Austri


Austri - 12.12.1996, Blaðsíða 9

Austri - 12.12.1996, Blaðsíða 9
Jólin 1996 AUSTRI 9 svo góðan að sýna salinn og taka röð af myndum. En þama í fyrra gerðist það að einhver geysimikill listamaður var með kvikmyndavél, sennilega mjög snjall. Honum fannst greinilega helv... leiðinlegt að taka vélina bara upp og sýna þessar myndir. Þá var sett á poppmúsík og svo fór hann nær og fjær og velti vélinni. Maður varð bara sjóveikur. Hann eyðilagði þetta eiginlega al- veg fyrir manni. Maður fer að vísu stundum nálægt, það getur verið allt í lagi. En þetta mætti sjónvarpið gera, sýna svona fimm mínútur frá sýn- ingum. Þetta væri mikill munur fyr- ir landsbyggðarfólk. Það er hægt að segja eitthvað frá listamanninum á meðan. Svo þarf ekki einu sinni að gera þetta strax og sýningar opna, það má vera eftir t.d. viku. Maður gæti þá þess vegna skroppið suður ef eitthvað væri verulega áhugavert. Annars hefur maður stundum á tilfinningunni með byggðir eins og Breiðdal og Stöðvarfjörður og svona smærri staði, að eiginlega sé verið að afskrifa þetta. Það er t.d. eitt sem við höfum áhyggjur af hér núna að einhver þingsályktunartillaga verður senni- lega lögð fyrir þingið í vetur þess efnis að leggja Héraðsdýralæknis- embættið niður. Það er í anda hinnar nýju trúar um frjálsa samkeppni. Eg hef kynnst því þegar engin sam- keppni var í neinu nánast og engin þjónusta. Maður þurfti að betla alla hluti og maður var heppinn ef eitt- hvað fékkst. Eg er búinn að vera það lengi hérna. Það hefur margt breyst þannig og það eru til fyrir- tæki sem keppa og maður fær góða þjónustu. En að leggja stöðu Héraðsdýra- læknis á Breiðdalsvík af þýðir að okkar næsti dýralæknir er á Egils- stöðum eða Höfn. Það fer engin prí- vat dýralæknir á Breiðdalsvík, hann lifir ekki þama, hefur of lítið kaup. Þetta er mjög slæmt. Ef hestur t.d. fær hrossasótt þá þarf maður að fá aðstoð strax. Ef þetta gerist að vetri og svona gerist helst þá, þegar hrossin eru inni á gjöf, hvað gerist þá. Eg á enn ekki byssu, en ég veit það að þá fær maður sér byssu. Það var nágranni minn sem sagði að bændur hefðu ekki efni á að kalla á dýralækni frá Egilsstöðum ef eitthvað væri að kind. Hún yrði bara skotin. Hrossasótt kemur t.d. alltaf fyrir á nánast hverjum bæ einhvem tímann á hverjum vetri. Lyf við henni er gefið í æð og er mjög gott. Ef bænd- ur ættu að gefa þetta sjálfir þyrftu þeir að fá þjálfun í því, en svo mega þeir það ekki og myndu kannski gera einhverja bölvaða vitleysu. Ef þetta embætti væri aflagt myndu bændur á svæðinu frá Djúpavogi og á Fáskrúðsfjörð verða án þjónustu. Sjáðu pósthúsin, hvernig verður það. Þeir ætla að koma þeim fyrir í einhverjum búðum. Bankinn er op- inn eftir hádegi, hann var einhvem- tíma opinn allan daginn. Það var reglulegt flug á Breiðdalsvík, það er alveg búið. Maður er að vísu með tölvutengingu við bankann og það hjálpar mikið til. Það er svo margt sem bendir til þess að of lítill áhugi sé fyrir sveit- unum. Það er svo lítil hvatning til að skipta sér af þessu. Hér eru svo fá atkvæði. Framsóknarflokkurinn á orðið svo marga kjósendur á Suð- vesturhominu og landsbyggðin, það er mjög dreifðar byggðir, þetta er ekki lengur eins mikilvægt. Þetta á reyndar við um alla flokka. En t.d. ef dýralæknisembættið verður aflagt er einni stoðinni kippt undan búskap hér. Egilsstaðir eru ekki langt í burtu, en það er bara það að maðurinn verður að vera fá- anlegur fljótlega. Hann getur þess vegna verið á ferðinni í Borgarfirði og ekki komist fyrr en eftir marga tíma. Ef svona kemur fyrir verð- mætustu gripina á bænum, ef t.d. tvær eða þrjár hryssur em undirstað- an í búskapnum. Ef þær drepast Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrajóla ogjarsældar á nýju ári. PÓSTHÓLF 50, 620 DALVÍK, SÍMI 466 1670, BRÉFSÍMI: 466 1833, GRÆNT SÍMANÚMER: 800 8670 vegna þess að eigandinn kemst ekki í lyf og enginn dýralæknir kemst, þá er starfsemin þeim mun veikari. Ef mjög margt gerist í þessum dúr gæti maður farið að hugsa sér