Morgunblaðið - 27.04.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.04.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 ✝ Valborg Sigurð-ardóttir fæddist 27. ágúst 1926 á Raufarhöfn og var uppalin þar. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 18. apríl 2020. Foreldrar hennar voru Sigurður Áma- son, f. 24. maí 1890 á Sigurðarstöðum í Norður-Þingeyjarsýslu, versl- unarmaður hjá Kaupfélagi Norð- ur-Þingeyinga á Raufarhöfn, d. 15. janúar 1979, og Arnþrúður Stefánsdóttir, f. 25. apríl 1893 á Skinnalóni í Norður-Þingeyjar- sýslu, húsmóðir, d. 28. september 1967. Systkini Valborgar eru Kristín Sigríður, f. 1917, d. 2006, Geirhild- ur, f. 1924, d. 1936, Jón, f. 1928, d. 2013, Hólmfríður, f. 2.11. 1930, og Margrét Anna, f. 5.6. 1933. Valborg giftist 5. ágúst 1949 Guðmundi Gísla Magnússyni kennara, f. 30. september 1927 í Reykjavík, d. 14. desember 1969. Böm þeirra eru: 1) Magnús, f. 1.10. 1948, kerfisfræðingur, sambýlis- kona Margrét Ásgeirsdóttir. Börn hans eru Sigrún Alda, f. 20.4. 1971, móðir Friðjóna Hilm- arsdóttir, Sigríður stjúpdóttir, f. 29.1. 1973, Magnús, f. 31.7. 1985, og Helga Guðrún, f. 26.5. 1989, móðir Björg Valdimarsdóttir. Raufarhöfn, lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar 1944-45 og Samvinnuskólanum 1945-47. Hún lauk námi í starfsleikni með kennslu í Öskjuhlíðarskóla og námskeiði tengdu sérkennslu í Snöghøj folkehøskole í Danmörku eftir 1975. Hún var í sumarvinnu hjá Kaupfélagi Norður-Þingeyinga 1942-46. Hún var starfsmaður Grænmetis- og áburðarsölu rík- isins 1947-49. Hún var kennari við Héraðsskólann í Skógum 1965-70, við Lindargötuskóla 1970-77, við Öskjuhlíðarskóla frá 1975 og kennari við Austurbæjarskólann frá 1977. Valborg vann við kennslu til sjötíu ára aldurs og sumarvinnu víða, eftir að hún fluttist til Reykjavíkur 1970, m.a. á Hótel Eddu Skógum, Osta- og smjörsölunni í Reykjavík og hjá sumardvöl nemenda í Öskjuhlíð- arskóla á Hafralæk í Aðaldal. Val- borg og Guðmundur bjuggu í Mos- fellssveit í um 15 ár frá 1950-1965 og tóku þau bæði virkan þátt í samfélaginu þar. Þau byggðu sér einbýlishús í Markholti 2 og 1965 flytja þau að Skógum og starfa þar til andláts Guðmundar 1969. Valborg flytur til Reykjavíkur sumarið 1970. Valborg tók virkan þátt í fé- lagsstarfi alla tíð og eftir starfslok í Árskógum, í Þorraseli síðar Vest- urgötu 7 og síðast á Grund. Útförin fer fram í dag, 27. apríl 2020, klukkan 13 frá Fossvogs- kirkju. Vegna aðstæðna í þjóð- félaginu geta aðeins nánustu ætt- ingjar verið viðstaddir athöfnina, en henni verður streymt á vefslóð- inni https://www.sonik.is/ valborg. Barnabörn eru sex. 2) Arnþrúður, f. 28.10. 1949, d. 22.1. 2003, B.A., búsett í Frakklandi, maki Bertrand Darolle, dómari í Frakklandi. Börn þeirra eru: Katrín, f. 8.1. 1973, Astrid, f. 3.4. 1980, og Eric Temoanant- ini, f. 11.7. 1981. Barnabarn er 1. 3) Valgeir, f. 27.6. 1953, stærð- fræðingur í Frakklandi, maki Blandine Guðmundsson, f. 21.12. 1959. Börn þeirra: Christophe, f. 3.5. 1982, og Elsa, f. 16.8. 1984. Barnabarn er 1. 4) Anna Soffía, f. 14.12. 1960, hjúkrunarfræðingur, fyrrverandi maki (28.5.1983), Sturla Sigfússon, f. 20.6. 1958, d. 30.8. 1991. Börn: Guðmundur, f. 27.5. 1978, faðir Víglundur Jónsson, Sigfús, f. 10.2 1984, og Valborg, f. 28.3. 1988. Maki, Ásgrímur Guðmundsson, f. 1.3. 1957, stjúpbörn, Ásgrímur Fannar, f. 7.4. 1982, og Ásdís Erla, f. 4.2. 1989. Barnabörn eru níu. 5) Valgerður, f. 20.3. 1964, hjúkrunarfræðingur, maki Pétur Hjálmtýsson, f. 8.4. 1965. Börn: Auður, f. 21.5. 1990, faðir Friðrik Diego, og Hjálmtýr, f. 22.2. 