Íslenzka vikan á Norðurlandi - 03.04.1932, Blaðsíða 6
6
ÍSLENZKA VIKAN, Akureyri
er bezti KAFFIBÆTIR-
INN sem búinn er til
á Islandi, framleiddur á
Akureyri, er seldur hjá
kaupmönnum og kaup-
félögum. Pantið í síma 41 á Akureyri og síma 1144 í Reykjavík.
Hefi fyrirliggjandi:
IAktygi, hnakka, beisli, hnakktöskur,
bakpoka, skjalatöskur, skólatöskur,
skátabelti, glímubelti, merkispjöld.
SÍMI 122. AKURBYRI. PÓSTHÓLF 122.
Halldór Halldórsson,
söðlasmíður.
Crésmíðao/nnusfo/a
undirritaðs viö Glerárgötu Akureyri, sími 104,
smíðar eftir pöntunum hurðir úr furu, tek og
orgeonpine, einnig glugga, karma, stiga, siiga-
handrið úr furu, birki og brenni, skápa og fleira
til húsbygginga. Framkvæmir allskonar rennismíð-
ar, býr til fœiur á húsgögn, gardinustangahringi
og húna, aska, bauka, sköft, stigasúlur, stigapila,
borðsúlur o. fl. o. fl. Kerrur, vagnar og vagn-
hjól smíðað og viðgert. Líkkistur smíðaðar eftir
pöntunum. — Vörurnar afgreiddar með litlum
fyrirvara, áherzla íögð á vandaða vinnu og gott
efni, verðið sanngjarnt.
Virðingarfyllst.
BGGERT GUÐMUNDSSON, TRKSMÍÐAMEISTARI.
Iðja °g iðnaður.
Til skamms tíma hafa menn
hér á landi ekki kunnað skil á
iðju og iðnaði, þar sem iðjustarf-
semin hefir lengst af verið í svo
smáum stíl, að ekki hefur verið
gerður greinarmunur á henni og
iðnaðarstarfi. En nú er algengt
að kalla iðnað aðeins það, sem
handiðnir heita, þ. e. það, sem
unnið er aðallega með handverk-
færum og sérstaka kunnáttu þarf
til að gera. — Iðja er aftur á
móti sú iðnaðarstarfsemi, sem að-
allega notar vélar til framleiðsl-
unnar. Það er fyrst hin síðustu
árin sem hennar gætir að nokkru
í landinu og fer hún vaxandi með
ári hverju, þrátt fyrir margskon-
ar erfiðleika og skilningsleysi
valdhafanna • á nauðsyn hennar.
Verkefni eru nóg og eiga fyrir
höndum að fjölga, einkum er
mikið ógert í því, að nota innlend
iðnaðarhráefni betur en gert hef-
ir verið.
Iðju- og iðnaðarstarfsemi okkar
er orðin all-fjölbreytt þó hún sé í
smáum stíl. Tvær klæðaverk-
smiðjur eru í landinu, sem búa til
allskyns dúka, er standa útlend-
um dúkum, af svipaðri gerð, i
engu að baki. Smjörlíkisiðnaður
er orðinn mikill í landinu, eru 7
smjörlíkisverksmiðjur starfandi,
og er framleiðsla þeirra fyllilega
eins góð og útlendra verksmiðja.
Hér eru niðursuðuverksmiðjur,
sem framleiða góða vöru, en þó
er langt frá því að sú iðja sé eins
víðtæk og vera ætti, því til henn-
ar eru hér ágæt skilyrði. Talsvert
er framleitt af efnagerðarvörum i
landinu. — Húfur og hattar, föt
og fótbúnaður fæst hér af nýjustu
tísku. Málmur allskonar er hér
smíðaður og af ýmiskonar gerð,
og jafnvel nýjar vélar gerðar í
sumum vélsmiðjum landsins. Hús
og húsgögn eru hér gerð ekki síð-
ur en í öðrum löndum, af hálfu
iðnaðarmanna vorra. Ljósmynda-
gerð, sjóklæðagerð, netagerð,
skipasmíði, körfugerð, ostagerð,
eru iðnaðargreinar, sem hér eru
unnar og oss að engu til minnk-
unnar. Fleira mætti sjálfsagt
telja fram af innlendum iðnaðar-
vörum, sem samanburð þyldu við
samskonar útlendar vörur, en til
þess brestur mig kunnugleika.
