Austri


Austri - 16.12.1993, Qupperneq 27

Austri - 16.12.1993, Qupperneq 27
Egilsstöðum, jólin 1993. AUSTRI 27 Ósímm öííum AustfLrcKngum, féíagsmönnum og viðskiptavinum gíeðiíecjra jóía ogfarsceidar d komandi ári. Atvinnuþróunarfélag Austurlands Atvinnuþróunarsjóöur Austurlands og Ferðamálasamtök Austurlands. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi sendir Austfirðingum og Héraðsbúum bestu jóla- og nýárskveðjur og þakkar samstarf og samskipti á árinu sem er að líða. Stndum Austfirðmíjum okkar bestujóía- oq nýárskveðjur. Martvís hf. HAMRABORG 5 • 200 KOPAVOGUR SÍMAR: (91) 641545-641550 SÍMAFAX: (91)41651 Gunnar Hersveinn: Sólmiðjukenning um byggingu Byggingin sem mig dreymir um er lík sólstjörnu í miðju sólkerfi sem allir aðrir himinhnettir snúast í kring- um. Ég tel að hver borg, bær, þorp og kaupstaður þurfi á slíkri byggingu að halda. Byggingin væri ljósið í bænum sem drægi fólk til sín og veitti því andlega næringu. Hún væri stór og fögur á að líta. Máluð öllum regnbogans litum. Sumar byggingar og hús hafa útlit sem segir: “Gangtu framhjá. Ég hef engan áhuga á að fá þig inn í mig’’. En þessu væri öfugt farið með sólbygginguna. Hún segði: "Komdu inn, vertu velkominn og njóttu þess sem ég hef upp á að bjóða”. Ókostur flestallra bæja og kaup- staða á Islandi, og eflaust í fleiri löndum, er að þeir vaxa skipulags- laust. Þeir eru óreiðan sjálf. Skipu- lagið kemur iðulega of seint og í smáskömmtum, og alltaf vantar aðal- bygginguna. Einu sinni ríkti það við- horf að kirkjubygging ætti að vera hjarta hvers staðar. Hún var það, en svo er ekki lengur. Glæsilegar versl- unarhallir stungu hana í hjartastað. En það er ekki mjög andlega þrosk- andi að vera inni í verslunarbygg- ingu, hvort sem hún heitir Kringlan eða Kleinan, þó vínandi fáist keyptur á báðum stöðum. Það vantar öðruvísi byggingu. I hverjum kaupstað eða bæ ætti að vera sérhönnuð bygging sem getur geymt: 1. Almenningsbókasafn og þægilega lesstofu. 2. Héraðsskjala- safn. 3. Minja- og fræðslusafn. 4. Kvikmyndahús. 5. Kaffistofu. 6. Listhús (gallerí). 7. Tónleikasal. 8. Leikhús. 9. Matsölustað. Þetta hús væri miðjan sem íbúarnir myndu snúast í kringum. Það væri lifandi og sístarfandi. Fólk streymdi inn í það til að lesa, skoða, leita, spjalla yfir kaffibolla, horfa á leikrit, hlusta á skáldskap, sjá kvikmynd, fræðast og nærast. Það væri menningarmiðstöð í víðtækri merkingu þess hugtaks. Við þurfum nauðsynlega á svona bygg- ingu að halda. Rómverjar höfðu hringleikahús, við þurfum fjöllista- hús. Hvernig á góður bær að vera? Mælikvarðinn sem notaður er til að svara þessari spumingu mælir vellíð- an íbúanna. Hann á að vera þannig skipulagður, frá svæði til svæðis, götu til götu, húsi til húss, að fólkinu geti liðið sem best. Umhverfi fólks í þéttbýli þyrfti því að vera hugsað frá upphafi til enda með tilliti til þess að það rækti með sér félagsskap en glápi t.d. ekki viðstöðulaust á sjón- varp. Imyndum okkur að við hefðum tækifæri til að hverfa 50 ár aftur í tímann, og fengjum það hlutverk að skipuleggja t.d. Egilsstaði frá grunni sem 1500 manna bæ. Hvernig mynd- um við gera það? Ég er viss um að margir gætu komið með góðar tillög- ur. Hvernig ætli draumabærinn liti út? Ég veit hvernig ég myndi gera þetta. Gera hring, kveikja eld inni í honum miðjum og reisa byggingu. Hún yrði hjarta bæjarins og aðal- æðar hans myndu liggja að henni og frá. Fólk myndi streyma gegnum hjartað dag hvern, og það dæla and- legri næringu. Hjarta bæjarins pump- ar og mætti ekki stöðvast. Ef það hætti að slá, hætti fólkið að lifa. Þessi miðjubygging myndi senda geisla sína út um allan bæinn og lýsa hann upp. Það væri alltaf eitthvað um að vera. Sumir kæmu þangað til að njóta, aðrir til að skapa. Þannig ættu bæir að vera. Ibúar kaupstaða í Austurlandsfjórðungi ættu nú þegar að taka frá svæði og merkja það sinni miðjubyggingu. Hana vantar tilfinnanlega. Byggjum sprelllifandi hús sem segir JA en ekki NEl. Ég legg til að öll börn á Austur- landi verði látin leysa eftirfarandi verkefni á næstu skólaönn: “Þið eig- ið að skipuleggja og teikna upp mynd af draumabænum/kaupstaðn- um ykkar.” Foreldrar geta nú þegar lagt þetta verkefni fyrir. Svo geta þeir einnig farið að láta sig dreyma. Það besta við lífið er að stundum verður draumur að veruleika, teikn- ing að húsi og hverfi. Hvers vegna ætti þá draumabær ekki að geta orðið að steinhörðum bæ með lifandi miðju? Við erum öll börn og þess vegna þurfum við alltaf á því að halda sem börn þurfa á að halda; bókum, bíó, leik, teikningu, sköpun, tónlist, leik- list, myndlist, sögum og andlegri og líkamlegri næringu. Miðjan í hverj- um bæ ætti að vera eins og miðjan í hverjum manni: Skapandi bam. Þykkir og þunnir sokkor úr ull, bómull, íslenskri ull, ongóroull, o.fl. í þrottón ór hofo flestor sunnlenskor verslonir selt sokkono fró Víkurprjóni hf., og flestir íslendingor þekkjo þó of eigin roun. Pegsur, þgkkor og þunnor, húfur, vettlingor, treflor, sjónvorpsskór, nserföt, ollt úr íslenskri ull. Sérstoklego hlýleg og góð jólogjöf til erlendro vino og kunningjo. VIKUR P PRJÓN / Smiðjuvegi 15, 870 Vík, Sími 98-71250.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.