Austri - 12.12.1996, Síða 17
Jólin 1996
AUSTRI
17
Vilhjálmur Hjálmarsson
Ferðaslangur
Þegar allir voru búnir að fá nægju
sína af sól og sandi og söltum bárum -
reyndar er Svartahafið nærri ósalt
vegna mikils innstreymis ferskvatns -
var haldið upp á hótel og dormað fram
undir tvö. Var þá sest að snæðingi í sal
einum, miklum og glæstum. Gríðar-
stórt tré óx þar upp úr steinlögðu gólf-
inu og breiddi úr greinum sínum und-
ir hvelfdu lofti salarins. Nokkrar svöl-
ur flugu út og inn, milli þess sem þær
héldu skyndifundi í grænu limi trés-
ins.
Ær eða hrútar
Máltíðin tók sinn tíma, fimm eða
sex réttir að vanda. Þá var loks „búið
upp á“ því nú var förinni heitið út í
sveit til fundar við bændur og búalið,
að líta á kýr þeirra og kindur, akra og
önnur gróðurlönd. Og heimsækja
skóla og tilraunastöðvar landbúnaðar-
ins í næsta héraði.
Við ókum sem leið lá norður yfir
næsta háls, leiðin fögur og veðrið
dýrðlegt og vorum fyrr en varði kom-
in að héraðamörkum.
Ung hjón komu til móts við okkur
og heilsuðu með blómum. Þau tóku
síðan forystuna og við ókum áfram í
sólskininu með ræktarlönd á báðar
síður. A nokkrum stöðum gættu fjár-
hirðar hjarða sinna og beittu á gras-
ræmur í vegköntum, milli akurskáka
og annars staðar þar sem vítalaust
taldist. En þama er fénu stöðugt fylgt
um daga og það haft í haldi á nótt-
unni.
Eftir alllangan akstur komum við
að samyrkjubúi þar sem einkum var
lögð stund á sauðfjárrækt. Stórar
hjarðir af Merinófé höfðu verið reknar
heimundir - til skoðunar. Við náðum
að þukla einn hrút, kollóttan og ljótan,
en hörkuvænan. Ullin sem þessi fjár-
stofn gefur af sér er ekkert lítilræði.
Bestu ærnar kváðu skila átta kíló-
gramma reifi, enda er þá berklippt.
Það var við þetta tækifæri sem tvö-
falda túlkunarkerfið okkar þoldi ekki
álagið, brast hreinlega. Hér í landi eru
gerðir ostar úr sauðamjólk, sem fyrr
getur. Af því tilefni spurði Agúst og
benti á einn fjárhópinn:
Eru þetta nú mjólkurær?
Guðrún sneri spumingunni þegar á
þýsku og Amalía yfir á sitt móðurmál.
Og svarið kom um hæl, sömu boðleið:
Nei, þetta eru hrútar!
Eg sá í hendi að þetta stóðst ekki.
Svoddan hrútahjarðir vart á vetur sett-
ar hér fremur en heima. Auk þess
hafði ég veitt því athygli þegar hópur-
inn staðnæmdist þama rétt hjá okkur
að nokkrar af kindunum pissuðu und-
an rófu!
Islensku skórnir
Elskulegt fólk úr þorpinu var komið
á vettvang í sínum vinnuklæðum og
þá var bágt að geta ekki skipt orðum
við stéttarsystkini sín þama í sólskin-
inu, milliliðalaust. Allt í einu festi ég
augun á gömlum manni í miðjum
hópnum. Hann var lítill vexti og sýni-
lega eitthvað fatlaður því hann
stakk við, mér sýndist annar
fóturinn styttri en hinn. Og jafn-
skjótt rak mig í rogastans -
gamli maðurinn var á íslensk-
um leðurskóm. Þann fótabúnað
þekkti ég ungur og af eigin
raun! Og hér fór ekkert á milli
mála. Skógerðin var nákvæm-
lega eins og hjá okkur. Verping-
in var sú sama, hælþvengir
bundnir upp um ökklann eins
og við þekktum og ristar-
þvengimir nákvæmlega eins og
heima. Aðeins eitt lítið frávik.
Hér var ekki notað seglgarn í
tá- og hælsauma, eins og gert
var heima þegar ég var krakki, heldur
grannir þvengir. Má og ætla að svo
hafi einnig verið hér heima fyrr á tím-
um, því sums staðar hélst sá siður
fram á mína daga; það hef ég sann-
spurt. Eg vildi ekki spyrja út í skó-
bragð gamla mannsins, ef það kynni
að særa hann á einhvern hátt. En ég
segi það alveg satt, mér hlýnaði inn-
vortis við þessa sýn. Og ég fann til
skyldleika við þetta bændafólk þótt
fjarri byggi. Mér sárnaði við sjálfan
mig að ég skyldi ekki hafa rænu á að
kveðja með handabandi að góðum og
gömlum sið. Það gerði Agúst, en ég
var víst einhvern fjárann að klóra í
vasabókina - og varð of seinn.
Næst komum við í rannsókna- og
tilraunastöð fyrir kvikfjárrækt og
hvers konar jarðyrkju. Varaformaður
stjómar þessarar umfangsmiklu starf-
semi, geðþekkur maður og greinagóð-
ur í besta lagi, sagði frá starfinu, sýndi
myndir og skýrði fyrir okkur töflur og
línurit áður gengið var á vettvang. Af
upplýsingum hans mátti ráða að mjög
náin tengsli væm við búandfólkið sem
njóta skyldi ávaxtanna af tilraunastarf-
inu.
