Austri


Austri - 16.12.1993, Qupperneq 4

Austri - 16.12.1993, Qupperneq 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1993. Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi. Skrifstofa Austra Lyngási 12, 700 Egilsstaöir, pósthólf 173, sími 97-11984, fax 97-12284. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson. Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson. Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir. Áskrift: Sími 97-11984, Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir. Áskrift kr. 95 pr. blað. Lausasöluverð kr. 120.- Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum. Austri kemur út á fimmtudögum. Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga. Efni skal skila á diskum eða vélrituðu. Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. A jólaföstu Nú nálgast jólahátíðin og undirbúningur fyrir þessa mestu hátíð ársins stendur sem hæst. Margir hugsa til bernsku sinnar á jólum, og börnin upplifa þessa hátíð af þeirri einlægni sem þeim er lagin. Hver fjölskylda skapar sér sína siði og hefðir á jól- um, og margir eru íhaldssamir á breytingar. Þó hefur í þessu efni orðið bylting eins og í svo mörgu öðru, og teknir hafa verið upp á síðari árum jólasiðir sem nú þykja ómissandi og tilheyra neyslu- þjóðfélaginu. Það þykir enginn maður með mönnum nú nema fara í jólahlaðborð, og neyta jólaglöggs á vinnustað. Þetta var ekki fyrir hendi til skamms tíma. Einn siður sem nú hefur rutt sér til rúms er ánægju- legur og fylgir kirkjulegu starfi, en það eru aðventu- samkomur sem haldnar eru í fjölmörgum kirkjum. Tónlist og kórsöngur skipar veglegan sess í þessum samkomum og börn taka virkan þátt í mörgum þeirra. Þetta er ánægjulegur og gefandi siður ekki síst fyrir þá sem taka þátt í undirbúningnum. Þetta er einn af já- kvæðustu þáttum í starfi kirkjunnar og góð viðbót við jólaundirbúninginn. Það fylgir nútímamanninum að níðast á verðmætum og bæði huglægum og áþreyfanlegum. Sá siður er hvimleiður að ofnota hina fallegu jólasálma sem eru tengdir jólahátíðinni sjálfri í hugum margra, og spila þá í verslunum í ys, þys og erli, jafnvel í byrjun desem- ber. Leiðarahöfundur heyrði fyrri hluta desember þá perlu “Heims um ból” í hljómflutningstækjum í stærstu verslunarmiðstöð landsins og undirleikurinn var ys og erill fólks í jólainnkaupum. Lofið að minnsta kosti þessum fallega og helga sálmi að vera í friði þangað til á jólahátíðinni sjálfri. Þetta er hógvær krafa. Við reynum eftir föngum að vanda til jólablaðs Austra og vonum að sem flestir finni þar eitthvað til þess að líta í yfir jólahátíðina. Starfslið blaðsins hefur sem endranær unnið vel, en slíkt blað kostar mörg handtök. Lesendum Austra og landsmönnum öllum eru færðar bestu óskir um gleðileg jól og frið og farsæld. J.K. Jólablað 1993 38. árgangur, 46. tölublað. Verð kr. 300.- í lausasölu. Forsíðumyndin að þessu sinni, ,,Reyðarfjörður“, erfengin að láni hjá Sigrúnu Guðnadóttur á Egilsstöðum. Myndin, sem er eftir Marinó Má Marinósson, blaðamann Austra, er unnin með air brush. Myndin á baksíðu er afSnœfelli, tekin afÞráni Skarphéðinssyni. Nœsta tölublað kemur út strax eftir áramótin. Aramótakveðjur og annað efni í það blað þarf að hafa borist eigi síðar en 29. des- ember nk. Egilsstaðakirkja Aðfangadagur 24. des. Aftansöngur kl. 18. Miðnæturmessa kl. 23. Gamlársdagur 31. des. Aftansöngur kl. 18. Bakkagerðiskirkja Borgarfirði Annar í jólum 26. des. Hátíðarmessa kl. 14. Vallaneskirkj a Jóladagur 25. des. Hátíðarmessa kl. 14. A LANDINU BLAA - Smásögur og þættir - Urval Afmælisbók Jónasar Árnasonar Fáir íslenskir höfundar hafa notið meiri vinsælda en Jónas Árnason. í tilefni af sjötugsafmæli Jónasar kemur nú út úrval af smásögum og þáttum hans. Honum hefur tekist að draga upp svipmyndir sem seint gleymast. Hlý kímni hans er grátbrosleg, oftar í ætt við gáska og kæti en kaldhæðni. Skemmtileg bók sem margir munu fagna. Ólafur Haukur Árnason bjó bókina til prentunar og ritar formála um höfundinn og skáldskap hans. Verð: 3.420,- HÖRPUÚTGÁFAN STEKKJARHOLT 8-10 - 300 AKRANES SÍÐUMÚLI 29 - 108 REYKJAVÍK HÁLSÚR & VASAÚR Medic Alert GEFÐU LÍFINU GILDI Lionsklúbburinn Múli Tvær ferðir íviku! Brottför úr Reykjavík: þriðjudaga og föstudaga. Afgreiðsla á Landflutningum. Sími 91-685400. Bílasímar: KT-232 sími 985-27231 U-236 sími 985-27236 U-2236 sími 985-21193 SVAVAR & K0LBRÚN sími 97-11953/sími 97-11193 700 Egilsstöðum Erum klárir í þorrablótin! Sanngjarnt verð miðað við gæði!! Upplýsingar í síma 97-11130, Valgeir, e.kl. 18:00. Ný bók frá Hörpuútgáfunni Gullhjartað Gullhjartað er eftir danska rit- höfundinn Erling Poulsen. Þetta er 18. bókin í bókaflokknum “- Rauðu ástarsögumar”. Sagan er af ungri stúlku og unnusta henn- ar sem var gítarleikari í frægri popphljómsveit. Á bókarkápu segir m.a.: “Hún stirðnaði upp ERUNQ POULSEN - SVISSNESK GÆÐAVARA - SÍMI 97-12020 / 1J.606 FAX 97-12021 LAGARAS 8 - POSTHOLF 96 - 700 EGILSSTAÐIR Birta Einarsdóttir úrsmiður - Sævar Benediktsson sjóntækjafræðingur og fann að einhver horfði á hana stingandi augnráði. Magnþrota, lamandi tilfinning lagðist yfir hana. Skyndilega heyrði hún að garðstofudymar voru opnaðar. Einhver hafði brotist inn í húsið. Hún sneri sér við rak upp skelf- ingaróp.. “Enn einu sinni skrifar Erling Poulsen hörkuspennandi ástarsögu um ungt fólk og mál- efni sem mikið hafa verið í um- ræðu hér á landi. Þýðandi er Skúli Jensson. Prentvinnsla og bókband er unn- ið í Odda hf.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.