Austri - 16.12.1993, Qupperneq 29
Egilsstöðum, jólin 1993.
AUSTRI
29
Land og saga
Getraunin er fólgin í, að finna út
ömefni eða bæjarnöfn 9 staða á
Austurlandi. Lýst er í stuttu máli
landfræðilegum aðstæðum og kom-
ið inn á sögu viðkomandi staða.
Þegar tekin er fyrsti stafurinn í
hverju nafni eiga þeir í réttri röð að
mynda nafn á 771 m háu fjalli sem
frægt er fyrir steinaflóru sína. A
tind þennan er stutt að ganga frá
skarði, sem hæsti fjallvegur lands-
ins liggur um. Lausnir þurfa að ber-
ast til blaðsins fyrir 25. janúar n.k.
Dregið verður úr réttum lausnum
og bókaverðlaun veitt.
Fyrrum býli í afskekktum há-
lendisdal. Svæðið er nú friðlýst af
Náttúruvemdarráði. Á síðustu öld
var býli þetta þrisvar í ábúð, lengst
á síðari hluta aldarinnar, eða frá
1883-1897. Veturinn 1848 braut
snjóflóð niður bæinn og varð bónd-
anum og tveimur börnum hans að
fjörtjóni. Húsmóðirin og dóttir
hjónanna björguðust og komust
þær mæðgur við illan leik til
byggða.
Fallegur gróðurreitur sem
markast að utanverðu af á sem fell-
ur bæði á sýslu- og hreppamörkum.
Gróðurreiturinn teygir sig upp með
tilkomumiklu árgili og þar þykir
trjátegundin Betula sérstaklega fal-
leg. Reiturinn er í landi býlis sem
frægt er úr fomum sögum og bar
það upphaflega nafnið Lokhilla.
Gamalt býli við sjó á norðan-
verðu Austurlandi. Bærinn stóð á
litlu nesi undir fjalli, sem ber nafn
af víkinni neðan undir. I fjallinu
ofan við víkina er mikið af libaríti
og má þar m.a. annars finna
baggalúta. Bærinn var ekki í alfara-
leið og ef farin var landleiðin til
næstu bæja var um fjallvegi að
fara. I víkinni voru hinsvegar nátt-
úrleg hafnarmannvirki og mun það
hafa ráðið miklu um búsetu þar.
Fjallaskarð á Suðausturlandi,
fyrrum alfaraleið þeirra sem fóm
fótgangandi í verslunarerindum.
Austan undir skarðinu stóð fram
undir síðustu aldamót fjölsóttur
verslunarstaður. Skarðið er í fjalli
sem gnæfir yfir vík sem við það er
kennd. Þaðan voru fyrrum stundað-
ir útróðrar og voru Norðlendingar
þar fjölmennir fyrr á öldum.
Dalur sem afmarkar norðurhlið
megineldstöðvar. Um hann liggur
þjóðvegur til fjölmenns byggðar-
lags við sjávarsíðuna. Dalurinn er
austastur þriggja dala sem skerast
upp frá firði á norðanverðu Austur-
landi. Þar er m.a. að finna ömefnið
Blóðbrekkur sem vitnar um
aldagamla harmsögu.
Foss stutt frá þjóðvegi á miðaust-
urlandi. I lýsingu er komist svo að
orði að umgjörð hans minni mest á
veglegt kirkjuorgel. Fossinn fellur
fram í tveimur þrepum. Ofar í ánni
er að finna annan mun þekktari
foss sem fellur fram af heiðarbrún,
undir fossúðanum gefur að líta set-
lög sem lesa má úr jarðsögu fyrri
tíma.
Strýtulaga móbergshóll, staðsett-
ur í gróðurvin á öræfum á norð-
austurlandi. Nafn strýtunnar er að
hluta til dregið af lagi hennar. Á
sömu slóðum er melur þar sem
lengi mátti sjá blásin hrossbein
sem urðu skáldinu Jóni Stefánssyni
efni í sögu. Jón fann ásamt fleirum
kofarústir útilegumanna á þessum
slóðum árið 1880 og er talið að þar
hafi Eyvindur og Halla hafst við.