Farið í fjósið
Mikil vélvæðing var orðin í land-
búnaði Búlgara á síðustu ámm. Þó var
okkur sagt að enn vantaði áttatíu þús-
und traktora. Hesta- og asnakerrur
sáust víða á vegum og ökrum. Og
þrátt fyrir miklar framkvæmdir við
vatnsveitur og vökvun var enn margt
óunnið á því sviði. Möguleikar á
vatnsmiðlun frá Dóná og fleiri vatns-
föllum eru taldir mjög miklir og ár-
angur vökvunar óbrigðull því nægur
er hitinn.
Kvikfjárræktin var í brennidepli hjá
okkur þennan eftirmiðdag. Við kom-
um dálítið seint á kúabúið, en það sak-
aði ekki. Mjaltir vom byrjaðar og við
fengum að líta inn í fjósið. Þar vomm
við kynnt fyrir fjósameistara, kvik-
legri konu milli fimmtugs og sextugs
og kvað hafa starfað þama mjög lengi.
Allmargt fólk var að störfum í þessu
stóra fjósi. Agúst fór upp í básana og
skoðaði kusurnar kunnáttusamlega.
Eg stóð á tröðinni og hafðist ekki að.
Mig minnir Þráinn halda sig mest utan
dyra. - Upp á fjósalyktina, hugsaði ég.
Bjart sólskin í Búlgaríu.
(Ljósm. G.H.)
Sendutn znðsl&ptavinum Bestu
ósíqr umgCeðilegjóí og farsceít
(qmatuCi ár.
'ÞöCfqm samstarfá Ciðnuári.
ögfræðiþjónusta Austurlands
TSrf] Bjarni G. Björgvinsson hdl.
Bernhard Bogason lögfræðingur hdl.
Fagradalsbraut 11, Egilsstöðum
Sími 471-1131 Fax 471-2201
En hún var raunar engin, því hér var
mikil opingátt á alla vegu og vélknúið
færiband í flórnum eins og á Egils-
stöðum.
Fjósameistari fylgdi okkur út í
nautafjósið, en í því voru veggir að-
eins á þrjá vegu, önnur langhliðin al-
veg opin. Björgulegir þóttu okkur
bolakálfar nokkrir sem þar voru
bundnir á bása. Voru þeir bæði af
mjólkur- og holdakynjum og af ýms-
um afbrigðum. Einn bar þó af öll-
um hinum að vænleika, enda kom-
inn af göfugum nautaættum
frönskum. Var okkur tjáð að þyngd
hans væri rétt um 1200 kíló-
grömm. Hlutum við að viðurkenna
að slíkt og þvílíkt kjötforðabúr á
fjórum fótum hefðum við aldrei
fyrri augum litið. (Það er eins gott
að svona snuddar hafa aldrei kom-
ið til Islands, hugsaði ég með mér.
Jafnvel agnarögn af sæði frá svona
nautakjötsfjalli gæti haft ógnvæn-
leg áhrif á mörkuðum okkar).
Kvöldið var fagurt
Dagur var kominn að kvöldi.
Þetta síðdegi hafði hugsun okkar
verið bundin framleiðslu og af-
komu öðru fremur. Svo kom róm-
antíkin með kvöldinu. - Já, ferðin
til baka var í hæsta máta róman-
tísk. Bjart var í lofti. Og þegar sól-
sett var og húmið færðist yfir kom
fullur máni til skjalanna og brá
mildri birtu yfrr akra og skógarása.
Víða var fólk að koma af ökrunum,
fleiri eða færri saman. Veðrið var hlýtt
og kyrrt. Flestir voru fótgangandi og
við heyrðum glaðværa hlátra unga
fólksins og óm af röddum þess inn um
opna glugga bílsins. Sumir óku heim-
leiðis á asnakerrum og nokkrir höfðu
spennt hesta fyrir sína léttivagna. Þeir
virtust þó vera færri. Þetta var sérstök
upplifun - gamli tíminn sem ætlað var
að víkja fyrir 80 þúsund traktorum og
máski öðru eins af mótorhjólum og
bifreiðum.
Við nálguðumst borg eina sem ég
kann ekki lengur að nefna. Bannað
var að aka bifreiðum gegnum borgina
eftir sólsetur. Þetta var engin stórborg
en þó ærinn krókur að sveigja framhjá
henni.
Nú var ekki gott í efni. Við vorum
orðin sein fyrir svo bílstjórinn tók til
sinna ráða og hélt inn í borgina. Hann
varð að aka eftir aðalgötunni, en það
var einmitt hún sem breyttist í göngu-
götu á kvöldin. Þar var nú maður við
mann. Greinilegt var að fólkið þóttist
vera í sínum fulla rétti. Og það var
rétt! Menn viku treglega fyrir þessum
friðarspillum og sumir ógnuðu okkur
með handahreyfingum. Mér stóð
hreint ekki á sama. En bílstjórinn lét
sér hvergi bregða og þokaði bílnum
undur hægt og gætilega gegnum
mannhafið. Eg held nú samt að öllum
hafi létt þegar við vorum aftur komin
á „auðan sjó“.
Samræður okkar höfðu hljóðnað
meðan ekið var gegnum borgina og
nú færðist ró yfir mannskapinn. Sá ég
mér leik á borði að þylja nokkur órím-
uð ljóð atómskálda fyrir Guðrúnu
okkar sem nú botnaði hvorki upp né
niður í innréttingum þessa sveita-
manns.
Sendum starfsfólki og
viðskiptavinum innilegar
jóla- og nýárskveðjur..
Þökkum samstarfið
á árinu sem er að liða.
F ossgerðisbúið
X
RM*
Sendum öllum
iðskiptavinum okkar og
starfsfólki bestu óskir um gleÓileg
jól og farsæld á komandi ári.
vn
Kaupfélag Vopnfirðinga
Mjólkursamlag Vopnfirðinga
Sláturfélag Vopnfirðinga