Íslenzka vikan á Norðurlandi - 03.04.1932, Blaðsíða 11

Íslenzka vikan á Norðurlandi - 03.04.1932, Blaðsíða 11
fSLENZKA VIKAN, Akureyri 11 Bygg'l u m stór og lítil hús úr steini og timbri, sömuleiðis gjörum við uppdrætti og kostnaðaráætlanir af húsum, höfum margra ára æfingu, öll vinna og efni FYRSTA FLOKKS. jón Guðmundsson, Einar /óhannsson. Akureyri. Þórður Thorarensen, gullsmiður. Aðalstræti 13. Akureyri. Allskonar gull- og siifursmíðavör- ur tilheyrandi íslenzka búningnum. TRÚLOFUNARHRINGAR. Málningavinna og veggföðrun. Gleymið ekki að fagþekking er undirstaðan undir góðri og um Ieið ódýrri vinnu, trygging fyrir góðu efni og endingu, og skil- yrði fyrir ánægju yðar að unnu verki. Semjið við undirritaðan um það, sem þér þurfið að Iáta vinna. Sími 68. Posthólf 143. Virðingarfyllst. Vigfús Þ. Jónsson, málarameistari. jón j. Jónatansson Olerárgötu 3. Akureyri. IVinn flest járnsmíði til skipa 8 og lands. Skeifur af öílum 1 gerðum. Bakka á ljáblöð úr B stáli. Grindur yfir leiði í ramma. Járnhöft á hesta. Heygrímur á sauðfé o. fl. Ýmsar framkvœmdir á Akureyri vegna „Islenzku vikunnaru. Iðnaðarmannafélag og Verzlun- armannafélag Akureyrar hafa tekið saman höndum um að gang- ast íyrir framkvæmdum hér á Akureyri viðvíkjandi »íslenzku vikunni«, og voru kosnar til þess 5 manna nefndir úr hvoru félagi. Hafa nefndirnar unnið að málinu á ýmsan hátt. Meðal annars hafa þær útvegað ýmsum iðnaðar- og handverksmönnum sýningar- glugga hjá verzlunum í bænum, en taka úr gluggunum útlendan varning yfir »vikuna«. Hafa allir verið mjög fúsir til þessa og mun hver búðargluggi í bænum verða fullskipaður íslenzkri framleiðslu alla vikuna. Nefndir þessar hafa einnig komið af stað og séð um útkomu þessa blaðs, annast aug- lýsingar í búðargluggum og á göt- um bæjarins og verið til hvatn- inga og leiðbeininga um málið. Þá hefir nefndin starfað að því, að fyrsti dagur vikunnar, sunnu- dagurinn 3. apríl, yrði dálítið frá- brugðinn öðrum sunnudögum. Að morgni dagsins bera skátar þetta blað út um bæinn og verður það einnig sent út um land, sem fylgi- blað allra vikublaðanna, sem út koma hér á Akureyri. Fyrri hluta dagsins selja ungar stúlkur merki »íslenzku vikunnar«. Verður á- góðanum af sölunni varið til þess að standast ýmsan óumflýjanleg- an kostnað við »vikuna«. Sjálf- sagt bera allir bæjarbúar þetta merki þennan dag og næstu daga. Á þrem stöðum í bænum verða settir úti-hátalarar: Við Kaup- vangstorg, hús Ólafs Ágústssonar og verzlunarhús Höepfners. Geta menn þar hlýtt á ræðu forsætis- ráðherra kl. 10,45 og messugerð í dómkirkjunni. Kl. 2,30 safnast verzlunarmenn og iðnaðarmenn saman við hús sín á Oddeyri og ganga undir fán- um sínum og með Lúðrasveitina Heklu í broddi fylkingar, til Sam- komuhúss bæjarins. Kl. 3 hefst þar samkoma. Söngflokkurinn Geysir syngur: »ó, Guð vora lands«. Davíð Stefánsson skáld flytur ræðu. Jóhann Frímann kennari flytur erindi um íslenzk- an iðnað. Otto Tulinius konsúll, flytur erindi um verzlun með ís- lenzka framleiðslu, Sig. Ein. Hlíð- ar