Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 27.04.2020, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2020 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Ásabraut 3, Sandgerði, fnr. 209-4608 , þingl. eig. Karolina Aneta Los, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 09:00. Austurbraut 6, Keflavík, fnr. 208-6910 , þingl. eig. Ísak Þór Ragnars- son, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 09:40. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8873 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:20. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8874 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:25. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8877 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:30. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9588 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:35. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9589 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:40. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9585 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:45. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 236-9584 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:50. Grænásbraut 604A, Keflavíkurflugvelli, fnr. 230-8878 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:55. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 24. apríl 2020 Félagsstarf eldri borgara Bústaðakirkja Ég óska ykkur gleðilegs sumars. Við hittumst vonandi fljótt eftir að Þríeykið gefur okkur grænt ljós. Bestu kveðjur og Guðsblessun til ykkar. Hólmfríður djákni Seltjarnarnes Starfsfólk félags og tómstundastarfsins sendir ykur öllum hlýjar kveðjur og óskar ykkur gleðilegs sumars. Vonumst eftir því að hitta ykkur sem fyrst í félagsstarfinu. Einhverjar tilslakanir verða eftir 4. maí en í mjög litlum skrefum. Við þurfum að hlýða Víði eitthvað áfram. Sýnum þolinmæði og höldum í gleðina. Munum að drekka nóg, hugum að næringu og hreyfingu. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Málarar. Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu, mjög sangjarnir í verðum. Upplýsingar í síma 782-4540 eða loggildurmalari@gmail.com Hjólbarðar Bridgestone 4 sumardekk til sölu Notuð aðeins síðasta sumar. 16 tommu. 195/50 R 16 Verð aðeins 25 þús. Upplýsingar í síma 698-2598 Ný Bridgstone ónotuð 4 sumardekk til sölu 18 tommu, 225/40 R 18, Verð aðeins 25 þús. Upplýsingar í síma 698-2598. ✝ Svava KristínAlexanders- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 15. september 1929. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 19. apríl 2020. For- eldrar hennar voru Alexander Gíslason og Ásdís Sveins- dóttir. Svava giftist 19. maí 1951 Tryggva Guðmunds- syni, f. 1. október 1920, d. 1. júní 2004. Börn þeirra eru: 1) Gylfi, f. 23. september 1951, maki Margrét Rósa Jóhannesdóttur. Synir þeirra eru Daði Jóhannes, Kári Tryggvi og Gylfi Mar. 2) Aldís f. 21. september 1953, maki Vil- mars 1939, maki Ólafur Höskulds- son, d. 6. ágúst 2013. Svava ólst upp í foreldrahúsum á Landamótum í Vestmanna- eyjum. Hún hóf búskap með Tryggva á Bárustíg 11 og síðan á Ásaveg 20 þar sem þau bjuggu fram að eldgosinu 23. janúar 1973. Þau fluttust fljótlega eftir gos í Garðabæ og bjuggu í Efsta- lundi 9 í tæp tuttugu ár og eftir það í Arnarsmára 2 í Kópavogi. Svava var húsmóðir í Vest- mannaeyjum en eftir að þau fluttu upp á fasta landið starfaði hún með Tryggva í versluninni Hraun- veri í Hafnarfirði sem þau ráku í sex ár. Eftir það starfaði hún sem ritari á fæðingardeild Landspít- alans þar til hún fór á eftirlaun. Eftir gagnfræðapróf lauk hún námi í Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði. Hún var mjög virk í kórstarfi og söng í kirkjukór Landakirkju í Vest- mannaeyjum og síðan í kirkjukór Garðakirkju. Svava verður jarðsungin í kyrrþey 27. apríl 2020. hjálmur Waage. Sonur þeirra er Al- exander. 