Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 10

Morgunblaðið - 27.04.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 ára og eldri Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg hefur auglýst til umsagnar nýtt deiliskipulag fyrir svæði sem afmarkast af Dunhaga 18-20, Hjarðarhaga 27-33 og Tóm- asarhaga 32-46. Í tillögunni felst að festa í sessi leiksvæði á borgarlandi og hverfisvernd á byggð Hjarðar- haga og Tómasarhaga með minni- háttar heimildum til breytinga þ. á m. bílskúrsheimilda á tveimur lóð- um, niðurrifi bílskúra og uppbygg- ingu á lóð nr. 18-20 við Dunhaga, segir í skipulagslýsingu. Uppbygging á svæðinu hefur ver- ið umdeild og íbúar við Hjarðarhaga hafa kært fyrri samþykktir borgar- ráðs um deiliskipulag fyrir svæðið. Gerðu þeir athugasemdir m.a. við breytingu fjölbýlishússins við Dun- haga sem muni auka skuggavarp á nærliggjandi lóðum. Nú síðast úr- skurðaði úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hinn 20. mars sl. að samþykkt borgarráðs frá 6. júní 2019 um nýtt deiliskipulag skyldi felld úr gildi. Húsið er farið að láta á sjá Fram kemur í skipulagslýsingu að helsta markmið skipulagsins sé að nýta núverandi íbúðarhús og versl- unarrými á Dunhaga 18-20 betur, húsnæðið sé farið að láta á sjá og kominn tími á miklar endurbætur. Í núverandi húsi liggja fyrir sam- þykktar teikningar að breytingum á efri hæðum fyrir smærri íbúðir og nú sé einnig fyrirhugað að sækja um að byggja ofan á húsið og stækkun á bakhlið hússins til norðvesturs. Breytt deiliskipulag geri ráð fyrir að það verði allt að 23 íbúðir í húsinu. Þá segir ennfremur: „Verkefnið er tvíþætt, annars vegar að efla verslun og þjónustu í íbúðahverfi og hins- vegar að þétta núverandi íbúða- byggð. Lóðin í dag er nokkuð stór og mætti nýta hana betur. Þá hafa verið á jarðhæð verslanir frá því að húsið var byggt, t.d. gamla KRON-búðin og er vilji til þess að efla samskonar þjónustu í íbúðahverfinu. Bílskúrar á baklóð verða fjarlægðir.“ Það varð niðurstaða húsakönn- unar Borgarsögusafns að rík ástæða sé til að hverfisvernda skipulag reitsins sem sé hluti af heildstæðu skipulagi þar sem vel hefur tekist til með samsetningu lágreistra fjöl- býlishúsa, sólríka suðurgarða og staðsetningu á leiksvæði barna. Skipulagið sé vitnisburður um nýja strauma í skipulagshugmyndum síns tíma. Húsin á reitnum við Hjarðar- haga annarsvegar og Tómasarhaga hinsvegar myndi jafnframt heild- stæða götumynd sem ástæða er til að vernda, ásamt upprunalegum garðveggjum sem eru hluti af götu- myndinni. Húsið Dunhagi 18-20, sem er stærra verslunar- og fjöl- býlishús, tilheyrir því skipulagi sem lagt er til að vernda, en er ekki hluti af þeirri götumynd og heild lág- reistra fjölbýlishúsa sem einkennir annars reitinn og svæðið.“ Einnig kemur fram að Dunhagi 18-20 sé steinsteypt, þrílyft fjölbýlis- og verslunarhús í móderniskum stíl, hannað af Þóri Baldvinssyni arki- tekt. Verktakafyrirtækið Fjallhagi hf. byggði húsið árið 1959. Auk kjör- búðar KRON (Kaupfélag Reykja- víkur og nágrennis, sáluga) hafa ver- ið í húsinu fiskbúðin Fiskihöllin, gardínu- og vefnaðarvöruverslunin Perlon auk þess sem Framsóknar- flokkurinn hafði þar kosninga- skrifstofu um tíma. Almenningur getur kynnt sér skipulagstillöguna á vef Reykjavík- urborgar. Ábendingar/umsagnir berist eigi síðar en 15. maí 2020. Allt að 23 íbúðir í húsi við Dunhaga Morgunblaðið/sisi Dunhagi 18-20 Húsið var byggt fyrir hálfri öld og er farið að láta verulega á sjá. Samkvæmt nýju skipulagi á að stækka húsið og fara í endurbætur.  