Austri - 16.12.1993, Page 7
Egilsstöðum, jólin 1993.
AUSTRI
7
Systkinin Sandra Ósk og Gunnar Sigurður. Myndin er tekin í byrjun júní, daginn eftir
komu Gunnars til landsins. A Indlandi voru börnunum gefin nöfnin Amutekka og
Amubhav.
Slöngutemjarar verða ekki daglega á vegi Egilsstaðabúa. Magnús festir einn áfilmu.
legu, eins stendur félagið fyrir jóla-
trésskemmtun. Svo eru auðvitað
haldnir fundir sem við getum ekki
sótt vegna fjarlægðar. Við sem fór-
um saman í fyrri ferðina til Ind-
lands höfum alltaf reglulega sam-
band, en ein hjón í hópnum voru
líka með okkur í seinni ferðinni”.
Magnús: “Ég verð að segja að mér
finnst að í þessu þjóðfélagi okkar
sé farið með ættleiðingar eins og
feimnismál. Ég les t.d. mikið norsk
blöð, og í þeim er mikið um grein-
ar, bæði um ættleiðingu og viðtöl
við fólk sem hefur ættleitt böm, en
hér er eins og megi ekki nefna
þessi mál. Ég held að margt fólk
sem hefur áhuga á ættleiðingu viti
varla hvert það á að snúa sér og vil
benda því á að hafa samband við
félagið Islenska ættleiðingu. Félag-
ið bendir þá gjarnan á einhverja til
ráðgjafar sem búnir eru að ganga í
gegnum þetta allt. Við höfðum á
sínum tíma, eftir ráðleggingu frá
félaginu, samband við fólk á Sel-
fossi sem hjálpaði okkur heilmikið
og erum auðvitað sjálf tilbúin að
aðstoða fólk ef það vill leita til
okkar”.
Er fylgst með bömunum eftir að
þau koma til landsins? Svanfríð-
ur:” Já við þurfum að senda reglu-
lega skýrslu og myndir til forstöðu-
konu barnaheimilisins í Kalkútta á
Indlandi í fimm ár, þar af fyrstu tvö
árin á þriggja mánaða fresti. Við
skýrslugerðina hefur Guðgeir Ingvars-
son, félagsmálastjóri verið okkur
mjög hjálplegur og hefur raunar
aðstoðað okkur mikið í þessu öllu
saman. Chandana, forstöðukona
barnaheimilisins fylgist mjög vel
með börnunum og hefur meira að
segja komið hingað til Islands
nokkrum sinnum og kynnt sér að-
stæður og er mjög ánægð með að
ættleiða börn hingað. Við vorum
svo heppin að hitta hana einu sinni
þegar hún var hér á ferð. Það var
mjög eftirminnilegt, því hún er
mjög sérstök kona”.
Nú er Sandra orðin 5 ára, hafið
þið sagt henni frá hvaðan hún er
upprunnin? Magnús: Já við höfum
sýnt henni myndir og hún veit að
hún er fædd í Kalkútta. Þegar við
segjum henni frá Indlandi leggjum
við mesta áherslu á að segja henni
frá því jákvæða, en tölum minna
um fátæktina og eymdina sem hluti
landsmanna býr við. I Indlandi er
mjög forn og merkileg menning og
við leggjum áherslu á að fræða
börnin um uppruna sinn á þann hátt
að þau verði stolt af honum. AÞ
Verslunarmannafélag Austurlands
sendir félagsmönnum sínum og öðrum Austfirðingum
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Þökkum samstarf liðins árs.
I
Ósíqim öttum
viðskiptavinum
okkar og
starfsfóttq gCeðiCegrajóCa
og farsceCcCar á
íqpmanctt ári.
‘Þökjjum ánægjuCeg
viðskipti á árinu
sem er að Cíða.
L
Landsbanki Islands
Útibúin á Austurlandi
jóí!
‘Þötfffiim starfsfóífj
tiísjós ofl íands
góða samvinnu
á árinu sem er að ííða.
Skinney hf.
Steinunn SF 10, Freyr SF 20, Skinney SF 30
Höfn, Hornafirði
Sendum viðskiptavinum okkar og
starfsfólki bestu óskir um gleðileg jól
ogfarsælt komandi ár.
Þökkum ánægjulegt samstarf
á liðnu ári.
Hraðfrystihús Eskifjarðar
Eskifirði
V