Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ýmsir hafa lýstáhyggjum afþví að und- anförnu að stjórn- völd hér og þar í heiminum hyggist nýta kórónuveirufaraldurinn til að auka völd sín og jafnvel knýja fram allt að því einræðis- vald. Sumar af þessum áhyggj- um virðast nokkuð langsóttar, en engu að síður er full ástæða til að fylgjast með þróuninni og veita þeim stjórnvöldum aðhald sem ganga langt í að takmarka réttindi borgaranna og auka eft- irlit með þeim í því skyni að ráða niðurlögum veirunnar. Neyðarréttur leyfir ákveðnar aðgerðir því ríki verða að geta varið borgara sína þegar slíkur faraldur gengur yfir, en þær að- gerðir verða að sjálfsögðu raun- verulega að hafa þann tilgang sem sagt er. Það er til að mynda full ástæða fyrir íbúa Hong Kong að óttast um réttindi sín í tveggja kerfa ríkinu þegar svo virðist sem stjórnvöld í Peking hyggist nýta faraldurinn til að takmarka þau. En það er ekki aðeins í ríkj- um þar sem lýðræði og mann- réttindi eru ekki fyrir hendi sem ástæða er til að óttast. Rík- isstjórnum á Vesturlöndum þarf líka að sýna aðhald til að tryggja að þær íþyngjandi að- gerðir sem ráðist er í af illri nauðsyn nú verði ekki látnar haldast áfram að óþörfu, þó að mögulega verði framvegis ástæða til að fara varlegar þeg- ar smitsjúkdómar eru annars vegar en gert hefur verið. En það er ekki aðeins ríkis- valdið sem hætta er á að nýti sér ófremdarástandið. Hér á landi dúkkaði um helgina upp lítið dæmi um það hvernig sveit- arfélög geta fallið í sömu gryfju. Síðla á laugardag tísti Dagur B. Egg- ertsson borgar- stjóri um lokanir gatna og sagðist ætla að kanna möguleika á að loka götum fyrir bílaumferð og vísaði til þess að þetta hefðu margar borgir gert. Ástæðan væri sú að þetta kynni að vera nauðsynlegt til að tryggja að tveir metrar væru á milli manna, en efasemdir hljóta að vakna um hversu trúverð- ugar þær skýringar eru. Má í því sambandi benda á að borgin hefur haldið úti strætó- samgöngum þar sem allt að því útilokað er að halda þessum tveggja metra fjarlægðar- mörkum. Þetta kann að vera óhjákvæmilegt eins og svo margt annað því að fólk þarf að komast leiðar sinnar, en það er ekki trúverðugt að vilja á sama tíma, með vísun í smitvarnir, loka götum fyrir umferð einka- bíla. Væntanlega er fólk best varið í einkabílum um þessar mundir og nær væri nú að borg- aryfirvöld styddu við notkun einkabíla en að leggja stein í götu þeirra. Að auki er líklegt að áform borgarstjóra verði til að valda fyrirtækjum í borginni enn meira tjóni en orðið er á sama tíma og þörf er á að styðja við atvinnulíf og störf í borginni, eins og Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn, benti á í samtali við mbl.is um helgina. Stjórnmálamenn verða að standast þá freistingu að mis- nota kórónuveirufaraldurinn málstað sínum til framdráttar, hvort sem þar er um að ræða hættulega valdasókn eða sér- viskulega baráttu fyrir ein- hverjum furðumálum. Hatrið á einkabíln- um verður að eiga sér einhver takmörk } Vörumst misnotkun Air France-KLMhefur þegar fengið tíu milljarða evra lánafyr- irgreiðslu frá frönsku og hol- lensku ríkis- stjórnunum til að koma í veg fyrir greiðsluþrot flugfélagsins. Ríkisstjórnir Danmerkur, Sví- þjóðar og Noregs hafa einnig hlaupið undir bagga með helsta flugfélagi Skandinavíu, SAS. Þá á Lufthansa í viðræðum við rík- isstjórn Þýskalands og annarra ríkja þar sem flugfélagið telur sig hafa heimilisfesti, Sviss, Austurríki og Belgíu, um ríkis- aðstoð til að forða því frá þroti. Þetta er fjarri því tæmandi upptalning, aðeins lýsandi dæmi um ástandið í flugheiminum. Framkvæmdastjóri Lufthansa segir að flugfélögin hafi verið fyrst til að lenda í veirunni og verði síðust til að losna við hana. Hann segir að ástandinu linni ekki fyrr en fundist hafi bóluefni og að ólík- legt sé að flug verði komið í sama horf og það var fyrr en árið 2023. Vonandi er þetta óþarflega svört spá en það breyt- ir því ekki að hvert flugfélagið af öðru þarf um þessar mundir að leita á náðir ríkisins til að koma í veg fyrir að starfsemin leggist af með því mikla tjóni sem það mundi valda. Þetta ástand varir ekki að eilífu en á meðan það var- ir þarf ekki að koma á óvart að ríkisvaldið grípi inn í með stuðn- ingi í einhverju formi. Umræður um stuðning ríkisins við Iceland- air verður að skoða í þessu ljósi. Ísland getur enn síður án flug- félags verið en þau ríki sem nefnd eru hér að framan og hafa metið það svo að helstu flugfélög verði að halda áfram starfsemi. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að flug- félög komist hjálp- arlaust í gegnum kórónukreppuna} Nauðsynlegar aðgerðir F ræg er sagan af því þegar Milton Friedman var á ferð um Asíu og kom að hópi manna sem voru að grafa skurð með skóflum. Þegar hann spurðist fyrir um af hverju þeir nýttu ekki nútímatækni fékk hann þau svör að þetta væri gert svona til að skapa fólki at- vinnu. Gröfur og vinnuvélar myndu fækka störfum. Hann benti á að ef tilgangurinn væri fyrst og fremst að skapa störf þá væri nær að nota matskeiðar við gröftinn. Þannig væri hægt að skapa ógrynni starfa. Þessi saga kom upp í hugann þegar þingmað- ur Samfylkingarinnar lagði það til á dögunum að ein helsta lausnin við þeim vanda sem nú blasir við okkur í efnahagslífinu væri sú að fjölga starfsmönnum hins opinbera. Hann tiltók sérstaklega nokkrar stéttir opinberra starfs- manna en sumar þeirra eru nú í framvarðar- sveit í baráttunni gegn Covid-19-faraldrinum. Það getur ekki verið sjálfstætt markmið stjórnvalda að fjölga opinberum starfsmönnum – ekkert fremur en að rétta vegagerðarmönnunum matskeiðar. Tillaga þing- mannsins myndi ekki leysa vandann heldur aðeins virka eins og plástur á blæðandi sár sem að lokum þarf að græða. Ríkisrekstur á vissulega rétt á sér á ákveðnum sviðum en í atvinnulífinu fer best á því að einstaklingar og fyrir- tæki þeirra fái að keppa á frjálsum markaði án of mikilla afskipta ríkisvaldsins. Ríkið tryggir umgjörðina en kemur sem minnst að sjálfum rekstrinum. Öflugt atvinnulíf stend- ur undir verðmætasköpun hagkerfisins og þar með skatttekjum ríkis og sveitarfélaga. Sagan kennir okkur að blandað hagkerfi eins og okk- ar stendur öðrum kerfum framar þegar kemur að hagsæld, velmegun og öryggi borgaranna. Sjálfstæðisflokkurinn vill standa vörð um grunnþjónustu hins opinbera, tryggja öflugt velferðarkerfi, efla menntakerfið, löggæslu og þannig mætti áfram telja. Um þetta er óþarfi að deila, enda samstaða um það á vettvangi stjórnmálanna. Sjálfstæðisflokkurinn leggur einnig áherslu á það hagsmunamál okkar allra að skapa skilyrði fyrir öflugt atvinnulíf og verð- mætasköpun í hagkerfinu. Þau verðmæti greiða fyrir hinn opinbera rekstur. Því meiri verðmæti sem einkageirinn skapar því öflugri og betri getur hin nauðsynlega opinbera þjón- usta verið. Baráttan við Covid-19 hefur kostað miklar efnahagslegar fórnir. Einhugur þjóðarinnar sýnir að það ríkir almennur skilningur á því að fyrst þarf að gæta að lífi og heilsu fólks og síðan þarf að að búa svo um hnútana að öflugt atvinnulíf fái þrifist í landinu á nýjan leik. Efnahags- aðgerðir ríkisstjórnarinnar hljóta að taka mið af framan- greindu. Standa verður vörð um heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfið en um leið verður að verja hagkerfið sem hér hefur byggst upp og mun standa undir grunnþjónustunni og farsæld okkar í framtíðinni. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Matskeiðar og verðmætasköpun Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaug@aslaugarna.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Baráttan gegn kórónuveirunni mun ýta undir framþróun í framleiðslu bóluefna og lyfja sem unnið geta á veirum, og jafnvel flýtt fyrir því að bóluefni gegn krabbameini finnist. Það mun hins vegar ekki vinnast sig- ur á heimsfaraldrinum fyrr en meg- inhluti mannkyns hefur verið bólu- settur fyrir kórónuveirunni. Þetta er mat Bill Gates, stofn- anda Microsoft og eins auðugasta manns í heimi, en hann og Melinda kona hans hafa látið mikið til sín taka í baráttunni gegn heimsfaraldrinum. Stofnun þeirra, Bill and Melinda Ga- tes Foundation, er til að mynda sá aðili á eftir Bandaríkjunum sem var- ið hefur mestu fjármagni til Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar WHO, en auk þess hefur stofnunin varið um 100 milljónum bandaríkjadala sér- staklega í baráttuna gegn kór- ónuveirufaraldrinum. Til lítils að opna allt núna Í grein sem Gates ritaði í nýj- asta hefti The Economist fer hann yfir framtíðarsýn sína vegna kór- ónuveirunnar, en Gates telur að bar- áttan gegn henni sé einungis rétt að byrja, og að lífið muni ekki verða samt á ný fyrr en almenn bólusetn- ing gegn veirunni sé orðin að veru- leika, þar sem fólk hafi lítinn áhuga á að setja sjálft sig í hættu. „Það verð- ur ekki mannþröng á flugvöllum, íþróttir verða spilaðar á nær tómum íþróttavöngum og efnahagurinn verður áfram í kreppu, því að eft- irspurn verður áfram lítil og fólk mun eyða sparlegar,“ segir Gates meðal annars. Þá sé líklegt að faraldurinn muni fara á fullt í þróunarríkjum nú, á sama tíma og farið er að hægjast um í þróaðri ríkjum. Gates telur hins vegar nær öruggt að faraldurinn muni verða enn verri í þróunarlönd- unum, þar sem þar séu færri störf sem hægt sé að vinna heiman frá sér, og tilraunir til þess að halda fjarlægð á milli fólks verði því ómarkvissari. Veiran mun því eiga greiðari leið til að berast á milli manna og all- ar líkur séu á að heilbrigðiskerfi þessara ríkja muni kikna undan álag- inu. Gates bendir á í því samhengi að faraldurinn hafi valdið gríðarlegum usla í New York-borg, þar sem eitt stakt sjúkrahús sé mjög líklega með fleiri gjörgæslurými innanhúss held- ur en flest ríki Afríku geti státað af. mRNA-bóluefni framtíðin? Gates segir í grein sinni að hann bindi vonir við að bóluefni gegn kór- ónuveirunni verði komið í fram- leiðslu á seinni hluta ársins 2021. Hann bendir hins vegar á, að ef sú von sín reynist rétt, yrði það sögu- legt afrek, þar sem mannkynið hefði þá aldrei verið fljótara að finna bólu- efni gegn nýjum sjúkdómi. Slíkur árangur yrði mögulegur að mati Gates vegna nýrrar aðferðar við að þróa bóluefni, sem treystir á svokallað mRNA til að láta frumur líkamans mynda mótefnasvar, sem nú er verið að rannsaka. Gates telur að þessi aðferð verði eitt af þremur risaskrefum til framfara, sem stafa muni af heimsfaraldrinum. Annað þeirra verður stigið í greiningu á nýjum veirum, en Gates segir að næst þegar viðlíka faraldur komi upp muni fólk líklega innan fárra mánaða geta tekið heimapróf sem segir því hvort það hafi smitast, á sama hátt og fólk getur nú athugað heima hjá sér hvort þungun hafi átt sér stað. Þriðja framfaraskrefið verði svo í þróun lyfja sem virki gegn veirum, en mannkynið hefur til þessa ekki náð að þróa lyf sem bíta á veirur, á meðan fjöldinn allur af sýklalyfjum er nú til sem vinna á gerlasýkingum. Gates spáir því að það muni breytast vegna kórónuveirunnar og að í fram- tíðinni muni þeir sem vinni að rann- sóknum á veirusjúkdómum búa að stórum gagnasöfnum af veirulyfjum sem þeir geti nýtt til þess að finna á skjótan hátt meðferðarleiðir gegn nýjum veirusjúkdómum. Gates segir að þetta þrennt muni búa okkur undir næsta faraldur með því að leyfa mannkyninu að grípa snemma í taumana, á meðan tilfelli eru ennþá mjög fá. Þá muni þær rannsóknir sem liggi að baki þessum þremur skrefum einnig að- stoða í baráttunni við þá smit- sjúkdóma sem þegar hrella mann- kynið, og jafnvel geta leitt til þess að lækningar og meðferðir finnist við krabbameini. Gates segir í því sam- hengi að vísindamenn hafi lengi talið að mRNA-bóluefni gætu verið leiðin til þess að þróa bóluefni gegn krabbameini, en að til þessa hafi ekki verið rannsakað hvernig hægt væri að fjöldaframleiða slík bóluefni með viðráðanlegum kostnaði. Endalok upphafsins? Gates spáir því að lokum, að mannkynið í heild muni læra af kór- ónuveirufaraldrinum og segir að árin eftir hann muni líkjast fyrstu ár- unum eftir seinni heimsstyrjöld, þeg- ar alþjóðakerfið sem við búum við nú var sett á fót. Hann segir það þó ekki öruggt, og vísar til fleygra orða Win- stons Churchills úr stríðinu: „Þetta eru ekki endalokin. Þetta er ekki einu sinni upphaf endalokanna. En kannski eru þetta endalok upphafs- ins.“ AFP Vísindamaður Rannsóknir á bóluefnum munu taka stórstígum fram- förum vegna kórónuveirufaraldursins að mati Bills Gates. Kann að leiða til bólu- efnis gegn krabbameini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.