Að iðnaðarvörur eru ekki gerð-
ar hér í stórum stíl og jafn ódýr-
ar og stundum er hægt að fá þær
frá útlöndum, stafar af því, að í
flestum greinum eru kaupendur
of fáir til þess að vogandi sé, eins
og enn til hagar, að setja af stað
stórrekstur í þessu efni. En þess
ber að gæta, að oftast mun inn-
flutta, ódýra varan vera óvand-
aðri að frágangi og gerð en inn-
lenda varan, en því miður hefir
þjóðin ekki gætt þess oft og tíðum
og fyrir það hefir innlendur iðn-
aður orðið að líða.
Og því aðeins getur innlendur
iðnaður magnast, að þjóðin sé
vakandi fyrir þýðingu hans, styðji
hann með því að kaupa hann og
knýji löggjafarvaldið til þess að
veita honum vernd og stuðning
gagnvart útlendum keppinautum.
»íslenzka vikan« ætti að vera
upphaf nýs tímabils í sögu þjóð-
arinnar. Hún á að færa þjóðinni
heim sanninn um það, að hún á að
búa að sínu og að hún getur það.
Eflum innlenda framleiðslu,
kaupum íslenzkar vörur, og vel-
megun þjóðarinnar eykst. Minn-
umst jafnan orða Vestur-íslend-
ings, að »sú króna, sem fer út úr
landinu, er kvödd í síðasta sinn«.
G. T. J.
Til þjóðþrifa skal hver þegn lifa.
JÁRNRÚM
MEÐ FJAÐRABOTNUM
FYRIR
sjúkrahús, skóla, gistihús, heimahús.
Nýjar gerðir
verða
til sýnis
innan skamms.
Hefi meðal annars smíðað rúm fyrir: Sjúkrahúsið á Akureyri,
Menntaskólann á Akureyri, Hótel Gullfoss Akureyri, Sjúkrahúsið
á Siglufirði, Hótel Goðafoss Akureyri, Heilsuhælið í Kristnesi.
Einnig fyrir Kvennaskólann á Blönduósi og Laugaskólann.
Ýmsar gerðir
*
i
hvítum, svört-
um og brún-
um lit.
Þar að auki
rúm til
margra heimila.
Sérstaka
fjaðrabotna
í ramma,
mr ALLT INNLEND YINNA.
fárnsmiðaverkstœði Steindórs fóhannessonar.
Sími 152. jHkuxeyxi. Pósthólf 12.
Samuel Kristbjarnarson
- rafvirki -
Akureyri. Sími 258.
Tekur að sér innlagningu rafmagns. Hefir allt efni þar
tilheyrandi, ennfremur suðu- og hitunartæki. Útvega og
set upp allskonar vélar fyrir rafmagn, einnig mjög
ódýrar rafstöðvar af ýmsum stærðum. Fyrir bændur
og aðra sem ekki hafa hentugt vatnsafl, er þetta það
bezta sem völ er á.
Leitið upplýsinga. Biðjið um tilboð.
Gott efni. Vönduð vinna.
Ql . mín selur íslenzka inni- OKOVerZlUn skó, leikfimisskó, skó-
• o 00 svertu, skógulu, skóbrúnu, lakkdburð, leðurfeiti, gólfbón o. fl. — Skóvinnusto/an gerir við allan skófatnað úr leðri og gummi, hefir fyrirliggjandi 0) í
leður-sjóstígvél. Islenzk vinna. Gjörið svo
E vel að senda skófatnað ykkar til viðgerðar d skó-
vinnustofu mína, Hafnarstrœti 79, Akureyri. 00
(0 Sendi allar skóvörur i pósti út um land, ef óskað er, gegn póstkröfu. o «
M. H. LYNGDAL.
Góð afgreiðsla. Sanngjarnt verð.