Bærinn dregur nafn af landnáms-
manni, sem kenndur var við þjóð
sem annars kemur lítið við sögu
landnáms Islands. Hann stendur við
ósa fljóts og er talið að eftir því
hafi fommenn siglt skipum sínum.
Ekki langt frá bænum er að finna
helli þar sem sagt er að vermenn
Margrétar ríku hafi hafst við.
Á sem kemur úr heiðarvatni. Um
hana eru hreppamörk tveggja sveit-
arfélaga. Áin er hluti af stærra
vatnasvæði og stendur samnefndur
bær skammt frá ósi hennar. Þekkt
skáld fætt á 19 öld hefur í haglega
gerðri vísu lýst glímu sinni við fljót
þetta. AÞ
Eldvarnarátak 1993
20 VERÐLAUN f BOÐI.
ÖRYGGISHJÁLMUR FRÁ LEIKBÆ, BLIKKANDIENDUR-
SKINSMERKI Á REIÐHJÓL OG REYKSKYNJARI OG SÉR-
STAKT VIÐURKENNINGARSKJAL LANDSSAMBANDS
SLÖKKVILIÐSMANNA.
Eldvarnargetraun barnsins!
Vísbending við 1 spurningu.
Neyðarsímanúmer.
Á neyðarstund er mikilvægt að
símanúmer neyðarþjónustu sé ein-
falt og auðvelt að muna. Hvemig er
neyðarsímsvömn nú háttað í land-
inu. Núverandi kerfi er þannig að
lögreglan hefur síma 0112 í
Reykjavík, Seltjamamesi, Mos-
fellsbæ og slökkviliðið og sjúkra-
flutningar 11100 til vara 0122 al-
mannavamir 22040 eða 11150. Vit-
að er að í landinu eru tugir síma-
númera, sumir segja jafnvel 170,?
sem þjóna því hlutverki að vera
neyðarnúmer. í brennandi húsnæði
eða við önnur neyðartilvik,
t.d.líkamsárás, er öruggara að hafa
eitt númer, stutt og einfalt, sem
auðvelt er að muna.
HVAÐ SKAL GERA EF ELD-
UR VERÐUR LAUS?
VARIÐ ALLA VIÐ.
ELDUR ER LAUS.
SJÁIÐ UM AÐ ALLIR FARIÚT.
HRINGIÐ f NEYÐARSÍMA-
NÚMER SLÖKKVILIÐSINS.
SEM ER 11222.
Tilkynnið hvar er að brenna, tak-
ið á móti slökkviliðinu er það kem-
ur á staðinn og gefið nánari upplýs-
ingar ef þær eru fyrir hendi.
Á undanfömum ámm hafa augná-
verkar af völdum flugelda orðið al-
varlegri en áður. Algengast er mar
á auga, yfirleitt með blæðingum
inn í auganu. Oft er um varanlega
skemmd að ræða með sjónskerð-
ingu.
Samfara þessu geta fylgt brot í
andliti og í verstu tilfellum hefur
þurft að fjarlægja augað.
í rannsókn sem augnlæknamir
Haraldur Sigurðsson, Guðmundur
Viggósson og Friðbert Jónasson
gerðu og birt var í Læknablaðinu
desember-hefti 1991, kemur fram
að algengasta orsök augnáverka um
áramót voru flugeldar. Tívolíbomb-
ur, blys og hvellhettur deildu öðru
sæti. Flestir hinna slösuðu voru
börn og unglingar.
Flest slysanna urðu um áramótin
1987-1988 í kjölfar notkunar öfl-
ugri skotelda, svokallaðra tívolí-
bomba. Þá slösuðust fimm einstak-
lingar alvarlega á auga, þar af þrír
vegna tívolíbomba. Töluverðar um-
ræður og blaðaskrif urðu þá um
hættuna af notkun flugelda og í
framhaldi af því voru tívolíbombur
bannaðar.
FORELDRAR !!!
LÁTUM LÍTIL BÖRN ALDREI
BERA ELD AÐ FLUGELDUM
OG BLYSUM.
Greinarhöfundar segja að lokum
að aldrei verði og brýnt fyrir for-
eldrum að fylgjast vel með börn-
um, bæði þeim sem sjálf eru að
verki og hinum sem nærstödd era
þegar farið sé með flugelda, blys
eða sprengjur.
Má í því sambandi einnig benda
á nokkrar grundvallarreglur sem
hafa ber í huga við upphaf nýs árs.
Fyrst er að nefna að aldrei skal
haldið á blysum nema leiðbeining-
ar gefi til kynna að það sé í lagi.
Standið þá þannig að vindurinn sé í
bakið og beinið blysinu frá ykkur.
Gætið að því að enginn verði fyrir
neistaflugi eða eldkúlum sem koma
úr blysum og notið hanska. Þá skal
minnt á að skjóta flugeldum jafnan
úr stöðugri undirstöðu og víkja vel
frá. Beygið ykkur ekki yfir skoteld
sem þið ætlið að kveikja í verið til
hliðar og víkið vel frá. Þegar búið
er að brenna út gamla árið er sjálf-
sagt að taka til og kasta í ruslið öll-
um umbúðum og óbmnnum hlut-
um. Geymið flugelda á ömggum
stað og þar sem börn ná ekki til.
Flugelda á ekki að geyma á milli
ára. Ef ykkur tekst ekki að skjóta
öllu upp um áramótin, ljúkið því þá
á þrettándanum.
SVÖR ÞURFA AÐ PÓST-
LEGGJAST FYRIR MIÐ-
NÆTTI 31.DESEMBER 1993.
SENDIST TIL
LANDSSAMBANDS
SLÖKKVILIÐSMANNA.
PÓSTHÓLF 4023
124 REYKJAVÍK.
SONY 29" stereo, text sjónvarp
SONY geislaspilarar, ferðageislaspilarar
SONY My first Sony kassettutæki fyrir börnin
SONY vasadiskó m/útvarpi
PANASONIC hljómtækjasamstæða
PANASONIC örbylgjuofn
PANASONIC ferðakasettutæki
Hinar sívinsælu Segamegadrive leikjatölvur
Leikir: Aladin, Indiana Jones o.fl.
SAMSGNG 14" sjónvarp
SAMSGNG 21" text sjónvarp
Tölvuvörur frá EJS
ACIDIO SONIC heyrnartól
Allt fyrir gítarleikarann: neglur, strengir, ólar,
snúrur. Mikið úrval tengja, allt fyrir
loftnetsuppsetningar.
Traust viðgerðaþjónusta á
rafeindatækjum.
„Aðeins það besta fyrir þig það vitum við“
Opið: mánud. - föstud. kl. 9-18, aðfangadag kl. 9-12,
laugard. kl. 10-23.
Selási 13,
Egilsstöðum
Sími12450
Myndsendir 12451
Notið slökkvitæki á staðnum til
að hefta útbreiðslu eldsins þar til
slökkviliðið kemur. Ef tími leyfir,
lokið hurðum og gluggum til að
hefta útbreiðslu eldsins þar til
slökkviliðið hemur.
FORELDRAR ATHUGIÐ.
Skiljið lítil börn aldrei ein eftir.
Setjið límmiða á símtækið á
heimilinu með NEYÐARSÍMA-
NÚMERI lögreglu og slökkviliðs.
KENNIÐ BÖRNUM OG UNG-
LINGUM HVERNIG OG
HVENÆR Á AÐ HRINGJA í
NEYÐARSÍMANÚMERIÐ
11222.
Vísbending við ó.spurningu.
Augnslys bama og unglinga um
áramót.
K
MEINSF'ÉLAGSINS 19 9 3
T
I
I þetta sinn voru miðar sendir konum, á aldrinum 23ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
sem þegar hafa borgað miðana og minnum hina á góðan málstað og verðmæta vinninga.
Greiða má í banka, sparisjóði eða póStafgreiðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
Vakin er athygli á því að hægt er að borga með greiðslukorti (Visa, Eurocard).
Hringið þá í síma (91) 621414.
. |
Hver keyptur miði eflir sókn og vörrí gegn krabbameini!