Austri - 12.12.1996, Síða 13
Jólin 1996
AUSTRI
13
Jólasaga
Þorláksmessugjöfín
eftir Jón Guðmundsson
Þannig var að maður nokkur hafði
fyrir sið að gefa konu sinni handá-
burð á Þorláksmessu.
Alveg frá því að þau Köfðu ruglað
saman reitum sínum fyrir hartnær
fjörutíu og fimm árum hafði aldrei
brugðist að á Þorláksmessu, eftir að
þau höfðu borðað saman skötuna,
færði hann konu sinni lítinn pakka.
Og í hvert skipti þóttist konan
verða jafnundrandi og fólc alltaf utan
af pakkanum með jafnmikilli eftir-
væntingu.
Þakkaði hún manni sínum með
kossi, fór síðan og settist við snyrti-
borð sitt, bar svolítið af nýja handá-
burðinum á hendur sínar, kom svo
fram og leyfði manni sínum að finna
ilminn.
Lofaði hann yndisleika handa konu
sinnar og sagði að ekkert jafnaðist á
við fallegar konuhendur.
Hann sagði að um ókomna framtíð
myndi hann leggja sig allan fram um
að viðhalda fegurð þessara dásam-
legu handa.
Þannig var nú þessi litli leikur sem
markaði upphaf jólahátíðarinnar hjá
þessum samhentu hjónum.
En svo gerðist nokkuð mjög óvænt
daginn fyrir Þorláksmessu í fyrra. Þá
sem fyrr fer maðurinn í snyrtivöru-
búðina til að kaupa handáburðinn. En
þá bregður svo við að þar er allur
handáburður uppurinn. Ekki til svo
mikið sem eitt glas af ómerkilegasta
handáburði.
Kom það mjög flatt upp á manninn
sem árum saman hafði treyst þessari
verslun. Eigandinn var sá eini fyrir
utan hjónakomin sem vissi af Þor-
láksmessuleik þeirra. Hann var vanur
að hafa handáburðinn tilbúinn, inn-
pakkaðan, daginn fyrir Þorláksmessu.
Því gat maðurinn treyst. Þetta hafði
aldrei bmgðist. En nú brá svo við að
enginn pakki beið og ekki hafði einu
sinni verið hægt að verða við óskum
fastra viðskiptavina, slík eftirspum
eftir handáburði hafði heldur aldrei
þekkst.
Eigandinn sagði sér þætti þetta
mjög leiðinlegt. Sennilega hefðu
konur svona miklar áhyggjur af hönd-
um sínum vegna kuldakastsins er
gengið hefði yfir að undanfömu. En
svo em konur auðvitað orðnar svo
miklu meðvitaðri um hendur sínar en
áður. Eigandinn sagðist eigá nóg af
öðmm snyrtivörum sem eiginkonur
væm vitlausar í, t.d. margar yndisleg-
ar tegundir af bodílósjoni.
Maðurinn hugsaði sem svo að þótt
konu sinni hefði líkað þessi ákveðni
áburður alveg sérstaklega vel, gerði
nú kannski ekki svo mikið til þó hann
færði henni aðra tegund í þetta eina
skipti.
Síðan gekk maðurinn út úr verslun-
inni og bauð gleðileg jól. Vissi hann
um aðra snyrtivömverslun aðeins ofar
í götunni.
Manninum til mikillar furðu endur-
tók sagan sig. Handáburðurinn var
uppseldur. Stúlkan í versluninni sagði
að þetta væri ekkert eðlilegt. Allur
handáburður hefði rokið út. Það væri
rétt eins og eitthvert æði hefði mnnið
á kvenþjóðina. Stúlkan sagði það
reyndar gleðiefni hvað konur væm
orðnar miklu meðvitaðri um hendur
sínar. Þær þyrftu bara svo mikið á
höndunum að halda.
Maðurinn spurði hvort ekki leynd-
ist nú ekki svo sem ein krukka ein-
hvers staðar í búðinni, ja, til dæmis
úti í búðarglugga.
Nei, sagði stúlkan, en hún sagðist
eiga nóg af bodílósjoni. Margar mjög
fínar tegundir, t.d. eina franska
með........
Nei, þakka þér fyrir, handáburður
skal það vera, sagði maðurinn og ark-
aði nú búð úr búð, en hvergi fékkst
handáburður. Það eina sem eftir var í
apótekinu og nota mátti á hendur var
hvítt vaselín.