dýralæknir erindi um íslenzk- ar fæðutegundir. Þar á eftir verða sýndar skuggamyndir af ýmsum iðnfyrirtækjum í bænum og skýrðar af Sveinbirni Jónssyni byggingameistara. Að síðustu leikur lúðrasveitin »Hekla«. Að samkomu þessari verður ó- keypis aðgangur, en ætlazt er til að allir, sem þangað koma, beri merki »íslenzku vikunnar«. Bæjarstjórnin hefir góðfúslega lánað samkomuhúsið endurgjalds- laust. f Menntaskólanum verða sam- komur og ræðuhöld 6 daga »vik- unnar«, kl. 8 að kvöldi. Eru allir velkomnir þangað meðan húsrúm leyfir. Sunnudagskvöld talar Sigurður Guðmundsson skólameistari um »íslenzku vikuna« og Dr. Kristinn Guðmundsson flytur erindi um stefnur til eflingar þjóðlegri framleiðslu. Mánudagskv.: Steindór Stein- dórsson: Um grasnytjar til mann- eldis. Þriðjudagskv.: Steingr. Matthí- asson: Mataræði íslendinga. Miðvikudagskv.: ólafur Jóns- son: Um grasrækt. Fimmtudagskv.: Jónas Þór: Um ullariðnað. Föstudagskv.: Sveinbjörn Jóns- son: Um húsagerð. Barnaskóli Akureyrar hefir hugsað sér að haga sinni starf- semi vegna vikunnar þannig: Einn dagur verður algerlega helgaður íslenzkum efnum. Þá flytja kennarar 10—15 mín. er- indi um ræktun, siglingar, móður- málið, föt og fæði, iðnað, ríkið og fánann o. fl. Síðan skrifa börnin ritgerðir um þessi efni. Þá verð- ur á hverjum morgni »vikunnar« eitthvað sagt af kennurum og öðrum, um íslenzka framleiðslu, andlega og efnislega og sungin ættjarðarljóð. Loks mun skólinn fara einn dag vikunnar í skrúðgöngu um bæinn, undir íslenzkum fánum og með áletruð spjöld og merki er börnin hafa sjálf búið til. Virðast allir hér á Akureyri hafa tekið höndum saman, til að gera áhrif »íslenzku vikunnar« sem sterkust og víðtækust. Mun það gleðja alla sanna íslendinga og verða þjóðinni til ómetanlegs gagns. Sveinbjöm Jónsson. o------ Annast allskonar málun, bæði utan húss og innan. t itaá Styðjið nú íslenzkan iðnað. Eg hefi afar fjölbreytt úrv al af allskonar sælgætisvörum, hreinlætisvorum, drvkkjarvörum o. m. tl. VBRÐIÐ AÐ ÖL-IiU SAMKEPNISFÆRT. GUÐBJÖRN BJÖRNSSON. JÓN ÞÓR. PQKABUXUR (Plus Fours). Ódýrastar hjá Sæmundi klæðskera. * SMÍÐA * eftir innsendum teikningum og máli allskonar glugga úr járni. Einnig þakglugga á bárujárnsþök. Ennfremur eftir pöntunum: Grindur yfir leiði, stigahandrið og hliðgrindur. Par að auki allskonar járnsmíði. fárnsmíðaverkstœði Steindórs jóhannessonar. Sími 152, Akureyri, Pósthólf 12, Vinnustofa Eypórs Tómassonar Strandg. 3 (Gamla*Bio) Akureyri Annast hverskonar verkstæðis- vinnu sem er. Líkkistur smíð- aðar með litlum fyrirvara. Séð um húsabyggingar. Góð vinna! Gott verð! Barnaleikföng af fjölbreyttum, smekklegum gerðum smíða eg eftir pöntun- um. Sýnishorn ávalt fyrirliggj- andi, Kaupmenn og kaupfélög, biðjið um sýnishorn og verðskrá* Skarphéðinn Ásgeirsson Oddeyrargötu 36, Akureyri.

x

Íslenzka vikan á Norðurlandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzka vikan á Norðurlandi
https://timarit.is/publication/1469

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.