3) Guð- mundur Ásvaldur, f. 19. júlí 1956, maki Auður Traustadótt- ir. Börn þeirra eru Elín Ósk, Trausti, Svava Dís og Bjarni. Guðmundur átti einn son áður, Tryggva. 4) Sveinn Orri, f. 14. janúar 1963, maki Steinunn Ósk Kon- ráðsdóttir. Börn þeirra eru Stein- ar og Ásdís. Langömmubörnin eru orðin 23. Tryggvi eignaðist áður Soffíu Völu, f. 8. desember 1946, maki Vilhjálmur Ólafsson. Auk þess ól hann upp ásamt móður sinni systurdóttur sína, Bylgju, f. 23. Nú kveðjum við elsku Svövu fyrir fullt og allt. Sjúkdómurinn alzheimer hafði þó tekið hana frá okkur. Sárt var að sjá hana hverfa frá okkur smátt og smátt í annan heim. Lengi vel gat hún þó yljað sér við minningar. Fór hún stundum með okkur í huganum í sveitina undir Eyjafjöllum sem var henni svo kær. Þar dvaldi hún á sumrin hjá ættingjum á Ysta-Skála. Síðustu árin á Eir áttum við Svava til að raula saman gömlu Eyjalögin. Þá var eins og hún fengi blik í augun og hún söng altröddina svo fallega og mundi textana betur en ég. Svava var einkabarn og átti góða æsku. Dekruð af ömmu og afa ásamt foreldrum. Svava út- skrifaðist frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja og fór svo í Hús- mæðraskólann á Laugalandi sem var gott veganesti. Svo kynntist hún Tryggva. Glæsilegur og vinsæll Eyjamað- ur. Tryggvi lýsti því oft fyrir okkur þegar hann fyrst tók eftir Svövu. Hún gekk yfir götuna ein- beitt á svip. Létt í spori í bleikri kápu og hrafnsvart hárið bylgj- aðist um axlirnar. Amor hitti hann beint í hjartað og hann vissi að þessi kona yrði konan hans. Hann þurfti hafa fyrir því. Hún var hlédræg en ákveðin. En hann náði að heilla hana. Tilhugalífið var skemmtilegt. Þau höfðu bæði gaman af söng og sungu mikið saman og tilheyrðu mörgum kór- um í gegnum tíðina. Tryggvi og Svava gengu í hjónaband 1951 og hófu sinn bú- skap í húsinu Bifröst við Báru- stíg. Þar fæddi Svava þrjú börn. Það voru Gylfi, Aldís og Ási. En brátt fór Tryggvi að huga að því að byggja hús. Húsið var óvenju framúrstefnulegt og glæsilegt, við Ásaveg 20. Þar fæddist yngsti sonurinn Sveinn Orri. Einnig átti Tryggvi dóttur frá fyrra sambandi, Soffíu Völu, og kom hún í heimsókn á sumrin og oft var glatt á hjalla á Ásaveg- inum. Tryggvi gekk einnig syst- urdóttur sinni í föðurstað, þá sjálfur ungur að árum. Hann var svo hamingjusamur með hópinn sinn og sagði margoft „barnalán er betra en fé“. Á Ásaveginum bjó fjölskyldan fram að eldgosinu á Heimaey, þá örlagaríku nótt. Svava sagði okk- ur að þegar hún kvaddi húsið vissi hún að hún mundi aldrei aft- ur koma í þetta hús. Hún tók dúnsængina sína og gekk út 23. janúar 1973. Eftir að á meginlandið kom fór Tryggvi að reka verslunina Hraunbúðir í Hafnarfirði. Svava vann með honum. Þau unnu bæði hörðum höndum og stundum fannst manni nóg um. Í Efsta- lundi í Garðabæ undu þau hag sínum vel þar til þau fluttu í íbúð í Arnarsmára þar sem þau voru afar sátt í fallegu íbúðinni sem var með dásamlegt útsýni til allra átta. Svava var mjög heimakær en félagslynd. Átti stóran vinkon- uhóp, var í saumklúbbi þar sem þær hittust reglulega og ekki má gleyma árgangi 1929. Þau voru afar dugleg að hittast og oftar en ekki var Svava í undirbúnings- nefnd sem var jafn skemmtilegt og að mæta á sjálft mótið. Við Svava erum báðar fæddar í Eyjum og ólumst þar upp. Það áttum við sameiginlegt og margs var að minnast frá Eyjum. Ég hef átt ótal margar ánægju- stundir með Svövu og hennar samheldnu fjölskyldu. Ég kveð mína yndislegu tengdamömmu og kæra vinkonu með þakklæti fyrir allt. Margrét Rósa Jóhannesdóttir. Elsku tengdamóðir mín, Svava Kristín Alexandersdóttir, er látin, tæplega 91 árs að aldri. Ég vil muna hana hrausta og heila eins og hún var áður en sjúkdómurinn sem færði hana í fjötra óminnis og öryggisleysis tók völdin og rændi hana per- sónuleika sínum. Þetta var erfitt fyrir alla fjölskylduna. Nú er komið að kveðjustund. Svövu kynntist ég fljótlega eftir að leiðir okkar Ása lágu saman fyrir um það bil 45 árum. Ég kynntist þessari fjölskyldu „eftir gos“ eins og Vestmanna- eyingar segja gjarnan. „Fyrir gos“ bjuggu þau í Vestmanna- eyjum og