Austri


Austri - 12.12.1996, Síða 12

Austri - 12.12.1996, Síða 12
12 AUSTRI Jólin 1996 Már Karlsson Þannig verður sagan til Erindi flutt í sextugsafmæli Þorsteins Sveinssonar 2. maí 1984 Dagurinn 24. nóvember 1948 rann upp sem flestir aðrir dagar skammdegisins, þungbúinn með kulda í lofti og snjóföl á jörð. Það er lítið um að vera í þorpinu á þessum árstíma. Sláturtíð er um garð gengin og ógæftir hamla veiðum. Bátamir liggja í bólum sínum úti á Vognum og toga í múminguna svo að marrar í taumunum. Uppi í fjörunni liggja uppskipunarbátarnir Alfa og Ingólf- ur og hafa lokið hlutverki sínu með tilkomu nýrrar hafskipabryggju. Þessir góðu farkostir hafa um margra áratuga skeið verið hluti af tilverunni, eins og formenn þeirra, Malli í Hlíðarhúsi og Aðalsteinn í Svalbarði. Nokkrir píreygðir mávar vappa um á mæni Löngubúðarinnar í eintómu tilgangsleysi, að því er virðist, eða kannski em þeir bara að bíða eftir Hlöðver í Sunnuhvoli. Léttir mótorskellir berast frá mót- orskúr kaupfélagsins, bergmála í Hjallaklettinum og rjúfa morgun- kyrrðina á plássinu framan við gömlu verslunarhúsin. Hár, þrekvaxinn maður með brún- an hatt á höfði kemur lallandi niður plássið að búðarhurðinni, snýr lykli og snarast inn. Stuttu seinna hverf- ur gamla brúna krossviðarspjaldið frá glugganum á útidyrahurðinni. Klukkan er níu að morgni og Gútti í Sólhól búinn að opna búðina. Innan frá fremri kontómum berast háir og hvellir eldfjörugir blísturs- tónar, samansettir í syrpu af gömlu og nýju lögunum, ásamt tónum frá eigin brjósti. Þar er Kjartan Karls- son gjaldkeri mættur til starfa sinna. Uti í portinu í Löngubúðinni stendur gamall maður, lágvaxinn og grannur með mikið yfirvararskegg. Hann heldur á stórri lyklakippu sem hringlar í þegar hann hreyfir sig. Þetta er Aki í Brekku, en það er með hann eins og Pétur í Gullna hliðinu að hann hefur engin völd, en honum er treystandi fyrir öllum hurðum gömlu einokunarhúsanna. Hann er einn af þeim fáu sem bæði hefur kynnst faktorunum og kaup- félagsstjómnum. Hann þekkir pláss- ið og gömlu húsin eins og finguma á sér. Fátt fólk er á ferli í þorpinu fyrr en upp úr hálftíu, en þá eru þeir búnir að hafa talstöðvarsamband, Gísli í Hrauni og Gísli í Papey. Þessum samtölum á bátabylgjunni má enginn lifandi maður missa af. Betra er að sleppa fréttunum í út- varpinu en samtali þeirra nafna. Það kveður svo fast að ofnotkun gömlu Philips-útvarpstækjanna hér um slóðir að Gísli í Papey kvartaði eitt sinn við Ingibjörgu, konu Gísla í Hrauni, um að fremur illa heyrðist til hennar. Ingibjörg hafði svör á reiðum höndum og sagði við óðals- bóndann í Papey: „Gáðu bara að því, maður, að hvert einasta mannsbarn á Djúpa- vogi, Alftafirði, Berufjarðarströnd er að hlusta á okkur. Þú getur rétt ímyndað þér hvað öll þessi útvarps- tæki draga mikinn styrk frá talstöð- inni, það verður bara að taka fyrir svona hlustunarbrjálæði, heyrir þú þetta, Gísli minn. Yfir.“ „Djúpivogur, Djúpivogur, Papey svarar, ég bið að heilsa nafna mín- um, vertu blessuð." Samtalinu er lokið. Að venju fjölgar mjög í búðinni upp úr hádeginu. Þeir sem fyrstir koma, raða sér í gluggakistumar, en aðrir setjast á búðarborðið, meðan pláss er. Gútti þarf alltaf einn til tvo rassa fyrir kúnnann. Það hefur spurst út að í dag muni stjórn kaup- félagsins koma saman til fundar á skrifstofu kaupfélagsstjórans, Gunn- ars Sveinssonar og ganga frá ráðn- ingu nýs eftirmanns hans. Enginn asi er á mannskapnum sem mættur er í búðina. Einhverjir reyna sig í krók, aðrir í kefli. Úti við púltið stendur yfir veðmál milli Stebba Hö og Þórðar á Veturhúsum. Stebbi býður Þórði 16 epli ef hann geti inn- byrt 2 kg af eplum á einni klukku- stund. Gútti er tekinn sem vitni að þessu veðmáli. Ef Þórður gefst upp verður hann að borga þau epli sem ofan í hann fara. Ef þetta aftur á móti hefst ætlar Stebbi að greiða allan kostnað. Leikar fara þannig að Hamarsdælingurinn innbyrðir tvö kíló á tilsettum tíma og fær 16 epli nicð sér heim í nestið. Síðdegis mæta stjórnarmenn kaupfélagsins í búðina, prúðbúnir og ábúðarmiklir á svip. Þögn slær á samkunduna. Gútti lyftir upp lúg- unni á búðarborðinu og býður stjórnarmönnum að ganga inn fyr- ir. Fyrstur fer stjómarformaðurinn, Helgi á Melrakkanesi og á hæla hans Elís á Starmýri, þeir koma sunnan frá Alftafirði á Chevrolet- vörubíl sem Elís er nýbúinn að kaupa. Þá hafa þeir Hjálmar í Fagrahvammi og Böggi í Kross- gerði