til hreyfings. Fyrir tveimur árum vom hér tveir þýskir listamenn og annar fór héma upp á hól og sagði: „Þetta er einn fallegasti staður á jarðríki." Ef bú- seta á svona stöðum leggðist af yrði allt svo miklu fátæklegra. Það er afskaplega „brútalt" að ganga út frá því að 10.000 manna byggð sé það sem á að heita lífvæn- legt eða þó að það sé bara 2.000 manns og hinu megi í raun gleyma. Þetta er andsk... hart, þessi hugsana- háttur. Menn líta ekki á aðstæður á hverjum stað. Þeir sem hugsa eitt- hvað lengra, sjá að óhentugt er að ætla að troða öllum á einhvern smáskika. Alla vega þýðir ekkert að reka mig þangað." sbb Sagan af Skrautu Út er komin barnabókin Skrauta eftir Hákon Aðalsteins- son. í sögunni, sem er ætluð börnum á öllum aldri, rifjar höfundur upp æskuminningar sínar um kúna Skrautu. Sögu- hetjan er fyrirmyndar mjólkur- kýr á Hrafnkelsdal, sem á við þann vanda að stríða að vera haldin ólæknandi fíkn í tuskur. Auðvitað er kusa tekin í „með- ferð“ og af því verður til saga. Hákon hefur ekki áður sent frá sér bók í lausu máli, en út hafa komið eftir hann tvær ljóða- bækur, Bjallkolla og Oddrún. Sagan af Skrautu er mynd- skreytt af Sigrúnu Jónsdóttur. KORFUBOLTI 1. DEILD: Höttur vinnur og tapar í baráttu við botnliðin Síðustu helgina í nóvember tók Höttur á móti Iiði Ungmennafélags Stafholtstungna, sem var þá í næstneðsta sæti deildarinnar. Leikurinn var hálfgerður barningur frá upphafi til enda, það tók heimamenn þrjár mínútur að finna leið- ina í körfuna og gestina fjórar. Höttur tók síðan frum- kvæðið og um miðjan fyrri hálfleik höfðu þeir náð sext- án stiga forystu, en Borgfirðingamir náðu henni niður í tvö með góðri baráttu og hittni á síðustu mínútum hálf- leiksins. Shahid skoraði síðan níu fyrstu stig síðari hálf- leiksins og náði þar með þeirri forystu sem Höttur hélt að í stórum dráttum til leiksloka, en leiknum lauk með sigri Hattar 89:77. Þrátt fyrir töluvert stigaskor, var leikurinn lítið fyrir augað og eins og leikmenn og áhorfendur væru óþarf- lega vissir um hvar sigurinn myndi lenda. Shahid skor- aði mest að vanda eða sín 37 stig. Unnar var drjúgur og gerði 20 stig og Birkir átti sinn besta leik í vetur og gerði 16 stig. Viggó gerði 9 stig, Héðinn 3 stig og Hannibal og Ragnar 2 stig. Um liðna helgi heimsóttu svo Hattarar hitt botnliðið, Iþróttafélag stúdenta, sem vermt hefur botninn í deild- inni og hafði fram að þeim tíma ekkert stig hlotið. Er skemmst frá því að segja að Hattarar virtust hafa gleymt bæði baráttuandanum og hittninni heima, meðan and- stæðingarnir höfðu margfaldað hvort tveggja frá fyrri leikjum. Niðurstaðan varð þriðja græna skýrsla vetrar- ins, því IS vann með xx stigum gegn 69 stigum Hattar og náði í sín fyrstu tvö stig, sem út af fyrir sig má sam- gleðjast þeim með, þótt betra hefði verið að þeir hefðu nælt sér í þau annars staðar. Þeir sem skomðu fyrir Hött voru: Shahid 36 stig, Guðjón 11, Jón Bender 7, Viggó 5, Styrmir 4, Unnar 3, Hannibal 2 og Ragnar 1 stig. Næsti heimaleikur við Snæfell A laugardaginn 14. desember mæta Hattarmenn liði Snæfells frá Stykkishólmi hér á Egilsstöðum. Hólmarar byrjuðu tímabilið ekki vel með tapi á heimavelli gegn Hetti, en hafa staðið sig þokkalega síð- an og eru sem stendur í öðru sæti með tvo leiki tapaða og hafa einir sigrað Valsara. Þjálfari þeirra er okkur að góðu kunnur; Karl Jónsson, en hann lék hér með Hetti fyrir þremur ámm. Hólmarar hafa fengið til liðs við sig nýjan Kana og þykjast vafalaust hafa harma að hefna. Ef Hattarmenn ná að hrista af sér doöann, sem yfir þeim var í leikjunum við botnliðin, er ekki vafi á að þeir hafa alla möguleika á að endurtaka leikinn frá því í haust, sigra Snæfell á laugardaginn og komast þar með aftur upp að hliðinni á þeim á stigatöflunni. Kaupfélag Austur- Skaftfellinga óskar félagsmönnum og öðrum viðskiptamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökkfyrir viðskiptin og samvinnuna á árinu sem er að líða.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.