voru á hátindi lífs síns, áttu sitt glæsilega heimili og voru með sinn rekstur. Allt var eins gott og það gat orðið en í einu vetfangi var fótunum kippt undan þeim eins og fjölda ann- arra Vestmannaeyinga. Þau voru hins vegar ekki á því að gefast upp, fljótlega settust þau að í Garðabæ, reistu sér annað fal- legt heimili og undu vel við sitt. Það er margs að minnast og margt að þakka fyrir. Fallegar minningar renna í gegnum hug- ann. Við fjölskyldan höfum ferðast mikið saman bæði innan- lands og utan. Matarboðin eru óteljandi,stendur þá upp úr ár- legt lundaboð og veisla á gaml- árskvöld. Þau kunnu að gleðjast á góðum stundum og voru höfð- ingjar heim að sækja. Þetta hef- ur verið dásamlegur tími þar sem hlýja og gleði hafa ráðið ríkjum. Svava og Tryggvi voru mjög samhent hjón, nutu þess að vera saman og gera hlutina saman. Missir hennar var því mjög mik- ill er Tryggvi féll frá um mitt ár- ið 2004. Nú eru þau saman að nýju. Að leiðarlokum vil ég þakka Svövu góða samfylgd. Með virðingu og þakklæti kveð ég tengdamóður mína. Guð blessi minningu hennar. Auður Traustadóttir. Elsku amma, núna hefur þú kvatt okkur og ert komin til afa. Margar yndislegar minningar vakna á þessum tíma. Hlýja brosið þitt og hlátur sem ávallt fylgdu þér. Sögustundirnar voru fjölmargar enda fór þér listavel að segja skemmtilega frá. Jólin með þér eru minnisstæð. Aðfangadagur hófst klukkan sex þegar fyrst mátti kveikja á jóla- trénu. Eftirvæntingin á jóladag var ekki síðri; hvaða jólaskeið skyldi maður fá þetta árið til að borða með heimatilbúna jólaísinn þinn! Sem barn var ég oft hjá þér og afa. Þá var mikið spilað með borðspilum. Síminn hringdi oft í miðju spili því vinmörg kona varst þú. Það reyndi oft á þol- inmæðina hjá ungu barni að bíða eftir að þeim símtölum lyki þann- ig að hægt væri að halda áfram að spila. Ekki er hægt að gleyma góðu djöflakökunni þinni sem ég hef að sjálfsögðu tekið upp á að baka. Hún kallar ætíð fram minninguna um þig. Alltaf hefur mér þótt vænt um að vera alnafna móður þinnar enda fer það orð af henni að hún hafi verið yndisleg og heilsteypt manneskja eins og þú. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Ég kveð þig með söknuði og þakklæti. Þín Ásdís Sveinsdóttir. Allt hefur sinn tíma, upphaf og endi. Það kom okkur systkinun- um ekki á óvart að Svava amma okkar hefði kvatt þennan heim. Hún hefur í nokkur ár átt við erf- iðan sjúkdóm að stríða. Upphaf- lega leyndi sjúkdómurinn á sér en með tímanum rændi hann lík- amlegu og andleg þreki hennar. Við getum huggað okkur við það hve minningarnar um þig eru yndislegar. Við barnabörnin, börn Ása, erum á dreifðum aldri og eigum því misjafnar og mis- miklar minningar um ömmu en allar eru þær ljúfar. Svava amma var okkur mjög góð og við eigum margar yndislegar minningar um hana sem munu lifa með okk- ur um ókomna tíð. Amma var höfðingi heim að sækja og lagði mikið á sig þannig að okkur börnum leið vel. Við gátum alltaf treyst því að við færum södd og kát frá henni og uppfull af fróðleik. Alltaf var til nýbökuð djöflaterta og í seinni tíð var passað upp á hafa suðu- súkkulaði til taks. Við höfðum alltaf nóg að gera þegar við kom- um til ömmu og afa í Efstalundi og seinna í Arnarsmára, hvort sem það var að fara í tindátaleik, kappkapal með ömmu eða golf út á grasi. Það gaf okkur mikið að koma til þeirra og var það í miklu uppháhaldi hjá okkur öllum. Við eigum eftir að sakna þessara stunda alla ævi enda voru þær okkur dýrmætar. Það var þungt fyrir ömmu þegar afi kvaddi þennan heim. Hún var þó duglega að hreyfa sig og fór í göngutúr á hverjum degi. Það var því erfitt fyrir okkur öll að sjá sjúkdóminn taka yfir hennar líf. Þar sáum við ömmu okkar sem var svo kraftmikil og jákvæð tapa sínum eiginleikum. Amma, þú kenndir okkur svo margt um lífið og þín minning mun lifa. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þín barnabörn, Tryggvi, Elín Ósk, Trausti, Svava Dís og Bjarni. Svava Kristín Alexandersdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.