Reykjavíkurborg auglýsir nýtt skipulag á umdeildum reit í Vesturbænum  Fyrra skipulag var fellt úr gildi Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fyrirhugað er að friðlýsa Lundey á Kollafirði. Akurey var friðlýst 3. maí á síðasta ári og er það afstaða um- hverfis- og heilbrigðisráðs Reykja- víkur að einboðið sé að friðlýsa einn- ig Lundey en hún er í eigu ríkisins. Umhverfisstofnun óskaði fyrr í þessum mánuði eftir afstöðu Reykja- vikurborgar til þess að hefja undir- búning að friðlýsingu Lundeyjar og tilefna fulltrúa í samstarfshóp sem vinni tillögu að friðlýsingunni og mörkum svæðisins. Rætt var um málið á seinasta fundi umhverfis- og heilbrigðisráðs í vikunni og var samþykkt bókun þar sem segir m.a. að verndargildi Akur- eyjar og Lundeyjar sé mikið enda sé þar ríkulegt lífríki sjófugla og varp- staður m.a. lunda sem er í bráðri út- rýmingarhættu. Þúsundir ferðamanna ár hvert Í bréfi Umhverfisstofnunar er vís- að til þess að Fuglavernd hafi á árinu 2014 hvatt umhverfisráðuneytið til að beita sér fyrir friðlýsingu Lund- eyjar. Eyjan fóstri ríkulegt fuglalíf, þar sé annað af tveimur lundavörp- um í borgarlandinu og eyjan hafi einnig mikið gildi fyrir ferða- mennsku. Þangað sé siglt með þús- undir ferðamanna ár hvert til að skoða lunda en aðrir fuglar á eyjunni eru m.a. fýll, kría og teista. Umhverfisstofnun lýsir því í bréf- inu að stofnunin hafi nú hug á að hefja vinnu við undirbúning að frið- lýsingu Lundeyjar. Undirbúa friðlýs- ingu Lundeyjar  Annað af tveimur lundavörpum í borg- arlandinu  Akurey friðlýst á síðasta ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Lundey Ríkulegt lífríki sjófugla er í Lundey og verpa m.a. lundar þar. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Varpstofnum gargandar og dugg- andar hefur hnignað verulega og æðurin er nær horfin af svæðinu við Reykjavíkurtjörn að því er fram kemur í skýrslu um fuglalíf Tjarnarinnar á seinasta ári sem lögð var fram í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar í vikunni. ,,Stokkönd hefur líka fækkað verulega frá 2007 og skúfandar- stofninn er einnig á niðurleið. Langvarandi viðkomubrestur stendur andastofnunum fyrir þrif- um og það hnignunarskeið sem nú stendur yfir hefur varað í um 15 ár,“ segir í samantekt fuglafræð- inganna Ólafs K. Nielsen og Jó- hanns Óla Hilmarssonar, sem standa að þessari vöktun fyrir Reykjavíkurborg, sem hefur staðið yfir frá árinu 1973. Þrjár meginskýringar eru sagðar vera á lélegri afkomu andarunga; fæðuskortur, afrán og hnignun bú- svæða. Benda þeir á að Tjörnin er fuglagarður í miðri borg og umsjón og ábyrgð þessa svæðis er á hendi borgaryfirvalda. „Ástand fuglastofna Tjarnarinnar er óviðunandi og ekki í samræmi við mikilvægi fuglanna fyrir borg- arbúa. Vorin 2014 og 2015 var spyrnt við fótum og borgaryfirvöld stóðu að andarungaeldi við Tjörn- ina til að styðja við hnignandi stofna og það starf hefur borið ár- angur. Haustið 2017 voru ágengar plöntur í kríuvarpinu í Þorfinns- hólma upprættar og haustið 2018 í kríuvarpinu í Vatnsmýrarfriðlandi,“ segir í ágripi Ólafs og Jóhanns Óla. Segjast þeir fagna þessu frum- kvæði og hvetja til að haldið verði áfram á sömu braut og jafnframt að ráðinn verði eftirlitsmaður til að sjá um umhirðu Tjarnarfuglanna. Hætta getur stafað af fram- kvæmdum í Vatnsmýri Í umfjöllun um niðurstöður vökt- unarinnar segja höfundar að vatnsbúskapur Tjarnarinnar gæti verið í hættu vegna mikilla fram- kvæmda víða í Vatnsmýri eða í jaðri hennar. ,,Bæði eru fram- kvæmdir í Hlíðarenda og svo stendur til að byggja við sunnan- verðan flugvöllinn. Þessar fram- kvæmdir gætu haft áhrif á vatnsbúskapinn og þarf að vakta hann gjörla, annars er hætta á að vatn hætti að renna til Tjarn- arinnar og það mundi verða end- anlegur dauðadómur yfir lífríkinu og fuglalífinu,“ segir í skýrslunni. Fram kemur að hólmarnir í Norðurtjörn eru að hverfa í hvönn, sem hefur lagt undir sig litla hólm- ann og er smátt og smátt að leggja stóra hólmann undir sig. Uppræta þurfi hvönnina. Morgunblaðið/Ómar Kríumamma matar unga Ágengar plöntur í kríuvarpinu í Þorfinnshólma voru upprættar haustið 2017 og 2018 í kríuvarpinu í Vatnsmýrarfriðlandi. Fuglalífi hnignar við Tjörnina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.