En vaselín gat hann ekki fært konu
sinni á Þorláksmessu. Hins vegar var
til nóg af bodílósjoni.
En handáburður skyldi það vera
eða ekki neitt, sagði maðurinn og
gekk dapur út úr búðinni.
Lokunartími verslana nálgaðist nú
óðum. Maðurinn var orðinn vemlega
áhyggjufullur og hljóp fullur örvænt-
ingar á milli allra þeirra verslana sem
einhver von var um að seldu handá-
burð. A þessari stundu skipti hann
engu máli hver tegundin væri, Atrix
eða Nivea myndu alveg duga.
En klukkan var nú orðin sex, versl-
anir lokuðu ein af annarri og eftir stóð
maðurinn tómhentur. Fór hann að
hugsa um konu sína. Hvað skyldi hún
segja á morgun, ef ekki tækist að út-
vega áburðinn og hvemig færi fyrir
höndum hennar?
Þar sem maðurinn stóð á gangstétt-
inni fór hann að hágráta. Hann grét
og grét. Hann grét eins og bam. Tárin
streymdu niður kinnar hans, niður
hálsinn og vættu föt hans þangað til
að hann var orðinn gegnvotur. Mað-
urinn, sem hafði ekki grátið í rúmlega
hálfa öld, var búinn að gleyma hvem-
ig það var. En það rifjaðist nú fljótt
upp fyrir honum og nú æddu fram
tárabirgðir hálfrar aldar. Maðurinn fór
auðvitað allur hjá sér hágrátandi í
miðri jólaösinni. En hvemig sem
hann reyndi varð táraflóðið ekki
stöðvað.
En þá gerðist kraftaverkið. Birtist
honum engill mikill og ófríður, en
kærleikurinn lýsti af honum.
Engillinn spurði hann hví hann
gréti.
Maðurinn sagði alla sólarsöguna.
Fyrst þú elskar hendur konu þinn-
ar svona heitt, mikil hlýtur ást þín að
vera á henni allri, sagði engillinn. En
guð hjálpar þeim er hjálpa sér sjálfir.
Rétti hann þá manninum skínandi
fallegt glas og sagði honum að fylla
það með támm sínum. Gerði maður-
inn það.
Á morgun skaltu síðan gefa konu
þinni glasið og mun hún ekki betri
gjöf hafa fengið, sagði engillinn.
Gjörði maðurinn hvað engillinn
hafði boðað.
Engillinn hafði rétt fyrir sér.
Konan varð yfir sig glöð og dá-
samaði áburðinn. Fékk hún svo
mjúkar hendur af að undmm þótti
sæta.
Spurði hún mann sinn oft hvar
hann hefði fengið þennan undraá-
burð.
En maðurinn sagði að Guð hefði
gefið sér hann.
Það fannst konunni dásamlegt svar,
því hver annar gæti búið til svona
meistaralegan handáburð?
Þessi jól urðu þeim hjónum svo
sannarlega gleðileg. En á næstu mán-
uðum heyrðist maðurinn oft tauta fyr-
ir munni sér:
„Kraftaverkin gera svo sannarlega
ekki boð á undan sér ... og Guði sé
lof fyrir að ég kunni enn að
gráta.. .annars hefði ég legið í’ðí.“
Gleirati^
íy ri r
öll
tækifairi
ZEISS
sjóngler
Það besta
fyrir
augun þín.
BIRTA
GLERAUGU
ÚR & KLUKKUR
SKART & GJAFAVARA
SÍMI471-2020 /471-1606
FAX 471-2021
LAGARÁS 8 - PÓSTHÓLF 96 -
700 EGILSSTAÐIR
Birta Einarsdóttir úrsmiður
Sævar Benediktsson sjóntækjafræðingur
Shell stöðvarnar á Austurlandi
Óska
9
viðskiptavinum sínum og landsmönnum ötlum
leðitegra jéta og fa rsœhta r á komandi ári.
Höfum fyrirliggjandi allt
til vetraraksturs:
-Vetrarmottur
- íseyði á rúðurnar
- ísvara í bensínið
- Rúðusköfur
- FJölþykktarolíur
- Frostlög
- BRITAX barnastóla
Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar
árið sem er að líða, viljum við minna á
að veturinn er genginn í garð.
Gott er heilum bíl heim að aka.
® SHELL stöðvarnar
Egilsstöðum - Seyðisfirði - Eskifirði
Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði