott mót. Öll mótin sem gefa virkilega góð stig eru yfirleitt í júní, þetta verður bara algjör martröð og mikið stress að ætla að reyna að komast inn á næsta ári. Þeir eru gjörsamlega að skíta yfir alla íþróttamenn sem eru ekki nú þegar komnir inn. Það er ekki freistandi fyrir mig að ætla að taka heilt ár í viðbót, eiga á hættu að lenda í meiðslum og fara í gegnum þetta andlega og líkamlega álag. Þeir eru ekki að freista mín að taka annað ár,“ bætti Ásdís við og viðurkennir að staðan sé erfið, enda draumur margra íþróttamanna sem eru komnir á efri ár að geta lokið ferlinum á Ólympíuleikum. „Við erum með efnilega og unga krakka sem eru að reyna að komast inn á Ólympíuleika. Eitt ár í viðbót gefur þeim heilt ár til að æfa, verða betri og auka sínar líkur á að komast inn. Það er nú alltaf þannig að eins manns dauði er annars brauð. Ástandið hjá fólki er auðvitað mis- jafnt, fyrir eldri íþróttamenn er þetta rosalega erfitt. Það vilja alltaf margir enda ferilinn á Ólympíu- leikum og stefna á það. Sumir geta auðvitað tekið eitt ár í viðbót, það er misjafnt hvar fólk er statt í lífinu, en það er bara því miður ekki þannig hjá mér.“ Líkaminn er orðinn þreyttur Þá er þetta sérstaklega mikið áfall fyrir Ásdísi enda hefur hún aldrei verið í betra formi. Það er hins vegar ekki auðvelt að vera íþróttamaður á hæsta stigi og ekki auðveldlega að því hlaupið að ætla að taka heilt ár í viðbót. „Ég var í æfingabúðum úti í Suður-Afríku núna í byrjun mars, áður en kórónukrísan fór af stað og allt fór í vaskinn hreinlega. Þar var ég stöðugt að bæta mig og átti mitt lengsta kast á ferlinum,“ sagði Ásdís sem hefur átt Íslandsmetið í grein- inni frá árinu 2005 og bætt það fjór- um sinnum síðan. „Auðvitað hefði verið gaman að hætta með stórmóti og það var sjokk að heyra með EM. Ég er aðeins að lenda með það núna en ég vil gera þetta á mínum forsendum. Þegar fólk segir að ég eigi bara að taka eitt ár í viðbót; það ætti að prófa að fylgja mér á æfingum í viku. Þá myndi það ekki spyrja af hverju ég ætli ekki að taka 63 slíkar í viðbót. Þetta starf tekur 24 tíma á sólar- hring og stjórnar gjörsamlega öllu í lífinu hjá manni. Það er ekki hlaupið að því að taka bara heilt ár í viðbót.“ Þetta er nítjánda tímabilið mitt í röð, þar sem ég er alveg á fullu. Lík- ami minn er bara orðinn þreyttur, ég finn fyrir því, þarf lengri tíma til að jafna mig og það er bara kominn tími á að gefa honum frí.“ Endar ferilinn eins og hann byrjaði Þó óvissan sé áfram mikil og ljóst að ekkert verður úr stórmótum árs- ins er Ásdís ekki hætt alveg strax. Hún reiknar enn með að keppa á smærri mótum í ár og dreymir um að bæta Íslandsmetið einu sinni til viðbótar, í fimmta sinn, áður en hún hættir endanlega. „Það er enn þá mikil óvissa með hvaða mót verða og ég hef enga hug- mynd um hvað verður um þessi al- þjóðlegu mót. En við munum alla- vega hafa lítil innanhússmót, þar sem maður fær að keppa og árang- urinn gildir. Það verða kannski eng- ir áhorfendur og ekki sama stemn- ingin en það var nákvæmlega þannig sem ég byrjaði ferilinn. Það var á pínulitlum mótum í Laugardalnum eða inni í Hafnarfirði þar sem maður hafði bara gaman og reyndi að kasta langt. Það má kannski segja að ég sé komin fullan hring og endi núna fer- ilinn eins og ég byrjaði hann. Ég veit að ég er í formi til að bæta mig, ég er með það í mér. Ég veit að ég get kastað langt, annars myndi ég bara segja þetta gott. Úr því sem komið er væri draumurinn að bæta Íslandsmetið og það væri bara síð- asta kastið á ferlinum, ég get ekki beðið um mikið betri endi en það.“  Ásdís Hjálms- dóttir Annerud hefur keppt á sínu síðasta stórmóti Ljósmynd/GSSE Eins manns dauði er annars brauð Spjótkastari Ásdís Hjálmsdóttir hefur verið framarlega í flokki spjótkastara um árabil. Hún hefur átt Íslandsmet í greininni frá árinu 2005. Handknattleiksdeild Hauka til- kynnti í gær að Gunnar Gunnarsson hafi verið ráðinn þjálfari meist- araflokks kvenna hjá félaginu. Gunnar gerði þriggja ára samning og tekur hann við liðinu af Árna Stefáni Guðjónssyni. Gunnar þjálf- aði síðast karlalið Víkings í 1. deild- inni og þá hefur hann einnig þjálfað Selfoss, Hauka, Elverum og Dram- men í Noregi. Þá þjálfaði hann kvennalið Gróttu/KR á sínum tíma. Haukar voru í fimmta sæti úr- valsdeildarinnar þegar tímabilinu var aflýst vegna kórónuveirunnar. Gunnar tekur við kvennaliði Hauka Reyndur Gunnar Gunnarsson stýrði síðast liði Víkinga í 1. deildinni. Morgunblaðið/Eggert Hörður Björgvin Magnússon, lands- liðsmaður Íslands í knattspyrnu og leikmaður CSKA Moskvu í rúss- nesku úrvalsdeildinni, styrkti upp- eldisfélag sitt Fram um 81.100 krónur á dögunum í gegnum áheitaleik á Facebook. „Fram hefur gefið mér mikið persónulega, þar sem ég eignaðist vini og minningar sem ég mun ekki gleyma. Núna er erfiður tími fyrir íþróttafélög og ég vona að þið getið hjálpað mér að safna eilitlum pening fyrir félagið mitt,“ skrifaði Hörður Björgvin á Facebook. sport@mbl.is Veglegur styrkur til uppeldisfélagsins CSKA Moskva Traustur Hörður Björgvin Magn- ússon rétti fram hjálparhönd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.