2007. Barnabarn er 1. Barnabörnin eru 16 og barna- barnabörnin eru 18. Valborg tók unglingapróf á Elsku amma, það er sárt að kveðja þig. Kveðjustundir eru erfiðar og sérstaklega þessi þar sem þú varst okkur svo mikilvæg. Það er að miklu leyti þín vegna sem við lítum hvor á aðra sem systur. Þú varst amma okkar, fyrirmynd og kennari. Hjá þér lærðum við að sauma, prjóna, hekla, elda og spila. Þú kenndir okkur allt sem við kunnum í handavinnu og okkur leið eins og við værum vel sjóaðar í þessu áð- ur en handavinnan í grunnskóla byrjaði. Jafnframt kenndir þú okkur sjálfstæði, aga og skyn- semi. Þú mótaðir okkur sem manneskjur og við eigum þér svo margt að þakka. Notalega við- mótið þitt var okkur svo dýr- mætt, þú varst hjálpleg, lífsglöð, jákvæð og traust. Þegar við vor- um orðnar fullorðnar varstu allt- af svo stolt af okkur, mökum, börnum og öllu sem við gerðum. Heimili þitt, Hjarðarhagi 11, var okkur einnig mikill griða- staður. Hjarðarhaginn var sem bækistöð allrar fjölskyldunnar og við eigum fjölmargar minn- ingar þaðan. Við vorum mikið hjá þér, bæði tvær saman og sín í hvoru lagi. Yfirleitt þegar upp komst að önnur hafði fengið að gista, en ekki hin, varð úr ein- hver deila. Slík var gestrisnin, að við þráðum að koma til þín. Við sváfum saman á dýnu í tölvuher- berginu og þú last fyrir okkur þjóðsögur og ævintýri, yfirleitt úr stóru rauðu bókunum. Á kvöldin þurftirðu að koma nokkrum sinnum inn og sussa á okkur, en það var vegna þess að við vorum staðráðnar í að vaka alla nóttina, sem gekk þó aldrei. Við vöknuðum fyrir allar aldir, læddumst inn í stofu án þess að vekja þig og biðum eftir teikni- myndunum. Oft vorum við send- ar út í bakarí með brúnu budd- una þína að kaupa einn pott af mjólk og hálft ráðherrabrauð. Í þessum heimsóknum fórstu yfir- leitt með okkur í einhverjar ferð- ir. Stundum var það í Norræna húsið til að fara í bíó, en oftar var farið í Kolaportið þar sem við máttum velja okkur lukkupakka. Þá kenndir þú okkur líka að taka strætó og við fórum út um allan bæ með þér í gulu vögnunum. Á jólunum breyttist heimili þitt í jólahús, þú varst hið mesta jóla- barn. Við hjálpuðumst að með jólaundirbúninginn, pökkuðum inn gjöfum og skreyttum hjá þér hátt og lágt. Í hverjum krók og kima var jólaskraut að finna, sem var hannað af þér. Það er því ekki skrýtið að við erum báðar mikil jólabörn, en það er eitt af því fjölmarga sem við erfum frá þér. Það er því vart hægt að hugsa sér jólin án þín. Allar þær gjafir sem þú gafst og þau kort sem þú gerðir voru listaverk. Kortin innihéldu iðu- lega kvæði ásamt þinni óaðfinn- anlegu handskrift. Þú varst allt- af með viðeigandi málshátt eða vísu á takteinum og fórst með tvö kvæði oftar en önnur eftir að við eignuðumst sjálfar börn; Sofa urtubörn á útskerjum og Krumminn á skjánum. Okkur finnst viðeigandi að enda þessi minningarorð á vísu sem pabbi þinn, Sigurður Árnason, orti. Elsku amma okkar, við sökn- um þín og þökkum fyrir dásam- legar minningar sem við áttum með þér. Hvíldu í friði. Duglegur í dagsins önn drengur fjarri táli, nú hefur líka tímans tönn talað sínu máli. Þínar Valborg yngri og Auður. Ég kveð Völlu, systur mína, með ljóði mínu, Systir. Valla var mér ákaflega kær og á milli okkar ríkti djúp vinátta. Líf mitt án hennar verður aldrei samt, ég þakka systur minni ómetanlega samfylgd. Systir Daggarblár speglast sjórinn í tæru auga blómjurtir og draumur um fjallið í fjarska minning hins bláhvíta hafs seytlar inn í vitund þína snertir eins og lindin. Hólmfríður Sigurðardóttir. Nú hefur Valla frænka tekið pokann sinn og gengið hljóðum skrefum til sinna; þarna fer þessi stóra, lágvaxna kona - og þegar ég þakka henni allt það góða sem hún gaf mér heyri ég hlátur hennar og sé hvernig ný stjarna bætist í stjörnuþokuna; ný alda í sjóinn; nýtt sandkorn á strönd- ina; mig grunar að náttúran fagni því að enn á ný hverfi til hennar manneskja sem skipti máli. Ég veit að í rauninni er ekki hægt að kveðja konu einsog Völlu með orðunum einum; orð ná ekki utan um minningar; það vantar alltaf „þetta eitthvað“ sem orðin fanga ekki þótt þau séu sífellt að reyna; það vantar lyktina af