komið yfir fjörð á trillubát Hjálmars, sem heitir Bera. Sigfinn- ur í Sjólyst, eini stjórnarmaðurinn úr Hálsþinghárdeild, rekur lestina. A honum er enginn asi. Stjórnar- menn hverfa hver á fætur öðrum inn fyrir búðarborðið og inn á fremri kontórinn. Þar inn af er kontór kaupfélagsstjóra. Eftir létt bank stjórnarformanns opnast dym- ar. Gunnar Sveinsson kaupfélags- stjóri býður komumenn velkomna og biður þá að gjöra svo vel að ganga inn fyrir. Kontór kaupfélags- stjóra er lítill og það kemur sér vel að engir risar eru í stjóminni. A þilinu móti glugganum hangir mynd af Þórhalli Sigtryggssyni, síðasta verslunarstjóra Örum og Wulff-verslunarinnar á Djúpavogi, undir stjóm Stefáns Guðmundsson- ar faktors. Arið 1920, þegar Kaup- félag Berufjarðar var stofnað, var Þórhallur ráðinn kaupfélagsstjóri og starfaði hann til ársins 1937, en þá tók hann við stjóm elsta kaupfé- lags landsins, Kf. Þingeyinga á Húsavík. Það er þröngt um stjómarmenn í þessu litla herbergi. Fimmtán kerta pera frá 5 hestafla bensínrafstöð kaupfélagsins lýsir daufri, en þægi- legri birtu yfir fundarmenn. Helgi Einarsson formaður ræskir sig og segir fund settan. Hann biður sveit- unga sinn, Elís Þórarinsson, um að skrifa fundargerð. Því næst tekur formaður fyrir eina málið á dagskrá, ráðningu nýs kaupfélagsstjóra í stað Gunnars Sveinssonar, sem hefur sagt starfi sínu lausu frá og með ára- mótum. Tvær umsóknir liggja fyrir um starfið, þær em frá A. V. og Þorsteini Sveinssyni á Djúpavogi. Eftir stutta umfjöllun samþykkir stjómin að ráða Þorstein Sveinsson næsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags Berufjarðar. Á hann að taka við störfum frá og með 1. janúar 1949. Því næst er Þorsteinn kallaður fyrir stjómarmenn og ráðningarsamning- ur undirritaður í tveimur samhljóða eintökum. Síðan er fundi slitið. Þannig gerðist sagan sem varð síðan stór hluti af ævisögu einstak- lings og kafli í sögu heils byggðar- lags. Algengt var hér um slóðir að nefna ákveðin tímabil eftir nöfnum þekktra verslunarstjóra. Þannig var t.d. sagt í tíð Wayvats og í tíð Þór- halls o.s.frv. Þorsteinn Sveinsson starfaði lengst allra kaupfélagsstjóra hjá Kaupfélagi Berufjarðar eða alls 19 ár. Þorsteinstíð, ef svo má að orði komast, er merkur kafli í at- vinnu- og verslunarsögu Djúpa- vogs. Þeir ungu menn sem réðust til starfa hjá Samvinnuhreyfmg- unni víða um land um svipað leyti og Þorsteinn Sveinsson hóf störf sín hér, mörkuðu heildar- stefnu hreyfingarinnar úti á landsbyggðinni við slæmar að- stæður og kröpp kjör. Sú stefna var mörkuð eftir eigin hugviti og í fullu samráði við fólkið á fé- lagssvæðunum. Þess vegna varð samvinnustarfið svo öflugt sem raun bar vitni. Ekki verður rakin hér og nú saga athafnamannsins Þorsteins Sveinssonar, kaupfélagsstjóra á Djúpavogi, en á það minnst að allur Austfirðingafjórðungur naut þekkingar hans og áræðni í útgerðarmálum, er hann sýndi mönnum fram á að hægt væri að fiska í þorskanet á djúpslóð við Austurland. Það var árið 1953 að m/s Víðir AK var keyptur til Djúpavogs. Víð- ir var 100 tonna bátur sem síðar hlaut nafnið Mánatindur SU 95 og hóf hann netaveiðar hér eystra með góðum árangri. Þorsteinn naut mik- ils trausts allra íbúa á félagssvæði kaupfélagsins og gæti ég trúað að hann hafi verið næstvinsælasti mað- urinn á svæðinu milli Streitishvarfs og Lónsheiðar. Sá sem vinsælli var, var Eysteinn Jónsson frá Hrauni. Sögð var sú saga hér um slóðir að ef tveir deildu, hefði stundum verið vitnað til Eysteins, ef menn vildu hafa betur. Ef það dugði ekki, hefði verið bætt við til að útkljá deiluna að fullu: „Hann sagði mér þetta hann Eysteinn og meira að segja Þorsteinn líka,“ og þar með var mál- ið afgreitt. Sendum starfsfólki og viðskiptavinum bestu jóla- og nýársóskir Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári. Búðin FELLABÆ 701 Egilsstöðum Sími 471-1700 & 471-1329 i_______________________________________________________ Þorsteinn Sveinsson kaupfélagsstjóri. Kontór kaupfélagsstjóra er lítill og það kemur sér vel að engir risar eru í stjórninni. Bátarnir liggja í bólum sínum úti á vognum og toga í múrninguna svo að marrar í taumunum. T ! m/s Víðir AK var keyptur til Djúpavogs árið 1953, og var þá stœrsti bátur sem vargerður útfrá Austfjörðum. Hann hlaut síðar nafnið Mánatindur SU 95 og hóf netaveiðar á djúpslóð hér fyrstur allra skipa.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.