Austri - 16.12.1993, Qupperneq 16
16
AUSTRI
Egilsstöðum, jólin 1993.
Minjasafnið Bustarfelli:
Svipmyndir frá lifandi
safnadegi
Þann 4. september í haust var efnt til lifandi safnadags í Minjasafninu á Bustarfelli og er það í annað
sinn sem slíkur dagur er haldinn. Félagskonur í kvenfélaginu Lindinni og aðrir velunnarar safnsins áttu
sinn þátt í að gera daginn eftirminnilegan og brugðu sér í spor formœðra-og feðra og sýndu gömul vinnu-
brögð. Eldur var á afli og eldsmiðir smíðuðu skeifur. I búrinu var strokkurinn skekinn og gestir fengu að
bragða flatbrauð með nýju smjöri. I eldhúsi steiktu “griðkonur” lummur á hlóðum og frá baðstofu barst
ilmur af nýmöluðu kaffi. Alls staðar um bœinn mátti sjáfólk að vinnu. Það var ofið, spunnið, prjónað og
kembt. Þarfasti þjónnin var með í leiknum. Gestir fengu að sjá reiðkonu í söðli klœdda aðfyrri tíma hœtti
og börnum og fullorðnum gafst kostur á að bregða sér á hestbak. Alls heimsóttu Bustarfell um 200 manns
þessa dagstund. Margir reyndu hœfni sína í gömlum vinnubrögðum og var strokkurinn þar einna vin-
sœlastur. Safnadagurinn hefur mœlst velfyrir og er fyrirhugað að hann verði árviss viðburður. BE/AÞ
Myndir: Methúsalem Einarsson.
Bærinn á Bustarfelli er með reisulegri torfbæjum á landinu, en hann er að stofni til frá
því 177o. Búið var í bænum fram til 1966 og gerir það hann um margt sérstakan. þar er
t.d. að finna öll byggingarefni íslenskrar byggingarsögu, steinsteypu, timbur, torf og
grjót.
Skyldi eitthvað vera aðfrétta núna?. Frið-
jón Gunnlaugsson rifjar upp vinsœla
dægradvöl úr sveitinni frá fyrri tíð.
A safnadeginum voru sýnd gömul reiðtygi og reiðfatnaður. 1 söðlinum situr Anna Sig-
urðardóttir, húsfreyja á Felli, Sigríður Sigþórsdóttir, heimasœta á Búastöðum stendur
hjá.
“Járnið skaltu hamra heitt”.
Eldsmiðir við skeifusmíði. F.v. Sigurður Helgason, Hrappsstöðum og Gunnar Runólfs-
1 hlóðaeldshúsinu voru bakaðar lummur. Þórunn Egilsdóttir, húsfreyja á Hauksstöðum
býður ungum gesti að bragða á góðgœtinu.
Alltaf bœtir blessað tóbakið sjónina og
skerpir hugsunina. Vilmundur Gíslason,
sveitarstjóri, mundar tóbaksjárnið af
“fagmennsku ’’.
Tekið til höndunum við tóskapinn. Vil-
hjálmur Sigfússon sýnir réttu handtökinn.
Prestmaddaman á Hofi, Anna María Pálsdóttir, slœr vefinn aflist. Vefstóllinn er talinn
verafrá 19. öld eða eldri.
I baðstofu hellti Sigríður Bragadóttir, húsfreyja á Síreksstöðum upp á nýmalað kaffi.
Hér þyggur Anna Sigurðardóttir 10 dropa í bollann.