kleinum, pönnukök- um, smákökum og laufabrauði á Hjarðarhaganum, ummmm - og það vantar dæmalausan Völluh- úmorinn þegar hún býður manni „endilega meira“ þar sem maður situr og étur á sig gat á Skógum; það vantar myndina af okkur frændsystkinunum við matar- borðið í Mosfellssveitinni með munninn fullan af eggjaskyri og gapandi augun af því að Magnús, elsti sonurinn, var nýbúinn að segja okkur að maðurinn í út- varpinu væri orðinn svo akfeitur að hann kæmist ekki lengur fyr- ir þar; já, og það vantar sann- arlega orð til að lýsa furðum hugans þegar Valla frænka stað- festi tilveru þularins innaní við- Valborg Sigurðardóttir ✝ Kolbrún SæunnSteingríms- dóttir var fædd á Sólvallagötu 33 í Reykjavík 13. feb. 1936. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 19. apríl 2020. Foreldrar hennar voru Steingrímur Þórðarson húsa- smíðameistari, f. 10. maí 1912, d. 24. júlí 1984, og Guðrún Pétursdóttir, f. 7. maí 1912, d. 22. des. 1951. Systkin hennar voru Valgerður, f. 19. júní 1934, d. 19. mars 2011, Örn Stein- ar, f. 14. des. 1934, d. 6. nóv. 1973, og Jóhann Axel, f. 13. júní 1943, d. 30. jan. 1977. Hálfsystur Kolbrúnar samfeðra eru Sveinbjörg, f. 8. des. 1955, Guðrún, f. 23. feb. 1957, Guð- munda, f. 27. apríl 1958, og Þór- laug, f. 6. maí 1962. Þann 30. júní árið 1956 giftist Kolbrún Þorvaldi Björnssyni, kennara og organista, f. 27. mars 1935, d. 19. sept. 2011. Kolbrún og Þorvaldur eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Steingrímur, leikmyndagerðarmaður, f. 3. sept. 1956, maki Helga Sjöfn Guðjóns- dóttir ritari, f. 9. feb. 1955. Börn þeirra eru: a) Telma, f. 8. júlí. 1976, maki Aðalsteinn Haukur Sverrisson og eiga þau 3 börn. b) Axel, f. 28. okt. 1984. c) Val- gerður, f. 27. júlí 1987, sambýlis- maður Christian M. F. Nielsen og eiga þau einn son. 2) Guðrún mót- tökustjóri, f. 8. des. 1958, maki Guðmundur E. Finnsson leið- sögumaður, f. 17. nóv. 1955. Börn þeirra eru: a) Jó- hanna Kolbrún, f. 6. júní 1977, maki Benedikt Sigurðsson og eiga þau 2 dætur. b) Guðmundur Snær, f. 27. des. 1984, og á hann 2 börn. c) Sævar Steinn, f. 12. apríl 1989, sambýliskona Ásdís Magnea Egils- dóttir. 3) Hólmfríður grunnskólakennari, f. 24. okt. 1961, maki Gunnar Sigurðsson vélfræðingur, f. 22. feb. 1957. Börn þeirra eru: a) Þorvaldur Sævar, f. 9. maí 1980, sambýlis- kona Arna B. Kristbjörnsdóttir og eiga þau 3 syni. b) Sigurður Ágúst, f. 6. mars. 1985. c) Fannar Freyr, f. 16. des. 1987, sambýlis- kona Sif Ómarsdóttir, d) Gunnar Freyr, f. 16. des. 1987, sambýlis- kona Bríet Arnaldsdóttir og eiga þau einn son. 4) Björn lögfræð- ingur, f. 16. jan. 1967, maki Þor- björg Sveinsdóttir lögfræðingur, f. 28. apríl 1984, sonur þeirra er Sveinn, f. 22. feb. 2019, börn Björns úr fyrra hjónabandi eru: a) Gunnar Húni, f. 10. sept. 1995, sambýlismaður Jesper Benschop, b) Kolbrún, f. 6. okt. 1999, c) Lilja, f. 12. sept. 2008. Kolbrún starfaði sem læknarit- ari frá 1970-2004. Kolbrún bjó nær alla sína ævi í Efstasundi 37 Reykjavík. Útför Kolbrúnar fer fram í dag, 27. apríl 2020, en í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins hennar allra nánustu viðstaddir. Minning- arathöfn verður auglýst síðar. Í dag kveðjum við móður okk- ar, Kolbrúnu Sæunni Steingríms- dóttur. Minning hennar lifir í hjörtum okkar. Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, Af mildi, sem hljóðlát var. Kolbrún Sæunn Steingrímsdóttir Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Birting minningargreina Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði. Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur um birtingu á minningargreinum. Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð og samhug. Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey. Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningargreina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.