Austri


Austri - 16.12.1993, Page 8

Austri - 16.12.1993, Page 8
8 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1993. Þórhallur Pálsson: Að verja Jakobsfífil Nú þegar dagarnir styttast og mjöllin þekur jörð hérna hjá mér í útlandinu hvarflar hugurinn heim til íslands. Ekki endilega til ís- lenskrar nóvember - stemningar með umhleypingum í veðurfarinu, mannlífinu og pólitíkinni. Ég lifi heldur á minningunni um sumarið og þessar fjórar vikur sem ég dvaldi heima í sumar. Og þvílíkt sumar! Ekki er hægt að segja að ferðafólkið hafi notið veðurblíðu á Austurlandi í júlí þetta árið. Svo mikill stöðugleiki í veðurfari er sjaldgæfur á okkar góða landi að ekki fáist einn sæmi- legur dagur í heilan mánuð. Engu að síður var gott að koma heim og finna ilm og hljóm þess lands sem á mig. Svo margt nýstárlegt sem ber fyrir augu! Og alltaf er verið að byggja. Vegirnir batna, nýr flug- völlur stendur tilbúinn og fólk heldur áfram að byggja og fjár- festa. Það var heldur ekki að sjá nein fátæktarmerki á bílaflotanum. Þórhallur Pálsson. menningin, eins og ég þekkti hana frá afa mínum, sem stakk haga- lagðinum sem hann rakst á í vas- ann. Ekki til að hirða ullina, heldur vegna þess að það á ekki að láta ó- þarfadót liggja á víðavangi. í því felst ekki nein smámunasemi til að geðjast öðrum, heldur sú sjálfs- virðing að særa ekki sitt eigið auga með ósóma. Margt fólk á slíka Útsýni til Tindafjallajökuls. Veltan heldur áfram. Þjónustan batnar, allavega á Egilsstöðum, sem er að verða meiri og meiri verslunarbær. Nýjar búðir og fleiri búðir. Stöðugt fleiri sækja sitt lifi- brauð í að selja öðrum eitthvað, og sækja það fast. Svo er komin Kringla og áfengisverslun og margt, margt fleira. Þessi nýju hús eru snyrtileg og vönduð, og þó þau fljúgist svolítið á, svona útlitslega séð, þá er það ekki meira en ís- lensk byggingamenning hefur mátt þola hingað til. Þeim mun erfiðara er að horfa upp á útimarkaðafarganið, sem nú virðist hafa flotið yfir öll velsæm- ismörk. Nú er þessi furðulegi ó- sómi beggja vegna aðalgötu bæjar- ins, þetta óskiljanlega samsafn skúra, tjalda, skærlitaðra plast- belgja, borða og bekkja. Ut úr gömlum vörugámi berast af mikl- um styrk glamurtónar nýjustu út- varpsstöðvarinnar, og í hröktum pappakassa liggja hnípin og visin kálhöfuð í norðankalsanum. Það er engu líkara tilsýndar en að það hafi farist flugvél á Fagradalsbraut- inni, eða eitthvað annað skelfilegt skeð. Hvað á allt þetta að þýða ? Nógu slæmt var það áður, en mesta furðu vekur að samtök bænda skuli standa fyrir síðustu viðbótinni í þessu uppátæki. Hvar er nú bænda- sem allar ferðaskrifstofur vilja svo gjarnan gera að féþúfu. Og þar með er sú atvinnugrein orðin rétt eins og fiskveiðarnar: Sóknin má ekki verða of mikil, ef halda á því stigi hæfilegrar rányrkju að ekki saki síðar. Þó er það þannig, meðal annars í því landi sem ég gisti nú, að ferða- þjónusta er eina atvinnugreinin sem vex að mannafla. Og vaxtar- broddurinn er ekki sá hluti starf- seminnar sem byggist á landtraðki. Allra mest vex ferðaþjónusta byggð á menningarstarfsemi. Ef til vill mun koma fram á sjónarsviðið ný kynslóð Islendinga sem byggir jöklafræðisafn og rann-sóknastofn- un í jökulhlaupafræðum í Skafta- felli, þar sem fólk getur komið og séð undrin öll sem búa í þessu landslagi: Skynjað stór jökulhlaup og umbrot undir ísnum. Séð líkan af landinu undir jökli. Slegist í för með smalanum frá Skaftafelli á leið heim af Möðrudalsfjöllum, eða skessunni í Skaftafellsfjöllunum sem Þorsteinn tól glennti sig í spor- in eftir, með frægum afleiðingum. Eða sundriðið vötnin með Þórbergi vatnadaginn mikla. Það eru áhrifa- miklar upplifanir, og ef litið er til útlendra ferðamanna þá skynja þeir kraftinn í slíkum hlutum. Hins veg- I Morsárdal. ar er þeim mörgum hverjum ís- lenskur torfærutúrismi næsta óskilj- anleg ósvinna. Þegar ég fór af landi brott eftir allt of stuttan stans heyrði ég þess getið að haldin væri heræfing á Islandi. Stórar heyrúll- ur væru fluttar inn á örfoka hálend- ið til að andæfa uppblæstri. Uti hjá Stokksnesi var saman komið eitt þyrluhlass af rosknum heimavarn- armönnum úr einhverri pennsyl- vaníunni í Ameríku, til að verja eða Mynd: Þórhallur Pálsson. verjast. Þá laust þessari bjánalegu hugsun niður í mig: Skyldu þessir rosknu heiðursmenn frá fjarlægu stórveldi, með fésið málað grænt, norpandi úti á sandinum við Stokksnes, geta varið einn lítinn jakobsfífil? Hver getur annars varið allar Eyrarósirnar okkar ? Hvernig er yfirleitt hægt að verja íslenska eyðisanda fyrir traðki allra þeirra manna sem ekki skynja og elska þetta land ? Mynd: Þórhallur Pálsson. smekkvísi til í orðfæri sínu, sem betur fer. Það má velta því annars fyrir sér hvers vegna póstkort sem seld eru á Islandi sýna nær alltaf bara ó- byggðir eða þá fugla og blóm. Næstum aldrei byggt umhverfi, nema þá séð úr mörg þúsund feta hæð! Reyndar fór ég suður eftir tveggja vikna dvöl á Egilsstöðum, og naut sólar og útivistar sunnan jökla. Þar um slóðir hafði þetta ó- venjulega veðurlag haft þurrka í för með sér, svo að moldin rauk. Eyrarósin þekur breiðan aur Morsárdals að sumri og gerir þenn- an ótrúlega dal ótrúlegri en orð fá lýst. Skrautplantan sem finnst víst ekki annars staðar í Evrópu, en er þekkt fyrir vestan okkur, eins og straumöndin og himbriminn í fuglalífinu. Þvílík óhemju auðæfi sem þetta land á í fegurð! Þegar ég gekk áleiðis inn í Kjós- arbotn fór ég að velta því fyrir mér hvílík forréttindi það eru að geta verið þarna í friði og ró, geta geng- ið lengi, lengi og bara andað að mér öllum þessum ósnertanleika. Túrismi er annars merkileg skepna. Því fleiri sem finna upp á því að labba inn íslenska morsárdali og setja þar hver sitt litla spor, þeim mun minna verður úr töfrunum, Sendum öllum viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Kaupfélag Vopnfirðinga Mjólkursamlag Vopnfirðinga Sláturfélag Vopnfirðinga Vopnafirði

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.